Dagur - 14.05.1981, Blaðsíða 8
Akureyri, fimmtudagur 14. maí 1981
INNRITUN ER HAFIN
— í fornámsdeild
Myndlistaskólans
á Akureyri
Innritun í dagskóla eða öðru
nafni fornámsdeild Myndlista-
skólans á Akureyri er nú að
hefjast. Þurfa þeir sem ætla að
þreyta inntökupróf, sem verð-
ur í byrjun júní, að skila um-
sóknareyðublöðum fyrir 20.
maí og skulu fylgja 5 teikning-
ar eða annars konar sköpun-
arverk sem umsækjandi hefur
gert.
Sem kunnugt er jafngildir
fornámsdeildin fyrsta ári í
Myndlista- og handíðaskóla
íslands og að loknu eins árs
námi á Akureyri geta nem-
endur farið í þriggja ára sér-
námsdeildir skólans. Átta
nemendur voru í dagskólan-
um í vetur og þar af fara sjö í
Fyrir nokkru heimsóttu nemendur fornámsdeildar ásamt skólastjóra hinar ýmsu
skrifstofur bæjarins, þar sem verk listasafns bæjarins haga á veggjum. Myndin
sýnir hópinn vera að skoða málverk i bæjarstjórnarsalnum og var Haraldur
Sigurgeirsson innan handar. Mynd: H.Sv.
framhaldsnám næsta vetur.
Að sögn Helga Vilbergs
skólastjóra hefur námsárang-
ur verið mjög góður í vetur.
Sýning verður á verkum
þessara nemenda 23.-24. maí
og þá verða einnig kynntar
sérstaklega tvær námskeiðs-
deildir skólans, þ.e. grafík-
deild og quiltingdeild.
Sveit Páls Pálssonar
vann Minningarmótið
Síðasta lotan i Minningarmóti um
Halldór Helgason var spiluð s.l.
þriðjudagskvöld, 12. maí.
Þetta var sveitakeppni með þátt-
töku 14 sveita. Spilað var eftir
Bord-o-max fyrirkomulagi.
Sigurvegari nú varð sveit Páls
Pálssonar sem hlaut 211 stig. Auk
Páls eru í sveitinni Frímann
Frímannsson, Soffía Guðmunds-
dóttir, Ævar Karlesson, Grettir
Frímannsson og Ólafur Ágústsson.
Röð efstu sveita varð þessi: stig
1. Sv. Páls Pálssonar....... 211
2. sv. Magnúsar Aðalbjörnss. 204
3. sv. Alferðs Páíssonar.... 194
4. sv. Ferðaskrifstofu Ak. ... 193
5. sv. Gissurar Jónassonar .. 182
6. sv. Stefáns Ragnarssonar . 166
7. sv. Jóns Stefánssonar .... 165
8. sv. Stefáns Vilhjálmss. ... 163
Meðalárangur er 156 stig.
Þetta var síðasta keppni hjá
Bridgefélagi Akureyrar á þessu
starfsári, en opið hús verður að
Félagsborg 19. maí. Keppnisstjóri
Nýtt kaffi
í síðustu viku hóf Kaffibrennsla
Akureyrar framleiðslu á nýrri
tegund af kaffi. Það er að mestu
leyti gert úr baunum frá Colum-
bíu, sem er blandað saman við
baunir frá Brasilíu. Úr þessum
baunum fæst kaffi, sem hefur
verið að ryðja sér rúms á er-
lendum mörkuðum t.d. á Norð-
uriöndunum. Þetta nýja Col-
umbía kaffi er þriðja tegundin
sem framleidd er hjá Kaffi-
brennslu Akureyrar, en fyrir-
tækið framleiðir einnig Braga
kaffi og Santos kaffi.
Þröstur Sigurðsson, fram-
. kvæmdastjóri sagði að af nýja
kaffinu væri annar keimur og lykt
en fólk ætti að venjast. Miðað við
þær viðtökur, sem kaffið hefur nú
þegar hlotið, og þær vinsældir sem
það býr við erlendis, sagði Þröstur
að varla væri ástæða til annars en
að ætla að nýja kaffið yrði vinsælt
hér á landi.
Könnun á atvinnu á Akureyri:
Meiri þátttaka nauösynleg
Sl. mánudag rann út frestur sem
atvinnurekendur á Akureyri
fengu til að skila svörum í
könnun þeirri, sem verið er að
gera í atvinnumálum á Akureyri.
Samkvæmt upplýsingum hjá
Hauki Sigurðssyni, starfsmanni
Akureyrarbæjar, höfðu í gær
borist svör frá u.þ.b. 70 atvinnu-
rekendum, en spurningar voru
sendar til tæplega 270 atvinnu-
rekenda.
Markmiðið með þessari könnun
er að fá glögga mynd af þróun at-
vinnu í bænum og safna sem best-
um upplýsingum um atvinnu-
ástandið eins og það er í dag. Ef
atvinnurekendur reynast samstarfs-
fúsir, og ef þeir sem það eiga eftir
fylla út nú þegar spurningalistann,
sem þeir fengu í hendur, mun það
auðvelda ákvarðanatöku varðandi
stefnumótun í atvinnuuppbygg-
ingu í bænum. Það gefur auga leið
að meirhluti atvinnurekenda verð-
ur að taka þátt í könnuninni ef hún
á að vera marktæk.
„Við erum búnir að fá svör frá
stærstu aðilunum í bænum og að
sjálfsögðu erum við komnir með
vissa mynd nú þegar. Hins vegar
skipta smærri atvinnurekendur
ekki síður máli og því leggjum ríka
áherslu á að þeir skili nú þegar sín-
um svörum," sagði Haukur Sig-
urðsson þegar DAGUR ræddi við
hann í gær.
hjá BA var eins og undanfarin ár
Albert Sigurðsson og stjórnaði
hann öllum keppnum félagsins og
er óhætt að segja að þar sé réttur
maður á réttum stað.
Sveitir Páls Pálssonar og Stefáns
Ragnarssonar munu spila á Norð-
urlandsmótinu í bridge sem verður
í Varmahlíð í Skagafirði 5.-8. júní.
Þar spila 10 sveitir víðsvegar að af
Norðurlandi. Núverandi Norður-
landsmeistari er sveit Páls Pálsson-
ar frá Akureyri. Einnig munu
sveitir frá Akureyri spila í Bikar-
keppni Bridgesambands Islands í
sumar.
BAKKUS
VIÐ STÝRIÐ
Um helgina voru tveir ökumenn
teknir fyrir meinta ölvun við
akstur. Nokkur ölvun var á Ak-
ureyri um helgina og voru
nokkrir handteknir.
Tveir ökumenn voru teknir fyrir
of hraðan akstur á Hörgárbraut s.l.
sunnudag. Annar ökumaðurinn
var á mótorhjóli og mældist hraði
þess 84 km/klst, en hinn ökumað-
urinn, sem ók fólksbíl, reyndist
vera á 67 km/klst. Þessir ökumenn
verða báðir kærðir, en hámarks-
hraði á þessum kafla er 50 km/klst.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni sleppa ökumenn yfirleitt
með áminningu sé hraði þeirra
milli 50 og 60 km/klst og
hámarkshraði á viðkomandi vegi sé
50 km/klst.
Tónleikar hljómsveit-
ar Tónlistarskólans
Hljómsveit Tónlistarskólans og
strengjasveit halda vortónleika í
Akúreyrarkirkju, sunnudaginn
17. maí og hefjast tónleikarnir
kl. 17.
Efnisskráin er mjög fjölbreytt og
hefst með flutningi á hinni þekktu
H-moll svítu eftir Bach, en einleik-
ari i því verki er Jonathan Bager
flautukennari við skólann. Adagio
fyrir strengi eftir bandaríska
tónskáldið Samuel Barber verður
flutt og einnig 5. sinfónían eftir
Franz Schubert.
Strengjasveit skipuð yngri nem-
endum mun leika nokkur lög, en
yfir 40 nemendur koma fram á
tónleikunum. Stjórnandi hljóm-
sveitar er Michael Clarke, og er
aðgangur ókeypis.
VIÐ ERUM FLUTTIR!
Um helgina verða skrifstofur
Dags fluttar frá Tryggvabraut
12 að Hafnarstræti 90, á fornar
slóðir, því þar var Dagur til húsa
um langt skeið. Síðar á árinu
verða skrifstofurnar síðan flutt-
ar að Strandgötu 31.
Frá og með næsta mánudegi
breytast einnig símanúmer blaðsins
lítillega, þ.e. annar ritstjórnarsím-
inn breytist úr 23207 í 21180. Hinn
ritstjórnarsíminn verður eftir sem
áður 24166 og auglýsinga- og
áskriftarsíminn verður áfram
24167.
Skrifstofur Dags verða lokaðar á
föstudag og svo verður einnig um
Skrifstofur Dags eru nú fluttar að Hafnarstræti 90 til bráðabirgða. Mynd: á.þ. símana vegna flutninga.
o
>T h\T? crp fffl ] 1T
llli íiiu [1J iSi -li
% Forvitnilega
illa gerður
þáttur
Á þriðjudagskvöldið var þátt-
ur í sjónvarpinu um neyt-
endamál-forvitnilegt efni.
Þátturinn var hins vegar því
miður ekki forvitnllegur nema
fyrir það eitt hversu frámuna-
iega flla hann var gerður í alla
staði. Þessi þáttur var skóla-
bókardæmi um það, hvernig
ekki á og raunar ekki má gera
slíka hluti. Efnistök voru á
þann veg að vaðið var úr einu
í annað. Með örfáum undan-
tekningum voru viðmælend-
ur valdir eftir því hvar þeir
standa í pólitík almennt eða
neytendapólitík. Þarna voru
samherjar þáttagerðar-
mannsins úr ungliðahreyf-
ingum Sjálfstæðisflokksins
og fuiltrúar þeirra sem viðrað
hafa hvað íhaldsömustu
skoðanir i neytendamálum í
fjölmiðlum undanfarið. Einu
mennirnir sem eitthvað lögðu
tll málanna af viti voru við-
skiptaráðherra, sem var full-
trúi vondu stjórnvaldanna í
þættinum, og borgardómar-
inn.
• Leiftursókn
Að öðru ieyti var allt við það
miðað að sýna fram á kosti
einkaframtaksins og sam-
keppninnar, og vel að merkja
— framleiðendur og neyt-
endur hafa nákvæmlega
sömu hagsmuni og eru nán-
ast samherjar í frumskógi
hins alfrjálsa hagkerfís. Um
erfiðlelkana á að fá gallaða
vöru endurgreidda var ekki
minnst, nema varðandi
sementið fræga, enda fram-
leitt af ríkisverksmiðju í eín-
okuraraðstöðu. Innlendir
framleiðendur iðnvara halda
niðri verði á innfluttum vörum
og helst var að heyra að það
væri með þvi versta sem
hægt væri að gerá neytend-
um. Þátturtnn var tómt rugl
og vonandi að leiftursókn
íhaldsins í neytendamálun-
um hafi lokið með þessum
þætti.
# Tilræðið
við páfa
Þau óhugnanlegu tíðindi
bárust landsmönnum í gær
að páfa hefði verið sýnt
banatilræði. Samkvæmt síð-
ustu fréttum er þessi trúar-
leiðtogi milljóna manna á
batavegi. Sú alda morða og
banatilræða, sem tröllríður
heiminum, er í einu orði sagt
hræðileg. Smáhópar sál-
sjúkra glæpamanna telja nær
allt veVa sér til framdráttar og
starfa samkvæmt því. Sem
betur fer tókst ekki að myrða
páfann, en úr því að hann
varð fórnarlamb er með öllu
ómögulegt að spá neinu um
framtíðina hvað ofbeldisverk
varðar.