Dagur - 14.05.1981, Qupperneq 4
DAGUM.
Útgefandi: ÚTGAFUFÉLAG DAGS
Skrifstofur: Tryggvabraut 12, Akureyri
Ritstjórnarsimar: 24166 og 23207
Sfmi auglýsinga og afgreiðslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaðamaður: ÁSKELL ÞÓRISSON
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Bylting í
byggðaþróun
Á síðasta áratug hefur orðið gjörbylt-
ing í mannfjöldaþróun hér á landi. Á
tíu ára tímabili frá 1971-1980
stöðvaðist fólksflóttinn af lands-
byggðinni til Reykjavíkur. Á þessu
tímabili hafa allir landshlutar vaxið,
þó í mismunandi máli hafi verið. Þetta
kemur fram í nýútkominni ársskýrslu
Framkvæmdastofnunar ríkisins, þar
sem m.a. er fjallað um framvindu
byggðamála.
Fyrir framsóknarmenn er þessi
þróun ekki síst gleðileg, þar sem þeir
höfðu frumkvæðið að þeirri byggða-
stefnu sem framkvæmd hefur verið
undir forystu Framsóknarflokksins á
liðnum áratug. Á síðustu árum hafa
allir stjórnmálaflokkar gengist inn á
þessa stefnu Framsóknarflokksins,
að meira eða minna leyti, að minnsta
kosti í orði. Ættu því flestir lands-
menn að geta fagnað þessari miklu
byggðaþróunarbyltingu.
Á hinn bóginn er á það að líta, að
landsbyggðin á og mun ávallt eiga í
vök að verjast gagnvart þéttbýlis-
svæðinu á suðvesturhorni landsins.
Algjörum jöfnuði í aðstöðu verður víst
seint komið á, einkum vegna þeirrar
miklu þjónustu sem veitt er í höfuð-
borg tandsins í tengslum við opinber-
ar stofnanir sem þar eru staðsettar.
Því er nauðsynlegt að landsmenn allir
haldi vöku sinni í þessum efnum og
skapi mótvægi gegn byggðaröskun á
landsbyggðinni. Það verður helst gert
með öflugum atvinnurekstri. T.d. er
nokkuð Ijóst, að ef ekki verður að gert
í atvinnumálum á Norðurlandi eystra
mjög fIjótlega, skapast þar vandamál,
sem raunar eru þegar fyrir hendi.
Orkumál og
landsbyggðin
Þegar rætt er um byggða- og atvinnu-
mál á landsbyggðinni hljóta orkumál-
in að blandast inn í þá umræðu, því
orka mun í æ ríkara mæli verða for-
senda öflugrar atvinnustarfsemi.
Orku- og iðnaðarmálin eru mjög í
deiglunni einmitt um þessar mundir
og nýlega hefur verið lagt fram frum-
varp í bókarformi um þau mál á Al-
þingi. Þar er fjallað um virkjanir
næstu 10-15 árin og meðalstór orku-
frek iðnfyrirtæki, s.s. pappírsverk-
smiðju, steinullarverksmiðju, kísil-
málmverksmiðju og olíuhreinsunar-
stöð. Allt er í lausu lofti um staðsetn-
ingu, nema hvað kísilmálmverk-
smiðjuna skal vera hagkvæmast að
reisa á Reyðarfirði og síðan væntan-
lega olíuhreinsunarstöð á sama stað í
kjölfaríð. Og þetta verður að sjálf-
sögðu ekki gert nema virkja fyrst í
Fljótsdal, þrátt fyrir það að Blöndu-
virkjun sé talin 20% hagkvæmari.
Ástæða er til að krefjast þess, að
spilin verði lögð á borðið og ráð-
herranefnd ætti að fjalla um svo viða-
mikil mál, sem þarna eru á ferðinni,
en ekki einn maður.
T-DEILD FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSSINS Á AKUREYRI:
ÞAR FÁ SJÚKUNGARNIR
EKKIAÐ SETJAST UPP í RÚM
OG BfDA EFTIR BATANUM
Jóhann Konráðsson (t.v.) og Brynjólfur Ingvarsson.
1 v.
" s, xtr.*’: í
. m, JPs « M.
4 i* *f'ji
i
j r
Á „Litla-Kleppl“. Mynd: á.þ.
Stefnan sú að leggja
MLitla-Klepp“ niður
Eins og kunnugt er skiptist starf-
semi Fjórðungssjúkrahússins á Ak-
ureyri f marga þætti. Meðferð sjúkl.
fer fram á ýmsum deildum eftir eðli
sjúkdómanna. Ein af deildum
sjúkrahússins er T-deild, sem sinnir
sérstaklega öllum þeim á Norður-
landi eystra sem eiga við að etja
vissar tegundir geðsjúkdóma eða
geðkvilla og hafa ekki fengið við-
hlýtandi læknisþjónustu annars-
staðar i fjórðungnum. Má nefna
sjúklinga með sturlun, taugaveikl-
un eða drykkjusýki svo að nokkur
dæmi séu nefnd.
T-deild hóf starfsemi sína 1.
marz ’74. Hún var fyrsta árið til
húsa að Álfabyggð 13, en síðan
Skólastíg 7, sem Fjórðungssjúkra-
húsið er nú búið að kaupa. Skóla-
stígur 7 er hentugt húsnæði fyrir
þessa starfsemi að mörgu leyti, en
verður fljótlega of lítið, þegar
næstu þróunaráfangar sjá dagsins
ljós. Margt hefur áunnist í 7 ára
sögu deildarinnar og málefni geð-
sjúkra þokast í rétta átt hægt og
hægt þótt nokkuð vanti enn á að
þeir njóti jafnréttis á við aðra
sjúklinga.
Deildin getur hýst 7 sjúklinga í einu.
Auk þess er hugsað fyrir þörfum
dagsjúklinga sem geta verið mis-
margir, þó aldrei fleiri en 5 alls, ef
hin plássin eru fullsetin. Enn má
nefna eftirmeðferð og göngudeild,
sem þjóna ótilteknum fjölda, enda
er þar lang oftast um að ræða eitt
viðtal í viku eða sjaldnar. Að öllu
samanlögðu eru það um 150 til 250
manns á ári, sem notfæra sér þjón-
ustu T-deildar að meira eða minna
leyti.
Á T-deild vinna nú rúmlega 10
manns. Sumir eru í hlutastarfi,
stöðugildi eru alls 8. Á deildinni
vinnur einn geðlæknir, einn
geðhjúkrunarfræðingur, einn
félagsráðgjafi í Vi starfi, einn
kennari í Vi starfi, sjúkraliðar, einn
geðsjúkraliði, einn uppeldisfræð-
ingur auk annarra.
T-deild er ætlað það hlutverk að
sjá um meðferð á veikum eða illa
höldnum einstaklingum með bráða
geðlæga sjúkdóma hvenær sem
þess er óskað. Það hefur tekist mjög
vel að skilgreina þetta hlutverk og
gera það Ijóst, og þess vegna m.a.
hefur aldrei myndast biðlisti svo
heitið geti. Öllum hjálparbeiðnum
er sinnt jafnóðum og þær berast, en
þá er líka rétt að geta þess að veik-
ustu sjúklingarnir, þeir sem eru
óðir eða örvita vegna sturlunar og
þurfa meðferð á lokuðum geð-
deildum meðan veikindi þeirra eru
í hámarki, eru sendir á spítala í
Reykjavík, en koma yfirleitt hingað
á T-deild í framhaldsmeðferð eftir
að þeir eru komnir það vel til
sjálfra sín að geta verið á opinni
geðdeild.
Heimilislæknar, héraðslæknar
og sjúkrahússlæknar biðja yfirleitt
um meðferð fyrir veikustu
sjúklingana, hinir sjúklingarnir
biðja oft um aðstoð sjálfir eða
koma sér á framfæri fyrir tilstilli
aðstandenda sinna, eða t.d.
Félagsmálastofnunar Akureyrar
þegar aðstandendur vilja ekki eða
geta ekki blandað sér í málin.
Meðferðarstarf deildarinnar bygg-
ist á samtölum, ráðleggingum, for-
tölum, þjálfun, vinnu og geðlyfj-
um. Reynt er að ráða ráðum sam-
eiginlega og á jafnréttisgrundvelli
án þess að missa sjónar af gildi sér-
þekkingar. Hvenær sem færi gefst
er leitast við að undirstrika sjálfs-
ábyrgð sjúklinganna. Þeir fá t.d.
„Litli Kleppur“ sem svo hefur verið
nefndur heyrir undir T-deild, en
fyrst var farið að vista geðsjúka í
honum árið 1946. Nú dvelja þar 6
sjúklingar. Það er yfirlýst stefna
sjúkrahússstjórnar að taka ekki inn
fleiri sjúklinga á Litla Klcpp og
leggja á staðinn niður í náinni
framtíð, en á þessu stigi málsins
treysta forráðamenn deildarinnar
ekki til að segja um hvenær það gæti
orðið. Litlar líkur eru á að sams-
konar sjúklingar eigi eftir að sjá
dagsins Ijós og eru nú á Litla
Kleppi. Ástæðan er sú að skömmu
eftir 1950 gjörbreyttist meðferð
geðsjúkra með nýjum lyfjum.
því er ekki að leyna að Litli
Kleppur hefur legið undir gagnrýni
frá ýmsum bæjarbúum, sem hafa
m.a. sagt að sjúklingum væri of lítið
hjálpað til aukins þroska með
þroskandi verkefnum — samanber
álit hjúkrunarfræðinga, sem birtist
I bréfi frá þeim til sjúkrahúss-
stjórnar á sínum tíma. Það kom
fram í máli Jóhanns Konráðssonar,
gæslumanns, þegar blaðamenn
sóttu hann heim í Klepp á dögun-
um að fæstir þeirra, sem væru þar
nú ættu möguleika á að ná andleg-
um bata og því miður væri fátt-
hægt að gera annað en að sjá svo
um að sjúklingunum liði vel — þ.e.
fengju I sig og á. Jóhann bætti því
við að stofnun þessi hefði á sínum
tíma bætt úr brýnni þröf og að nýj-
ar lækningaaðferðir kæmu sem
betur fer í veg fyrir fleiri stofnanir
eins og Litla Klepp.
Hvernig svo sem á því stendur þá
var ungur maður sendur á Litla
Klepp fyrir fáum árum, þrátt fyrir
yfirlýsta stefnu ráðamanna F.S.A.
Þeir hafa nú í mörg misseri gert til-
raunir til að senda umræddan
sjúkling suður á nýjan leik, en þær
tilraunir hafa ekki borið árangur.
Þess má geta að daggjöld eru lægst
á Litla Kleppi yfir landið allt —
nánar tiltekið 185 krónur á degi
hverjum, sem er 18 til 19% af
venjulegum daggjöldum. Það er
ekki að leggjast upp í rúm og bíða
eftir batanum, eða sitja í aðgerðar-
leysi og bíða eftir að geðlyf geri
kraftaverk. Afturbati getur orðið
heilmikil úrvinnsla og vinna fyrir
sjúklinginn, og hér er það sem
iðjuþjálfun kemur inn í myndina.
Henni er ætlað það að hvetja og
örfa sjúkl. til að velja sér viðfangs-
efni, takast á við það á degi hverj-
um, einbeita huganum og þjálfa
höndina, og þegar best lætur að
efla sköpunargleðina. Allt þetta
samanlegt gefur margháttaða
möguleika á hagnýtri geðvernd sem
er ein af megin undirstöðum geð-
lækninga.
Sl. haust söfnuðu Kiwanismenn
fé, en hluti þess rann til T-deildar-
innar og á sínum tíma var ákveðið
að verja peningum til að setja á
laggimar iðjuþjálfun sem vantaði
tilfinnanlega. Gjöf Kiwanismanna
var höfðingleg, en hrökk ekki til að
fjármagna allt verkið, enda fullur
skilningur á því hjá sjúkrahússtjórn
að leggja fram fé á móti gjöfinni
svo dæmið gengi upp.
ótvíræður „sparnaður“ að vista
fólk á Litla Kleppi í stað þess að
koma þeim fyrir á dýrari deildum I
Reykjavík.
En þrátt fyrir að sjúklingamir
eigi sér litlar batavonir má ekki
skilja það sem stendur hér að
framan að þeir fái litla sem enga
meðferð. Hins vegar er ljóst að fólk
á svipuðu andlegu stigi á Kleppi í
Reykjavík fær mun meiri aðhlynn-
ingu — iðjuþjálfun og jafnvel
ferðalög til útlanda svo eitthvað sé
nefnt. Það kom fram í máli Brynj-
ólfs Ingvarssonar, geðlæknis, að
fjármagnsskortur hefði oft á tíðum
sett ráðamönnum F.S.A. stólinn
fyrir dyrnar hvað varðar aukna
umönnun umræddra sjúkljnga.
Það er ekki hægt að segja að Litli
Kleppur sé aðlaðandi stofnun,
enda er húsnæðið gamalt og svarar
hvergi kröfum sem gerðar eru til
samskonar húsnæðis í dag hvorki
hvað varða aðstöðu fyrir .starfsfólk
eða sjúklinga.
4.DAGUR
Náttúrulækningafélagið:
Starfsemin kynnt
á sunnudaginn
Náttúrulækningafélagið á Akur-
eyri hefur á síðustu 2 árum unnið
að byggingu fyrsta áfanga heilsu-
hælis á Norðurlandi. Kjallari
þessa áfanga sem er um 600 fer-
metrar er nær fullbyggður. Út-
lagður kostnaður er nú 120
milljónir gkr. þar með talin öll
verkfræðiþjónusta, ásamt teikn-
ingum að allri byggingunni en
fullbyggt er hælið rúmir 2000
fermetrar. Fjármagns til þess áf-
anga hefur verið aflað með eigin
fjármögnun, gjöfum, happdrætti
og fleiri leiðum, auk vinnu
félagsfólksins sjálfs, sem öll er
unnin endurgjaldslaust, nema
fyrir ánæguna af að sjá viðfangs-
efnið verða að veruleika. Sunnu-
daginn 17. maí efnir félagið til
kynningar á starfsemi sinni að
Hótel KEA, er hefst kl. 15 síð-
degis. Þar mun yfirlæknir heilsu-
hælisins í Hveragerði, ísak Hall-
grímsson, flytja erindi, teikningar
verða til sýnis og einnig hollvörur
frá verslun í bænum. Þar getur að
líta hlaðborð með gómsætum
kökum, kaffi og te. Við væntjum
þess að sem flestir leggi leið sína
til okkar á sunnudaginn kemur
bæði til að styrkja þarft málefni
og um leið til að verða nokkru
fróðari um starfsemi Náttúr-
lækningafélaganna í landinu.
MINNING
Guðrún Magnúsdóttir
F. 27. 03. 1901. -D. 01.04. 1981.
„ Við sjáum hvar sumar rennur
með sólyfir dauðans haf. “
Þessar hendingar voru skýrar í
huga mér og minntu á sig aftur og
aftur þegar Guðrúnu Magnúsdótt-
ur var fylgt í hinsta áfangastað.
Það var á heiðum degi. Sólin
brosti við, dýrðarfögur og verm-
andi, og vorið fór að með unað sinn
og auðlegð. — Sumarið var í nánd.
Aldurhnigin kona, þrotin að
þreki eftir erfitt dagsverk og marg-
víslega æfiraun hafði hlotið líkn,
hvíldar lausn úr jarðlífsfjötrum og
var horfin um þær Fögrudyr, sem
skilja að tíma og eilífð — gengin til
til þess fagnaðar, sem þeim er trúir
reynast hefur verið gefið fyrirheit
um.
Örðug reynist hún mörgum
gangan frá langa frjádegi til páska-
morguns og fékk Guðrún að prófa
það. En hún brást eigi né bugaðist,
þótt þungt væri oft fyrir fæti og
þyrna yrði vart á vegi. Hún átti
þrek og viljastyrk, einnig örugga
trú á guð og sigur hins góða og lét
ekki bugast. Hún miðlaði öðrum af
því bezta, sem í brjósti hennar bjó
— brjósti, sem átti nóg rúm fyrir
hinn stóra ættgarð og fjölda vina.
Á kveðjustundu fylgdu henni að
„helgri strönd“ birta og hlýja frá
hugum þeirra, sem hún unni og
lagði sig fram um að lifa fyrir,
hugum, sem voru henni tengdir í
traustri þökk.
Magðalena Guðrún Magnús-
dóttir, en svo hét hún fullu nafni,
var fædd að Stóra-Eyrarlandi á
Akureyri hinn 27. marz árið 1901
og var því rétt orðin áttræð þegar
andlát hennar bar að, þann 1. apríl
s.l.
Foreldrar hennar voru hjónin
Magnús Björnsson og María Frið-
finnsdóttir og ólst hún upp hjá
þeim, ásamt bræðrum sínum, Birni
og Óla.
Hollt mun uppeldið hafa verið
og vegamestið úr foreldrahúsum
þeirrar gerðar, að vel reyndist á
langri og tíðum torsóttri æfileið.
Vinna og aftur vinna, sjálfsafneitun
og þrautseigja var lögmál á þeirri
tíð, og ung mun Guðrúh hafa verið,
er hún reyndist vel vinnandi,
skyldurækin og óhlífisöm við sjálfa
sig. Snyrtimennska og hirðusemi
voru einnig ríkar eigindir í fari
hennar.
Ung að árum, eða árið 1922,
þann 13. apríl gekk Guðrún að eiga
Hermann Jakobsson frá Húsa-
bakka í Aðaldal. Beið þeirra mikið
hlutverk og ærið starf, því að á
þeim árum voru engir sjóðir trygg-
inga til stuðnings. Menn urðu að
bjargast af eigin rammleik eða bíða
lægri hlut ella.
En þau Guðrún og Hermann
lágu ekki á liði sínu. Þau kostuðu
sér öllum til að fá staðist. En sorgin
gleymir engum og hún sótti þau
heim hvað eftir annað. Þrjú börn
þeirra dóu í frumbernsku og einn
sonur lézt í blóma aldurs. Mun sú
reynsla hafa verið sár og djúpstæð.
En fimm systkini lifa móður sína
og fylgdu henni á kveðjustund. Þau
eru: María gift Eyjólfi Þórarins-
syni, búsett í Keflavík, Hilmar
Eyberg kvæntur Ólöfu Jónsdóttur,
býr einnig í Keflavík. En á Akur-
eyri eiga heima Sverrir, kvæntur
(Framhald á bls. 6).
ryrsia
deildin hefst
á laugardag
Á laugardaginn kl. 14.00
verður fyrsti leikurinn á Ak-
ureyri í fyrstu deild á þessu
keppnistímabiii. Knattsyrnu-
áhugamenn fá nú aftur að sjá
knattspyrnu eins og hún ger-
ist best hérlendis, en Akur-
eyrarliðin léku bæði í annarri
deild í fyrra.
Fyrsti leikurinn hér á Akur-
eyri verður á milli KA og Akra-
ness, og verður það að teljast
toppleikur, því Skagamenn
draga yfirleitt að sér fleiri
áhorfendur en flest önnur lið.
Það skyggir hins vegar mikið á
stemninguna að leikið verður á
Sanavellinum, þar sem gras-
völlur Akureyringa verður ekki
kominn í keppnisfært ástand
fyrr en í næsta mánuði.
Ekki er mikið vitað um
hvernig lið Akurnesinga er nú,
en nokkrir nýir leikmenn leika
nú með liðinu, og nokkrir hafa
hætt. Þeir náðu góðum árangri í
litlu bikarkeppninni, en virðast
annars hafa leikið frekar fáa
'æfingarleiki. Sigurður Lárusson
sem áður gerði garðinn frægan
hjá Þór leikur með Skaga-
mönnum, og er hann klettur í
vörninni og einnig mjög hættu-
legur í sókninni, sérstaklega í
hornspyrnum og slíku. Þá leikur
einnig Húsvíkingurinn Kristján
Olgeirsson, og sennilega bróðir
hans skíðamaðurinn Björn OI-
geirsson en þeir eru báðir mjög
sterkir leikmenn. K^ý stefnir
fram sínu sterkasta liði, en þar
hefur liðsheildin verið nokkuð
hin sama nú um nokkur ár.
Nokkrir nýir leikmenn hafa þó
komist í hópinn, og þar verða
menn að standa sig vel í leikjum
ef þeir ætla að fá að leika með
liðinu. Eins og áður segir hefst
leikurinn kl. 14.00 á laugardag-
inn, og það eru vinsamleg til-
mæli stjórnar knattspyrnu-
deildar KA að fólk greiði að-
gang að leiknum skilvíslega, þar
er aðgangseyrir er aðal tekju-
lind deildarinnar.
Á sama tíma sama dag leika í
Vestmannaeyjum Þór og
Vestmanneyingar og er það
fyrsti leikur Þórsara í fyrstu
deild í nokkur ár. Þeir hafa
átt ágæta leiki í vor og er lið
þeirra örugglega sterkara en
það hefur verið undanfarin
vor.
í þeirra liði eru nokkrir nýir
leikmenn, en aðal kjarninn ef
leikmenn sem hafa leikið með
félaginu upp í gegn um alla
flokka þess. Lið Þórs er yngra
en lið KA, og flestir leikmenn
þar að leiðandi reynsluminni í
hörkukeppni fyrstu deildar, en
„rauðu ljónin“ munu berjast
eins og hetjur allt til yfir líkur.
Spá iþróttasiðunnar er sú að Þór
vinni í Vestmannaeyjum með
einu marki gegn engu, og að
KA vinni Skagann með þremur
mörkum gegn einu. Næstu
leikir þessara aðila eru síðan á
fimmtudag en þá fer KA til
Reykjavíkur og leikur við KR,
og um helgina leikur Þór við
Breiðablik.
Þeir Stefán Arnaldsson og Ólafur Haraldsson eru Akureyringar sem bjuggu f
Reykjavík í vetur. Þeir eru m.a. handknattleiksdómarar og dæmdu mikið í
vetur. Þeir þóttu standa sig vel og voru sendir sem fuiltrúar fslands á ung-
lingameistaramót Norðurlanda sem lialdið var i Noregi fyrir skömmu. Þar
dæmdu þeir marga leiki og var góður rómur gerður að dómgæslu þeirra.
Mynd: Ó.Á.
Kristinn þrefaldur
Akureyrarmeistari
Akureyrarmót í badminton Tvíliðaleikur:
var haldið í íþróttahúsi
Glerárskólans 9. og 10. maí
1981. Keppendur voru alls 37.
Úrslitaleikum lauk sem hér
segir:
Einllðaleikur:
Drengjaflokkur:
Héðinn Gunnarsson vann Haf-
þór Heimisson 11:7 og 11:8
Kvennaflokkur:
Sólrún Ingimarsdóttir vann
M argréti Eyfells 11:3 og 11:2
B flokkur karla:
Teitur Jónsson vann Einar J.
Kristjánsson 15:9 og 15:3
A flokkur karla:
Kristinn Jónsson vann Kára
Árnason 15:4 og 15:11.
UMSJÓN:
Ólafur Ásgeirsson
Kristján G. Arngrímsson
Drengjaflokkur:
Héðinn Gunnarsson og Jón
Pétursson unnu Hafþór Heim-
isson og Óskar Einarsson 15:4
og 15:12.
Kvennaflokkur:
Elín Anna Kroyer og Valgerður
Valdimarsdóttir unnu Jakobínu
Reynisdóttur og Elínu Sigur-
jónsdóttur 17:18, 15:7 og 15:7'
Karlaflokkur:
A og B flokkur saman, Kristinn
Jónsson og Kári Árnason unnu
Björn Baldursson og Erling Að-
alsteinsson 15:2 og 15:6.
Tvenndarkeppni:
Kristinn Jónsson og Jakobína
Reynisdóttir unnu Hauk Jó-
hannsson og Sólrúnu Ingimars-
dóttur 15:8 og 15:10.
Badmintontímar á vegum
TBA verða í sumar i íþróttahúsi
Glerárskólans. Upplýsingar í
síma 22473 (Haukur) og 24782
(Teitur).
Hvað segja fyrirliðarnir?
„Þetta verður erfitt, og hefst
ekki nema allir taki á því sem
þeir eiga, sagði Elmar Geirs-
son fyrirliði KA.
„Það þýðir ekki að vera
svartsýnn, ég trúi því að við
munum halda okkur í deildinni.
Keppnin verður jöfn, það geta
allir unnið alla og það er ill-
mögulegt að vera með spár.“
Nú eigið þið leik við Akur-
nesinga á laugardaginn.
„Já, það getur orðið erfitt. En
ég spái okkur sigri, 1-0.“
„Ég er mjög bjartsýnn á að
við munum standa okkur vel í
deildinni i sumar, sagði Árni
Stefánsson, fyrirliði Þórs.
„Við setjum það á oddinn að
halda deildarsætinu, og ég er í
litlum vafa um að það takist.
Nú, það getur allt gerst í fót-
bolta, þó reikna ég með þvi að
það verði Valur Í.A. og Víking-
ur sem verði á toppnum.
En hvað um leikinn við Vest-
mannaeyinga á laugardaginn?
1-1,“ sagði Árni Stefánsson.
DAGUR.5