Dagur - 11.06.1981, Page 4

Dagur - 11.06.1981, Page 4
Nauðungaruppboð sem auglýst var í 17., 23. og 26. tbl. Lögbirtinga- blaósins 1981 á Stjörnugötu 7 (Breiðholti), Akur- eyri, þingl. eign Kristins Ó. Jónssonar, fer fram eftir kröfu bæjarsjóös Akureyrar á eigninni sjálfri mánudaginn 15. júní n.k. kl. 15.00. Bæjarfógetinn á Akureyri. fbúð til sölu að Þórustöðum í Öngulsstaðahreppi. Suðurhluti af gömlu, traustu steinhúsi. 8 km. frá Akureyri. Hitaveita. Uppl. á kvöldin í síma 24931. Til sölu eru húseignirnar: Strandgata 51 (tvær íbúðir), Kaldbaksgata 2 (áður Vélsmiðja Steindórs h.f.) og Kaldbaksgata 4 (iðnaðarhúsnæði). Seljast sameiginlega eða hver útaf fyrir sig. Upplýsingar gefur Bernharð Steingrímsson í síma 25845 á daginn og í síma 24849 á kvöldin. Akureyringar - Eyfirðingar Munið stjórnmálafundinn með alþingismönnunum Ingvari Gíslasyni, Stefáni Valgeirssyni og Guð- mundi Bjarnasyni á Hótel K.E.A. í kvöld, fimmtu- dagskvöld, kl. 20.30. Allir velkomnir. Hestur í óskilum á Ytri-Tjörnum. Rauður, glófextur með gráan blett í hægri lend. Mark óbitið aftan fjöður framan vinstra. Markleysa eða meiðsli aftan hægra. Eigandi vitji hestsins sem fyrst og greiði áfallinn kostnað. Baldur H. Kristjánsson. Dagverðarvík Þeir aðilar sem eiga muni í geymslu hjá Norðurverki í Dagverðarvík eru vinsamlegast beðnir að fjar- lægja þá í síðasta lagi 15. júní. NORÐURVERK H.F. IMOLM Áhrifamikill auglýsingamiðill Aðalfundir Samvinnutrygginga g.t., Líftryggingafélagsins Andvöku og Endurtryggingafélags Samvinnutrygginga h.f., verða haldnir í fundastofu Samvinnutrygginga, Ármúla 3, Reykjavík, þriðjudaginn 23. júní 1981 og hefjast kl. 10 fyrir hádegi. Dagskrá verður samkvæmt samþykktum félag- anna. STJÓRNIR FÉLAGANNA. Auglýsing um lögtak Þann 9. júní 1981 kvað sýslumaður Eyjafjarðar- sýslu upp almennan lögtaksúrskurð fyrir eftirtöld- um ógreiddum en gjaldföllnum gjöldum til Sveitar- sjóðs Saurbæjarhrepps álögðum 1979 og 1980 svo og gjaldföllnum fyrirframgreiðslum 1981: útsvar, fasteignaskattar, aðstöðugjald, kirkjugarðsgjald og kirkjugjald. Má taka gjöld þessi lögtaki að liðn- um 8 dögum frá birtingu auglýsingar þessarar. Oddviti Saurbæjarhrepps Ný verslun með skrifstofutæki og skrifstofuhúsgögn Skrifstofuval h.f. Kaupangi v/Mýrarveg (snýr að Þingvallastræti) sími25004 SÝNING Á VÖRUM í tilefni opnunar verslunarinnar verður haldin sýn- ing á þeim vörum sem verslunin verður með en þær eru: __ Facit ritvélar __ Facit reiknivélar __ Facit skrifstofuhúsgögn __ Infotec Ijósritunarvélar __ Sharp Ijósritunarvélar __ Silver Reed ritvélar __ Modulex innanhússmerkingar Sýningin verður opin sem hér segir:: Fimmtudag 11. júní kl. 14-21 Föstudag 12. júní kl. 14-21 Laugardag 13. júní kl. 10-18 Okkur væri mikill heiður af heimsókn yðar einhvern fyrrnefndra daga. Skrifstofuval h.f. Hvellhetta sprakk í höndum drengs Á annan í Hvítasunnu varð það óhapp að hvelihetta sprakk í höndunum á 12 ára gömlum dreng í Reykjahlíðarþorpi í Mývatnssveit. Atburðurinn varð í heimahúsi, þar sem tveir drengir voru saman að leik. Þeir munu hafa tengt raf- hlöðu við hvellhettuna með þeim afleiðingum að hún sprakk og missir drengurinn alla vega þrjá fingur, ef ekki alla hendina. Drengurinn var strax sendur til að- gerðar á Borgarspítalanum í Reykjavík hjá Rögnvaldi Þorleifs- syni, sem græddi hönd á stúlku ekki alls fyrir löngu. Hvellhettuna segjast drengirnir hafa fundið á ruslahaug og höfðu haft hana undir höndum í allt að einn og hálfan mánuð. ENGINN ARANGUR Túnsbergi 9. júní. Frá því í janúar hcfur verið unnið að borun eftir heitu vatni á Svalbarðseyri og hefur nú ver- ið borað þar um 1600 metra djúp hola. Árangur af þessari borun hefur því miður enginn orðið, og vafa- samt að hann verði nokkur þar sem borun fer senn að ljúka, en ætlunin er að holan verði um 1800 metra djúp. Á Svalbarðseyri er fyrir ein bor- hola sem gefur 10-12 sek.lítra af heitu vatni og nægir það fyrir þétt- býlið. Var ætlunin að vatn úr nýju holunni yrði notað til hitaveitu í sveitunum í nágrenni Svalbarðs- eyrar. En því miður, árangur virðist ekki ætla að verða neinn af þessari borun, og bæjarfélagið hefur ekki fjárhagslegt bolmagn til að halda áfram borunum að svo stöddu. S.L. Tónleikar „á Sal“ Þriðjudaginn 16. júní verða haldnir tónleikar „á sal“ Menntaskóians og hefjast þeir kl. 17. Rún Halldórsdóttir leikur ein- leik á blokkflautu, ásamt Helgu Ingólfsdóttur semballeikara, Mic- hael J. Clarke á fiðlu, Paulu Parker á píanó og fiðlu, Guðrúnu Þórar- insdóttur á lágfiðlu, Oliver Kentish á selló og Gunnar Jónsson á gítar. Helga Ingólfsdóttir leikur einnig í ferð sinni norður einleik við skóla- slit MA í Akureyrarkirkju 17. júní. Rún Halldórsdóttir hefur stund- að nám við Tónlistarskólann á Ak- ureyri, en er jafnframt nemandi við MÁ, hún hefur vakið athygli fyrir góðan leik á altblokkflautuna. Vígja nýtt félags heimili Sunnudaginn 21. júní verður vígt félagsheimili við Hafra- lækjarskóla. Húsið verður einn- ig notað sem íþróttahús. Raunar hefur fólk — og nem- endur — þar um slóðir haft not af húsinu nokkuð lengi, en nú á sem sagt að vígja það formlega. Sagt er að búið sé að velja félagsheimilinu nafn, en að sjálfsögðu vörðust heimamenn allra frétta þegar þeir voru spurðir um hvað húsið yrði látið heita. 4•DAGUR

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.