Dagur - 15.09.1981, Page 6

Dagur - 15.09.1981, Page 6
Akureyrarprestakall: Vígslu- biskup séra Pétur Sigurgeirsson mun kveðja söfnuði sína á Ak- ureyri n.k. sunnudag í messu í Akureyrarkirkju ki. 11 f.h. og í Lögmannshlíðarkirkju kl. 2 e.h. Þarna gefst sóknarfólki kjörið tækifæri til þess að þakka vígsiubiskupshjónunum ára- tuga langa og farsæla þjónustu. B.S. í dag hafa hjónin Guðrún og Reynir Hörgdal. gefið kr. 2000.00 til byggingar hinnar nýju Glerárkirkju. Gjöfin er gefin til minningar um fóstur- móður Guðrúnar. Helgu Pét- ursdóttur. er lést 18. apríl s.l. hátt á fjórða ári yfir nírætt. Helga Pétursdóttir hafði mikinn áhuga á því. að bygging Glerárkirkju gæti hafist sem fvrst. — Blessuð sé minning Helgu Pétursdóttur. og beztu þakkir til gefendanna fyrir þessa fögru gjöf. Sjónarhæð. Almennar sam- komur hefjast á ný n.k. sunnu- dag kl. 17.00. Drengjafundir hvern laugardag á Sjónarhæð kl. 13.30. Sunnudagaskólinn í Glerárskóla hefst n.k. sunnudag kl. 13.15. Verið hjartanlega vel- komin. Hjálpræðisherinn. Kvöldvaka fimmtudaginn n.k. kl. 20.30. Kvikmynd, veitingar, happ- drætti (5 kr. miðinn) o. fl. Sunnudaginn kl. 20.30 almenn samkoma. Mánudaginn kl. 16.00 heimilasamband fyrir konur. Verið hjartanlega vel- komin. Fyrir börn. Föndur- fundur á fimmtudögum kl. 17.00 og sunnudagaskóli á sunnudögum kl. 13.30. Öll börn velkomin. Lionsklúbburinn Huginn fund- ur á hótel K.E.A. fimmtudaginn 17. sept. kl. 12.15. Sigurjóna Jakobsdóttir. Sigurjóna Jakobsdóttir, ekkja Þorsteins M. Jónssonar verður 90 ára á morgun 16. september. Hún fæddist á Básum í Grímsey en var alin upp á Akureyri. Hún var mjög framarlega í félagslífi, m.a. í stjórn Leikfélags Akur- eyrar og formaður þess um skeið- Þá var hún ein af stofnend- um Kantöt ukórsins. Sigurjóna er nú stödd að Lagarási 14 á Egilsstöðum, en við setningu Menntaskólans þar afhenti hún skólanum málverk eftir Jóh- annes Kjarval úr búi þeirra hjóna. NAN í nýtt húsnæði Þriðjudaginn 22. sept. n.k. munu Neytendasamtökin á Akureyri og nágrenni opna skrifstofu á nýjum stað. að Eiðsvallagötu 6 (Bólu). Hefur NAN nú mun rýmra húsnæði en áður og stórbætta aðstöðu til vinnslu á málgagni sínu. NAN- fréttum. sem dreift er til félags- manna. Er vonast til að félagar í NAN og aðrir neytendur verði duglegir að hafa samband við skrifstofuna og segja frá viðskipt- um sínum. jafnt góðum sem slæm- um. Kvörtunarþjónustu verður sinnt eins og áður. og á skrifstof- unni liggja sem fyrr frammi inn- lend og erlend tímarit um nevtendamál. Skrifstofutími er óbreyttur. á þriðjudögum og miðvikudögum kl. 16-18. Athugið breytt símanúmer. 22506. Sýningum Borgarbíós á kvikmynd- inni ,.Crusing“ fer nú senn að Ijúkam Mvndin fjallar um leit ungs lögreglumanns að kynvilltum morðingja, og er einstaklega spennandi og sterk lýsing á undir- heimalífi New York. Maðurinn ungi sem leikinn er af A1 Pacino lendir í mikluni mannraunum í leit sinni að morðingjanum. Með önn- ur aðalhlutverk fara Paul Sorvino og Karen Allen. Næsta mynd í Borgarbíó er Darraðadans (Hopschtch). Banda- rísk sakamálamynd í léttum dúr með Walter Matthau og Glendu Jackson í aðalhlutverkum. Walter Matthau í hlutverki sínu í myndinni Darraðardans sem er næsta mvnd Borgarbíós. Kristján og Sigríður sýna í Rauða húsinu Til sölu: Hjallalundur: 3ja herb. íbúð. Hrísalundur: 4ra herb. íbúð 102 m-’ á jarðhæð. Hamarstígur: 4ra herb. íbúð á efri hæð 120 m-. Smárahlíð: 2ja herb. íbúð á 2. hæð. Iðnaðarhúsnæði á Óseyri 360 m2. Ibúðarhúsið Lundur150 m2 á tveimur hæðum. í húsinu eru tvær íbúðir. Viðbyggt verkstæðishúsnæði tví- skipt. Höfum kaupendur að 2ja hæða raðhúsum. Asmundur S. Jóhannsson hdl. Brekkugötu 1 Ak. Sími21721. Opið frá kl. 17-19. N.k. laugardag, þ. 19/9. kl. 16, munu þau Kristján Guðmunds- son og Sigríður Guðjónsdóttir opna samsýningu í Rauða hús- inu. Sýningin stendur til sunnu- dagsins 27/9 og er opin daglega frá kl. 16-20. Kristján Guðmundsson hefur stundað listir um langan tíma og var einn af félagsmönnum SÚM á árunum fyrir og eftir 1970. Hann bjó urn árabil í Hollandi, þar sem hann gerði garðinn frægan. Nú býr Kristján með fjölskyldu á Hjalteyri. Sigríður Guðjónsdóttir er af yngri kynslóð íslenskra myndlista- manna. Hún nam við Myndlista- og Handíðaskóla íslands og var síðan í framhaldsnámi í Hollandi. ÁSKRIFT OG AUGLÝSINGAR 24167 Dagur Innilegar þakkir til allra þeirra sem glöddu mig á áttrœðis afmceli mínu þann 9. september s.l. með heimsóknum gjöfum og heiUaóskum. Guð blessi ykkur öll. MÁLFRÍÐUR BALDVINSDÓTTIR Hauganesi. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 31., 34. og 36. tbl. Lögbirtinga- blaðs 1981 á fasteigninni Eyrarlandsvegi 12 e.h., Akureyri, þingl. eign Herberts Halldórssonar, fer fram eftir kröfu Ólafs B. Árnasonar hdl., á eigninni sjálfri mánudaginn 21. september n.k. kl. 16.00. Bæjarfógetinn á Akureyri. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 41., 47. og 52. tbl. Lögbirtinga- blaðs 1981 á fasteigninni Sunnuhlíð 2, Akureyri þingl. eign Fjölnis Sigurjónssonar, fer fram eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs og Hreins Páls- sonar hdl. á eigninni sjálfri mánudaginn 21. sept- ember 1981 kl. 15.00. Bæjarfógetinn á Akureyri Nauðungaruppboð sem auglýst var í 41., 47. og 52. tbl. Lögbirtinga- blaðs 1981 á fasteigninni Reynivellir 4 n.h., Akur- eyri, þingl. eign Snorra Hanssonar, fer fram eftir kröfu Bæjarsjóðs Akureyrar á eigninni sjálfri mánudaginn 21. september 1981 kl. 14.00. Bæjarfógetinn á Akureyri. Aðalfundur Framsóknarfélags Eyfirðinga verður haldinn á Hótel KEA fimmtudaginn 17. september kl. 20.30. Venjuleg aðalfundarstörf. Stjórnin. Einingarfélagar Fundur í 59 manna undirbúningsnefnd vegna nýrrar samningagerðar verður haldinn í Alþýðu- húsinu á Akureyri fimmtudagskvöldið 17. septem- ber n.k. kl. 20.00. Aðrir félagsmenn eru hvattir til að hafa samband við undirbúningsnefnd, stjórn félagsins eða skrif- stofur þess, hafi þeir einhverjer tillögur fram að færa vegna kröfugerðarinnar. Stjórn Vlf. Einingar. Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi GUNNAR AUSTFJÖRÐ pípulagningameistari, Munkaþverárstræti 9, verður jarðsunginn frá Akureyrarkirkju fimmtudaginn 17. september kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á Sjúkrahús Akureyrar. Ólína Austfjörð, Heiðar Austfjörð, Jóhanna B. Austfjörð, Érla Austfjörð, Hörður Þorfinnsson og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför konu minnar, systur og mágkonu. KLÖRU STEFÁNSDÓTTUR, Ægisgötu 10. Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks Fjórðungssjúkrahúss- ins Akureyri, fyrir ágæta umönnun. Þorsteinn Jónasson, Anna Stefánsdóttir, Halifreð Sigtryggsson og fjölskylda, Kristín Jónasdóttir og fjölskylda. 6 - DAGUR - 15. september 1981

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.