Dagur - 29.10.1981, Page 4
maji
Útgefandi: ÚTGAFUFÉLAG DAGS
Skrifatofur: Hafnarstræti 90, Akureyri
Ritstjórnarsimar: 24166 og 21180
Sími auglýsinga og afgreiðslu: 24167
Ritstjóri (ábm.): HERMANN SVEINBJÖRNSSON
Blaöamenn: Áskell Þórisson,
Gylfi Kristjánsson
Augl. og afgr.: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
Prentun: Prentverk Odds Björnssonar hf.
Aukin miðstýring
Fjórðungssamband Norðlendinga
hefur sent formönnum allra þing-
flokkanna ályktun síðasta fjórð-
ungsþings, þar sem fjallað er um
síaukna miðstýringu þjóðfélags-
ins frá Reykjavík, en þar var látinn
í Ijósi sá ótti, að með væntanlegri
breytingu á kjördæmaskipan ykist
þessi miðstýring og byggðarösk-
un hiytist af.
Ætlunin er að taka efni þessarar
ályktunar fyrir á næsta samstarfs-
fundi landshlutasamtaka sveitar-
félaga um miðjan næsta mánuð
og farið hefur verið fram á að af
viðræðum geti orðið milli lands-
hlutasamtakanna og fulltrúa
þingflokkanna, að loknum sam-
starfsfundinum.
Þessi ályktun Fjórðungsþings
byggist á skýrslu um skiptingu
ríkisútgjalda eftir byggðasvæðum
á árunum 1976-1978, samkvæmt
A-hluta ríkisreiknings. f skýrsl-
unni kemur m.a. fram, að á þess-
um árum hefur tæplega 70%
aukningar ríkisútgjalda miðað við
þjóðarframleiðslu farið til höfuð-
borgarsvæðisins, en röskiega
30% til hinna landshlutanna allra
samanlagt, eða frá 2,2%-8%, sem
kom í hlut Norðurlands eystra. Á
sama tíma varð hins vegar þveröf-
ug þróun í hlutfalli innheimtra rík-
istekna, sem sýnir svart á hvítu, að
höfuðborgarsvæðið hefur ekki
lagt til ríkisrekstrarins meira en
áður og ekki í neinu samræmi við
stóraukna hlutdeild þess í ríkisút-
gjöldum.
Skýrsla Fjórðungssambands
Norðlendinga segir okkur að íbú-
ar landsbyggðarinnar afla ríkinu
tekna í stórauknum mæli á meðan
þessum sameiginlegu sjóðum er í
sívaxandi mæli eytt í Reykjavík og
nágrenni. Þessar niðurstöður
sýna svo ekki verður um villst, að
ríkisbúskapurinn er geysilega
þýðingarmikill í þjóðfélagsþróun-
inni og jafnframt, að nær öll
aukning „báknsins“ er í Reykja-
vík.
I' lokaniðurstöðum skýrslu
Fjórðungssambandsins segir
m.a., að ríkisbúskapurinn með
hinni miklu miðstýringu fylgi ekki
þeim megin markmiðum, sem
markviss byggðastefna verður að
byggjast á. Með tilliti til þess, að æ
stærri hluti vinnuafls þjóðarinnar
leitar til þjónustustarfa, sem er að
stórum hluta tengd ríkisstarfsemi,
er Ijóst að staðsetning stjórnsýsl-
unnar og velferðarstarfsemi ríkis-
ins getur haft úrslitaáhrif á bú-
setuþróun í landinu.
Fróðlegt verður að fylgjast með
viðbrögðum þingflokkanna við
málaleitan landshlutasamtak-
anna. Skyldi miðsæknin vera orð-
in svo rótgróin, að jafnvel samtök
sveitarstjórnarmanna víðs vegar
um landið fái litlu eða engu ráðið í
þessum efnum?
Jón Hjartarson
F. 26. sept. 1911 - D. 3. okt. 1981
Kveðja frá barnabörnum
Við helgum þér afi, hjartans mál,
og hlýr er sá þakkaróður.
Þitt ylríka viðmót ungri sál,
varð okkur sem helgur sjóður.
Á fjársjóð þann aldrei fölva slær,
í faðmi þér glöð við undum.
Til blessunar er það blóm, sem grær
á bernskunnaryndisstundum.
í rósemi okkur réttir hönd,
því reikult er barn í spori. —
Ei haustveðrin ná að hefta bönd
sem heyra til blíðu vori.
Þótt við þér oft blöstu veðraský,
þú vel sóttir fiskimiðin.
Þín víðkunna stjómun, vökul, hlý,
bar vitni um hjartafriðinn.
Er byrgt hafði fyrir sumarsól,
þá svalinn um vanga næddi.
Og fokið þá var í flest öll skjól,
er fársjúku hjarta blæddi.
Og hinsta var kveðja heilög stund,
þó hugkvæmdist fátt til ráða. —
Á hafið var sótt með hetjulund,
þú hugprúður gekkst til náða.
Þín elskaða minning afi kær,
ber endurskin fyrri daga.
Hún mildað fær söknuð, máttug, tær,
um manndóm er öll þín saga.
J.S.
Frá vinstri: Arni, Marlin og Hermina. Mynd: á.þ.
Hefur aflað upplýsinga
um 300 hagyrðinga
Þótt hann sé kominn á
áttræðisaldur lætur Vest-
ur-íslendingurinn Marlin
J. Magnússon ekki deigan
síga. í hitti fyrra kom út
eftir hann bókin Nýjar
rúnir og nú er hann að
safna heimildum um hag-
yrðinga í Vetsurheimi.
Marlin er kominn mep
upplýsingar um 300 hag-
yrðinga og hefur í hyggju
að auka við safnið til mik-
illa muna. Sum skáldanna
hafa aldrei ort á íslensku
og má í því sambandi
FELL H.F. I NYTT HUSNÆÐI
Valtýr Hreiðarsson (t.h.) og Gtinnar Jónsson. Mynd: á.þ.
Fell h.f. hefur flutt í nýtt hús-
næði við Kaupvangsstræti 4, úr
Strandgötu 7. Fyrirtækið var
stofnað um áramótin 1977/78
og var upphaflegt markmið al-
hliða viðskiptaþjónusta, en
aðalstarfssvið hingað til hefur
verið bókhald, uppgjör og fram-
töl fyrirtækja og einstaklinga.
Einnig hefur fyrirtækið annast
einstaka verkefni við rekstrar-
fræðilega útreikninga. í því
sambandi má geta útreikninga á
hagkvæmni, kostnaðaráætlanir,
pappírsvinnslukerfi og fl. Ráðn-
ingarþjónusta fyrirtækisins er
all virk, sem sjá má af auglýs-
ingum í bæjarblöðunum.
í fréttatilkynningu frá Felli segir
að of lítið húsnæði í Strandgötu
hafi sett fyrirtækinu skorður og
m.a. var ekki unnt að bæta við
starfsfólki, en eftir flutninginn hef-
ur Fell h.f. mun betri möguleika á
úrvinnslu stærri verkefna og hafa
forráðamenn fyrirtækisins mikinn
áhuga á úrvinnslu verkefna varð-
andi ýmis konar rekstrarráðgjöf.
Starfsmenn fyrirtækisins eru 3 til
4. Framkvæmdastjóri er Valtýr
Hreiðarsson, viðskiptafræðingur
og skrifstofustjóri er Gunnar Jóns-
son.
minnast Arthurs Reykdals,
sem orti eingöngu á ensku.
Marlin kom til Akureyrar á dög-
unum ásamt konu sinni Hermínu,
sem er af tékkneskum ættum. Árni
Bjarnarson bókaútgefandi á Akur-
eyri mun taka á móti upplýsingum
fyrir Marlin sem íslendingar geta
veitt þeim síðarnefnda um skáld í
Vesturheimi t.d. um ættir þeirra
hér á landi. Öll vitneskja er vel
þegin, sagði Marlin. Ekki sagðist
Marlin geta fullyrt hvort þessar
upplýsingar yrðu gefnar út í bókar-
formi, en hann hefði í hyggju að
safna þeim saman á einn stað svo
fræðimenn seinni tíma ættu
greiðan aðgang að þeim.
,,Eg hef ekki tekið sýnishorn af
kveðskap hvers og eins. Þá er hægt
að saka mann um hvers vegna þetta
var tekið en ekki hitt. Annars er
þetta óendanlegt starf og ég lét
skáldagáfu hvers og eins ákvarða
hvort hann er tekinn með í safnið.
Við verðum að viðurkenna fleiri
sem skáld en þá mestu, þá sem
fengu birt kvæði í bókum og blöð-
um. Sumir komust aldrei á prent,
en eiga skilið að eftir þeim sé mun-
að,“sagði Marlinaðlokum.
Valdimar Brynjólfsson heilbrigðisfulltrúi á Akureyri:
MERKINGAR MATVÆLA
Fyrirmæli um merkingu á matvæl-
um og öðrum neyslu- og nauð-
synjavörum eru bundin í ákvæðum
reglugerðar nr. 250/1976 og síðari
breytingum á þeirri reglugerð þ.e.
reglugerðum nr. 101/1977 og nr.
162/1977. Tilgangur merkinga
matvæla er að veita upplýsingar
um vöruna, svo þeir sem með hana
fara og þeir sem neyta hennar viti
um hvaða vörutegund er að ræða
og hvernig skuli geyma hana svo
hún verði ekki fyrir skemmdum og
geti þannig orðið hættuleg heilsu
manna.
Eins og sést á ártali reglugerð-
anna hafa framleiðendur fengið
góðan aðlögunartíma til að koma
merkingum í gott lag en því miður
er enn nokkur misbrestur á að svo
sé hjá sumum fyrirtækjum. Merk-
ing einstaka matvælategunda er
slík að ætla mætti að vísvitandi sé
verið að vanmerkja í þeim tilgangi
að villa um fyrir kaupendum og
reyna þannig að selja v: ru sem ekki
er söluhæf lengur.
Þau matvæli sem sérstaklega
þarf að hafa í huga eru svokölluð
viðkvæm matvæli en það eru mat-
væli sem þurfa sérstakar geymslu-
aðferðar með til þess að þau haldist
óskemmd.
Aðallega er átt við kælivörur og
frystivörur, v: rur sem þarf að
geyma við ákveðið hitastig og gæta
þess að kælikeðjan sé aldrei rofin á
leið sinni til neytandans, frá fram-
leiðslu, í dreifingu og í geymslu í
verslun. Ef litið er nánar á hvernig
viðkvæm pökkuð matvæli skulu
merkt þá skal koma fram á um-
búðunum:
1. Nafn og heimilisfang framleið-
anda eða pökkunarfyrirtækis.
2. Nafn vörunnar og aðrar upplýs-
ingar sem framleiðandi vill að
komi fram. Engar blekkjandi
upplýsingar má gefa um vör-
una, hvorki á umbúðum né í
auglýsingum.
3. Hvernig varan skal geymast.
a) Djúpfrystar nauðsynjavörur
(undir -t- 20° C) skal merkja
með „djúpfryst“ á umbúðir.
b) Kælivörur, viðkvæm matvæli
sem geyma skal í kæli, skal
merkja „Geymist í kæli“. Þessar
vörur skal geyma við 0-4° C.
4. Geymsluþol. Skal það skráð á
pökkunarstað þannig að fram
komi pökkunardagur og síðasti
leyfilegi söludagur: „Pakkað
.....“ „Síðasti söludagur
.....“. Framleiðandi skal
ábyrgjast það geymsluþol sem
hann gefur upp en eftirlitsaðila
ber að fylgjast með að það
standist.
Verslunum er óheimilt að
geyma vörur öðruvísi en merk-
ing segir fyrir um. Verslanir
mega ekki frysta kælivöru og
allra síst eins og nokkur brögð
hafa verið að, að geyma kæli-
vöruna fyrst sem kælivöru og
síðan frysta hana þegar
geymsluþolið er búið. Þá má
ætla að gerlafjöldinn í vörunni
sé kominn í það hámark sem
leyfilegt er og varan batnar
ekkert við það að frjósa, gerl-
arnir lifa frystinguna af.
5. Fyrirmæli um þyngd og sam-
setningu vörunnar er ekki að
finna í reglugerðum en ákvæði
eru um að Heilbrigðiseftirlit
ríkisins geti sett slík fyrirmæli.
Það hefur hingað til verið gert í
því formi að mælst hefur verið
til þess að framleiðendur merki
vöruna með þessum upplýsing-
um.
Mikið skortir á að hægt sé að
fylgjast með hvort uppgefin inni-
haldslýsing sé rétt. Matvælarann-
sóknir ríkisins eiga að annast efna-
og gerlarannsóknir vegna heil-
brigðiseftirlits í landinu en hefur
enga aðstöðu til efnarannsókna
enn sem komið er. Þar verður úr að
bæta hið bráðasta. Einstakar rann-
sóknir er að vísu hægt að gera við
aðrar stofnanir og er það gert þegar
þörfin er brýnust eða um sérstök
verkefni er að ræða.
Æskilegt er að framleiðendur
sjálfir veiti kaupendum þá sjálf-
sögðu þjónustu, að gefa upp magn
og innihaldslýsingu, en meðan ekki
er með góðu móti hægt að rannsaka
hvort uppgefin innihaldslýsing
stenst, þá er alveg út í hött að setja
fram almennar kröfur um
nákvæma lýsingu á samsetningu
vörunnar. Öðru máli gegnir þó ef
um varasöm aukaefni er að ræða.
Að lokum eru neytendur hvattir
til að fylgjast vel með merkingum á
vörunum því það verður ávallt
sterkasta eftir litið.
Valdimar Brynjólfsson.
llmsjón: Ólafur Ásgeirsson
Kristján Arngrímsson
Tvlburabræöurnir Gunnar og Gylfi Gíslasynir keppa á Norðurlandamóti ung-
linga I lyftingum um helgina ásamt Haraldi Ólafssyni.
Þeir keppa
í Noregi
- Þrír lyftingamenn frá
Akureyri á NM unglinga
Þrír kornungir og stórefnilegir
lyftingamenn frá Akureyri eru
í íslenska unglingalandsliðinu
í lyftingum sem keppir á
Norðurlandamótinu í Bergen í
Noregi um helgina. Þetta eru
Haraldur Ólafsson, og tvi-
burabræðurnir Garðar og
Gylfi Gíslasynir.
Haraldur á Norðurlandameist-
aratitil að verja á mótinu og eru
taldar mjög góðar líkur á að hann
snúi heima með gullverðlaun. Þá
hefur Garðar náð sérstaklega
góðum árangri á æfingum að
undanförnu og er til alls líklegur <
eins og Gylfi reyndar líka.
Á sama tíma og unglingarnir
etja kappi við jafnaldra sína frá
hinum Norðurlöndunum í Berg-
en mun Kristján Falsson frá Ak-
ureyri verða í sviðsljósinu á miklu
lyftingamóti sem fram fer í Finn-
landi. Þar verða keppendur víða
að og óvíst að segja að Kristján
verður þar í góðum félagsskap.
Eirfkur Sigurösson Þórsari reynir körfuskot (leik Þórs og Tindastóls um slðustu
helgi, en Þér vann yfirburðasigur I þeirn leik. Ljósm. KGA:
Ánægðir
Norðmenn
Íþróttasíðunni hefur borist
blað sem gefið er út í Noregi,
af Kongsberg idretts forbund.
Þar greinir frá ferð skíðamanna
á Andrésar Andar leikana sem
haldnir voru á Akureyri s.l. voru.
Þar má sjá að mikil ánægja ríkti
hjá þeim með þessa ferð, og
rómuðu þau allar móttökur hér á
Akureyri svo og framkvæmd
mótsins, og síðast og ekki síst að-
stoð þá sem Akureyrarbær veitir
skíðakeppni eins og þéssari.
Síðast í greininni segir farar-
stjórinn m.a. þetta. „Við spurðum
krakkana þegar þau komu heim,
hvernig þeim hafði líkað ferðin.
Jú keppnin var stórkostleg, en
hugsaðu þér hvað við raunar
upplifðum í þessari ferð. Það
munum við svo lengi sem við lif-
um.“
Það er gaman fyrir forustu-
menn skíðamála hér á Akureyri
að fá svo góðan vitnisburð, og
þann er um getur í norsku blaða-
greininni.
:KIF-alpinister til ISLAND
KIF's alpingruppe ble invitert til á del-
ta i árets Donald Duck-raesterskap pá Is-
land etter invitasjon fra Skiklubben pá
Akureyri. Bakgrunnen for invitasjonen
var at islendingene flere ganger har del-
tatt i Donald Duck-raesterskapet her pá
Kongsberg.
Turen ble pá alle máter vellykket. Været
avreisedagen var strálende slik at fly-
turen til Reykjavik og videre til Aku-
reyri ble en opplevelse for store og smá.
Pá flyplassen ble vi tatt i mot av islen-
dingene og KIF's "representant" Hávard
Saude, som har vært skitrener i Olafs-
fjordur i vinter. Vi ble plassert pá Ski-
hotellet oppe i fjellet der konkurransen
skulle gá.et sted som passet oss ypperlig
og hvor vi alle folte oss som “hjerarae".
KA réð Gunnar
Knattspyrnudeild KA hefur
ráðiö Gunnar Gíslason starfs-
mann hjá sér næsta sumar.
Gunnar lýkur námi í íþrótta-
kennaraskólanum næsta vor,
og mun hann þjálfa unglinga á
knattspyrnuvöllum KA næsta
sumar.
Þá er Gunnar einnig einn af
máttarstólpum KA liðsins í
knattspyrnu, og nú í vetur leikur
hann handknattleik með KR við
hlið stóra bróður síns Alfreðs
Gíslasonar. Gunnar er eins og
bræður hans allir, fjölhæfur
íþróttamaður, og hefur m.a. verið
valinn íþróttamaður Akureyrar.
Gunnar Glslason
Blakað um
helgina
Á laugardaginn verða fyrstu
lekirnir í Blaki á þessu hausti.
Þá verður keppt í fyrstu deild
bæði karla og kvennaflokki.
Kl. 15.00 leika UMSE og ÍS í
fyrstu deild karla og þar gæti
orðið um hörkuleika að ræða.
Eyfirðingar hafa æft vel undan-
farið undir stjórn Halldrós Jóns-
sonar þjálfara, og hafa þeir fengið
til liðs við sig marga knáa leik-
menn, sérstaklega úr MA.
Strax á eftir leika i fyrstu deild
kvenna IS og KA. Þetta er i fyrsta
sinn sem KÁ leikur í fyrstu deild
kvenna, en KA stelpurnar hafa
æft vel undir stjórn Hinriks Þór-
hallssonar þjálfara síns.
Báðir þessir leikir fara fram í
íþróttahúsinu i Glerárhverfi og
eru áhorfendur hvattir til að fjöl-
menna meðan húsrúm leyfir.
HANDKNATTLEIKUR
Á föstudagskvöld kl. 20.30. keppa
Þór og Dalvíkingar í þriðju deild í
handbolta. Þórsarar hafa verið
mjög sigursælir til þessa, en
spumingin er hvort Dalvikingar
stöðva sigurgöngu þeirra.
Þess vegna ættu áhorfendur að
fjölmenna í skemmuna og sjá
spennandi leik.
4 - DAGUR - 29. október 1981
29. október 1981 • DAGUR - 5