Dagur - 29.10.1981, Síða 6
Hálsprestakall. Guðsþjónusta á
Iilugastöðum n.k. sunnudag 1.
nóv. kl. 14.00 Sóknarprestur.
Brúðhjón Hinn 19. okt. voru
gefin saman í hjónaband í Ak-
ureyrarkirkju Þórey Tómas-
dóttir húsmóðir og Albert Jens-
en húsasmiður. Heimili þeirra
verður að Bröttuhlíð 6, Akur-
eyri.
Krabbameinsfélagi Akureyrar
hefur borist gjöf frá starfsfólki
Útgerðarfélags Akureyringa til
minningar um Jón Hjartarson
að upphæð kr. 20.030,00. Kærar
þakkir. F.h. Krabbameinsfélags
Akureyrar Jónas Thordarson.
I.O.O.F. — 2 —16210308 Vi
Konur og styrktarfélagar í
kvenfélaginu Baldursbrá fund-
ur í Glerárskóla sunnudaginn 1.
nóv. kl. 13.30. Inngangur að
sunnan. Kynnt verður starfs-
semi félagsins. Nýir félagar
hjartanlega velkomnir. Munið
happdrættið. Takið með bolla-
pör. Stjómin.
Aðalfundur Foreldraféiags
Glerárhverfis verður haldinn
fimmtudaginn 29. okt. kl. 20.30
í Glerárskóla. Auk venjulegra
aðalfundarstarfa verður rætt
um „óskabarn“ hverfisins,
sundlaugina og sýnt likan af
henni. Vonast er til að sem
flestir mæti og að fram komi
hugmyndir um verkefnaval
vetrarins. Allir foreldrar eru
hvattir til að vera með og stuðla
að auknu samstarfi heimila og
skóla, sem er aðalmarkmið
félagsins.
Munið minningarspjöld kven-
félagsins Hlífar. Allur ágóði
rennur til barnadeildar Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri.
Spjöldin fást í bókabúðinni
Huld, símaafgreiðslu sjúkra-
hússins og hjá Laufeyju Sigurð-
ardóttur Hh'ðargötu 3.
Ferðafélag Akureyrar. Fjöl-
skylduhátíð 1981 verður í
Laugarborg laugardaginn 31.
okt. kl. 20.30. Skemmtiatriði og
veitingar. Félagsmenn og gestir
þeirra velkomnir. Miðasala í
skrifstofunni á föstudag kl.
18-19 og laugardag kl. 14-16.
Pantanir í síma 22720 á sama
tíma. Athugið að miðafjöldi er
takmarkaður og ekki er hægt að
treysta á sölu við innganginn.
St. Georgsgiidið. Fundur verð-
ur á Krossastöðum mánudag-
inn 2. nóv. kl. 20.00 Lokaátak.
Stjórnin.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 86., 91. og 94. tbl. Lögbirtlngarblaðslns 1980 á
fasteigninnl Espilundi 15, Akureyri, þingl. elgn Braga Steins-
sonar, fer fram eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs og Jóns
Ingólfssonar hdl. á eigninni sjálfri þriðjudaginn 3. nóvember n.k.
kl. 15.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 108. og 113. tbl. Lögbirtingarblaðsins 1980 og
3. tbl. 1981 á fasteigninni Karlsbraut 17, Dalvík, þingl. eign
Sverris Sigurðssonar,'fer fram eftir kröfu innheimtumanns
ríkissjóðs á eigninni sjálfri miðvikudaginn 04.11.1981 kl. 14.00.
Bæjarfógetlnn á Dalvfk.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 41., 47. og 52. tbl. Lögbirtingarblaðsins 1981 á
fasteigninni Lerkilundur 7, Akureyri, þingl. eign Júlíusar Björg-
vinssonar, fer fram eftir kröfu innheimtumanns rlkissjóðs og
bæjarsjóðs Akureyrar, á eigninni sjálfri þriðjudaginn 3. nóv-
ember n.k. kl. 16.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Leiðbeiningar
fyrir þá sem
vilja hætta
að reykja
„Ekki fórn heldur frelsun“
nefnist rit sem Krabbameinsfé-
lag Reykjavíkur hefur gefið út
og geymir ýmsar hagnýtar
ábendingar og leiðbeiningar
fyrir þá sem vilja hætta að
reykja.
Þetta er 20 síðna fjölrit í fjórum
köflum. í fyrsta kafla er drepíð á
hið helsta sem mælir með því að
hætta að reykja. Einnig er þar bent
á hvernig menn geti skráð sínar
eigin reykingavenjur og kannað
reykingaþörf sina.
í öðrum kafla er reykingamönn-
um skipt í sex flokka eða gerðir
eftir því hvað það er sem rekur þá
til að reykja og sýnd er aðferð sem
gerir hverjum reykingamanni kleift
að finna út hvar hann stendur að
þessu leyti. Jafnframt eru hverjum
flokki gefin góð ráð í sambandi við
að hætta að reykja.
Nokkrar almennar ábendingar
eru svo í þriðja kafla, m.a. uni al-
geng fráhvarfseinkenni og fleiri
vandamál sem geta skotið upp
kollinum þegar menn hætta reyk-
ingum og þar eru nokkrar „síðustu
leiðbeiningar“ fyrir þá sem hafa
ákveðið að hætta.
Loks eru í fjórða kafla leiðbein-
ingar sem miðast við fyrstu fjórtán
reyklausu dagana.
„Ekki fórn heldur frelsun“ fæst
hjá Krabbameinsfélagi Reykjavík-
ur. Suðurgötu 24, sími 19820 og
Reykingavarnanefnd, Lágmúla 9,
sími 82531. Ritið er ókeypis og
verður sent viðtakendum að kostn-
aðarlausu hvert á land sem er.
Hægt er að fá ritið í Heilsugæslu-
stöðinni á Akureyri, svo og aðra
bæklinga Krabbameinsfélags
Reykjavíkur.
Opið á laugardögum
Höfum opið á laugardögum frá ki. 10-12 ívetur.
Verið velkomin.
Gleraugnaþjónustan
Skipagötu 7, sími 24646
Starfsfolk verksmiðj-
anna gefa FSA baðvagn
20. maí sl. afhenti starfsfólk
verksmiðja SÍS á Akureyri
Fjórðungssjúkrahúsinu höfð-
ingiega peningagjöf til minning-
ar um fyrrverandi formann Iðju,
Jón Ingimarsson. Skyldi pen-
ingunum varið til kaupa á bað-
vagni ásamt nauðsynlegum
hjálpartækjum.
Baðútbúnaður þessi er nú kom-
inn til sjúkrahússins og er hann
staðsettur á lyflækningadeildinni.
Baðvagninn er notaður til að baða
sjúklinga lyflækningadeildar, sem
eiga erfitt með eða geta ekki notað
venjulegt baðker. Með tilkomu
þessa baðútbúnaðar breytist öll
aðstaða til að baða lasburða og
lamaða sjúklinga mjög til hins
betra.
(Fréttatilkynning)
Heimildarmynd
um Dalvíkur-
jarðskjálftann
Á næstu dögum er væntanleg
kvikmyndaspóla til Dalvíkur, en
á henni er stutt heimildarmynd,
sem Þjóðverjar tóku, tveim,
þremur dögum eftir jarðskjálft-
ann 1934. Stjórn Héraðsskjala-
safns Svarfdæla samþykkti að
kaupa eintak af myndinni, en
Þjóðverjar eru tregir til að veita
heimild til að láta gera kópíu af
myndinni sem er nú í vörslu
Kvikmyndasafns fslands.
Júlíus Kristjánsson, formaður
stjórnar Héraðsskjalasafnsins sagði
Sjaldan eins mikill
og góður skíðasnjór
„Það hefur sjaidan eða aldrei
verið eins góður skíðasnjór í
Hlíðarfjalii og núna og í fyrra
varð t.d. aldrei eins góð aðstaða
til skíðaiðkana og nú er í fjall-
inu,“ sagði ívar Sigmundsson,
framkvæmdastjóri Skíðastaða í
viðtali við Dag.
„Meðan rigndi sem mest í bæn-
um snjóaði stöðugt í Hlíðarfjalli,
þannig að snjórinn er nægur,“
sagði fvar ennfremur. Sem kunn-
ugt er var skíðalandið opnað al-
menningi 17. október, en gamla
opnunarmetið er 19. nóvember
fyrir meira en áratug.
Tvær lyftur verða opnar í fjallinu
um helgina, stólalyftan og toglyftan
rétt ofan við hótelið. Opið verður
frá 10-16 laugardag og sunnudag.
að Erlendur Sveinsson, hjá Kvik-
myndasafni íslands, hefði séð þessa
mynd og fleiri þegar hann fór til
Austur-Þýskalands á sínum tíma,
síðar fékk safnið kvikmyndirnar.
Júlíus sagði að Kvikmyndasafnið
myndi fá vél til umráða sem gerir
kleift að taka venjulegar ljósmynd-
ir eftir kvikmyndum og yrði sú leið
farin ef Þjóðverjarnir segðu þvert
nei að lokum.
Nú er annað bindi af sögu Dal-
víkur að koma út og ritun þess
þriðja hefst fljótlega. Myndir úr
títtnefndri kvikmynd verða vænt-
anlega notaðar í það síðarnefnda.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 31., 34. og 36. tbl. Lögbirtingarblaðsins 1981 á
fasteigninni Litluhlíð 2A, Akureyri, þingl. eign (vars Sigurjóns-
sonar, fer fram eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs á eigninni
sjálfri þriðjudaginn 3. nóvember n.k. kl. 16.30.
Bæjarfógetlnn á Akureyrl.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 60., 62. og 65. tbl. Lögbirtingarblaðsins 1981 á
fasteigninni Óseyri 7, Akureyri, þinglesin eign Híbýli h.f., fer fram
eftir kröfu innheimtumanns ríkissjóðs á eigninni sjálfri þriðju-
daginn 3. nóvember n.k. kl. 11.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Hrossasmölun
fer fram í Glæsibæjarhreppi 31. október n.k.
Hrossin þurfa að vera komin í Þórisstaðarétt fyrir kl.
12.30.
Fjallskilastjóri.
Úttör eiginkonu minnar og móður okkar
ÞÓRU JÚNÍUSDÓTTUR
verður gerð frá Bægisárkirkju laugardaginn 31. október kl. 2
e.h.
Jarðsett verður að Myrká.
Ármann Hansson og börn.
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og jaröarför
eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu
LÍNEYJAR SIGURÐARDÓTTUR
Dvalarheimlllnu Hlíð.
Rósant Slgurðsson,
Sveinbjörg Rósantsdóttir, Slgursvelnn Friðriksson,
Grétar Rósantsson, Dísa Slgfúsdóttlr,
Barnaböm.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og
útför föður míns og tengdaföður
SIGURÐAR GfSLASONAR
Hvamml, Hrísey
Bestu þakkir til allra er hjúkruðu honum í veikindum hans.
Erla Sigurðardóttir, Jóhann Sigurbjörnsson
og aðrir vandamenn.
6 - DAGUR - 29. október 1981