Dagur - 29.10.1981, Blaðsíða 8
BAGUIR
Akureyri, fimmtudagur 29. október 1981
BÍLAVÍR - RAFGEYMAKAPLAR
LEIDSLU5KÓR - KAPALSKÓR
GEYSIVÆNIR DILKAR
KOMU FRÁ VALLHOLTI
Miklir búferlaflutningar til
Akureyrar og á milli bæjar-
hverfa hefur gert það að verkum
að kjörskráin sem er miðuð við
1. desember 1980 er orðin með
öllu úrelt. Ljóst er að mikil
vinna verður í að gera kjör-
skrána rétta fyrir prestkosning-
arnar í vetur. Að sögn Þormóðs
Einarssonar, sóknarnefndarfor-
manns í Glerárhverfi, verður sú
vinna að mestu leyti innt af
hendi af starfsfólki á bæjar-
skrifstofunni.
Þormóður sagði að það væri allt
of algengt að fólk trassaði svo
mánuðum skipti að tilkynna um
nýtt heimilsfang. T.d. er fjöldi fólks
í Glerárhverfi ekki á kjörskrá þar
heldur á öðrum stöðum í bænum
eða í öðrum landshlutum. Hér er
um að ræða fólk sem hefur flutt
eftir I. desember 1980. Þormóður
vildi hvetja þetta fólk og einnig
íbúa í öðrum hverfum sem eins er
ástatt fyrir að tilkynna sig sem allra
fyrst svo það væri örugglega á
kjörskrá á réttum stað þegar þar að
kemur.
Ný sport-
vöruverslun
Ný sportvöruverslun, SPORT-
LÍF, hefur verið opnuð á Akur-
eyri. Verslunin er til húsa í
Kaupangi, og er eigandi hennar
Sigurjón Egilsson. Verslunar-
stjóri er Guðjón Guðjónsson.
SPORTLÍF er með HUMMEL
íþróttavörur á boðstólum í miklu
úrvali. Auk almennra íþróttavara
leggur verslunin áherslu á að sinna
þeim sem stunda hestamennsku. Þá
selur verslunin SUPERÍA reiðhjól
og þrekhjól, og skíðavörur yfir
vetrartímann.
Strætis-
vagnarnir
fá for-
gangsrétt
Frá og með mánudeginum 2.
nóvember fá strætisvagnarnir á
Akureyri forgangsrétt út í um-
ferðina frá biðstöðvum.
Þetta hefur tíðkast í Reykjavík
og Kópavogi um nokkurt skeið og
er gert til að auðvelda akstur vagn-
anna með tilliti til tímasetningar á
leiðum þeirra. Sérstakt merki
verður sett á afturrúður vagnanna
til að minna ökumenn á þennan
forgangsrétt bíla S.V.A.
Sauðárkróki 27. okt.
Slátrun sauðfjár hjá Sláturhúsi
Kaupfélags Skagfirðinga lauk
þann 22. október. Alls var
slátrað 59,894 kindum, þar af 54
þúsund dilkum. Meðalþungi dilka
reyndist vera 13,604 kg, eða
o,657 kg minni en á síðasta ári.
Vetrarstarf hinna fjölmörgu
félaga á Dalvík er að hefjast. Nú
er búið að rífa æskulýðshúsið á
staðnum og flyst starfsemin
þaðan mikið í skólann. Skát-
arnir eru að fara af stað og
verður starfsemi þeirra svipuð í
vetur og í fyrra. Skíðafélagið er
einnig að hefja starfsemi.
Skíðamenn eru að fá troðara,
sem mun gjörbreyta skíðaað-
stöðunni í fjallinu. Að sögn for-
ráðamanna skíðafélagsins er
von á troðaranum í nóvember.
Troðarinn verður einnig notað-
ur sem björgunartæki ef því er
að skipta.
Ungmennafélagið er að fara af
stað með sína vetrarstarfsemi. Á
vegum félagsins erður haldið kar-
Skóverksmiðjan Iðunn er nú
langt komin með að framleiða
eitt þúsund pör af skóm fyrir
tékkneskt fyrirtæki og hefur
framleiðslan sem slík gengið
ágætlega.
„Við vitum ekki hvort framtíð er
í þessu og ekkert hægt að segja um
það fyrr en Tékkamir koma með
Heildarmagn innlagðs kjöts var
873,680 kg. Þyngsta dilkinn átti
Hafsteinn Lúðvíksson Ytra-Vall-
holti og var hann 34,2 kg. Meðal-
þyngd dilka frá Vallholti reyndist
vera 17,842 kg en alls var slátrað
344 dilkum þaðan.
atenámskeið og það eru félagar í
Karatefélagi Akureyrar sem munu
kenna. Einnig erfélagið meðfrúar-
leikfimi og boltaíþróttir. Hesta-
mannafélagið verður með svipaða
starfsemi í vetur og undanfarin ár.
Þeir eru að enda góða vertíð ef svo
mætti að orði komast. í sumar voru
hestamenn með reiðskóla og í hon-
um voru um 80 unglingar. Þessi
þáttur starfseminnar hefur aldrei
verið jafn viðamikill og í sumar.
Áhugi almennings og bæjaryfir-
valda á æslulýðsmálum virðist oft á
tíðum vera mjög lítill. Þessi mál
lenda alltof oft á of fáum herðum,
en vonandi stendur þetta allt til
bóta í vetur og að Dalvíkingar
styðji vel við bakið á íþrótta og
æskuiýðsmálum og taki þátt í hinu
fjölbreytta starfi sem á boðstólum
raunhæft tilboð. Aðalspurningin
varðandi það hvort þetta gæti
gengið er sú, hversu sterkt dreif-
ingarkerfi þeirra er á Bandaríkja-
markaði. Ef það er gott og öflugt
ættu að vera möguleikar fyrir þessa
framleiðslu", ságði Hjörtur Eiríks-
son, framkéæmdastjóri Iðnaðar-
deildar Sambandsins, er Dagur
innti hann eftir þessum málum.
Slátrun stórgripa hófst 26. okt. og
stendur fram í nóvember. Ekki er
ljóst hversu miklu verður slátrað en
ljóst að það verður með meira móti.
Undanfarandi harðindi hafa
höggvið skarð í heyfeng bænda sem
ekki var of mikill fyrir.
Allar
handvirkar
stöðvar
í sólar-
hrings
„Það er alltaf gaman að segja
frá þegar við getum aukið
þjónustuna,“ sagði Ársæll
Magnússon, umdæmisstjóri
Pósts og síma, en hans umdæmi
nær frá Hrútafirði og allt
austur til Langaness.
„Innan tveggja mánaða verður
búið að koma öllum handvirku
stöðvunum í sólarhrings þjónstu.
Þær njóta að sjálfsögðu afgreiðslu
hjá sínum stöðvum á afgreiðslu-
tíma, en utan hans verða þær
tengdar öðrum stöðvum. Hand-
virkir notendur við Fosshól verða
utan afgreiðslutíma Fosshóls í sól-
arhringsþjónustu við Húsavík. Það
sama gerist í Miðfirði. Fyrir utan
afgreiðslutíma stöðvarinnar á
Hvammstanga verða handvirkir
notendur þeirrar stöðvar tengdir
við Sauðárkrók í sólarhrings-
þjónstu. Þessu fylgir að sjálfsögðu
mikið öryggi,“ sagði Ársæll. Not-
endurnir sem hér um ræðir eru
rösklega 100 að tölu.
G.Ó.
~rj
% Að skattleggja
skattinn
„Ég fékk á dögunum til-
kynningu um brunabótaið-
gjald og nam upphæðin 187
krónum. Á sama miða kom
fram enn hærri upphæð, nefni-
lega viðlagatryggingariðgjald
upp á 203 krónur. Síðan var
lagður söluskattur á allt
saman og nam hann 92 krón-
um. Ég hélt í einfeldni minni að
viðlagagjaldið væri eins konar
skattur, sem fest hefði í sessi í
kjölfar Viðlagasjóðs, sem varð
tii í Vestmannaeyjagosinu. Ég
get ekki með nokkru móti skil-
ið hvernig hægt er að standa á
því a skattleggja skattinn, þ.e.
leggja söluskatt á viðiaga-
gjaldið. Mér finnst þetta
hreinasta ósvinna," sagði
viðmælandi Dags og er sjónar-
miðum hans hér með komið á
framfæri.
% „Jómfrúin“
hlýtur
góða dóma
Eins og lesendum Dags er
kunnugt frumsýndi L.A. lelkrit-
ið „Jómfrú Ragnheiði" s.l.
föstudagskvöld. Leikritið hefur
híotið mikið lof áhorfenda,
enda er leikur lelkstjórn með
því besta sem gerist á fjölunum
í Samkomuhúsinu. í blaðinu í
dag er auglýsing frá L.A. og er
fólk hvatt til að athuga hana, og
tryggja sér miða í tíma á leik-
sýningar helgarinnar.
■cr
% Togarar
sigla
Það vekur alltaf svolitla furðu
þegar togarar landsmanna
halda yfir pollinn og selja fisk í
nágrannalöndunum. Nýlega
kom Kolbeinsey til Húsavíkur
eftir söluferð, en meðan á
ferðinni stóð var gæftaleysi og
ekki of mikill fiskur í frysihús-
inu á Húsavík. Án efa eiga for-
ráðamenn togarans til hald-
góðar útskýringar á siglingu
þessa glæsilega skips, en því
verður ekki á móti mælt að
togararnir eru gerðir út frá ver-
stöðvum a Islandi til að skapa
vinnu á fslandi — og bæta má
við að útgerð a.m.k. sumra
togara landsmanna er stórlega
styrkt með fé úr opinberum
sjóðum.
% Undurog
stórmerki
Á dögunum gerðust þau undur
og stórmerki að allir þingmenn
Norðurlandskjördæmis vestra
komu til Hvammstanga. í þeim
hópi voru tveir ráðherrar, þeir
Pálmi Jónsson og Ragnar Arn-
alds. Þeir skoðuðu m.a. skól-
ann sem er allsendis ófull-
nægjandi og þeir ræddu við
forráðamenn fyrirtækja. Ekki
voru mörg loforð gefin en von-
ast er tll að skilningur þing-
manna á málefnum Hvamms-
tanga hafi aukist verulega.
FJÖLBREYTT
FÉLAGSLÍF
Dalvík 19. októbcr.
erA.G.
Framleiðsla á tékknesku skónum:
Óvíst með framhaldið