Dagur - 01.12.1981, Blaðsíða 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
FIL.MUHÚSIB AKUREYRi
64. árgangur Akureyri, þriðjudagur 1. desember 1981
■■■■■■■i^■■■■■■■■■■■ll^■■■■■■■■■■H■■■■H■■■■■■■■■■■■■■■■IM■■■■■■■■■■
91. tölublað
■nwMnm
..ÞETTA
ERU
HELdER
ÓSANN-
INDI“
„Það eru helber ósannindi að ég
hafi dregið taum annars fram-
bjóðandans fyrir prestkosning-
arnar í Akureyrarsókn sem fram
fara um næstu helgi, og ég skil
ekki hvernig þessi orðrómur
hefur komist á kreik“ sagði séra
Birgir Snæbjörnsson sóknar-
prestur á Akureyri í samtali við
Dag.
„Ég hef ekki notið leikhús-
ferðar svo vel í langan tíma ‘ ‘
ER NÚ
18ÁR
f prestkosningunum sem fram
fara á Akureyri n.k. sunnudag er
kosningaaldur í fyrsta skipti í
almennum kosningum á Akur-
eyri miðaður við 18 ár.
I Akureyrarsókn, þar sem þeir
eru í kjöri Jón A. Baldvinsson og
Þórhallur Höskuldsson, eru um
6400 manns á kjörskrá. í Lög-
mannshlíðarsókn og Miðgarða-
sókn (Glerárprestakall) þar sem
þeir eru í kjöri Gylfi Jónsson og
Pálmi Matthíasson eru um 2300
manns á kjörskrá.
Fólk er eindregið hvatt tii þess að
taka þátt í kosningunni og að kjósa
tímanlega. Kjörstaðir verða í Odd-
eyrarskóla fyrir Akureyrarsókn og í
Glerárskóla fyrir Lögmannshlíðar-
sókn.
Blönduvirkjun næsta stórvirkjun „ef samningar nást um það við heimamenn“
Rflcisstjórnin hefur ákveðið röð
næstu stórvirkjana og sam-
kvæmt þeirri ákvörðun verður
Blönduvirkjun, samkvæmt
virkjunartilhögun I, næsta
meiriháttar vatnsaflsvirkjun,
eftir Hrauneyjarfossvirkjun,
„enda takist að ná samkomulagi
um það við heimamenn,“ eins og
segir í samþykkt ríkisstjórnar-
innar frá því á föstudag. Sam-
kvæmt þessu er það alfarið lagt
á vald andstæðinga Blöndu-
virkjunar meðal heimamanna
hvort Blanda verður fyrst í röð-
inni. Því má allt eins búast við
því að ekki verði af virkjun
Blöndu á næstunni.
í samþykkt ríkisstjórnarinnar
segir ennfremur, að ef ekki næst
samkomulag við heimamenn og
þar af leiðandi verði ekki ráðist í
Blönduvirkjun nú, komi Fljóts-
dalsvirkjun í hennar stað. Sé miðað
við að samkomulag náist verða
Fljótsdalsvirkjun og Sultartangi
næst á eftir Blöndu og er ákveðið
að framkvæmdir við Blöndu og
Fljótsdalsvirkjun skarist og að
Sultartangavirkjun verði samhliða
Fljótsdalsvirkjun.
1 samþykkt ríkisstjórnarinnar er
ekki gefinn neinn ákveðinn frestur
varðandi samþykkt virkjunarinnar
og ekki er tiltekið hvort nægjanlegt
sé að mótmælandi virkjunar sé
einn einstaklingur, meirihluti eins
hrepps, eða eitthvað annað.
Sögusagnir þess efnis hafa verið
á kreiki í bænum að undanförnu.
og sagðist séra Birgir harma það
mjög að fólk legðist svo lágt að ætla
sér slíkt. Sagði hann að það hefði
komið fyrir að fólk hefði hringt í'sig
og spurt hvorn umsækjendanna
hann vildi fremur fá til samstarfs
við sig en hann hefði staðfastlega
vísað öllum slíkum spurningunt frá
sér. Meira vildi Birgir ekki tjá sig
urn málið. sagðist aðeins harnta að
þessi orðrómur sem alls ekki ætti
við nein rök að styðjast hefði
komist á kreik.
I sýningu L.A. á „Jómfrú Ragnheiði". Myndin var tekin að
| tjaldabaki eftir sýninguna s.l. fimmtudagskvöld. Ljósm. KGA.
ATVINNUMÁL
í ATHUGUN
„Ég hef rætt við formann Tré-
smiðafélags Reykjavíkur og
hann talar um blómaskeið í at-
vinnumálum byggingariðnaðar-
manna í höfuðborginni, enda
vekur það athygli þegar maður
fer um Reykjavík hvað feikilega
mikið er þar af húsum í byggingu
á vegum opinberra aðila, bæði
borgarinnar og ríkisins“ sagði
Hákon Hákonarson sem sæti á í
Atvinnumálanefnd Akureyrar-
bæjar í samtali við DAG.
— Hákon sagðist vona í lengstu
lög að ekki kæmi til þess að bygg-
ingariðnaðarmenn hér á Akureyri
myndu þurfa að fara suður til
Reykjavíkur í atvinnuleit. Hins-
vegar lægi ljóst fyrir að hér hefði
haustað mjög snemma og væri allt
eins von á því að ekki yrði full at-
vinna hjá byggingarmönnum í vet-
ur. Nú væri unnið að könnun á
þessu máli, og þá kæmi betur í ljós
hvernig ástandið yrði í vetur.
^Forseti Islands, frú Vigdls Finnbogadóttir, heilsar upp á
Guðbjörgu Thoroddsen sem fór með hlutverk Ragnheiðar í
Prests
kosningar:
KOSNINGA
ALDUR
Ráða andstæðingar
Blöndu virkjunarröð?
— sagði Vigdís Finnbogadóttir, forseti fslands. eftir sýningu L.A. á „Jómfrú Ragnheiði“
„Ég kom til Akureyrar til þess
að fara í leikhúsið að sjá Jóm-
frú Ragnheiði“ sagði frú
Vigdís Finnbogadóttir forseti
Islands er Dagur ræddi við
hana s.l. föstudagsmorgun.
Vigdís var þá stödd á Hótel
KEA, en ætlunin hafði verið að
halda þá um morguninn til
Húsavíkur. Af því gat ekki
orðið þá vegna ófærðar.
„Mér þótti ákaflega gaman,“
sagði Vigdís er við spurðum hana
um sýningu Leikfélags Akureyrar
á Jómfrú Ragnheiði. „Þetta er
með beztu leiksýningum sem ég
hef séð undanfarin ár, sannast
best að segja. Ég var ákaflega
hrifin og hef ekki notið svona vel
leikhúsferðar í langan tíma. Þetta
er sýning sem Akureyringar og
Norðlendingar mega vera mjög
hreyknir af og fullkomlega þess
virði að gera sér ferð á hendur
hingað norður til þess að sjá þetta
og meira að segja að verða veð-
urtepptur hér. Alveg eins og það
er oft þess virði fyrir Norðlend-
inga að fara suður og sjá leiksýn-
ingar."
— Éins og áður sagði var það
ætlun forsetans að halda til
Húsavíkur þeirra erinda m.a. að
fara þar á safn. En þegar við
ræddum við Vigdísi var ekki útlit
fyrir að veðurguðirnir ætluðu að
leyfa ferðalag þangað.
„Það er þannig mál með vexti.
að ég hef held ég aldrei farið í
leikhús á Akureyri. án þess að
verða hér veðurteppt. en ég fór
mikið hingað í leikhús á rneðan
ég var leikhússtjóri. Þar af leiddi
að þegar ég kom á Amtsbóka-
safnið í sumar. kunni ég það allt
að því utanbókar. því ég hafði
setið þar svo mikið veðurteppt."
AUGLYSINGAR OG ASKRIFT: 24167 - RITSTJORN: 24166 OG 21180