Dagur - 01.12.1981, Qupperneq 5
Iðnaðarmanna-
félag Akur-
eyrar endurreist
Nú er í gangi tilraun til að
hleypa nýju lífi í starfsemi Iðn-
aðarmannafélags Akureyrar, en
félagið hefur ekki starfað nokk-
ur undanfarin ár.
Félagið var stofnað árið 1904 og
hafði þá m.a. eftirfarandi mark-
mið, sem ekki eiga síður við í dag:
Að styðja að því að nýtir iðnað-
armenn alist upp. Að hlynna að því
að innlendur iðnaður festi dýpri
rætur en nú er í þjóðfélaginu. Að
hlutast til um að nýjar iðngreinar
verði stofnsettar á Akureyri.
Eitt helsta verkefni félagsins frá
upphafi hefur verið að stuðla að
betri iðn- og verkmenntun og rak
félagið Iðnskóla frá 1905 svo til
óslitið þar til ríki og bær tóku við
rekstri hans árið 1955.
Síðastliðið vor var haldinn aðal-
fundur Iðnaðarmannafélagsins.
Þar var rædd hugsanleg starfsemi
félagsins á næstunni og kosin ný
stjórn. Samþykkt var að megin-
verkefnin skyldu tengjast iðn-
fræðslu, stuðningi við byggingu nýja
verkmenntaskólans og þátttöku í
mótun hugmynda um iðnfræðsl-
una. Einnig var ákveðið að efna til
fræðslufunda, þar sem flutt yrðu
erindi um mál er varða hagsmuni
iðnaðarmanna. Jafnframt yrði leit-
að eftir samstöðu iðnaðarmanna
um að efla hag félagsins.
í framhaldi af þessu hafa verið
haldnir þrír fundir á vegum félags-
ins. Á fyrsta fundinum gerðu
Haukur Árnason formaður bygg-
inganefndar Verkmenntaskólans
og Aðalgeir Pálsson skólastjóri
Iðnskólans grein fyrir skólaskoð-
unarferð til Norðurlanda og Eng-
Hjólreiða-
keppni
Fyrir nokkru fóru fram loka-
úrslit í Hjólreiðakeppni skól-
anna. 16 bestu sem kepptu í
milliriðlum í vor tóku þátt i
lokaúrslitunum. Keppt var í
tveimur riðlum, á Akureyri og i
Reykjavík.
Eins og áður var úrslitakeppnin
þríþætt, þ.e. spurningar um
umferðarmál, góðakstur og hjól-
reiðaþrautir. Alls höfðu 16 kepp-
endur áunnið sér rétt til þátttöku en
14 mættu til leiks..
I átta efstu sætum urðu:
1. Theódór Kristjánsson,
Hagaskóla Reykjavík 414
2. Einar B. Malmquist,
Gagnfræðask. Akureyrar 406
3.-4. Agnar Guðmundsson,
Grunnsk. Blönduósi 392
3.-4. Kristinn Guðlaugsson,
Öldutúnssk. Hafnarfirði 392
5. Hjörtur Þór Grétarsson
Árbæjarskóla Reykjavík 387
6. Kári Lúthersson,
Réttarholtssk. Reykjavík 386
7. Kristjana G. Bergsteinsd.,
Laugalandsskóla Eyjaf. 385
Keppendur voru mjög jafnir og
munur í stigum lítill. Þeir Theódór
og Einar sem urðu í 1. og 2. sæti
keppninnar fara sem fulltrúar fs-
lands í hjólreiðakeppni á vegum
P.R.I. — alþjóðasamtaka umferð-
arráða, en hún verður haldin í
Hollandi í maí mánuði n.k. Þar
munu ennfremur 2 vélhjólapiltar,
þeir Rúnar Guðjónsson frá Selfossi
og Karl Gunnarsson Reykjavík
keppa í vélhjólaakstri, en þeir
sigruðu - úrslitakeppni vélhjóla-
pilta sem haldin var í Reykjavík, á
vegum Bindindisfélags ökumanna
o.fl. í samráði við Umferðarráð, 3
okt. s.l.
lands og kynntu byggingaáform
Verkmenntaskólans. Á næsta fundi
kynntu bankastjórar og fjármála-
sérfræðingar Iðnaðarbankans h/f
lánakjör iðnaðarins og var sá
fundur fjölsóttur. Á þriðja fundin-
um flutti svissneski arkitektinn
André Studer fyrirlestur og sýndi
skyggnur um byggingarlist og sér-
stæðar hugmyndir við hönnun
bygginga.
UNNIÐ FYRIR LÁNSFÉ
„Við undirritaðir bæjarfulltrúar
Framsóknarflokksins, óskum
eftir að eftirfarandi verði bókað
vegna afgreiðslu ársreikninga
bæjarsjóðs árið 1980: Við gerum
ekki athugasemdir hvað varðar
tölulegt réttmæti reikninganna.
Aftur á móti undirstrika þessir
reikningar, það sem við höfum
áður bent á, bæði við afgreiðslu
fjárhagsáætlunar ársins, og síð-
ar í umræðum i bæjarstjórn, að
nær ekkert af tekjum bæjarsjóðs
hefur farið til verklegra fram-
kvæmda, enda sýna reikning-
arnir óumdeilanlega, að svo er.
Jafnframt viljum við ítreka, að
ekki er hægt að halda áfram
rekstri bæjarsjóðs á þessari
braut, og hér verður að breyta
um stefnu í fjármálastjórn bæj-
arins.“ Undir þessa bókun skrifa
þeir Bogi Sigurbjörnsson og
Skúli Jónasson, bæjarfulltrúar á
Siglufirði.
„Við teljum að núverandi meiri-
hluti hafi engan veginn staðið sig.
Nú er staðan þannig að nær allt
eigið fé bæjarins fer í rekstur hans.
Hér eru engar framkvæmdir 1 gangi
og svo hefur verið þrjú síðustu ár,“
sagði Bogi, er blaðið innti hann
nánar um málið. „Og ef við athug-
um framkvæmdir í sumar og hug-
um að gatnagerðarframkvæmdum,
þá kemur í ljós að þær eru unnar
fyrir erlent lánsfé. Með öðrum
orðum þá virðist allt benda til að
staðan í ár verði ekki betri en í fyrra
— verri ef eitthvað er. í verklegar
framkvæmdir á eigið aflafé að fara,
en erlend lán eiga að fara til orku-
framkvæmda.“
„í sambandi við reikninga bæj-
arins fyrir 1980 má geta þess að
einu verklegu framkvæmdirnar eru
þær, að ráðhúsið var klárað, en það
hefur verið í byggingu síðan 1963.
Einnig var greiddur hluti í snjó-
troðara," sagði Bogi að lokum.
KYNIMIIMG Á TOSHIBA
ÖRBYLGJUOFNUM
Verður haldinn í húsnæði Haga við Glerárgötu 26.
Boðið verður upp á kjúklingarétti frá Alifuglabúinu
FJÖREGG
Dröfn H. Farestveit, hús-
stjórnarkennari, sérfræð-
ingur okkar í meðferð og
matreiðslu í örbylgjuofn-
um heldur matreiðslu-
kynningu sem hér segir:
Fimmtudag 3. desember
kl. 16-18 og 20-22
Föstudag 4. desember kl.
10-12 og 17-19
Verið velkomin og kynnist því
hvernig hægt er að matreiða
allan venjulegan mat í TOS-
HIBA örbylgjuofninum á ótrú-
lega stuttum tíma. Hvers
vegna margir réttir verða betri
úr TOSHIBA ofninum en
gömlu eldavélinni. Og þér er
óhætt að láta börnin baka.
Verð frá kr. 3.990,-
TOSHIBA örbylgjuofnarnir
hafa slegið í gegn í Evrópu og
Ameríku fyrir einstaklega
jafna dreifingu á örbylgjun-
um og örugga uppbyggingu
með 3-földu öryggi er gerir
ofninn hættulausan.
Og síðast en ekki síst. Svo þú
fáir fullkomið gagn af ofnin-
um þínum höldum við mat-
reiðslunámskeið fyrir eigend-
ur TOSHIBA ofna.
RAF
Glerárgata 26, Ak.
Sími 25951
Einar Farestveit & Co. hf.
Bergstaðastræti 10a, Rvík.
Sími 16995
1. desember 1981 - DAQUR - 5