Dagur - 01.12.1981, Blaðsíða 12
Ytra- og Innra Lón f Kelduhverfi.
Flatarmál lónsins er 2 ferkm. 1 Innra-
Lóni er dýpi allt aó II metrar, en f
Ytra-Lóni er dýpi 1-2,5 metrar.
BÚIÐ AÐ
SLÁTRA
FYRSTU
LÖXUNUM
Fyrir helgi var hafist handa við
að slátra fyrstu Iöxunum sem
hafa verið aldnir í búrum í Lóni í
Kelduhverfi. Að sögn
Guðmundar Héðinssonar, sem
hefur annast eftirlit með laxeld-
inu, lauk verkinu í gær. Alls átti
að slátra um 5 tonnum af laxi og
fljótt eftir áramót verður slátrað
15 tonnum.
..Þetta hefur gengið sæmilega,“
sagði Guðmundur er rætt var við
hann í gær. „Fiskur er nokkuð
góður. miðað við þann stutta tíma
sem hann hefur verið í búrunum,
en sá fiskur sem við erum að slátra
hefur verið í þeim í rúmt ár.
Meðalþyngdin er um 2,5 kg. Það
hafa fengist einir 5 fiskar sem eru
yfir 5 kg að þyngd.
Fiskurinn var upphaflega í
hringlóttum kvíum, en í vor komu
Norðmenn með fleiri búr og um
leið var bætt við fiski. Gerði
Guðmundur ráð fyrir að þeim fiski
yrði slátrað næsta haust. Þess skal
getið að fiskur er ekki eingöngu al-
inn upp í búrum. í sumar var 20
þúsund seiðum sleppt í lónið og
sagði Guðmundur ráð fyrir að
þeim fiski yrði slátrað næsta haust.
Þess skal getið að fiskur er ekki
eingöngu alinn upp í búrum. í
sumar var 20 þúsund seiðum sleppt
í lónið og sagði Guðmundur að
þeir fiskar sem skila sér næsta ár
yrðu veiddir í gildrur.
Utboðs-
GÖGNIN
VANTAÐI
Samkvæmt áætlun átti að steypa
þekju á hafnargarð á Sauðárkróki
s.l. sumar. Fjárveiting var komin,
en útboðsgögn vantaði frá Vita- og
Hafnarmálaskrifstofunni. Sumarið
leið og ekkert bólaði á útboðs-
gögnunum. Sauðkrækingar tóku
sig þá til og vörðu fjárveitingunni í
að undirbúa grjótnám. Samkvæmt
heimildum Dags, gera menn sér
vonir um að útboðsgögnin verði
tilbúin næsta vor og að fjárveiting
fáist til verksins. Heimildarmaður
Dags sagði það vera u.þ.b. vikuverk
að gera útboðsgögnin.
BYRJAÐ AÐ FYLLA
UPPIHÖFNINA
Á síðasta fundi bæjarstjórnar
var samþykkt framkvæmdaáætl-
un vegna lagningu vegar frá
Aðalstræti við Höpfnersbryggju
meðfram sjónum og út að
Grænugötu. Næstu daga verður
hafist handa við að fylla upp i
hluta af dokkinni, þar sem veg-
urinn mun liggja í framtíðinni.
Þessari framkvæmdaáætlun er
skipt í þrjá aðalþætti: 1. Drottn-
ingarbraut milli Aðalstrætis og
Kaupvangsstrætis. Þessi hluti
verksins er að mestu í því fólginn
að ganga frá núverandi akbraut, en
lagningu annarrar akbrautar, sem
kemur vestar, er frestað um ó-
ákveðinn tíma. Áætlaður kostnað-
ur 1 milljón. 2. Glerárgata milli
Kaupvangsstrætis og Strandgötu.
Hér á að gera tvær akbrautir með
graseyju á milli og gangstéttir.
Áætlaður kostnaður er 5,1 milljón.
3. Glerárgata milli Strandgötu og
Grænugötu. Áætlað er að leggja
tvær akbrautir milli þessara gatna.
Sameiginlegur fundur bæjarráðs
og hafnarstjórnar hafði áður lagt til
við bæjarstjórn að framkvæmda-
áætlunin yrði samþykkt, en lögðu
áherslu á að hraðað yrði skipulagi
Akureyrarhafnar, sem nú er unnið
að. þannig að unnt yrði að taka
ákvörðun sem fyrst um Tram-
kvæmdir við nýtt báta og skipalægi,
í stað þess sem skerðist við fyrr-
nefndar framkvæmdir. I framhaldi
af samþykkt bæjarráðs og hafnar-
stjórnar voru samþykktar eftirfar-
andi tillögur.
1. Bæjarstjórn samþykkir að láta þegar í
slað fullgera deiliskipulag að hafnar-
svæði á Torfunefi við Hofsbót þar sem
verði smábáta- og farþegahöfn eins og
gert er ráð fyrir i Aðalskipulagi Ak-
ureyrar 1972/93 grein 4.4.4.3, sbr.
einnig samþykkt bæjarstjórnar frá 24.
apríl 1980 um höfn á Torfunefi.
2. Á hafnarsvœðinu verði búin aðstaða
fyrir afgreiðslu við farþegaflutninga á
sjó (flóabát) svo og fyrir þjónustu við
ferðamenn og skemmtiferðaskip
(upplýsingaskrifslofa) auk þess sem
hugað verði að fisksölutorgi og úli-
markaði. Einnig verði á hafnarsvæð-
inu aðstaða á landi fyrir skemmtibáta
og siglingamenn. Þá verði á hinni nýju
höfn reynt að tryggja legurými fyrir
fiskiskip og báta.
Að lokum samþykkti bæjarstjórn
að hafnar skyldu framkvæmdir við
1. hluta 2. áfanga nú þegar í sam-
ræmi við fjárveitingar á þessu ári.
En það felur í sér m.a. að hluti af
gömlu dokkinni verður fylltur upp
og þar lagður vegur yfir. Ennfrem-
ur að svæðið milli Skipagötu og
dokkarinnar verður undirbúið fyrir
framtíðarbifreiðastæði, enda þótt
kostnaður við gerð þeirra sé ekki í
fyrrgreindri áætlun.
JC SÚLUR
OG SVFA
NÁMSKEIÐ
ISKYNDI-
HJÁLP
OG ELD-
VÖRNUM
Flugbjörgunarsveitin á Akureyri
og JC Súlur eru um þessar
mundir að fara af stað með
námskeið fyrir bæjarbúa þar
sem kennd verður skyndihjálp
og leiðbeint um eldvarnir.
Fyrsta kynningarkvöldið fer
fram n.k. fimmtudagskvöld í
Galtalæk og hefst það kl. 20. Það er
ætlað þeim sem búa sunnan Þing-
vallastrætis og Kaupangsstrætis.
Nánar mun svo verða auglýst
kynningarkvöld fyrir íbúa annara
hverfa.
Dagskrá kynningarkvöldanna er
þannig að rætt er um skyndihjálp,
tilgang hennar og markmið. Þá er
fjallað um sálræn viðbrögð sjúkl-
ings og skyndihjálparmanns. Rætt
er um varnir og viðbrögð gegn
nokkrum tegundum slysa í heima-
húsum. Sýnd er kvikmynd og leið-
beint varðandi blástursaðferð og
læsta hliðarlegu. Þá verður fyrir-
spurnum svarað. Víkingur Björns-
son verður með kynningu á eld-
vörnum í heimahúsum, s.s. reyk-
skynjurum og fleiru.
Borinn festist
í Botnsholu
„Við erum að komast yfir þetta
vandamál og vonumst til að geta
flutt borinn upp á Glerárdal á
morgun,“ sagði Vilhelm V.
Steindórsson, hitaveitustjóri, f
viðtali við Dag í gær, en jarð-
borinn sem verið hefur við bor-
anir í Botni festist, þegar átti að
draga hann upp, og hefur verið
unnið við að losa hann á aðra
viku.
Samkomulag er um það milli
Hitaveitu Akureyrar og Jarðborana
ríkisins, að ekki sé greidd borleiga
meðan ekki er borað og greiðsla til
áhafnarinnar skiptist í ákveðnu
hlutfalli milli hitaveitunnar og
Jarðborana.
Eins og kom fram hjá Vilhelm er
ætlunin að fara með borinn upp á
Glerárdal, þar sem ein af fjórum
tilraunaholum verður virkjuð.
Tvær þeirra gefa vatn, samtals um
10 sekúndulítra af sjálfrennandi
vatni, en sú sem virkjuð. verður
gefur um 6 sek./l. Búið er að leggja
háspennulínu upp á dal og verið að
leggja rör.
Þórshafnartogarinn:
Skipasmíða-
stöðin
er gjaldþrota
„Við eigum eftir að fá nánari
fréttir af þessu gjaldþroti, en við
erum bjartsýnir eftir þeim heim-
ildum sem við höfum, er ólíklegt
að við verðum fyrir nokkru
skakkafalli vegna gjaldþrots-
lns,“ sagði Ólafur R. Jónsson,
sveitarstjóri á Þórshöfn, en þær
fréttir bárust frá Noregi um
helgina að skipasmiðastöðin i
Kristjánssandi, sem smíðar tog-
arann fyrir Þórshafnarbúa,
hefði lýst sig gjaldþrota.
Ólafur sagði að skipasmíðastöð-
in hefði á sinum tíma lagt fram
bankaábyrgð vegna smíðar
skuttogarans og það væri ljóst að
viðskiptabanki stöðvarinnar tapaði
mun meira en ella ef hann tæki
ekki við rekstrinum og lyki a.m.k.
við þau verk sem væru í gangi í
stöðinni.
Það kom einnig fram í viðtalinu
við Ólaf að gert var ráð fyrir því að
skipið yrði tilbúið á tímabilinu 20.
febrúar til 15. mars. „Það má búast
við að afhendingu skipsins seinki
eitthvað fram á vorið“, sagði Ólaf-
ur.
% Samruni
Samrunl síðdegisblaðanna
Vísis og Dagblaðslns í eina
sæng með áletruninni „Dag-
blaðið og Vísir“ skók heldur
betur blaðaheimlnn s.l.
fimmtudag enda gerast ekkl
önnur eins tfðindi ekki á hverj-
um degi. Það að „rauðvíns-
pressan" og Svarthöfðl væru
farln að starfa saman undir
einu þakl var hlutur sem menn
áttu ekki von á, og höfðu sumir
á orðl að Svarthöfðl hefði villst
upp f til Jónasar og C.o. í
timburmönnum. Starfsfólkið
mætti til vinnu um morguninn á
bæði blöðin og var þá annað-
hvort boðlð hátíðlega velkomið
til starfa á nýju blaði eða þá að
það fékk - hendur uppsagnar-
bréf sem tók þegar gildl.
0 Ellert
skynsamur
en Vfsls-svlpur sást alls ekkl á
króanum. Blaðið var með
rauðu letri í haus og kili, fyrir-
sagnarletur var Dagblaðsins,
og flestar sfður blaðsins svo
og „hausar" í því voru nánast
síður DB þótt í DB og Vísi væri.
% Bókagerðar-
menn reiðir
Eftir öruggum heimildum höf-
um við það að bókagerðarfólk í
Blaðprent, þar sem Vfslr var
áður unnlnn, hafi nánast feng-
ið slag þegar fréttln skall yfir,
og í Ijós kom að nýja blaðið
yrði ekkl unnið þar. Það er
skiljanlegt að þelm brygði í
brún, Vísir lagði til stóran hluta
af vlnnu starfsmanna fyrirtæk-
isins, sem nú var farin, og
staðreyndln blasti við: Engar
aukavaktir né yflrvinna í des-
emberl Að fá slfkt yfir sig í
kjölfar verkfalls er auðvltað
ekki gott.
Þeir Jónas Kristjánsson rauð-
vínssamakkari og Ellert B.
Schram verða ritstjórar hins
nýja „óháða og frjálsa blaðs",
og hófst samstarf þeirra í skjóli
náttmyrkurs aðfararnótt
fimmtudagsins. Tókst það svo
vel að Jónas lýsti því yflr f
Rfkisútvarpinu daginn eftir að
Ellert værl mjög skynsamur
fagmaður sem gott væri að
vinna með, enda hefðu þeir
starfað saman þá um nóttina.
Svo þegar blaðlð kom á göt-
urnar mátti skilja ánægju
Jónasar. Það kom nefnllega f
Ijós að frumburðurinn bar öll
einkennl Dagblaðslns sáluga,
% Fráónefndum
húsverði
f Smáu og stóru í sfðustu viku
var vísa frá ónefndum húsverði
f oplnberri bygglngu. Einnig
var þar klausa, en í hennl var
húsvörðurinn hvattur tll að búa
til aðra vísu þar sem fram
kæmi „slagorðlð" hjá kvenna-
llstanum. Snemma á föstu-
dagsmorguninn hrlngdl hús-
vörðurinn og mælti í sfmann:
Eðlinu fnr englnn breytt,
eða nnr að letja,
melra ó oddlnn mjúkt og heltt,
munu konur aetja.