Dagur - 08.12.1981, Page 1
TRÚLOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
64. árgangur
■^GSflHflflHHflflBBBflflflflflflSBflHflflBflBBflBBSBðHfli
■BflflBBflBBflHHHH^HnflBflHBflBBBflBBHBBBI
Akureyri, þriðjudagur 8. desember 1981
SBH
Bfl
BHBflflHBBflfli
93. töiublað
Prestkosningar á Akureyri:
GÓD ÞÁTTTAKA
- atkvæðatölur liggja fyrir á fimmtudaginn
Mikil þátttaka var í prestkosn-
ingunum á Akureyri og í Gríms-
ey s.l. sunnudag. Allir sem gátu
kusu í Grímsey, en þar voru 12
að heiman og áttu þess því ekki
kost að velja sér prest. Kosið var
á þremur stöðum, þ.e. í Glerár-
KVEIKT I
BILA
AKUREYRI
Aðfararnótt s.l. sunnudags var
kveikt í bíl, sem stóð í sundinu
sunnan við Útvegsbanka íslands
við Hafnarstræti. Einnig logaði
eldur í plasti sem hefur verið
tjaldað utan um glugga bank-
ans, en unnið er að viðgerð á
þeim. Töluverðar skemmdir
urðu á bflnum.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar var slangur af fólki í
miðbænum þegar þessir atburðir
áttu sér stað, og því hljóta að vera
til vitni að þeim. „Það getur vel
verið að viðkomandi hafi ekki ætl-
að sér að kveikja í bílnum, en hafi
tekið logandi plast og hent því frá
sér með þessum afleiðingum,“
sagði lögregluþjónninn sem rætt
var við.
Rannsóknarlögreglan vinnur nú
að lausn málsins, en allir þeir sem
geta gefið einhverjar upplýsingar
um það, eru beðnir um að láta vita
af sér sem fyrst.
Samdráttur
á fasteigna-
markaði
„Markaðurinn hefur dregist
mjög mikið saman. Það kemur
mjög lítið inn af nýjum íbúðum á
söluskrá, en þær seljast yfirleitt
fljótt eftir að það gerist,“ sagði
fasteignasali á Akureyri í sam-
tali við Dag.
Fasteignasalinn sagði að aðal-
ástæðan fyrir samdrætti á fast-
eignamarkaðinum væru væru sú að
lítið hefði verið byggt á Akureyri,
og fólk í eldra húsnæði seldi það
ekki fyrr en það væri búið að
tryggja sér nýtt. „Það er staðreynd
að það fæst minna fyrir krónuna og
það er líka ljóst að almenningur er
ekki enn búinn að átta sig fyllilega
á myntbreytingunni. Allt eru þetta
atriði sem hafa sín áhrif.“
Vinsælustu íbúðirnar eru 2ja og
3ja herbergja íbúðir. Þegar kemur
að raðhúsum eru íbúðir á einni hæð
með bílskúr vinsælastar. Tiltölu-
lega fá einbýlishús koma í sölu og
seljast þau yfirleitt nokkuð fljótt.
skóla, í Oddeyrarskóla og í
félagsheimilinu í Grímsey. At-
kvæðaseðlarnir verða sendir
suður á biskupsstofu og úrslit
eiga að liggja fyrir á fimmtudag.
Alls kaus 51 í Miðgarðasókn og
1702 í Lögmannshlíðarsókn.
Kaupsýslumenn frá Saudi-
Arabíu hafa verið á ferð hér á
iandi að undanförnu, í þeim til-
gangi að afia sér viðskiptasam-
banda.
Þessir arabisku aðilar hafa kom-
ið á fót fyrirtæki í samvinnu við
íslenskan aðila, og er ætlunin að
hefja útflutning á ýmsum matvör-
um til Saudi-Arabíu.
Um helgina voru Arabamir á
ferð á Akureyri, og ræddu þá við
forráðamenn K. Jónssonar og Co.
Mikael Jónsson hjá því fyrirtæki
neitaði algjörlega að gefa nokkrar
upplýsingar um málið, taldi það
ekki þjóna neinum tilgangi að segja
frá því í blöðum.
Kosningaþátttaka á síðarnefnda
staðnum var 72,70%, en alls höfðu
þar 2.329 kosningarétt. Þessar tvær
sóknir tilheyra Glerárprestakalli
eins og kunnugt er.
í Akureyrarprestakalli kusu
4.204, en 6.403 höfðu rétt til þess.
Þátttakan er því 62,85%. Á Akur-
Samkvæmt upplýsingum Dags
sem telja má öruggar voru Arab-
arnir að kynna sér hvað K. Jónsson
og Co. gæti selt þeim af vörum, en
eyri voru nokkur vafaatkvæði sem
yfirkjörstjórn á eftir að taka tillit til.
Gunnlaugur P. Kristinsson,
formaður sóknarnefndar Akureyr-
arprestakalls og Þormóður Einars-
son, form. sóknarnefndar í Lög-
mannshlíðarsókn, voru sammála
um að kosningin hefði gengið vel.
ekki er ljóst hvort einhverjir samn-
ingar hafa verið gerðir, eða eru á
döfinni.
KVEIKT I
HÚSIÁ
DALVÍK
Dalvík 7. de>ember
Þegar Dalvíkingar risu úr
rekkju s.I. sunnudagsmorgun
tóku margir eftir því að mikinn
reyk lagði frá húsi við Grundar-
götu. Eldur hafði komið upp í
húsinu nr. 13 snemma um
morguninn. Hús þetta var
mannlaust, óíbúðarhæft og eign
bæjaryfirvalda, og átti að rífa
húsið fljótlega.
Að sögn Sigurðar Jónssonar,
slökkviliðsstjóra á Dalvík, var
slökkviliðinu tilkynnt um eldinn
um kl. 06. Húsið var fljótt alelda og
var það látið brenna þar sem átti að
rífa það. Talið er víst að hér hafi
verið um íkveikju að ræða.
Margir héldu að þetta væri
slökkviliðsæfing því nýlega afhenti
Dalvíkurbær slökkviliðinu annað
hús, rétt fyrir ofan það sem brann,
og var ætlunin að láta það loga einn
góðan veðurdag. Sigurður sagði að
sú æfing yrði fljótlega. Slökkviliðið
á Dalvík ætti því að vera fært í
flestan sjó eftir þessar æfingar. A.G.
Dalbær:
NÝ
ÁLMA
TEKIN í
NOTKUN
Dalvík 7. desember.
Um helgina var tekin í notkun
ný álma í Dalbæ, heimili ald-
raðra á Dalvík. í þessari álmu
eru 13 einstaklingsíbúðir með
fullbúnu eldhúsi og baði. í kjall-
ara þessarar álmu er gert ráð
fyrir aðstöðu fyrir vinnustofu,
sjúkraþjálfun, föndur og fleira.
Einnig verður þar í framtíðinni
svokölluð dagdeild og hvfldar
aðstaða.
Fljótlega verður byrjað á að inn-
rétta kjallarann og er stefnt að því
að þessi aðstaða verði tilbúin um
mitt næsta ár. Þangað til verður
fremur þröngt um sameiginlega
aðstöðu að sögn Guðjóns Brjáns-
sonar, forstöðumanns Dalbæjar.
íbúar Dalbæjar eru 43 eftir þessa
stækkun, en enn er biðlisti eftir
dvöl þar þrátt fyrir stækkunina.
Jafnan er mikið um að vera á Dal-
bæ og þá ekki síst nú fyrir jólin.
Nýbúið er að halda námskeið í
glermálun, dansi og leirvinnu og
ætlunin er að halda námskeið í
vefnaði, keramikvinnu og fleiru.
Nemendur grunnskólans á Dalvík
hafa s.l. tvö ár séð um jólaskreyt-
ingar í Dalbæ og svo mun einnig
verða í ár. Hefur þetta mælst vel
fyrir hjá íbúunum. Þá er einnig
framundan laufabrauðsgerð og
annað tilheyrandi jólunum. A.G.
Húsnæði K. Jónssonar og Co. Verður framleitt þar fyrir S-Arabiumarkað?
Kosningarnar fóru rólega af stað. Fólk kom ekki á I var tekin f Glerárskóla skömmu fyrir hádegi s.l. sunnudag.
kjörstaðina í neinum mæli fyrr en um klukkan 15. Þessimynd | Mynd: á.þ.
Framleiðir K. Jónsson
og Co. fyrir S-Arabíu?
AUGLÝSINGAR OG ÁSKRIFT: 24167 - RITSTJÓRN: 24166 OG 21180