Dagur - 12.01.1982, Qupperneq 7
„Dýrin í Hálsaskógi“:
Börnin
skemmtu
sér alveg
konung-
lega
Leikfélag Akureyrar:
Dýrin í Hálsaskógi
eftir Thorbjörn Egner
Leikstjóri: Þórunn Sigurðar-
dóttir
Leikmynd og búningar: Guð-
rún Auðunsdóttir
Ljósahönnun: David Walters
Tónlist æföi: Hákon Leifsson
Undirleikur: Ingimar Eydal
húsgestum meðan á sýningunni
stóð. Börnin lifðu sig innilega
inn í það sem var að gerast á
sviðinu og leikararnir höfðu
greinilega gaman af því sem þeir
voru að fást við. Var þannig
sannkölluð gleðistemmning í
húsinu.
Það er óhætt að mæ|a með
sýningu LA á dýrunum í Hálsa-
Húsamúsin á heima í kjötgeymslu og unir hag sinum vel þar.
söngvana úr leikritinu.
Undirritaður hefur ekki þá
þekkingu að hér verði farið út í
þá sálma að vega og meta fram-
mistöðu einsstakra leikara í
þessari sýningu „faglega". Hins-
vegar er full ástæða til þess að
undirstrika þá miklu leikgleði
sem virðist ráða ferðinni á fjöl-
um leikhússins,, og á hún við um
alla þá er fram komu. Gestur E.
Jónasson í hlutverki Mikka refs,
Guðbjörg Thoroddsen í hlut-
verki Lilla klifurmúsar, Andrés
Sigurvinsson sem Marteinn
skógarmús og Theodór Júlíus-
son í hlutverkum bakaradrengs-
ins og bangsapabba. - Allir skil-
uðu þessir leikarar hlutverkum
sínum þannig að varla verður á
betra kosið, og hinir ungu leik-
húsgestir kunnu greinilega vel
að meta.
Að vísu gætti smáhræðslu hjá
einstaka leikhúsgesti' í upphafi
sýningarinnar, þegar Mikki ref-
ur birtist, en þessi hræðsla hvarf
áður en varði og er líða tók á
sýninguna voru allir komnir í hið
besta skap, og börnin tóku jafn-
vel þátt í sýningunni þegar það
átti við.
Leikritið um „Dýrin í Háls-
askógi" fjallar um lífið í skógin-
um. Lengi vel snýst það um sam-
skipti hinna smærri dýra við ref-
inn Mikka og Patta broddgölt,
en eftir að Marteinn skógarmús
og bangsapabbi hafa kallað öll
dýrin á sinn fund og samþykkt
lög skógarins gerast þeir rebbi
og broddgölturinn hinir bestu.
En þá tekur við nýtt vandamál,
bangsa litla er stolið af mann-
fólki, en með samstilltu átaki
finna dýrin út hvar hann er og
frelsa hann síðan.
Það er full á tæða til þess að
óska LA til hcmingju með þessa
sýningu. í leiðinni er ekki síður
ástæða til þess að hvetja foreldra
til þess að láta þessa sýningu
ekki fara framhjá börnum /
þeirra. Hér er nefnilega á ferð-
inni stórgóð sýning fyrir börnin
sem þau njóta og gleyma örugg-
lega ekki svo fljótt.
gk~-
Mikki refur þungt hugsi, bangsamamma, Lilli klifurmús og Marteinn skógarmús bíða spennt eftir þvi hvað
refnum dettur i hug.
Pað kom glöggt fram á sýningu á
„Dýrunum í Hálsaskógi" sl.
sunnudag, að yngsta kynslóðin
kann vel að meta það sem boðið
er upp á hjá Leikfélagi Akureyr-
ar þessa dagana, enda hefur ver-
ið uppselt á allar sýningar til
þessa.
skógi sem afbragðsskemmtun
'fyrir börn Hér er á ferðinni eitt
af snilldarverkum Thorbjörns
Egner, og léttleikinn og leik-
gleðin ráða ferðinni hjá leikur-
unum. Tónlist er létt og skemm-
tileg, framreidd af Ingimar Ey-
dal, og flest börn kannast við
Það var virkilega gaman að Afmælisveisla bangsapabba.
fylgjast með hinum ungu leik-
irmi—PwwnTiTrr nnrrnTn—iiii mn nmmui
iMmminwnuiununjyiyui
Því aðeins getum við verið
velmegun að meðbræðrum
okkar Ifði sem best
með eigin
Finnst þér ávinningur af því, að
tileinka hverju ári ákveðin mál-
eíni, eins og gert hefur verið
undangengin ár?
Mér sýnist að góð málefni sem
höfð eru í brennidepli í heilt ár,
hljóti að vera af því góða, og þess
megi vænta að ýmislegt þokist þá
til betri vegar í þeim málaflokki.
Málefni aldraðra hafa að vísu ver-
ið mjög á dagskrá mörg undanfar-
in ár, og vissulega hefur mikið
áunnist víðsvegar um landið. En
þessi málefni eru þeirrar náttúru,
sem mörg önnur, að umfang
þeirra er stöðugt að verða meira,
og kröfurnar um aðstoð og að-
stöðuaukast, þannig að hvergi sér
fyrir endann á verkefnunum.
Einn áfangi tekur við af öðrum og
má aldrei slaka á svo ekki lendi í
óefni.
Nú hefur þú lengi starfað að
málefnum aldraðra. Hvar telur
þú, á þessu ári aldraðra, að
mestra úrbóta sé þörf?
Þessari spurningu er kannski
ekki svo auðvelt að svara með
einu ákveðnu dæmi. Vandamálin
eru margvísleg og geta allt eins
verið einstaklingsbundin eins og
samfélagsleg og krefjast úrlausn-
ar með ýmsu móti. Þar getur verið
um einsemd að ræða, sem kannski
fyrst og fremst kallar á hlý orð,
hlýtt handtak, ofurlitla vinsemd.
Jón Kristinsson.
En það geta líka verið erfiðleikar
af öðrum toga, vandkvæði, sem
erfitt er að ráða bót á, eða rétta
þar hjálparhönd er að gagni megi
verða. Margir einstaklingar eiga
svo við líkamlega krankleika að
stríða, og þurfa af þeim sökum að-
stoð og aðhlynningu.
Ef við takmörkum þessa um-
ræðu við Akureyri og nágrenni,
þá eru þessi vandamál hér til
staðar, bæði einstaklingsbundin
og samfélagsleg, og alla daga er
unnið að lausn þeirra eftir því sem
ástæður og aðstæður frekast
leyfa. Það er samdóma álit að
æskilegt og sjálfsagt sé, að aldr-
aðir geti sem allra lengst dvalið á
heimilum sínum. Því hafa bæjar
og sveitarfélög víða á sínum veg-
um heimilisaðstoð, sem veitir
mikla og margvíslega þjónustu,
sem öldruðum er ómetanleg, og
hana þarf að efla sem kostur er.
Dvalarheimilin eru og gildur þátt-
ur í þessari keðju. Þangað leitar
aldrað fólk af ýmsum ástæðum
þegar það treystir sér ekki lengur
til að sjá sér farborða, eða vill
með þessu móti tryggja framtíð
sína og öðlast það öryggi, sem í
boði er. En dvalarheimilunum er
stakkur skorinn og er td. ekki ætl-
að að annast hjúkrunar- og lang-
legusjúklinga til langframa. Því
eru hjúkrunar- og langlegudeildir
fyrir aldraða enn einn hlekkurinn,
sem vera þarf fyrir hendi, en þar
er það sem skórinn mest kreppir í
dag,og við erum nú hvað verst á
vegi stödd. En eins og lesendum
Dags er kunnugt, er nú markvisst
að því unnið að á fyrri hluta þessa
nýbyrjaða árs verði fullbúin 20
rúma hjúkrunardeild við Fjórð-
ungssjúkrahúsið, sem leysti veru-
legan vanda. Yrði það ánægjuleg-
ur áfangi á þessu ári fatlaðra og
mikilsverður.
Vel á minnst, hvernig gengur
„Systraselssöfnunin“?
Þar hafa margar hjálparhendur
verið á lofti, og góður árangur
náðst. Það var óneitanlega stór
ákvörðun af um 20 áhugamönn-
um, að vera í forsvari fjársöfnun-
ar meðal almennings, sem að stór-
um hluta bæri uppi kostnað af
breytingum og búnaði hjúkrunar-
deildarinnar. En trú okkar á
skilning og fórnarlund almenn-
ings hefur vissulega sýnt sig að
vera rétt metin. Allir sem rétt
hafa hjálparhönd, og fjölmargir
mjög rausnarlega, hafa gert það
með svo jákvæðu hugarfari, að
maður finnur hlýjuna og þá
ánægju, sem því fylgir, að eiga
hlut að góðu verki. Það er þægi-
legt að starfa í slíku andrúmslofti,
og ber að flytj a þakkir öllum þeim
einstaklingum, félögum og stofn-
unum, sem með framlögum sín-
um eru að ryðja hindrunum úr
vegi og greiða götu miklu nauð-
synjamáli. En inni í þessa mynd
kemur svo líka þáttur hins opin-
bera, er samþykkti að láta af
hendi „Systrasel“ til þessara nota
ög veita fjármagn til reksturs
deildarinnar. Þriðji aðilinn sem
við horfum til, er svo Fram-
kvæmdasjóður aldraðra, sem
stofnaður var á síðastliðnu ári og
aétlunin er að styrkist stórlega á
þessu ári- ári aldraðra. Við hann
bindum við góðar vonir og að
framlag frá honum verði eins og
rúsína í pylsuendanum, er skili
þessu „ævintýri" heilu í höfn.
Þannig er víða unnið, og skyn-
samlega að verki staðið, þar sem
einstaklingar og hópar létta undir
með því opinbera, er flýtir fram-
kvæmdum. Þó víða sé nú í árs-
byrjun þungt fyrir fæti í þjóðfélag-
inu, sýnist margt geta bent til
,íí
þess, að ár aldraðra verði þeim
hagstætt ár, og beri nafn með
rentu.
Framkvæmdasjóður aldraðra.
- Einn skatturinn enn segja
sumir.
Auðvitað er það. Meðan við
höldum því merki á lofti, að vilja
jafna lífskjörin og tryggja öllum
sómasamlegan aðbúnað, gerist
það varla með öðrum hætti, en til-
færslu fjármuna. Að þeir, sem af-
lögufærir eru, leggi nokkuð af
mörkum. Því aðeins getum við
verið ánægð með eigin velmegun
að sem flestum meðbræðrum
okkar líði sem best. Boðskapur
sögunnar um miskunnsama Sam-
verjann er ekki aðeins falleg
helgisögn, heldur þarf hann að
vera vakandi afl í lífi okkar og
starfi, og er það, sem betur fer, oft
og víða. Ár trésins, ár fatlaðra, ár
aldraðra, hugmyndirnar sem að
baki búa að þessi ár eru haldin,
sýnast allar af sömu rót runnar.
Trú á landið, trú á manninn,
manngildið, eru mannbætandi og
færa okkur nær því eilífðarljósi,
sem allt heilbrigt líf nærist af.
Nú hefur komið fram, að vist
rými fyrir aldraða á dvalarheimil-
um er hlutfallslega meira á íslandi
en annarsstaðar þekkist. Hver er
skýringin?
Ætli ástæðan sé ekki fyrst og
fremst sú, að þessi lausn hefur
þótt eðlilegust og líklega hag-
kvæmust, enda ekki gefist illa.
Við höfum lifað og lifum á mikl-
um umbrotatímum. Lífstíll síð-
ustu áratuga hefur sópað burt eða
gjörbreytt þeim hefðum og því
lífsformi, sem stóð stöðugt um
aldir. Tími baðstofunnar þar sem
þrjár kynslóðir gjarnan bjuggu
saman, og störfuðu að verulegu
leyti, er liðinn. Afinn og amman
eru ekki lengur gjaldgeng til að
hafa ofan af fyrir bamabörnum
sínum, um það sjá nú vöggustof-
ur, dagvistunarstofnanir og sjón-
varpið. Eldra fólk býr í vaxandi
mæli útaf fyrir sig. En þegar að-
stæður krefjast breytinga, verða
dvalarheimili gjarnan fyrir valinu
sem griðarstaður, er veitir öryggi
og aðhlynningu. En dvalarheimil-
in taka breytingum eins og annað.
Og sem gott og ljóst dæmi má
nefna, að þegar ég fyrst kom að
þessum málum fyrir tæpum 16
— Rætt við Jón Kristinsson
forstöðumann dvalarheimilanna
á Akureyri í tilefni „árs aldraðra“
Vistmenn að dvalarheimilinu „Hlið“. Myndin er tekin i april á siðasta ári.
árum sfðan þóttu 9 fermetra her-
bergiá dvalarheimilunum boðleg-
ir svefnstaðir fyrir tvo. í dag eru
þetta orðin eins manns herbergi,
að sjálfsögðu, og þykja og eru of
lítil. Fólk vill hafa sæmilega rúmt
um sig og ef ég ætti að lýsa kröfun-
um í dag með einu orði, þá er það
- íbúðir.
Er biðlisti Dvalarheimila
langur?
A Dvalarheimilinu Hlíð eru
vistmenn 110 en 80 í Skjaldarvík
eða 190 manns alls. Biðlistinn er
aftur á móti 250 manns og þessi
biðlisti ber að því leyti nafn með
rentu, að biðtíminn er að jafnaði
6-8 ár og þörfin á auknu vistrými
því knýjandi.
Dvalarheimilið „Hlíð“.
ffli
Hvað er framundan?
Fyrir tæpum tveim árum var
lokið byggingu 12 íbúða við Hlíð,
sem rúma nær 20 vistmenn. Þess-
ar íbúðir komu í góðar þarfir og
hafa sannað ágæti sitt. Á sl. hausti
fékkst svo leyfi bæjaryfirvalda til
að láta hanna byggingar á svæði
því sem Hlíð í upphafi var ætlað,
vestan götunnar, til stækkunar því
sem fyrir er. Þar er gert ráð fyrir
miklum byggingum þegar full-
byggt verður, og stjórn heimil-
anna stefnir að því, að hægt verði
að hefja framkvæmdir við fyrsta
áfangann næsta sumar.
Hvað koma þessar byggingar til
með að vista marga?
Því er erfitt að svara, því þessi
mál eru enn á algeru byrjunar-
stigi. Það mætti kannski giska á 70
-90 manns. En ef ég í fáum orðum
gerði grein fyrir hugmyndum mín-
um um þessar byggingar, þá eru
þær kannski þessar helstar: Eins
og ég nefndi áðan, eru íbúðir í ein-
hverri mynd, það sem koma skal.
Fólk, sem af ýmsum ástæðum
ákveður að leita til dvalarheimil-
anna óskar þess auðvitað að sú
breyting raski sem minnst venju-
bundnu heimilislífi. Því er mikils-
vert, að fólk eigi sem flesta val-
kosti.T.d. hefurverið rættum,að
þarna rísi bygging með íbúðum af
mismunandi stærðum, sem ann-
aðhvort yrðu seldar eða leigðar,
og að þeir, sem þær fengju yrðu á
sjálfs sín vegum að því marki, sem
þeir treystu sér til, en ættu þess
kost að fá þjónustu frá stofnun-
inni, eftir þörfum. Að öðru leyti
yrðu byggingar þarna undir einu
þaki, og þar fengi vistfólk sömu
þjónustu og nú er í té látin á dval-
arheimilunum. Þessar byggingar
yrðu sjálfstæð eining hvað varðar
allan rekstur, en undir sömu yfir-
stjórn. Þó yrði að gera ráð fyrir
aðstöðu, sem nýttist vistfólki
báðu megin götu. Er þar um að
ræða aðstöðu fyrir margskonar
föndur og námskeið, en slík að-
staða er ekki fyrir hendi nú eða
mjög ófullkomin. Einnig þarf þar
aðstöðu til líkams- og heilsurækt-
ar. íþróttasal með tækjum við
hæfi, ljósböð, saunaböð, sund-
laug, enekkert slíkt erfyrirhendi.
Gera verður ráð fyrir stórum sam-
komusal fyrir guðsþjónustur og
almennar samkomur, jafnvel þær
sem nú eru haldnar í samkomu-
húsum bæjarins, því þarna verð-
ur búandi á einum stað, stærsti
hluti aldraðs fólks í bænum. Þess-
ar byggingar þyrftu líka að gefa
möguleika á dagvistun fyrir aldr-
að fólk, sem gæti fengið mat og
aðra þjónustu á heimilinu að deg-
inum til, en svæfi heima um
nætur. Hér hef ég í fáum dráttum
dregið upp þá mynd, sem ég geng
með í dag. Vafalítið á hún eftir að
taka meiri eða minni breytingum
áður en fullmótuð verður, en von-
andi verða þessar byggingar, full-
búnar, vel í stakk búnar að svara
kröfum tímans. Það er mest um
vert.
Lokaorð?
Margt leitar á hugann við hver
áramót. Nú, eins og oft áður, er
það bæn um frið og meiri birtu inn
í líf þeirra mörgu, sem lifa við
áþján og yfirtroðslur vfða um
heim. Ósk um samvinnu og sam-
heldni stjórnenda og landsmanna
allra um lausn aðsteðjandi vanda.
Og von um að hið nýbyrjaða ár
flytji með sér þá hamingju og
velgengni, er m.a. láti margar
bænir, óskir og vonir aldraðra
rætast á þessu ári.
12. janúar 1982 - DAGUR 7
6 DAGUR -12. janúar 1982