Dagur - 12.01.1982, Side 9
Aku rey ri ncjar
unnu sicjur
Ðæjarkeppni í íshokkí:
Um helgina fór hópur ís-
hokkímanna úr Skautafélagi
Akureyrar til Reykjavíkur og
kepptu þar við heimamenn úr
Skautafélagi Reykjavíkur I ís-
hokkí. Á laugardaginn var
keppt í flokki 23 ára og yngri
og var þarna um óformlega
bæjarkeppni að ræða.
Lið Akureyrar var skipað
ungum og efnilegum hokkí-
mönnum, en þeir fengu harða
keppni á Melavellinum í
Reykjavík, og lið Skautafélags
Akureyrar sigraði með 5 mörk-
um gegn 4. Eins og fyrr segir var
leikurinn mjög spennandi og
skemmtilegur, en markmaður
SA Jón Birgir Guðlaugsson
vann sér m. a. það til ágætis á síð-
ustu sek. leiksins að verja víta-
skot, en það þykir mjög vel af
sér vikið í íshokkí. Flest mörk
Akureyringa gerði Ágúst Ás-
grímsson 3 og Rúnar Arason
gerði 2.
Á sunnudaginn fór svo fram
hraðmót með þátttöku A- og B-
liðs skautamanna frá þessum
stöðum. A-lið Skautafélags Ak-
ureyrar sigraði og vann alla sína
leiki en B-lið SA tapaði fyrir A-
liði Skautafélags Reykjavíkur
og lentu þau lið í 2.-3. sæti.
íslandsmót í íshokkí er fyrir-
hugað 28. febrúar í Reykjavík,
og er ekki búist við fleiri kepp-
endum en frá Reykjavík og Ák-
ureyri. Sveinn Kristdórsson einn
af frumkvöðlum skautamanna í
Reykjavík og Akureyrar hér á
árum áður hefur gefið bikar til
bæjarkeppni milli Reykjavíkur
og Akureyrar í flokki 16 ára og
yngri, og verður keppt um hann í
fyrsta sinn síðar í vetur. Veðrátt-
unnar vegna hafa skautamenn
hér á Akureyri haft svell á ís-
hokkívelli sínum nú um nokkurt
skeið, og daglega pefir þar fjöldi
unglinga og fullorðinna 'þessa
íþrótt, sém er geysivinsæl er-
Iendis, og gefur t.d. á Norður-
löndunum knattspyrnunni og
handboltanum ekkert eftir.
Þetta er skemmtileg og spenn-
andi íþrótt fyrir áhorfendur, því
hraði er mikill og harka einnig.
íshokkúnenn á Akureyri á æfingu
Þjálfarar í þekking-
arleit til Englands
Nú þegar komið er fram yfir ára-
mót fara knattspyrnumenn að
huga að sumrinu. Bæði Akur-
eyrarfélögin hafa nú ráðið þjálf-
Skíðagöngumót í Kjarnaskógi:
Ólafsfirðingar heim
með gullverðlaunin
Nú um helgina var haldin á
Akureyri keppni í skíða-
göngu, og voru þar á meðal
keppenda allir bestu göngu-
menn landsins sem nú eru við
æfingar hérlendis.
Reykvíkingar hafa hins vegai
lítið getað æft þessa íþrótt vegna
snjóleysis, en hér norðanlands
hefur hins vegar snjór verið
mikill og æfingaaðstaða eins og
best verður á kosið. Keppt var
bæði í 11 km og 15 km göngu.
Vegna skafrennings í Hlíðár-
fjalli á laugardaginn var keppnin
færð í Kjarnaskóg, en þar er eins
|pK
‘ - ^
Frá skiðagöngumótinu í Kjamaskógi um helgina.
og menn vita hið ákjósanlegasta
svæði til skíðagöngu.
Keppt var í „trimmbrautinni"
svokölluðu og gengnir fimm
hringir, en þeir gera samtals um
11 km.
Á sunnudag var veður og
skíðafæri hið ákjósanlegasta og
þá var keppt í 15 km göngu, og
að sögn Þrastar Guðjónssonar
formanns skíðaráðs Ákureyrar
var brautin erfið og reyndi hún
mjög á þrek og tækni göngu-
mannanna.
Báðar þessar keppnir voru úr-
tökumót fyrir heimsmeistara-
mótið í skíðagöngu sem fram fer
í Osló í næsta mánuði, en þang-
að ætlar skíðasambandið að
senda a.m.k. tvo göngumenn.
Þetta er annað mótið sem haldið
hefur verið í vetur, og af þeim
loknum virðist svo sem Haukur
Sigurðsson Ólafsfirði komi
sterkastur út úr þeim og jafnvel
að Magnús Eiríksson Siglufirði
og Jón Konráðsson Ólafsfirði
séu þar næstir. Þá er einnig vitað
um ísfirðing sem er við æfingar
og keppnir í Noregi í vetur, en
hann gæti skotist upp á milli
þeirra. Annars urðu úrslit f mót-
inu þessi.
11 km-17-19 ára:
1. Finnur Gunnarsson Ól. 37.11
2. Haukur Eiríksson Ak. 39.08
3. Axel Ásgeirsson Ól. 40.03
11 km - 20 ára og eldri:
1. Haukur Sigurðsson Ól. 34.46
2. Magnús Eiríksson Sigl. 35.16
3. Jón Konráðsson Ól. 35.50
15 km.-17-19 ára:
1. Finnur Gunnarsson Ól. 61.20
2. Haukur Eiríksson Ak. 64.28
3. Sigurður Siggeirsson Ól. 73.16
15 km. - 20 ára og eldri:
1. Haukur Sigurðsson Ól. 55.36
2. Magnús Eiríksson Sigl. 57.19
3. Jón Konráðsson Ól. 59.16
ara fyrir meistaraflokk, og einn-
ig er verið að ganga frá ráðningu
á þjálfurum fyrir yngri flokka.
Tveir' af þjálfurum hjá yngri
flokkum KÁ, eru nú á leið til
Englands til þess að sjá hvemig
þarlendir fara að, og læra af
þeim. Það eru þeir Einar Pálmi
Árnason, sem undanfarin ár
hefur þjálfað yngri flokka fél-
agsins, og Aðalsteinn Þórarins-
son, en hann hefur verið leik-
maður með meistaraflokki KA
og ÍBA mörg undanfarin ár.
Hann hyggst nú leggja skóna á
hilluna sem leikmaður en ætlar
nú að starfa að þjálfun.
Þeir hafa von um að komast
að hjá ensku félagi og ætlunin
var að fara til West Ham.
Þeir bræður Alfreð og Gunnar Gíslasynir, sem báðir leika með fyrstu
deildarliði KR í handbolta, eru báðir valdir í landsliðshópinn sem leika á
gegn Austur-Þjóðverjum nú þessa dagana. Þeir eru burðarrásir síns
félags, og vonandi gera þeir góða hluti í landsleiknum.
12. janúar 1982 - DAGUR 9