Dagur - 02.02.1982, Page 12
RAFGEYMAR
í BÍLINN, BÁTINN, VINNUVÉLINA
VEUIÐ RÉTT
MERKI
Pappírsverksmiðjan
við Húsavík:
Hefst
fram-
leiðslan
fyrren
gert var
ráð fyrir?
Stöðugt er unnið að undirbún-
ingi vegna pappírsverksmiðju í
nágrenni Húsavíkur. Sam-
kvæmt þeim upplýsingum sem
Dagur hefur aíTað sér hefur
verið undirritaður samningur
milli iðnaðarráðuneytisins og
tveggja finnskra fyrirtækja um
lokahagkvæmnisathugun.
Rætt hefur verið um að fyrir-
tækið geti tekið til starfa mun
fyrr en áður hefur verið áætlað.
Ef af því getur orðið er Ijóst að
notast verður við rafmagn í
upphafi, en síðar verður notuð
gufa við pappírsframleiðsluna.
Vonast er til að rannsóknir
verði gerðar á háhitasvæðinu við
Þcystarcyki í sumar. Á fjárlögum
er að vísu ekki tilgreind sérstak-
lcga nein verkefni, en Húsvíking-
ar vona að horuð verði hola á
Þeystareykjum.
Það mun vera markaður á hrá-
efni sem ræður því að talað er um
að flýta byggingu fyrsta áfanga
verksmiðjunnar. Þcir menn sem
Dagur ræddi við í þessu sambandi
sögðu að ekki væri ólíklegt að
pappírsverksmiðjan gæti hafið
framleiðslu árið 1985 til 1986, sem
er nokkrum árum fyrr en eldri
áætlanir geröu ráð fyrir.
Fyrir skömmu kynnti Bjarni
Aðalgeirsson, bæjarstjóri á Húsa-
vík, fyrirhugaða pappírsverk-
smiðju á fundi með þingmönnum
kjördæmisins. Þeir voru jákvæðir
í garð hugmynda þeirra Húsvík-
inga. sem leggja mikla áherslu á
að málið nái fram að ganga, ef
talið er að verksmiðjan geti borið
sig, og benda þeir á að annars sé
hætta á að fólksfjölgun verði ekki
meö eðlilegum hætti ef fátt verður
um ný atvinnutækifæri.
Skautafélag Akureyrar:
Hafa lagt áætlun um vél-
fryst skautasvell á hilluna
Á stjórnarfundi í Skautafélagi
Akureyrar fyrir skömmu var
um það rætt hvort ekki væri
réttast að leggja félagið niður.
Ekkert var þó ákveðið í þeim
efnum en ástæðan fyrir þessari
umræðu var sú að félagsmenn
telja að Akureyrarbær hafi
ekki sýnt skautaíþróttinni þann
áhuga sem henni ber. Að sögn
Guðmundar Péturssonar hefur
S.A. t.d. margsinnis boðið
bæjaryfirvöldum að taka þátt í
gerð vélfrysts skautasvells, en
Guðmundur sagði að enn sem
komið er a.m.k. hefði félagið
ekki verið virt svars. Af þessari
ástæðu hefur félagið með öllu
lagt á hilluna áætlanir um vél-
fryst svell á núverandi félags-
svæði í innbænum og ætlar að
fá svæðið malbikað næsta
sumar.
Guðmundur Pétursson sagði að
á Akureyri væru nú þrjú svell sem
standa aímenningi til boða. Eitt er
á íþróttavellinum við Glerárgötu,
annað í innbænum og það þriðja á
KA-svæðinu við Lundarskóla.
Guðmundur sagði að aðstaða
skautamanna á Oddeyri væri sínu
verst. Þar vantar betri lýsingu og
bekk eða skúr þar sem fólk getur
setið meðan það fer úr og í skaut-
ana. Guðmundur sagði að börn
færu oft að heiman á skautunum á
svellið og að það skapaði mikla
slysahættu er þau færu yfir götur á
skautunum.
„Æskilegast er að hafa gæslu-
mann á svellunum og þess er
skemmst að minnast að í gamla
daga var dunandi dansmúsík á
kvöldin á svellinu við Glerár-
götu,“ sagði Guðmundur. Hann
taldi nauðsynlegt að bærinn
keypti sópara sem einnig úðar á
svellin, og er íþróttaráð sama
sinnis, því það hefur fyrir sitt leyti
samþykkt slík kaup. Hins vegar er
ekki vitað hvort fjárveiting fæst til
kaupanna. „Það má segja að þetta
sé eitt af því fáa sem íþróttaráð
hefur gert fyrir skautaíþróttina í
bænum. Akureyrarbær hefur ver-
ið kallaður Miðstöð vetraríþrótta
á íslandi en skautamenn virðast
hafa gleymst á Akureyri.“
Guðmundur sagði að ekki væri
til nein áætlun um skautasvell í
bænum og það hefði háð upp-
byggingunni mjög mikið. „Reyk-
víkingar hafa lýst því yfir að þeir
muni verða búnir að koma sér upp
vélfrystu svelli ekki síðar en 1983.
Við getum eftir það keppt við þá í
tvö ár en hætt síðan,“ sagði
Guðmundur að lokum.
Guðmundur Pétursson á svellinu við Glerárgötu. Að sögn Guðmundar
vantar mun betri lýsingu á svellið auk þess sem aðstöðu fyrir fólk vantar með
öllu. Mynd: á.þ.
Ðæjarmálafundur
um Hlíðarfjall
I kvöld, þriðjudagskvöld, mun
Framsóknarfélag Akureyrar
halda kvöldverðarfund uni bæjar-
mál að Hótel KEA (í Gildaskál-
anum) og hefst fundurinn klukk-
an 19.30. Umræðuefni að þessu
sinni verður skíða- og útivistar-
svæði í Hlíðarfjalli og mun ívar
Sigmundsson forstöðumaður
Skíðastaða hafa framsögu um
málið og svara fyrirspurnum. All-
ir eru velkomnir og er fólk hvatt
til að mæta og kynna sér þá að-
stöðu sem finna má í Hlíðarfjalli.
Fyrirhugað er að halda bæjar-
málafundi sem þennan hálfsmán-
aðarlega í vetur á vegum Fram-
sóknarfélags Akureyrar.
Snorri Finnlaugsson, starfs-
inaður Framsóknarflokksins í
Norðurlandskjördæmi eystra,
sagði að opið hús væri í Hafnar-
stræti 90 öll fimmtudagskvöld
milli kl. 20 og 23.30. Hvatti hann
bæjarbúa til að koma og kynna sér
störf og stefnu Framsóknar-
flokksins og hann gat þess einnig
að skrifstofa flokksins væri opin
alla daga milli kl. 09 og 17.
Snjóskóflan hefur oft komið sér vel í umferðinni á Akureyri í vetur. Þessi ökumaður t.d.
bæjarins ef ekki hefði verið mokað frá hjólum bílsins.
hefði tæplcga ekið um götur
Mynd: á.þ.
# Kom að
góðu gagni
Á dögunum heyrði S&S þá
sögu að maður nokkur hefði
komið á pósthús úti á landi.
Það í Sjáifu sér er ekki í frá-
sögur færandi, en sú sjón
sem blasti við manninum var
nokkuð athyglisverð: Úti í
horni stóð miðaldra maður
með hund. Maðurinn hélt á
bréfabunka og hundurinn
sleikti frímerkin sem maður-
inn setti á bréfin.Má meö
sanni segja aö hundurinn hafi
komíð að góðu gagni.
# Áfram skal
haldið
Og úr því að S&S ætlar að
vera skemmtilegt er allt eins
hægt að minnast sögunnar af
biaðamanninum sem hitti 100
ára gamla konu. Hann hallaði
sér að gömiu konunni og
spurði blíðlega: Hvað telur þú
að hafi aðallega orðið til þess
að þú ert nú orðin 100 ára? Sú
gamla var ekki sein á sér og
svaraði: Nú ætli það sé ekki
vegna þess að ég fæddist
fyrir 100 árum.
# Jón Sólnes
í framboð?
Eins og fram kemur á forsíðu
er lokið forvali hjá sjálfstæð-
ismönnum. Töluverðar breyt-
ingar hafa orðið frá listanum
sem sjálfstæðismenn buðu
fram fyrir síðustu kosningar,
en þá var röð níu efstu manna
þessi: Gísli Jónsson, Sigurð-
ur J. Sigurðsson, Sigurður
Hannesson, Gunnar Ragnars,
Tryggvi Pálsson, Ingi Þór Jó-
hannsson, Margrét Kristins-
dóttir, Björn Jósef Arnviðar-
son og Rafn Magnússon. í
síðasta sæti, þ.e. í 22 sæti, var
Jón G. Sólnes, sem nú er í 12
sæti. Þess ber þó að geta aö
nú var aðeins um forval að
ræða, og ekki víst að ailir þeir
sem komust þar á lista ætli að
bjóða sig fram í prófkjörinu í
lok febrúar. En forvalið sýndi
hug sjálfstæðismanna svo
ekki verður um villst og ólík-
legt að röð efstu manna breyt-
ist til muna. Hins vegar getur
Jón G. Sólnes sett strik í
reikninginn og farið mun ofar
en menn grunar í dag - ofar en
sumir samflokksmanna hans
þola að sjá hann.
# Vélsleðar í
Hlíðarfjalli
Áhugamaður um skíðagöngu
kom á ritstjórn Dags í gær og
sagði farir sínart ekki siéttar.
Hann hafði verið ágönguskíð
um upp í Hlfðarfjalli og notið
útiverunnar í rfkum mæli þar
til ökumenn á vélsleðum fóru
að gera honum lífið leitt. Hann
sagðí jafnframt að sleðarnir
hefðu skemmt troðnar göngu-
brautir og nær hrætt úr sér og
öðrum líftóruna. „Starfs-
fólkið í fjallinu sagði mér að
bannað væri að aka um skíða-
löndin á vélsleðum, en erfið-
lega gengi að framfylgja
banninu. Þessum máLum þarf
að kippa í lag“.