Dagur - 09.02.1982, Blaðsíða 1
TRULOFUNAR-
HRINGAR
AFGREIDDIR
SAMDÆGURS
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
m. ndaieW
' WY
FILIVIUhusib akureyri
65. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 9. febrúar 1982
15. tölublað
„Erum nú í sömu sporum
og fyrir einum áratug“
— segir Áskell Einarsson um atvinnuuppbyggingu á Norðurlandi
„Meginniðurstaða ráðstefn-
unnar er að mínu mati sú, að
við stöndum nú næstum í sömu
sporum og í upphafi síðasta
áratugs. Atvinnutækifærum
hefur ekki fjölgað og mikill
samdráttur hefur orðið í bú-
setuþróun hér norðanIands,“
sagði Áskell Einarsson, fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssam-
bands Norðlendinga, í viðtali
við Dag, en sem kunnugt er
hélt sambandið ráðstefnu um
atvinnumá! á Norðurlandi um
helgina.
„Skuttogaraöldin og upp-
bygging fiskiðnaðar er liðin hjá,
landbúnaðurinn er í sjálfheldu
vegna framleiðslutakmarkana, og
uppbygging á sviði iðnaðar og
þjónustu er ekki næg, þannig að
höfuðborgarsvæðið er farið að
fleyta rjómann af íbúafjölgun-
inni. Nú í fyrsta skipti í mörg ár
hefur íbúafjölgun á höfuðborgar-
svæðinu orðið meiri en meðaltals-
fjölgyn á landinu öllu. Skýringin
er sú, að landsbyggðin hefur ekki
skilyrði til að efla iðnað og þjón-
ustugreinar til móts við höfuð-
borgarsvæðið, sem hins vegar nýt-
ur margfeldisáhrifa af uppbygg-
ingu framleiðsluatvinnuveganna
úti á landi.
Við stöndum því að sumu leyti í
sömu sporum og 1970. Nauðsyn-
legt er að gera stórátak í byggða-
málum og þaö verður ekki gert
nema með stóreflingu iðnaðar út
um landið og tilfærslu á þjón-
ustugreinum ríkisins út um landið
í samræmi við búsetuhagsmuni
þjóðarinnar allrar," sagöi Áskell
Einarsson að lokum.
Ingólfur Árnason í
prófkjör með krötum
Um hclgina tók Ingólfur Árna-
son, fyrsti maður á lista Sam-
takanna á Akureyri við síðustu
kosningar, þá ákvörðun að
taka þátt í prófkjöri Alþýðu-
flokksins og gefa kost á sér í
annað sæti listans við bæjar-
stjórnarkosningar í vor.
Ingólfur mun enn ekki vera
búinn að tilkynna félögum sínum í
Samtökunum úrsögn sína og hann
situr enn sem fulltrúi þeirra í
bæjarstjórn. Ætla menn, sem
Dagur hafði samband við, að
hann hyggist sjá úrslit prófkjörs
Alþýðuflokksins, áður en hann
gefur Samtökin upp á bátinn.
Ingólfur sagði í gær, að þess
hefði verið farið á leit við sig að
taka þátt í prófkjöri Alþýðu-
flokksins og að höfðu samráði við
fjölskyldu sína hefði hann ákveð-
ið að gera það. Hann sagði, að inn
í þessa ákvörðun sína hefði bland-
ast það, að Úlfhildur Rögnvalds-
dóttir, sem var í öðru sæti Sam-
takalistans við síðustu kosningar,
hefði við umræður um framboðs-
mál talið ólíklegt, að hún tæki þátt
í framboði Samtakanna í vor. Ing-
ólfur gaf ennfremur í skyn, að
þessi ákvörðun hans væri tekin
með hliðsjón af viðræðum fram-
sóknarmanna við Úlfhildi um að
hún tæki sæti á framboðslista
Framsóknarflokksins. Hann
sagði einnig að fulltrúi Framsókn-
arflokksins hefði komið að máli
við sig og spurt hvort hugsanlegt
væri að Framsókn og Samtökin
byðu fram saman.
Engin ákvörðun
verið tekin enn
Dagur leitaði álits Úlfliildar
Rögnvaldsdóttur á ummælum
Ingólfs sem varða hana. Hún
hafði eftirfarandi að segja:
„Uppstillinganefnd Framsókn-
arflokksins hefur átt viðræður við
mig um að ég styðji flokkinn og
taki sæti á lista hans við bæjar-
stjórnarkosningar. Ennþá hefur
engin ákvörðun verið tekin og
það veit Ingólfur. Því finnst mér
það fremur ósmekklegt af honum
að reyna að bendla mig við þá
ákvörðun sína að fara yfir í Ál-
þýðuflokkinn".
Ingólfur á enga
samleið með
framsóknarmönnum
Þegar Tryggvi Gíslason,
formaður uppstillinganefndar
Framsóknarflokksins við
bæjarstjórnakosningar í vor,
var spurður að því hvort farið
hefði verið fram á það að Sam-
tökin byðu fram sameiginlega
með Framsóknarflokknum
sagði hann:
„Það hefur engum dottið í hug
að leita eftir kosningabandalagi
við Ingólf Árnason enda á hann
enga samleið með framsóknar-
mönnum. Þetta er eitthvað sem
Ingólfur er að búa til. Varðandi
Úlfhildi er það rétt, að það hefur
verið leitað eftir stuðningi
hennar, enda starfaði hún með
Framsóknarflokknum fyrir síð-
ustu alþingiskosningar“.
Myndin var tekin á ráðstefnu Fjórðungssambands Norðiendinga um atvinnumái á Norðurlandi, sem fram fór um síð-
ustu helgi.
NORÐURLAND:
Atvinnuleysi mest
og fer vaxandi
„Á síðasta ári voru skráðir
40.348 atvinnuleysisdagar á
Norðurlandi. Það jafngildir því
að 155 manns hafi verið
atvinnulausir allt árið eða
u.þ.b. 1% af mannafla fjórð-
ungsins. Þetta er mesta
atvinnuleysi á heilu ári sem
skráð hefur verið síðan 1975,
að byrjað var að skrá atvinnu-
leysisdaga. Þetta er cinnig
áberandi hæsta atvinnuleysis-
hlutfall á landinu og kemur
Suðurland næst á eftir með
0,5% atvinnuleysi, eða helm-
ingi minna,“ sagði Guðmundur
Sigvaldason, starfsmaður
Fjórðungssambands Norðlend-
inga á ráðstefnu sambandsins
um atvinnumál.
Guðmundur sagði ennfremur,
að greinilegt væri að atvinnuleysi
hefði farið vaxandi í fjórðungnum
síðan árið 1977. Atvinnuleysi hef-
ur stöðugt aukist milli ára, nema
hvað það minnkaði ofurlítið 1980.
Árin 1977, 1978, 1980 og 1981 var
meira atvinnuleysi á Norðurlandi
öllu í beinum tölum talið, heldur
en á höfuðborgarsvæðinu, sem þó
hefur þrisvar til fjórum sinnum
meiri mannafla en Norðurland.
Þá kom einnig fram í ræðu Guðm-
undar, að atvinnuleysi væri mjög
árstíðabundið, svo mjög að það
nálgaðist t.d. náttúrulögmál að
atvinnuleysi í janúar á Norður-
landi væri fimm til sex sinnum
meira en í ágústmánuði.
í setningarræðu Bjarna Aðal-
geirssonar. formanns sambands-
ins, kom meðal annars fram að
„þjónustugeirinn" á Norðurlandi
væri verulega undir meðaltali
landsins alls. en Sigurður Guð-
mundsson hjá byggðadeild Fram-
kvæmdastofnunar upplýsti. að
70% mannafla í Reykjavík starf-
aði við þjónustu, um 50% á
Norðurlandi eystra og 40% á
Norðurlandi vcstra. „og er of
langt gengið", eins og Sigurður
komt að orði. Bjarni Aðalgeirs-
son sagði ennfremur, að fram-
faraskeið í atvinnumálum væri nú
í hættu og ef ekki yrði brugðist
við. kæmi atvinnuleysi og byggða-
röskun í kjölfarið.