Dagur - 09.02.1982, Blaðsíða 7

Dagur - 09.02.1982, Blaðsíða 7
B-listi borinn fram af Jóni Þorsteinssyni o.fl. Guðmundur. Erna. Það er samhengi á milli lélegra kjara láglaunafólks og flokks- hollrar, ólýðræðislegrar og hæg- fara forystu í verkalýðshreyfing- unni. Kjarabætur nást ekki fram nema barist sé fyrir þeim. Barátta nokkurra foringja án þátttöku fél- agsmannanna verður aldrei ann- að en máttlít'l pappírsbarátta, einkum þegar foringjarnir virðast hafa aðra hagsmuni að leiðarljósi en hag fólksins í félaginu sínu. Alltof margir forystumenn taka í raun flokshagsmuni og jafnvel hagsmuni atvinnurekenda, bæjar- félaga og ríkisvalds fram yfir. Sumir verkalýðsforingjar eiga beinlínis aðild að stjórnun og rekstri atvinnufyrirtækja, og sitja Helgi H. Snæborg. Hulda. Anna. Aðalsteinn. Lýðræði og kjaramál þá báðum megin borðs, þegar semja skal um kjörin. Þegar við tölum um harðari kjarabaráttu eigum við ekki endi- lega við fleiri og lengri verkföll. Baráttuharka getur komið fram í ýmsu öðru, svo sem rökfestu, ákveðni og sveigjanleika á rétt- um tíma. Það er a.m.k. algjört lágmark að kröfugerð félagsins sé sýnd atvinnurekendum, það var ekki gert síðast. Slíkt kallast að fífla félagana. En hvernig má gera baráttuna aflmeiri með því að auka þátttöku félagsmanna í henni? Við eigum engar patentlausnir til. Ýmsar nýjar leiðir og aðferðir þarf að reyna. En eitt er víst - félags- mennirnir fást ekki til almennrar þátttöku meðan öll hreyfingin angar af flokkapólitík - meðan örfáir foringjar ríghalda í völdin í krafti ólýðræðislegra reglna - meðan fræðslu og upplýsingum til félagsmanna er haldið í lágmarki - meðan hinum almenna félags- manni er ekki treyst fyrir neinu - meðan allt félagsstarfið er frá- hrindandi og leiðinlegt - meðan forystan lítur fremur á félags- mennina sem viðskiptavini og númer en sem jafn réttháa ein- staklinga. Aukin þátttaka félagsmann- anna í Einingu er forsenda nýrrar sóknar félagsins í kjaramálum. Að því viljum við stuðla. Meiri upplýsingar — meiri fræðslu Þekkingarleysi og skortur á upp- lýsingum er einn stærsti þröskuld- urinn í veg almennrar þátttöku félagsmanna í starfi Einingar. Það ingu er ekki nóg, þótt félagið hafi sl. ár sent tiltölulega marga (miðað við önnur félög) á Félagsmálaskóla alþýðu og þótt félagið hafi staðið fyrir ágætum trúnaðarmanna- námskeiðum. Fræðsla fyrir al- menna félaga verður að stórauk- ast. Einn vettvangur slíkrar fræðslu gætu verið vinnustaðirnir, t.d. vinnustaðafundir. Annar vettvangur er Einingar- blaðið. Við viljum breyta hlut- verki þess, gera það að íjJmenni- legu blaði - fallegu og læsilegu - sem komi út mánaðarlega. Það verði opið öllum félögum, og þar verði veitt fræðsla um ýmis mikil- væg mál. t>ar mætti einnig birta fréttir af vinnustöðunum og úr félagsstarfinu. Þriðji fræðsluvettvangurinn tengist svo félagsfundum. Við teljum eðlilegt og sjálfsagt að fé- lögum séu sendar eins ítariegar upplýsingar og mögulegt er fyrir félagsfundi um þau mál sem þar á að ræða. Með því móti geta fé- lagsmenn myndað sér skoðanir á málunum áður en þeir mæta á fundi og haft eitthvað til málanna að leggja. Aukið fræðslustarf kostar fé. En félagsmennirnir greiða stórfé til félagsins og eiga því heimtingu á aukinni þjónustu á þessu sviði. Og vafalaust má spara á öðrum sviðum. T.d. gæti stjórnin hætt að greiða sjálfri sér laun fyrir að sinna þeirri félagslegu skyldu sinni að mæta á stjórnarfundi. Öðru máli gegnir um beint vinnu- tap vegna félagsstarfsins. Og í sambandi við aukna útgáfu Ein- ingarblaðsins er vandalaust að afla einhverra tekna með auglýs- ingum. Hverjir eru á Ð-listanum? Hér á eftir fer dálítil kynning á þeim sem skipa stjórnar- og var- astjórnarsæti B-listans. Listi yfir frambjóðendur til trúnaðar- mannaráðs hefur birst annars staðar, og rúmsins vegna verð- um við að láta þaö nægja. 1. Formaður: Guðmundur Sæmundsson, 35 ára, Akur- eyri. Er háskólamenntaður en hefur unnið sem verkamaður frá árinu 1978. Á sæti í stjórn og trúnaðarmannaráði Eining- ar. Var um skeið trúnaðar- maður sorphrcinsunarmanna og síðan allra vcrkamanna hjá Akureyrarbæ. Starfar nú við heimilisstörf, en hefur önnur störf í hjáverkum tímabundið, s.s. forfallakennslu, ritstörf o.fl. Hefur talsverða reynslu af félagsstörfum. Var formaður kröfugerðarncfndar Einingar sl. haust. 2. Varal'ormaður: Erna Magn- úsdóttir, 31 árs, Akureyri. Hef- ur unnið ýmsa verkamanna- vinnu, m.a. í 6 úr hjá Útgerðar- félagi Akureyringa, og starf- ar nú í vélasal frystihússins. Var í sumar kosin af vinnufé- lögum sínum til að sitja á bón- usráðstéfnu Verkamannasam- bands íslands í Reykjavík. 3. Ritari: Helgi H. Haralds- son, 66 ára, Akureyri. Hefur unnið margs konar verka- mannavinnu, en síöustu 3 árin í Slippstöðinni. Var varafor- maöur Iðju á Akureyri í nokk- ur ár og sat þá í samninganefnd félagsins og trúnaðarmanna- ráði. Hefur verið trúnaðar- maður á vinnustað og setið í trúnaðarmannaráði Einingar. Var varaformaöur kröfugerð- arnefndar Einingar í haust. 4. Gjaldkeri: Snæborg Stef- ánsdóttir, 44 ára, Akurcyri. Hefur unnið húsmóðurstörf og starfað hjá Niöursuðuverk- smiðju Kristjáns Jónssonar & Co. síðastliöin 9 ár. 5. Meðstjórnandi: HuldaGísl- adóttir, 68 ára, Akureyri. Hef- ur lengst af starfað scm húsm- óðir, en síðastliðin 16 ár hcíur hún unniö á þvottahúsi Fjór- ðungssjúkrahússins á Akur- eyri. 6. Meðstjórnandi: Anna Ara- dóttir, 34 ára, Dalvík. Hcfur unnið margs konar verka- mannavinnu eftir því sem til fellur og stundað húsmóður- störf, en starfar nú viö beiting- ar í akkorði. 7. Meðstjórnandi: Aðalsteinn Gíslason, 31 árs, Ólafsfirði. Hefur unnið ýmsa verkamann- avinnu, var m.a. á Sambands- verksmiöjunum á Akureyri í nokkur ár. Starfar nú hjá Fisk- verkun Sigvalda Þorlcifssonar á Ólafsfirði. VARASTJÓRN: 8. Reynir Helgason, 27 ára, Akureyri. Starfar viö löndun í Útgerðarfélagi Akureyringa. Trúnáðarmaður á sínum vinnu- stað. Var í kröfugcrðarnefnd Einingar í haust og í bakncfnd vegna síðustu kjarasamninga. 9. Finnbogi Pálsson. 24 ára, Akureyri. Starfará Vistheimil- inu aö Sólborg. 10. Jón Magnússon, 37 ára, Ak- urcyri. Starfar sem krana- stjóri í byggingarvinnu hjá Híbýlum hf. Trúnaöar- maöur á stnum vinnustað. Var í kröfugeröarnefnd fél- agsins í haust. 11. Guölaugur Jóhannesson,43 ára, Hrísey. Starfar í Hrað- frystistöö KEA í Hrísey og hefur veriö þar sl. 9 ár. Var varaformaöur Hríseyjar- deildar Einingarfrá 1976 og til sl. hausts. Varafulltrúi í trúnaðarmannaráöi. 12. Eygló Ólafsdóttir. 27 ára. Grcnivík. Starfar við fisk- vinnslu í Hraðfrystihúsinu Kaldbaki hf. Ur pokahorni B-listans Stjórnarkjör ætti ad fara þannig fram ad adeins formaður sé kosinn almennrí kosningu í öllu félaginu. Adrir stjórnarmenn yrdu svo kosnir persónulegrí kosningu í hverri deild fyrir sig - einnig Akureyrardeild - þannig að hver deild kysi sína fulltrúa. Kanna þarfvilja ídeildunum fyrír auknu sjálfstæði þeirra, t.d. í kjara- og samingamálunum. Lág- markskrafa er að félagar deild- anna þurfi ekki að fara inn á Akureyrí til að taka þátt í atkvæðagreiðslum. heldur greiði þeir atkvæði á fundum í deildun- um. Fólkið á hinum ýmsu vinnustöð- um, í hinum ýmsu starfsgreinum og í einstökum deildum ætti að kjósa sjálft fulltrúa sína í trúnað- armannaráð, ístaðþess að hengja kosningu trúnaðarmannaráðs aft- an í stjórnarkjör. Pegar fréttir bárust af því að við ætluðum að styðja uppástungur um fulltrúa deilda í stjórn og varastjórn og uppástungur um fólk í trúnaðarmannaráð með því að stinga upp á sama fólkinu lýsti formaður félagsins því yfir að sá listi væri ólöglegur sem á væru nöfn fólks af öðrum lista. Kvaðst hann mundu kæra allt slíkt. Pessi yfirlýsing á sér hvorki stoð í lög- um Einingar né reglum ASÍ, og verður því að ætla að þetta hafi verið vísvituð blekking, til þess ætluð að hræða fólk frá því að samþykkja að sitja á báðum listum. Tveir trúnaðarmannaráðsmenn á lista Jóns Helgasonar höfðu sam- þykkt að sitja einnig á okkar lista. Eftir að framboðsfrestur rann út, óskuðu þeireftirað draga sig út af lista okkar, þar sem þeim hafði verið hótað kærum og hávaða. Einnig var þeim tjáð, þegar sá möguleiki var ræddur að þeir gengju út af lista Jóns og yrðu á okkar, að það væri orðið ofseint. Undaríeg rökhyggja það - enginn tími til að ganga út af lista Jóns. en nógur tími til að ganga út af lista okkar! I Ijósi stóryrða um að við höfum ætlað að „stela" fólki af lista Jóns Helgasonar og setja á okkar lista að því forspurðu er athyglisvert að einn frambjóðandinn á lista Jóns sem ekki hafði verið spurður um hvort hann vildi sitja á listan- um fyrr en eftir að listinn hafði verið afgreiddur afstjórn til trún aðarmannaráðs, dró sig til baka og varð að skipa nýjaníhans stað Pá kom það fram á fundinum sem við héldum í deildunum að sumir þeirra sem sitja á lista Jóns sem fulltrúar deildanna höfðu ckki verið spurðir. • Viðgerðum lista Jóns Helgasonar tilboð um fundaröð í öllum deild- um og á Akureyrí til að ræða mál- efni félagsins fyrir kosningar. Listi Jóns hafnaði þessu tilboði. /Etli það hafi verið af lýðræðis- ást? 9. febrúar 1982 - DAGUR - 7

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.