Dagur - 09.02.1982, Qupperneq 3
Mjólkurf ramleiðslan:
Samdráttur í
sölu nýmjólkur
Mjólkursamlag KEA á Akureyri tok a
móti 21.2 milljónum lítra
Á síðastliðnu ári var innvegin
mjólk hjá mjólkursamlögunum
samtals 102.958.972 lítrar. Það
var rúmlega 4 milljónum lítrum
minna en árið 1980 (4.058.588
ltr.) eða 3.8%. Hlutfallslega
var samdráttur í mjólkurfram-
leiðslunni mestur á svæði
mjólkursamlagsins í Neskaup-
stað þar var tekið á móti 12,6%
minna af mjólk en árið áður.
Hjá mjólkursamlaginu í Borg-
arnesi varð samdrátturinn
9,6%, Hvammstanga 8,8%,
Akureyri 1,6% og hjá Mjólkur-
búi Flóamanna 3,5%. Þar var
invigtað rúmlega 37,6 milijónir
i
Itr. Mjólkursamlag KEA á
Akureyri tók á móti 21.2
milljónum ltr.
Sala nýmjólkur var 1.8%
minna á síðasta ári miðað við árið
1980, það voru seldir um 44.5
millj. ltr. Nokkur aukning var í
sölu á rjóma, eða um 2.5%. Það
voru seldir 1560 lestir af skyri,
sem var 2.2% minna en árið áður.
Verulegur samdráttur var í fram-
leiðslu osta og smjörs. Af smjöri
voru framleiddar 964 lestir sem
var 6.9% minna en árið áður. Sala
innanlands var 1099 lestir en það
var um 570 lestum minni sala en
árið áður, en það munaði mest um
útsöluna sem var á smjöri seint á
árinu 1980. Birgðir af smjöri 1.
janúar sl. voru aðeins 383 lestir,
en það er langt síðan að birgðir
hafa verið þetta litlar til í landinu.
Framleitt var af ostum um 2830
lestir, sem var 21% minni fram-
leiðsla en árið áður. Það varð 9%
söluaukning í ostum. Sala í feitum
ostum varð rúmlega 25% meiri,
en samdráttur í sölu magra osta
varð um 17%. Tvær nýjar mjólk-
urvörur komu á markaðinn á síð-
asta ári, smjörvi og léttmjólk.
Seldir voru rúmlega 840 þúsund
lítrar af léttmjólk, en það varð að-
eins meira en samdráttur í sölu
nýmjólkur.
Björgvin
Júníusson
látinn
Björgvin Júníusson, bíóstjóri í
Borgarbíói og hljóðtípptöku-
maður útvarpsins á Akureyri,
varð bráðkvaddur í gær.
Björgvin var fæddur 1919 og
því 63 ára þegar hann lést. Eftir-
lifandi kona hans er ísafold Jóna-
tansdóttir. Starfsmenn Dags
senda ættingjum og vinum Björg-
vins dýpstu samúðarkveðjur.
69 íbúðir
í smíðum
Á síðasta ári voru fullgerðar 19
íbúðir á Sauðárkróki. Einnig voru
fullgerðar 18 bílageymslur og 4
aðrar byggingar. Byrjað var á 14
íbúðum, 13 bílageymslum og 4
öðrum byggingum á árinu. Um
áramótin voru í smíðum 69 íbúðir,
48 bílageymslur og 12 aðrar bygg-
ingar á Sauðárkróki.
Meðalfallsþungi
dilka 1981
í 1. fréttabréfi ársins 1982 frá
Upplýsingaþjónustu landbúnað-
arins, stóð að meðalfallþungi
idilka haustið 1981 hefði verið 0,99
kg minni haustið 1981, en árið
áður, það er ekki rétt. Samkvæmt
endurskoðuðum sláturskýrslum
reyndist meðalfallþunginn vera
1,01 kg. lægri en hann var haustið
1980, en þá var hann 14,66 kg. en
síðastliðið haust reyndist hann
vera 13,65 kg.
FULLT HÚS AF NÝJUNIVÖRUM
geriógóókaup
Veríð rétt útbúin á skíðin
Skíðavörur
Við bjóðum mjög gott úrval
af skíðaútbúnaði, m.a.
FISCHER svig- og gönguskíði.
DA CHSTEIN skíðaskó.
SAL OMON bin dingar.
Einnig stafi og
skíðaáburð.
Sportvörudeild.
Skíðafatnaður
REINALTER skíðafatnaður,
sérlega fallegur.
Þýsku karlmarma strech buxumar
komnar aftur.
Kuldastakkar, mjög fjölbreytt úrval.
Karlmannaföt, ný sending.
Herradeild.
SEC
litsjónvörp
ITT litsjónvörp
20“, 22“, 26“
FINLUX
litsjónvörp
20 “,22“ 26“
NEC
hljómflutningstæki
á mjög góðu verði.
KENWOOD
hljómflutningstæki,
tækni framtíðarínnar.
Allar plötur samdægurs í rekkunum í Hljómdeild.
Vorum að fá margar gerðir
af hinum ódýru SKULTUNA
pottum og pönnum.
Jarn- og glervörudeild.
GOLFTEPPIA
GÖMLU VERÐI:
Eigum ennþá eftir nokkrar
tegundir af gólfteppum á gömlu
verði. Einnigný teppi með nýjum
munstrum.
Amerísku gólfteppin væntanleg.
Hin vinsælu stöku ullarteppi á
hagstæðu verði.
Sníðum og leggjum - fljót og góð
þjónusta.
Bjóðum auk þess góða greiðslu-
skilmála.
Tennadeilrf.
HAFNARSTR. 91-95 - AKUREYRI ■ SÍMI (95)21400
9. febrúar 1982 - DAGUR - 3