Dagur - 09.02.1982, Page 6

Dagur - 09.02.1982, Page 6
A-listi borinn fram af sljórn og trúnaðarmannaráði Jón Helgason. Sævar Frímannsson. Úlfhildur Rögnvaldsd. Aðalheiður Þorleifsd. Bjöm Snæbjömsson. Guðrún Skarphéðinsd. Ágúst K. Sigurlaugsson Höfum leitast við að fá til starfa þá sem sýnt hafa féiaginu áhuga Guðmundur Sæmundsson hcfurver- ið pennalipur upp á síðkastið, enda mikið í húfi, hvort takast mcgi að velta forustunni í Einingu úr stólun- um. Milli jóla og nýárs scndi hann frá sér órökstuddar dylgjur um for- ustuna, sem lýsa bcst innræti manns ins og afstöðu til manna og málefna. Svo hcfur og cinnig verið í skrifum hans á undanförnum árum um ein- staka forystumenn í verkalýðshreyf- ingunni. Þar hefur hann ekki vandað mönnum kveöjurnar, frekaren hann gcrir nú í skrifum sínum um forustu Einingar, þó einkum formann hennar. scm ertalinn aðalbölvaldur- inn og stóri þröskuldurinn í vegi al- mcnnrar velmegunar launafólks á félagssvæðinu. Guðmundur telur sig frcmri öðr- um aö setja sig í dómarasæti oggera úttckt á forustunni, þó hann sé ný- fluttur á svæðið og þekki lítið til manna og málefna. Nú skal metn- aður hans til forráða, ráða ferðinni eftir vonbrigði á öðrum vígstöðvum, og skulu öll tiltæk vopn notuð til þess. En oft verður það svo hjá slík- um mönnunr, aö vopnin snúast í hendi og beinast að þeim sjálfum, svo hefur og nú orðið hjá Guðmundi Sæmundssyni að þessu sinni. Stjórnarmenn í Einingu og for- menn deilda hafa sent frá sér mjög hógværa yfirlýsingu vegna þessara rætnu skrifa og hrtikið hans fullyrð- ingar til föðurhúsanna. Er því æski- legt að félagar í Einingu lcsi hana og kynni sér einnig pólitískan feril Guðmundar áður en þeir ánetjast í neti hans. Ég treysti á að flest fólk láti sína eigin dómgreind frckar ráða í því máli, cins og ég hcf gert fram að þcssu, og vona að svo verði framveg- is. Ég hef ekki vcrið mikið fyrir það að cyða orku minni í að standa í blaðaskriíum, þó að mér væri ráðist og öðrum þeim sem meö mér hafa unnið með persónulcgum rógburöi og gróusögum, eins og Guömundur og co. hafa stundað í blöðum og manna á meðal. í Dagblaðinu og Vísi 18. janúars.l. skrifarG.S. kjall- aragrein. Þar skyldi rökstuðningur nú aldeilis lagður fram, til að sanna hans íullyrðingar varðandi for- ustuna. Grein þessi er frá upphafi til enda dæmigerður þvættingur, sem ekkert er bitastætt í, og sama rullan sem hann hefur verið að tyggja aftur og aftur og því fæst svaravert. G.S. byrjar orðrétt: „Forustan í Verkalf. Einingu við Eyjafjörð er í sjálfu sér ekkert verri en forusta ann- arra stærri verkalýðsfélaga. En hún er heldur ekkert skárri. Og það er ansi lítill munur á, hvort forusta slíkra félaga cr mörkuð píslarflokki krata eins og hcr er um að ræða, eða hvort eyrnamörkin eru ættuð úr klif- urgrindum allaballa, íhalds eða framsóknar". Engan þarf að undra sem kynnir sér forsögu G.S. og hefur kynnst honum eitthvað og hans lífsviðhorf- um, þó hann beri ekki mikla virðingu fyrir þeim stjórnmálaflokkum sem eru til staðar í þessu landi og áhrifavaldar í þjóðlífinu. Guðmundur Sæmundsson viður- kennir ekki okkar þjóðskipulag á nokkurn hátt, vegna þess að hann er byltingarsinnaður að eðlisfari, en ekkert nema sakleysið uppmálað þegar hann er að tala við fólkið, utanvið alla flokkapólitík og svo full- kominn lýðræðissinni, að þar finnst ekki annar eins. En hvað er svo innanvið huliðshjúpinn? Gott fólk, haldið þið að maðurinn sem ætlaði sér að komast til áhrifa og valda í ný- stofnuðum Kommúnistaflokki íslands, sé svo lýðræðissinnaður, sem hann vill vera láta. Nei, aldeilis ekki. Aðferð slíkra manna hefur allt- af verið sú að nota huliöshjálm og blekkingarvefi, til að ná til fólks, og á því mun ekki verða breyting. Virkar ekki stuðningur nýstofnaðs Kommúnistaflokks íslands við Guð- mund Sæmundsson illa á það fólk sem látið hefur blekkja sig til fylgis við hann á fölskum forsendum? Fræðikenningar Guðmundar Guðmundur er trúr sínum fræði- kenningum, þegar liann lcggur mig sérstaklega í einelti, cn gefur í skyn um leið, að það sé kannske hægt að komast af við aðra úr forustusveit- inni, ef ég verð fjarlægður þaðan burt. Er það ckkert mótsagnakennt að biðla til fólks um leið og því er bor ið á brýn að það hafi ekki sjálfstæð- ar skoðanir til manna og málefna, og sé aðeins verkfæri í höndum for- mannsins hverju sinni? Er það ekki líka mótsagna- kennt hjá Guðmundi Sæm., þegar hann er búinn að gefa yfirlýsingar um það, að hann geti ekki verið í stjórn undir minni forustu, að ætl- ast síðan til þess að aðrir gangi nauð- ugir til starfa undir hans forustu? í ís- lendingi 21. jan. segir hann að úr því verði að fást skorið, hvort þetta fólk sé í framboði einungis fyrir Jón Helgason og Co. eða hvort það vilji vinna að hagsmunamálum verka- lýðsins á félagssvæðinu, óháð því á hvorum listanum það væri. Óþverravinnubrögð manns úti á þekju Ég þarf kannske ekki að vera mikið hissa á svona málflutningi, eftir að hafa verið með þessum manni í stjórn í heilt ár, því vinnubrögð hans hafa fyrst og fremst verið þau, að kynnast viðhorfum stjórnarmanna og verða síðan alfarið á móti þeim. Án þess að ræða málin málefnalega á stjórnarfundum, hefur hann oftast komið í bakið á mönnum með tillög- uflutningi, sem hann hefur ekki vilj- að ræða meðal stjórnarmanna. Það er fyrst og síðast hans mottó að vera bara á móti, gera þá menn tortryggi- lega sem taka á málunum eftir þeirri samvisku sem þeir telja besta hverju sinni. Hans hlutverk hefur aftur á móti verið það, síðan hann kom hingað norður, að vinna að glund- roða og óánægju í félaginu, og hefur honum orðið nokkuð ágengt í þeim efnum. Það kom mér því ekkert á óvart að stuðningur við lista Guðmundar og co. skyldi fyrst birtast í mál- gagni Kommúnistasamtakanna, „Verkalýðsblaðinu". Hnitmiðað starf í takt við tímann Guðmundur og co. reyna að gera lít- ið úr starfi Einingar og starfsemi skrifstofanna á félagssvæðinu og tala um að skrifstofan á Akureyri sé stássskrifstofa, þar sem starfsfólkið sé puntudúkkur, sem líti niður á hinn almenna félagsmann og félagsfólkið veigri sér við að koma þangað inn vegna flottheita. Hvað er hið sanna í þessu máli? Það eru rúm 17ár síðan ég hóf störf hjá Einingu og þá var starfsemi fél- aganna sem ráku Skrifstofu verka- lýðsfélaganna í algjöru lágmarki. Upp úr því hófst uppbyggingarstarf undir forustu Björns Jónssonar, þar sem fjárhagsstaða félagsins efldist til muna og skapaði félaginu starfs- grundvöll og það starf hefur aukist ár frá-ári, í takt við tímann og getuna hverju sinni. Félögin við Eyjafjörð gengu í Einingu hvert af öðru, vegna þess að þau töldu hag sínum betur borgið með því móti, sem óumdeil- anlega er/étt mat. Starfið og öll starfsemi félagsins hefur síðan aukist jafnt og þétt á þessum árum. Starfsemi skrifstof- unnar hér á Akureyri hefur farið sí- vaxandi ár frá ári, vegna- síaukinnar þjónustu við hinn al- menna félagsmann. Þangað koma tugir manna daglega að leita fyrir- greiðslu um margvísleg mál, svo sambandið er meira en sumir vilja vera láta. Síminn stoppar ekki frá morgni til kvölds. Á Dalvík hefur félagið eignast sitt eigið húsnæði í Stjórnsýslu- miðstöðinni á Dalvík, en hlutur Ein- ingar er 10.13% af þeirri húseign. Þar rekur Eining skrifstofu fyrir fél- agsfólkið, sem er opin hálfan daginn. í Ólafsfirði er einnig rekin skrifstofa í húsi félagsins þar, sem er opin rúm- lega hálfan daginn og nú hefur einnig verið ákveðið að hefja slíka þjónustu í húsnæði félagsins í Hrísey í ein- hverjum mæli og taka herbergi á leigu í Grenivík til þess að það fólk fái einnig aukna þjónustu. Þetta sem ég hef hér sagt svarar ó- réttmætri gagnrýni á forustu Eining- ar og starfslið. Þetta hefur ekki gerst með neinni byltingu heldur þrot- lausu starfi þess starfsfólks sem unnið hefur hjá félaginu á þessum árum og þess fólks sem hefur helgað félaginu krafta sína. En alla þessa starfsemi er hægt að lama og eyðileggja, ef menn gera það að markmiði sínu, eins og sumir virðast hafa mestan áhuga á. Verka- lýðsfélaginu Einingu hefur tekist á undanförnum árum að skapa sér nokkuð fjárhagslegan starfsgrund- völl, sem skapa á félaginu bætt skil- yrði til að starfa til hagsbóta fyrir fél- agsfólkið á félagssvæðinu. Þennan grundvöll er líka hægt að rífa til grunna á skömmum tíma, ef til vill koma ævintýramenn, sem hugsa meira um að auglýsa sjálfa sig í stað þess að gera sér grein fyrir ástandinu hverju sinni og starfa samkvæmt því. Sá sem hrópar hæst og kvartar mest er ekki alltaf sá sem ráða skyldi ferð- inni, þó vissulega sé skylt að hlusta á hann á sama hátt og aðra. Ég hef aldrei lofað gulli né græn- um skógum á undanförnum árum og mun ekki gera nú, aðeins starfa eftir minni bestu sannfæringu hverju sinni og þeirra sem með mér starfa. Reyna að gera það sem ég tel að verði til hagsbóta í framtíðinni fyrir hinn al- menna félagsmann í stað þess að láta stundarhagsmuni ráða. Það hefur verið markmið okkar sem höfum valist í stjórn, að leitast við að taka fyrst og fremst til starfa með okkur fólk, sem sýnt hefur áhuga á félaginu og félagsstörfunum og ennfremur að fá fólk frá sem flest- um vinnustöðum, svo raddir fólksins heyrist sem víðast frá. mmmmmmmmmmmmmmmm^mmmmmm—^mmmmmm Stjórr í Ein I------------------------------ Það hefur einnig verið markmið, að gefa sem flestum kost á fræðslu í Félagsmálaskóia alþýðu og þeim námskeiðum sem haldin eru til að fræða hinn al- menna launþega um sín mál. Eining er í tölu þeirra félaga sem flest fólk hefur sent í skólann. Góðir félagar, þann 13. og 14. febrúar veljið þið ykkur forustu fyrir næsta ár. Áður en þið takið afstöðu þurfið þið að kynna ykkur menn og málefni. Á lísta stjórnar og trúnaðar- mannaráðs, A-listanum, er það fólk sem núverandi stjórn- og trúnaðar- mannaráð taldi best fallið til áfram- haldandi forustu í félaginu, en það er ykkar að velja eða hafna. Jón Helgason, form. Einingar. Valið stendur milli lýðræðis og einræðis Ég hef að undanförnu oft verið spurður af hverju ég fylgi Jóni Helgasyni og félögum á lista trún- aðarmannaráðs Einingar en ekki mötframboðinu. Því liefur verið fljótsvarað. Stjórn Einingar, undirforustu Jóns Helgasonar. hefur að mínu mati unnið vel fyrir fólkið ogsýnt þaðog sannað að hún er starfi sínu vaxin. Ég hcf setið í trúnaöarmanna- ráði undanfariö eitt ár og hef ekki fundið aö Guðntundur Sæmunds- son luifi komiö þnr með ncinar til- lögur til úrbóta í málefnum félags- ins. cins og hann hefur verið aö skril'a um aö undanförnu. Ég tel að skrif hans séu örvæntingarfull til- raun til að blekkja fólk, Hann talar mikið um cinræði í félaginu og lætur að því liggja í grein um daginn, aðfólkið í trúnað- armannaráði og hinn almcnni fé- htgi séu svo vitlausir að þeir lá'ti stjórnast afeinum manni. Er hægt að ganga lengra í því að lítilsviröa félagsmenn? Jón Helgason hefur verið trúr sínu félagi og hefur ekki sýnt það í neinu að hann vilji drottna yfir fé- iagsmönnum og hann tekur fyllsta tillit til sjónarmiða félagsmanna á fundum og við önnur tækifæri. Sumir taia um hið aukna lýð- ræði. Égspyrykkuralmennirfélag- ar, er það lýðræðislegt að gera eins og Guömundur Sæmundsson kom með á stjórnarfundi í haust, cr samningarnir voru þar til umfjöll- unar, að samþykkja þá rneð cinu atkvæði? Hvar cr nú lýðræðið, að segja hinum almenna félaga að sitja hjá, ef þctta er ekki einræði, hvað kallast það þá? En nokkrum klukkutímum síðar á almennum fundi berst Guðmund- ur svo með oddi og egg á móti samningunum og vill verkfall í des- ember. Svona tvískinnungshátt hefur maður oft fundið hjá honum. í haust sagði hann að það væri alveg siðlaust að sömu fulltrúar færu á þing Alþýðusambands Norðurlands og þing Verkamanna- sambands íslands. Það er svo sið- laust að hann fór á bæði þingin! Er erfitt fyrir ungt fólk að hasla sér völl innan verkalýðshreyfingar- innar? Þaö tel ég ekki vera. Hafi menn áhuga á málefnum hreyfingarinn- ar, mæti á fundum og séu tilbúnir að taka að sér störf fyrir félagið, þá er þeim ekki ýtt til hliðar, en allt of margt ungt fólk er kærulaust um sína hagi og hefur ekki áhuga á að mæta á félagsfundi. Það cr ekki langt síðan að ég fór aö taka þátt í starfi míns stéttarfé- lags. Ég hugsaði eins og svo margir aðrir: Ég nenni ekki á fundi. En þetta er mikill misskilningur hjá félögunum, því það næst ekkert, enginn árangur, nema allir standi saman. Ég er byggingaverkamaður og einn af þeim sem lægstu iaunin hafa, það er stefnumið mitt að ef listi trúnaðarmannaráðs verður við völd í félaginu eftir kosningar, að berjast fyrir þá sem eru með lægstu launin, það hefur verið hugsað allt of iítið um þau. Það sama á við um verkafólkið sem er á lágu grunn- kaupi en pínir sig til þess að ná smá bónus, sem er ekkert annað en svita peningar. Það er krafa sem verður að ná, að hægt verði að lifa af 40 stunda vinnuviku með grunn- launum. Kæri félagi, það verður kosið um það á kjördegi hvort þú vilt lýðræði í Verkalýðsfélaginu Einingu undir forystu Jóns Helgasonar eða kommúnistaeinræði undir stjórn Guðmundar Sæmundssonar. Björn. Snæbjörnsson. 6 - DAGUR - 9. febrúar 1982

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.