Dagur - 12.02.1982, Side 2
HSSBSSSESSBÐS.íIEHESSESBSHSSHESSSESEESEEEHIBEESEHEEEESIsjBEBSBSSHBEBSSBI
Lesendahomid
Hvatning tíl dáða
Fimmtudaginn 14. janúar s.l. er
ég kom heim úr vinnu minni á
sjöunda tímanum, gríp ég Morg-
unblaðið og tek að fletta því,
sem ég reyndar geri kvöld hvert.
Allt í einu staðnæmast augu mín
við grein er ber yfirskriftina fs-
lensk heilsulind og er eftir þau
Hebu A. Ólafsson og Pál
Ágústsson. f>ar sem mér er þessi
heilsulind að nokkru kunn og
kær, þá tók ég að lesa með at-
hygli það sem þarna var skrifað.
Reyndist það vera lofsamleg
ummæli þessara dvalargesta á
staðnum og aðbúnaði öllum í
meðferð og fæði. Höfðaði grein-
in sterkt til mín, það sem grein-
arhöfundar höfðu um staðinn að
segja. Ég tel það allt rétt, því ég
hef orðið hins sama aðnjótandi í
heilsuhælinu í Hveragerði.
Ég vil vekja athygli á því, að
hér á Akureyri er að rísa af
Þynnislykt
Kona í Norðurgötunni hringdi
og hafði þá sögu að segja, að á
mánudag í fyrri viku hafi hún og
fleiri íbúar við norðanverða
Norðurgötuna orðið vör við
megna þynnislykt upp úr niður-
fallsrörum íbúða í hverfinu.
Lyktin hefði komið upp um
niðurföll baðkera og vaska og
verið svo sterk, að líkast hefði
verið sem um stórfelldar máln-
ingarframkvæmdir hefði verið
að ræða á næstu grösum - eða
sem líklegra væri, að miklu
magni af einhvers konar máln-
ingarefnum hefði verið hellt í
niðurfallskerfið. Bað konan
Dag að koma þessuá framfæri í
þeirri von, að einhver gæti gefið
skýringar á fyrirbærinu.
Hafa tæpast tíma
tíl að slnna okkur
Freyja Eiríksdóttir, verkakona
hjá Útgerðarfélagi Akureyr-
inga, hafði samband við blaðið
og bað um það því yrði komið á
framfæri, að ómaklega hafi
verið vegið að mótframboðinu í
Einingu í Smáu og Stóru á
þriðjudag. Sagðist hún ekki vera
sammála því, að Guðmundur
Sæmundsson væri byltingar-
sinni. Maðurinn kæmi mjög vel
fyrir og hefði rólega framkomu.
Hann legði sig eftir því að heyra
álit félaganna og að fá þá til þátt-
töku. Hann vildi að valddreifing
yrði meiri í félaginu.
„Við hjá Útgerðarfélaginu
hlökkum til ef annar maður á B-
listanum verður varaformaður.
Erna Magnúsdóttir nýtur trausts
samstarfsmanna sinna og er vin-
sæl meðal þeirra. Verði hún kos-
in þurfum við ekki að leita á
skrifstofuna með málefni okkar,
þar sem stjórnin situr og hefur
tæpast tíma til að sinna okkur.
Því miður finnst mér Eining vera
orðin stofnun og í augum stjórn-
endanna séu félagarnir lítið ann-
að en nafnnúmer og skattgreið-
endur. Ég vil taka það fram að
afgreiðslufólkið á skrifstofu Ein-
ingar er allt úrvals fólk.
Ég hef orðið vör við lítilshátt-
ar golukul frá stuðningsmönn-
um Jóns Helgasonar á mínum
vinnustað sem ég er starfandi
hjá nú, og tel þann besta sem ég
hef haft um ævina“, sagði Freyja
Eiríksdóttir.
grunni heilsulind af sama toga.
og heilsulindin í Hveragerði.
Það er Náttúrulækningafélag
Akureyrar er stendur að þeirri
framkvæmd. í dag standa bygg-
ingamál þessa húss þannig, að
lokið er við að steypa kjallara að
600 m húsi. Einnig er lokið gerð
sundlaugar er steypt var á s.l.
hausti. Þessi fyrsti áfangi á að
verða 3 hæðir á kjallara og full-
byggt mun hælið geta tekið á
móti um 70 manns. Á þessu ári
er fyrirhugað að taka fyrir fyrstu
og jafnvel aðra hæð hússins, ef
fyrir liggur nægjanlegt
fjármagn. Uppbyggingin hefur
fram að þessu verið fjármögnuð
af framlögum einstaklinga í
formi gjafa og áheita, Félagið
hefur fjáröflun í gangi nánast allt
árið í einhverri mynd og eru
margir skörungar þar á ferð. Fé
til uppbyggingar hælisins úr op-
inberum sjóðum er nánast ekk-
ert enn sem komið er, en von-
andi stendur það til bóta. Stað-
setning heilsulindarinnar á Ak-
ureyri er í Kjarnalandi sunnan
Akureyrar í einum fegursta stað
í bæjarlandinu.
Það gefur auga leið, að þegar
þetta hressingarhæli tekur til
starfa, ætti það að létta verulega
af heilsuhælinu í Hveragerði og
stytta biðtíma þeirra, sem svo
sárlega þurfa á líkamlegri upp-
byggingu að halda. Fámennt
áhugamannafélag hvetur því
alla hvar sem er á landinu að
ganga til liðs við þá heilsulind
sem er að þokast upp á yfirborð
jarðar í Kjarnalandi, svo að sem
fyrst sé fært að hefja þar rekstur.
Ég vil þakka þessum ágætu
hjónum fyrir grein þeirra er í
upphafi var nefnd. Hún er
hvatning til dáða, einkum þar
sem við hér á Norðurlandi
vinnum á sama grunni og í sam-
vinnu við heilsulindina í Hvera-
gerði. Laufey Tryggvadóttir.
Magra línan frá Mjólkursamlagi
KOTASÆLA
Næringargildi í 100 g
eru u.þ.b.
Prótein 13,50 g
Fita 4,50 g
Kolvetni 3,00 g
Kalsium 0,96 g
Járn 0,03 g
Hitaeiningar 110,00
(440 kj.)
UNDAN-
RENNA
Næringargildi í 100 g er um það bil
Hitaeiningar 35,00
Próteln 3,5 g
Fita 0,05 g
Kolvetni 4,7 g
Kalk 0,12 g
Fosfór 0,09 g
Járn 0,2 mg
Bi - vitamin 15,00 ae
B2 -ö vitamin 0,2 mg
C -vitamin 0,5 mg
LÉTTMJÓLK
í 100 g. eru.þ.b.:
Hitaeiningar 46
Prótein 3,5 g
Fita 1,5 g
Kolvetni 4,7 g
Kalk 120mg
Fosfór 95 mg
Járn 0,2 mg
Vitamín A, B-|, B^, C og D
GERBOLLUR M/KOTASÆLU
(24-30 Stk.)
30 g smjör
50 gger
5 dl mjólk
100 g Kotasæla
1 tsk salt
'h msk sykur
3 msk sesam- eða höiiræ
650 g hveiti
egg til að pennsla með
Skraut:
Sesam- eða hörfræ
Bræðið smjörið og setjið í skál
ásamt mjólk, geri, salti og sykri.
Blandið Kotasælu, sesam-
fræjum og hluta af hveitinu
saman við vökvann og hrærið
vel. Hreinsið barma skálarinnar
og stráið hveiti yfirdeigið. Breiðið
hreinan klút yfir skálina og látið
deigið lyfta sér í 30-40 mín á hlýj-
um stað í eldhúsinu (þar til það
hefur stækkað um helming).
Sláið deigið niður eða hrærið
hraustlega í því með sleif. Setjið
deigið á borð og hnoðið meira
hveiti í það, en ekki meira en svo
að deigið losni frá borðinu. Mótið
bollur, setjið þær á bökunarplötu
og látið þærlyftasérí 15-20 mín-
útur. Penslið bollurnar m/eggi og
stráið sesamfræi ofan á. Bakið í
u.þ.b. 12 mín við 225°C.
Fitusnautt - Hollt - Næringarríkt
H
E
E
E
B
H
H
E
E
0
E
E
H
E
E
H
E
E
E
E
E
E
H
H
E
E
E
H
E
E
E
E
E
E
E
H
E
H
H
E
E
E
E
E
E
E
H
E
E
H
EJ
H
E
E
E
H
H
H
Frábær
skemmtun
Verksmiðjukona hringdi.
Mér hefur sýnst að svona les-
endadálkar í blöðunum væru
aðallega notaðir til þess að
kvarta undan öllu mögulegu, en
mig langar til þess að vera svolít-
ið jákvæð og þakka kærlega fyrir
frábæra skemmtun sem ég var
viðstödd nýlega.
Þetta var skemmtun f verk-
smiðjum Sambandsins á Akur-
eyri þar sem flutt var revía og
síðan var dansleikur á eftir. Re-
vían var samin og flutt af starfs-
fólki þar og tókst alveg sérstak-
lega vel. Þetta var allt svona í
léttum dúr, meinlaust allt saman
en allir skemmtu sér konung-
lega. Þetta framtak Starfs-
mannafélagsins var til hinnar
mestu fyrirmyndar og er von-
andi að framhald verði á.
Þakkir tíl starfs-
fólks F.S.A.
Lesandi Dags hringdi og sagði
m.a.: „Minnugur þess að í lífinu
eru það skammirnar sem skila
sér áberandi betur en það sem
segja má gott um, og þess vegna
er H-D beðinn fyrir þessar línur.
Nú í tvígang hef ég átt erindi á
sjúkrahúsið á Akureyri. Ég hef
tekið eftir því sérstaklega hve
læknarnir eru öruggir, fljótvirkir
og velvirkir og hve hjúkrunar-
konurnar og annað aðstoðarfólk
hefur verið kurteist og skilnings-
ríkt. Þetta er að sjálfsögðu séð
með augum gestsins og hins óf-
aglærða, en sem var þó í báðum
tilvikum þolandinn. Að fenginni
þessari reynslu vil ég óska þess
að þetta ágæta fólk fái sem fyrst
betri aðstöðu í nýbyggingu
spítalans11.
Um aðgerðir til
húsfriðunar
á Akureyri
Lftirfarandi bréf barst frá Helgu
Sveinsdóttur:
„Völundur Kristjánsson, vél-
smiður, andaðist að morgni 22.
apríl 1981 og dánarfregn kom í
útvarpinu sama dag. Þennan dag
að kveldi þurfti ég ásamt fleira
fólki að ganga til verkstæðis Völ-
undar (í Gamla Lundi, innsk.
blaðsins). Eftir smá stund urð-
um við vör við að verið var að
dumpa í Lund að utan, gluggar
hristir harkalega. Við fórum að
kanna óspektir. - Jú, þar var
maður að verki. Ég sagði strax
Völund dáinn. Það vissi maður-
inn, - sagði okkur með embætt-
ismanns ró, að hann hefði litið
eftir húsinu undanfarna daga því
húsfriðun Akureyrar ætti húsið.
Upphófust illindi á báða bóga.
Ég krafðist mega kistuleggja og
jarða Völund í friði. Ekki skildi
embættismaðurinn það. Ég
benti þá strax á að eignarlóð
stæði hann á og skyldi hann
hypja sig strax. Gerðu menn sig
líklega til að vippa manninum
frá húsinu - þá fór hann.
Aftur er svo höggvið í sama
knérunn á ári fatlaðra og jóla-
kveðja send dánarbúinu. (Um er
að ræða bréf frá Akureyrarbœ,
dags. 23. des. 1981, þar sem
segir: „Bœjarstjórn hefuráfundi
sínum í gœr samþykkt eftirfar-
andi úr gerðabók húsfriðunar-
sjóðs dags. 18. desember 1981.
Stjórnin leggur einróma til við
bœjarstjórn, að eftirtalin hús
verði friðlýst samkvæmt þjóð-
minjalögum (öll í Bflokki) Eiðs-
vallagata 14 (Gamli Lundur),
Norðurgata 17 (Gamla prent-
smiðjan), Strandgata49 (Gránu-
hús).“ Bréfið er undirritað af
bœjarstjóra og stílað á Dánarbú
Völundar Kristjánssonar, Geisla
götu 39, 600 Akureyri, do frú
Helga Sveinsdóttir. Innskot
blaðsins).
Þessar aðgerðir opinberra að-
ila á viðkvæmum stundum hafa
skilið eftir opið sár og gleymast
seint. Helga Sveinsdóttir“.
2 - DAGCJR - 12.febrúar.1982