Dagur - 12.02.1982, Blaðsíða 9

Dagur - 12.02.1982, Blaðsíða 9
„Viljum gera allt til þess að varan sé sem best“. „AUt of mikið tii af vandamála- sérfræðingum“. „Þýðir ekki að negla kjötiðnaðar- mennina upp við vegg“. milljónir króna og við vorum ekk- ert að biðja um neinn ríkisstyrk til þess að koma þessu á fót. Við vissum af reynslunni að þetta þurfti, því þarf að rannsaka allt sem viðkemur framleiðslunni, allt frá kryddi, vatni og mjöli. Það er ekki eingöngu við sem störfum við þetta sem þurfum að vera þrifaiegir, heldur þarf þrifnaður að vera í fyrirrúmi á öllum stigum allt frá því gripirnir koma frá bændunum. Við fáum ekki betra kjöt úr vélunum en við setjum í þær.“ „Þess vegna dettur manni í hug þegar þessir menn eru að koma með svona niðurstöður, að það sé fyrst og fremst verið að setja þetta á svið til þess að fá meiri peninga frá ríkinu. Sýna hvað þeir hafi af- kastað, og nú vanti peninga til þess að gera meira. Gallinn er bara sá að þessir menn byrja á öf- ugum enda, ef vatnið er ekki gott sem við notum þá verður ekkert gott. Við setjum t.d. ís í kjötfarsið til þess að halda hitastiginu niðri og ef vatnið sem ísinn er búinn tii úr er ekki góður þá verður kjöt- farsið ekki gott, þetta sjá allir“. „Yandamála- sérfræðingar“. „Þessir sérfræðingar eru heldur ekki sammála um það hvað gerla- fjöldinn má vera mikill, þannig að það eru ýmsar hliðar á þessu en þarna er verið að gera flókið mál' einfalt og negla kjötiðnaðar- mennina upp við vegg og segja: „Þið eruð sóðar“. Við höfum hins vegar rekið okkur á það bæði í mjöli og kryddi að það hafa verið kólígerlar í því. Þetta sýnir bara að það eru margar hliðar á þessu. Það er hinsvegar með þessa menn, sem ég kalla vandamála- sérfræðinga, að þeir eru að búa til vandamál en ekki að reyna að leysa þau. Við höfum allt of mikið af þessum vandamálasérfræðing- um í þjóðfélaginu segi ég. Þeir byrja yfirleitt vel“. - Kjötiðnaðarstöð KEA flutd í nýtt húsnæði á Oddeyri 1966, en hafði áður verið til húsa í Kaup- angsstræti. „Þetta þótti geysilega fínt hús- næði og reyndar allt of stórt. Menn sögðu að hér ætti að vera hægt að framleiða fyrir allt landið. Staðreyndin er hinsvegar sú að húsnæðið er orðið allt of lítið, það Þama er unnið við pökkun. eru mörg ár síðan þetta húsnæði var sprungið". „Það voru keypt góð tæki í hús- ið á þeim tíma, en gekk hinsvegar hægt að endurnýja þau og fá ný og fullkomnari tæki. Þó erum við mjög vel settir í dag vildi ég segja, þótt auðvitað sé maður aldrei ánægður“. - Eins og fyrr sagði var árið 1976 tekið í notkun í Kjötiðnaðar- stöðinni ný rannsóknarstofa sem hefur verið starfrækt síðan. Við spurðum Óla hvort það kæmi oft fyrir að starfsmenn þar fyrirskip- uðu stöðvun á framleiðslu vegna þess að þeir hefðu fundið eitthvað athugavert. „Alltaf á varðbergi“. „Já það kemur fyrir að svo er, og það hefur komið fyrir að vara hefur aldrei farið út úr húsinu. Það eru einstaka vörutegundir sem eru mjög varasamar í fram- leiðslu og þá getur eitthvað komið upp sem þarf ekki að vera fyrir sóðaskap eða lélegt hráefni. Það þarf að hita þessar vörutegundir og taka beinin úr þeim á eftir. Þá eru hugsanlega margir búnir að koma nærri þessu og þá þarf að sjóða upp á þessu aftur og kæla það niður. Við erum alltaf á varð- bergi fyrir þessu, enda finnst okk- ur sem störfum við þetta það furðulegt þegar það er borið á borð að þrifnaði sé ábótavant. Ef eitthvað kemur fyrir þá bitnar það fyrst og fremst á okkur, við erum hreinlega látnir fara, missum vinnuna. Við viljum allt gera til þess að varan sé góð, því annars selst hún ekki. Það þýðir ekkert að bera það á borð fyrir almenn- ing að við viljum ekki gera þetta, við vorum langt á undan þessum vandamálasérfræðingum að fara að rannsaka þessa hluti, en síðan koma þeir og láta eins og þetta sé allt saman óætt og ómögulegt“. „Þeir hafa sagt að þetta sé verra úti á landsbyggðinni, en ég vil halda því fram að ef eitthvað er þá sé ástandið betra þar. Ég get bent á mjólkina sem dæmi. Við erum nýbúnir að rannsaka mjólk og eftir 11 daga geymslu var gerla- fjöldinn ekki kominn yfir það mark sem hann mátti vera, og hún Ljósmyndir: KGA. ekki farin að breyta bragði. Þeir hafa vælt yfir þessu í Reykjavík, en þeir geta alls ekki sagt að við séum með verri vöru en þeir. Þetta er ágætt dæmi held ég“. Framleiða 130 tegundir. Hvað framleiðið þið margar tegundir matvæla hér í stöðinni? „Ætli það láti ekki nærri að það séu um 130 framleiðslutegundir þegar allt er talið með eins og niðursuðan. Síðan erum við með umboðssölu á ýmsum vörum sem við dreifum með okkar vöru. Starfsfólkið hér er um 70 manns en fer yfir 80 manns á sumrin. - Hvað margt af þessu fólki er menntað til þeirra starfa sem það gegnir hér? „Hér starfa 10 kjötiðnaðar- menn. Fimm þeirra starfa við verkstjórn, og svo er einn þeirra alveg yfir þessu, hann sér um að samræma ýmislegt varðandi fram- leiðsluna, færa fólk á milli o.þ.h. því það er misjafnlega mikið að gera á hverjum stað í framleiðsl- unni. Ætli hér sé síðan ekki annað eins af lærlingum í kjötiðn“. er ekkert gert þarna fyrir keppnisliðin. Allt sem gert er í Hlíðarfjalli miðast við þarfir alm- ennings. Stærsta æskulýðsheimili bæjarins. - Geturþú gefið mér einhverja hugmynd um hve margir sækja Hlíðarfjall? - Ég hygg að þetta sé stærsta æskulýðsheimili bæjarins yfir vet- urinn. Okkur telst til að á góðum dögum komi 1700 til 2000 manns. Yfir páskana í fyrra taldist okkur til að á tólf dögum hefðum við fengið 30 þúsund manns í fjallið, en það skal tekið fram að það var líka alveg einstakt. - Hvað hefur verið framkvæmt í fjallinu undanfarin ár? - Á síðustu fjórum árum hefur verið byggt mjög myndarleg veit- inga- og snyrtiaðstaða í Strýtu. Það er búið að leggja gott síma- kerfi um allt svæðið og búið að kaupa gott tímatökutæki til notk- unar á skíðamótum og að byggja undirstöður undir skíðalyftu í Hjallabraut. Einnig er búið að gera fokhelda vélageymslu við hótelið. í fjögur ár höfum við vilj- að ljúka lyftunni í Hjallabraut og leggjum mikla áherslu á að það verði gert 1983. Hún er ekki inn á fjárhagsáætlun í ár því ég áleit að best væri að ljúka við vélageymsl- una, vildi ekki vera með margar hálfkláraðar framkvæmdir í gangi. - Hvað um ástand gömlu kað- altogbrautanna? - Þær eru nú orðnar um tvítugt. Önnur heitir Hólabraut en hin Hjallabraut. Hólabraut, sem er neðst, er byggð upphaflega úr dóti sem fékkst úr síldarverk- smiðjunni á Hjalteyri. Það var Skíðaráð Akureyrar sem byggði lyftuna í sjálfboðavinnu. Hún mátti ekkert kosta og varð því hálfónýt strax. Hún er enn í notk- un og enn ónýt og það er mikil mildi að ekki hefur orðið í henni stórslys, en það skal tekið fram að við hana er góður öryggisbún- aður. Hjallabraut er hins vegar gömul vörulyfta úr Mjólkursam- lagi KEA. í mörg ár var hún í gil- inu norðan við skíðahótelið og 1975 var hún færð þar sem hún er nú. Hún er nánast aldrei notuð. Það er aðeins þegar menn eru far- nir að bíða í 40 mínútur við stóla- lyftuna að við setjum hana af stað. Hugmyndin er að flytja lyftuna sem nú er í Strompi niður eftir og reisa nýja lyftu í Strompi. Nýja Hjallabrautarlyftan verður mun lengri og afkastameiri en sú sem er þar í dag. - Úr Hlíðarfjalli. Framhaldsnámskeið. - Verður ástand mála viðun- andi í Hlíðarfjalli þegar þessum framkvæmdum lýkur? - Þegar er búið að leggja niður gömlu Hólabrautarlyftuna og gera það sem ég var að tala um, verður ástandið gott. Þá verður sjálfsagt komið árið 1984. En það er margt eftir og því lýkur raunar aldrei sem hægt er að gera og þarf að gera í Hlíðarfjalli. - Hvað er að frétta af skíðask- ólanum? - Hann starfar stöðugt. Það hefjast ný námskeið á hverju mánudagskvöldi og allir geta ver- ið með. En ég hef orðið var við að fólk kemur í svona námskeið, lær- ir að bjarga sér en svo er ekkert framhald, það fær ekki tækifæri til að læra meira. Nokkur undanfar- in ár höfum við reynt að auglýsa framhaldsnámskeið, en það hefur enginn komið. Nú ætlum við að reyna þetta enn einu sinni og byrj- um í næstu viku. Kennarinn er mjög góður og fólk hefur tvímæla- laust gagn af því að koma. Þetta er t.d. kjörið tækifæri fyrir börn og unglinga sem langar til að komast í keppnisþjálfun. J2.febrúar 1882 - DAGUR - 8

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.