Dagur - 12.02.1982, Page 5
Þaö var mikið hlegið í sal
Sambandsverksmiðjanna s.l.
laugardagskvöld þegar revían
„Verksmiðjuhús Q“ var sýnd
þar. Salurinn var troðfullur af
hressu fólki sem nötraði og
titraði af hlátri þann tíma sem
revían stóð yfír.
„Verksmiðjuhús Q“ er eftir
Birgi Marinósson og Margréti
Emilsdóttur sem bæði starfa hjá
Sambandinu, og eru allir leikar-
ar í sýningunni einnig starfs-
menn þar. Þau Birgir og
Margrét tjáðu Degi eftir sýning-
una að í haust hefði verið auglýst
leiklistarnámskeið á vegum
Starfsmannafélagsins og hefðu
um 20 manns sótt það. Fram
kom hugmynd um að sýna revíu
í lok leiklistarnámskeiðsins og er
„Verksmiðjuhús Q“ niðurstað-
an. í leikskrá segir:
Revían fjallar aðallega um
bóndann Steina sem flyst í
menningarmiðstöðina Akureyri
og fer að vinna í verksmiðju.
Lífsvenjur og atvinnumórall
bæjarbúa er honum framandi,
og búferlaflutningurinn virðist
hafa haft neikvæð áhrif á fjöl-
skyldu hans. Aðalinntak reví-
unnar er þó kannski það hvernig
ekki á að stjórna.
Theódór Júlíusson er leik-
stjóri og í helstu hlutverkum eru
Bjarni Jónsson og Margrét Em-
ilsdóttir.
Þessar heiðurskonur virtust skemmta sér konunglega.
Anna Bergþórsdóttir í hlutverki móður Steina kitlaði heldur betur hláturtaugar áhorfenda.
Bjarni Jónsson fór á kostum í hlut-
verki Steina.
Eins og sjá má voru áhorfendur á ýmsum aldri, en allir virtust geta sér spaugi-
legu hliðar revíunnar. Ijósm. KGA
Fiat Ritmo
FIAT RITMO
Eini innflutti bíllinn á Bandaríkjamark-
aði sem stóðst öryggispróf neytenda-
samtakanna.
FIAT RITMO hefur hlotið viðurkenn-
ingu um heim allan.
Aksturseiginleikar og hönnun hans er
talin það fullkomnasta sem fram hefur
komið í mörg ár.
Sumir hafa gengið svo langt að þeir
telja RITMO bíl þessa áratugar.
VAGNINN
Glæsilegt mælaborð
Komið og
skoðið
nýju FÍAT
bílana
Fáið ykkur kaffi,
heitt verður á könnunni.
Fiat 127
Fiat 127 hefur töngum sannaó
m
ágætí sitt og veriö mest seldi
bíll Evrópu, samfleytt 6ár ekki
aö ástæóulausu. Hér á íslandi
hefur umboöið til þessa ekki
annað eftirspurn, enda bfllinn
skilað einu hæsta endursölu-
verði á markaðnum.
FURUVÖLLUM 7 - SÍMI 24467
/ FÍAT EINKAUMBOÐÁ ISLANDI
DAVÍÐ SIGURÐSSON hf.
/ SMIÐJUVEGI 4, KÓPAVOGI. SÍMI 77200.
Sýnum í fyrsta
skipti á Akureyri
FIAT 127 special og Fiat Ritmo
FIAT
BÍLASÝNING
á morgun, laugardag,
kl. 13-18
HJÁ VAGNINUM SF.
Furuvöllum 7 - Akureyri
12,.tebr,óar,19§2 - QAGUR - 5