Dagur - 26.02.1982, Blaðsíða 12

Dagur - 26.02.1982, Blaðsíða 12
Munið að panta fermingar- matinn tímanlega, því allt er að verða fullbókað. Sjáum einnig um heitan veislumat og getum þá sent starfsmann til að sjá um veisluna. Munið að panta borð tímanlega fyrir helgarnar og takið vinsamlegast fram, hvort þið óskið eftir að koma á tíma- bilinu 18.30-19.30 eða eftir kl. 21.00. Lítið við á nýju setustofunni okkar, fyrir eða eftir matinn, en hún er ein- göngu fyrir matargesti. XJr gömlum áiið 1963—’64 Rólegt var um jól og áramót 1963-1964 á Akureyri að sögn lögregiunnar. Alls voru 26 brennur í bænum, og sýnir það glögglega að ungir piltar á þeim árum hafa verið fram- takssamari í brennuefnissöfn- un en jafnaldrar þeirra í dag. í Degi 4. janúar 1964 sagði lög- reglan að dansleikir hafi verið á fjórum stöðum á Akureyri um áramótin. Allt fór vel fram, en þó þurfti lögreglan að aka nokkrum heim sem ekki voru rólfærir og var þeim komið inn fyrir dyr heima hjá sér. „Grjót-fóðraður farvegur“ Verkfræðiskrifstofa Sigurðar Thoroddsen hafði lagt fram til- lögur um hvernig ganga skyldi frá farvegi Glerár. Um það sagði í frétt Dags 5. febrúar: Samkvæmt áætlun (áætlun A, sem er aðgengilegri) er gert ráð fyrir grjótfóðruðum skurði eða árfarvegi með tveim 1,3 m stöllum eða fossum. Er það miðað við árfarveginn allt frá Gefjunarstíflu niður undir ós . . . Lét féð elta sig Á Litlu-Hámundarstöðum á Árskógsströnd bjó þá Jón Guðmundsson, góður fjár- maður og áhugasamur um fjárrækt. Voru í Degi 12. febrúar sagðar sögur af því hvernig hann hafði það er hann þurfti að koma fé sínu milli staða. Brá hann sér jafnan í hlutverk forustusauðs og á eftir þrammaði allur kindahópur- inn. Mun Jón hafa notað þessa óvenjulegu aðferð oftar en einu sinni og oftar en tvisvar bæði í vondum veðrum og myrkri. Hótel KEA sprakk Svo virðist sem mikil sprenging hafi orðið í Hótel KEA um þetta leyti. Ekki er vitað um skemmdir, enda mun ástæðan einfaldlega hafa verið sú að Bændaklúbburinn hélt mjög svo fjölmennan fund þar 10. febrúar. Reyndar varð engin sprenging í húsinu, en Dagur sagði frá fundinum undir eftir- farandi fyrirsögn: „Bænda- klúbbsfundurinn sprengdi Hótel KEA“. Böðlast áfram Þann 15. febrúar tjáði lögregl- an á Akureyri að búið væri að sekta fjölda manns fyrir að virða ekki eina stöðvunar- merkið sem sett hefði verið upp í bænum, á horni Gránuf- élagsgötu og Geislagötu. í fyrirsögn sagði: „Menn böðlast áfram - með réttu eða röngu“. Þá var sagt frá sýningu Leikfé- lags Akureyrar á „Góðir eigin- menn sofa heima“, sem er „skemmtilega vitlaus leikur“ eins og sagði í grein Dags. Ókyrrð að Saurum Það vakti geysilega athygli um allt land er dularfullir atburðir tóku að gerast að Saurum á Skaga. Mikil ókyrrð var þar, húsmunir og fleira á flegiferð og bæði hreppstjóri og sýsiu- maður létu hafa eftir sér að þetta væri ekki af mannavöld- um. Saurar voru umtalaðasti bær landsins, og heimilisfólkið þar hafnaði allri samvinnu við blaðamenn - af slæmri reynslu - og voru Saurar lokað land blaðamönnum. Fréttamenn í felum Philip prins, hertogi af Edin- borg heimsótti Norðurland, og var geysilegur mannfjöldi við móttöku í Lystigarðinum á Akureyri. Á leiðinni norður kom hertoginn við í Borgar- fírði og renndi fyrir lax. Frétta- menn fengu ekki að vera við- staddir, en er fyrsti laxinn beit á hjá hinum tigna gesti tóku runnar og hríslur í nágrenninu að færast úr stað. Kom í ijós að margir fréttamenn höfðu falið sig á snilldarlegan hátt, dul- búnir sem runnar og hríslur, áður en hertoginn hóf veiðarn- ar. Var þessum runnum og hríslum stuggað burtu. OSB „Mítt líf snýst allt um knattspymu“ Breski knattspyrnuþjálfarinn Douglas Reynolds sem þjálfa mun 2. deildarlið Þórs í sumar er kominn til Akureyrar og hefur þegar tekið til starfa við þjálfun liðsins. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem hann þjálfar hér, hann var þjálfari Þórs á árunum 1976-1977 og spurð- um við hann fyrst hvað hefði á daga hans drifíð síðan. „Ég er búinn að fara ansi víða, hef m.a. verið við þjálfun í Bandaríkjunum, Hong Kong, Singapore og í Oatar. Það kemst ekkert annað að hjá mér en knattspyrna og aftur knatt- spyrna, mitt líf hefur allt snúist um knattspyrnu og ég reikna með að svo verði áfram.“ Reynolds er ákaflega við- kunnalegur náungi, lífsgleðin ljómar af honum og hann talar ekki margar setningar í einu í alvarlegum dúr. Húmorinn er svo sannarlega til staðar og er óspart notaður. En hvernig vildi það til að hann kom aftur til Þórs, er það vegna þess að hann fái svo mikla peninga hér? „Nei, ertu vitlaus,“ segir Reynolds og hlær. „Þú hlýtur að vera að gera að gamni þínu. Annars var það þannig að þegar ég var í Oatar að ég kynntist skoskri stúlku og við keyptum okkur hús miðja vegu á milli Glasgow og Edinborgar, þú ætt- ir að líta við ef þú verður ein- hverntíma á ferðinni,“ bætti hann við. „Þar var ég í haust þegar Þórsararnir töluðu við mig og þar sem mér hafði líkað ákaf- lega vel að vera hér, ákvað ég að slá til. Ég hreifst mjög að því hvernig fólkið vinriur hérna og hvemig það lifir, loftslagið er líka ákaflega gott þannig að mig l'angaði að koma hingað aftur þótt allar aðstæður séu mjög erf- iðar hér vegna veðurfarsins. Við getum ekki byrjað að æfa úti fyrr en löngu eftir að þeir eru byrjað- ir í Reykjavík til dæmis. Mig langaði einfaldlega að koma hingað og gerði það, þótt ég væri með önnur tilboð um þjálfun, t.d. bæði frá Ástralíu og Hong Kong og miklu meiri laun í boði, það spilar fleira inn í þetta en peningar.“ - Hvernig leggst svo í þig að leiða Þór til sigurs í 2. deild, en ég geri ráð fyrir að það sé það sem þú munir stefna að? „Mér líst mjög vel á þetta, það eru komnir margir ungir piltar í liðið frá því ég var hér og margir þeirra eru mjög efnilegir. Eg mun hinsvegar gera þeim fulla grein fyrir því að í deildinni verða 9 lið til viðbótar, og þau stefna öll að sama markinu, þ.e. að komast upp í 1. deild. Mínir menn verða því að gera sér grein fyrir því að það þarf að hafa fyrir hlutunum, það verður að berjast fyrir sigri til síðustu mínútu í hverjum einasta leik. En auðvit- að stefni ég að því að koma Þór upp t 1. deild, það er ekkert launungarmál. Douglas Reynolds. DelSeii Það er merkið

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.