Dagur - 09.03.1982, Qupperneq 5
Gunnvör Braga dagsrárfulltrúi:
Æskilegt að auka barna-
og unglingaefni héðan
„Það var byrjað að flytja
barnaefni reglulega frá Akur-
eyri árið 1978 og það er óhætt
að segja að það hafi gefist mjög
vel. Við höfum verið afskap-
lega heppin með fólk hér fyrir
norðan og það hefur sýnt sig og
sannað að þetta á fullan rétt á
sér,“ sagði Gunnvör Braga
dagskrárfulltrúi Ríkisútvarps-
ins sem hefur umsjón með
barna- og unglingaefni. Gunn-
vör var á ferðinni á Akueyri á
dögunum og við ræddum stutt-
lega við hana.
„Við höfum verið með fastan
þátt héðan frá Akureyri en það er
„Litli barnatíminn“. Að honum
eru þrfr stjórnendur, Heiðdís
Norðfjörð, Dómhildur Sigurðar-
dóttir og Gréta Ólafsdóttir, og
hafa þær séð um þáttinn sinn mán-
uðinn hver. Erindi mitt hingað
norður er auðvitað fyrst og fremst
að þinga með þessum ágætu kon-
um um sumarið sem framundan
er, og Ieita að nýju fólki sem hefur
hug á að fást við stjórn á barna- og
unglingaefni.
Þessir þættir héðan hafa verið
unnir eins og þeir væru fyrir land-
ið allt, þetta er ekki staðbundið
efni. En vissulega gæti það verið
gaman að vera stöku sinnum með
staðbundið efni. Það má nefna
efni eins og hvað verður boðið
upp á hér á Akureyri fyrir krakka
í sumar, hvaða félög verða starf-
andi, hvernig getum við hagað
okkar útivist og fleira í þeim dúr.“
- Ef farið verður út í það að
fjölga þáttum héðan frá Akureyri
fyrir börn og unglinga, yrði það þá
þáttur fyrir unglinga sem kæmi til
viðbótar við „Litla barnatím-
ann“?
„Barna- og unglingaefni í út-
varpinu er í ákveðnum ramma ef
svo má segja. Mér sýnist það
sterklega koma til greina að Ak-
ureyri haldi „Litla barnatíman-
um“, en fái svo t.d. á föstudögum
útsendingu fyrir eldri krakkana,
þ.e. 10-14 ára. Það gæti einnig
komið til greina að sá þáttur sem
bættist við yrði unglingaþáttur
sem yrði á dagskrá á kvöldin."
Gunnvör Braga.
Leikklúbburinn Saga:
Frumsýnir íslenskt
verk í næsta mánuði
Hespulopi
Uppskrift nr. 200
Magn: 1400 gr. (str. 40)
Verð kr. 256.00
Plötulopi Og
Tweed-lopi
í mörgum litum
Álafoss
Lopi-light
Léttur-lopi
Uppskrift nr. 196
Magn 650 gr. (str. 40)
Verðkr. 107.50
ALAFOSS LOPI
er íslensk gæðavara
á hagstæðu verði.
Það er til fjöldi uppskrifta,
hvernig væri að kynna sér úrvalið.
Álafosslopi
Crystal-Fleece
Eingirni
Uppskrift nr. 212
Magn: 600 gr. (str. 40).
Verð kr. 102.00.
200
Sigurtar Gubmmlssonarftf.
Leikklúbburinn Saga á Akur-
eyri hefur nú hafið æfingar á
nýju íslensku leikverki sem
frumsýnt verður um miðjan
aprfl. Leikritið nefnist „Anna
Lísa“ og höfundur þess er
Helgi Már Barðason. Leiks-
tjóri er Þröstur Guðbjartsson.
Hlutverkin í leikritinu eru alls
11. Verkinu er skipt í þrjá þætti
og fjallar hver þáttur um stúlk-
una Önnu Lísu á mismunandi
aldursskeiðum, samskipti henn-
ar við fjölskyldu, vini og um-
hverfi. Einnig verða í leikritinu
söng- og dansatriði unnin af
höfundi og leikstjóra í samein-
ingu.
„Anna Lísa“ er skrifað sér-
staklega fyrir Leikklúbbinn
Sögu og í samvinnu við leikhóp
og leikstjóra. Leikmynd ereinn-
ig unnin á svipaðan máta.
„Anna Lísa“ er að ýmsu leyti
gamanleikrit, en inn í það flétt-
ast þó alvöruþrungin og spenn-
andi atriði. Þetta er fyrsta leikrit
Helga Más í fullri lengd, en hann
hefur áður samið leikþætti og
styttri revíur fyrir árshátíðir og
skemmtanir. Leikstjórann,
Þröst Guðbjartsson, ættu Akur-
eyringar að þekkja úr „Þrem
systrum", sem L.A. sýnir um
þessar mundir.
Leikklúbburinn Saga er ung-
lingaleikhús og Jiið eina sinnar
tegundar hér á landi. Félagar
eru allir á aldrinum 14-22 ára.
Klúbbnum hefur verið boðið til
Danmerkur næsta sumar með
verkið, en ennþá hefur ekki ver-
ið tekin ákvörðun um hvort
klúbburinn þekkist boðið. Mun
fjárhagsstaða klúbbsins að lokn-
um sýningum á „Önnu Lísu“ Formaður Leikklúbbsins
skera úr um það. Sögu er Jóhanna Birgisdóttir.
HAFNARSTRÆTI96 SIMI 96*24423 AKUREYRI
íc
fl
Elektro EHi Helios
Lítið útlitsgallaðir
kæli- og frystiskápar
Allt að 24% afsláttur
Elektro
cTc
Hitadunkar
100-300 lítra
Norskgæðavara
úr ryðfríju stáli
með sjálfvirkum
hitastilli.
HDHX
Þilofnar, margar
stærðirog gerðir.
Rakatæki og
blástursofnar.
>
Eldavélar, uppþvotta-
vélar og ísskápar.
Hagstætt verð.
öryggisofnar með snúningsdiski
þrefalt öryggi á hurð.
Gæðavara í sérflokki.
ftvERsuo hjá fagmanni ★ NÝLAGNIR' VIÐGERÐIR • VIÐHALD • VERSLUN
9. mars 1982 t. DAGUR - 5