Dagur - 09.03.1982, Side 9
Lið Þórs sem sigraði í 2. deildinni í körfuknattleik og leikur í 1. deild næsta vetur. Fremri röð frá vinstri: Konráð Óskarsson, Erlingur Jóhannsson, Valdimar Júlíusson, Þórhallur Vilhjálms-
son, Björn Sveinsson. Aftari röð frá vinstri: Gylfi Kristjánsson þjálfari, Roger Behrends, Ríkharð Lúðvíksson, Guðmundur Björnsson, Jóhann Sigurðsson, Eiríkur Sigurðsson fyrir-
liði, Þórður Stefánsson, Jón Hcðinsson með son sinn og Þórarinn Ólafsson.
Ljósm. KGA
Þórsarar eru komnir
í 1. deild í körfubolta
Um helgina voru leiknir hér á
Akureyri úrslitaleikir í 2.
deild í körfubolta, en þar var
riðlakeppni og komust sigur-
vegarar riðlanna í úrslita-
keppni. Þau lið sem kepptu í
úrslitunum voru Þór Akur-
eyri, ÍME, Breiðablik Kópa-
vogi og Vestmannaeyingar.
Þórsarar stóðu sig mjög vel í
þessari keppni, unnu alla leiki
sína, en það sama gerðu þeir í
sínum riðli. í liði Þórs eru margir
ungir og efnilegir strákar, en
kjölfestan er Jón Héðinsson,
Eiríkur Sigurðsson og Banda-
ríkjamaðurinn Roger Behr-
ends. Hann er þó ekki eins af-
gerandi í liði sínu eins og þeir
Bandaríkjamenn sem áður hafa
leikið hér, enda voru þeir frá-
bærir. Þórsarar munu því leika í
fyrstu deild næsta ár og vonandi
komast þeir fljótlega í úrvals-
deildina, en körfuboltinn á ís-
landi rís nú hærra en hann hefur
áður gert.
Þór - Vestmannaeyjar
87-69
Fyrsti leikurinn í úrslitum
annarrar deildar var leikinn á
föstudagskvöldið. Þá léku Þórs-
arar við Vestmannaeyinga í
íþróttaskemmunni. Leikurinn
varð aldrei spennandi, þar sem
Þórsarar höfðu ávallt yfirburði.
Þeir náðu strax afgerandi for-
ustu sem þeir héldu út allan leik-
inn.
Þegar fyrri hálfleikur var
hálfnaður var staðan 17 gegn 6,
Þór í vil. Skömmu síðar meidd-
ist Eiríkur hjá Þór, en þá komu
bara yngri strákarnir meira inná
og stóðu sig ágætlega. í hálfleik
var staðan 37 gegn 20.
Smám saman jókst forskotið
og þegar flautað var til leiksloka
var staðan 87 gegn 69 og öruggur
Þórssigur í höfn. Það vakti sér-
staka athygli að allir leikmenn
Þórs fengu að spreyta sig í leikn-
um, en í þeim hópi eru margir
efnilegir strákar. Það hlýtur að
vera meira gaman fyrir þá að
vera með þegar þeir fá að taka
þátt í leiknum þó ekki sé nema
nokkrar mínútur.
Roger Behrends var stiga-
hæstur Þórsara með 28 stig, en
ágætan leik sýndu m.a. Valdi-
mar, Erlingur o.fl.
Þór - Breiðablik
78-77
Þessi leikur var mjög spennandi
og allan leikinn skildu aðeins fá
stig liðin að, en Þórsarar höfðu
þó yfirleitt forustuna. Það var
ekki fyrr en á síðustu mín. að
Blikarnir náðu forustu. Þegar
30. sek. voru eftir, hafði Breiða-
blik boltann og var einu stigi
yfir.
Þórsarar komu þá alveg fram
að miðju á móti þeim og Jóni
Héðinssyni tókst að ná boltan-
um þegar aðeins um 5 sek. voru
eftir að leiknum. Hann henti
fram til Valdimars sem komst
upp að körfunni og skoraði ör-
ugglega, og þá um leið gall flauta
tímavarðarins og Þórsarar sigr-
uðu með eins stigs mun. Jón
Héðinsson var atkvæðamestur
Þórsara í þessum leik.
Þór-ÍME 104-90
Skemmtilegasti leikur úrslit-
anna var tvímælalaust leikur
Þórs og menntskælinga frá
Egilsstöðum. Þeir hafa í broddi
fylkingar hástökkvarana Unnar
Vilhjálmsson og Sigurð Matthí-
asson frá Dalvík, en þeir voru
burðarásar liðsins.
Til að byrja með var leikurinn
mjög jafn, og mátti sjá jafnar
tölur til að byrja með. Þórsurum
tókst þó að ná smá forskoti eða
níu stigum eftir tíu mín. leik, og
það forskot dugði þeim til sigurs
í leiknum. í hálfleik var staðan
47 gegn 38 fyrir Þór.
1 byrjun síðari hálfleiks náðu
Austfirðingar að minnka mun-
inn niður í sjö stig, en hingað og
ekki lengra sögðu Þórsarar og
skömmu síðar höfðu þeir aukið
Ðjarmi í 1. deild
Ungmennafélagið Bjarmi úr
Fnjóskadal sem tekur þátt í
annarri deild í blaki, vann um
helgina góðan sigur á Fram úr
Reykjavík. Með þessum sigri
tryggði Bjarmi sér sigur í ann-
arri deild, og leika þeir því í
fyrstu deild næsta keppnis-
tímabil. Eins og áður hefur
komið fram, æfa þeir í íþrótta-
húsinu sem er við Stórutjarn-
arskóla en þar er aðstaða til
blakiðkunar ágæt. Íþróttasíð-
an óskar Fnjóskdælum til
hamingju með sigurinn í
muninn í tólf stig. Um miðjan
síðari hálfleik var staðan 76 gegn
68 Þór í vil og þegar flautað var
til leiksloka hafði Þór gert 104
stig en ÍME 90. Þórsarar höfðu
því sigrað í þessari úrslitakeppni
og jafnframt í annarri deild.
Fyrir það fengu þeir eignarbikar
og leikmenn verðlaunapeninga.
Jón Héðinsson var bestur Þórs-
ara í þessum leik, en hann skor-
aði 22 stig. Stigahæstur þeirra var
þó Roger Behrends. Þá var Erl-
ingur góður og gerði t.d. tólf stig
úr langskotum. Þeir Unnar Vil-
hjálmsson og Sigurður Matthí-
asson voru langbestir hjá ÍME,
enda stökkkraftur þeirra mikill
og hittni þeirra frábær.
Sigur og
tap hjá
UMSE
deildinni og vonar að þeir
standi sig vel í keppninni í
fyrstu deild.
Eyfirðingar gulltryggðu setu
sína í fyrstu deild í blaki þegar
þeir sigruðu Laugdæli með
þremurhrinumgegneinni. Dag-
inn eftir kepptu þeir við Þrótt og
þar hittu þeir fyrir ofjarla sína
sem sigruðu Eyfirðinga með
þremur hrinum gegn einni. Það
verða þá Laugdælir sem falla í
aðra deild að þessu sinni.
9. mars 1982 - DAGUR - 9