Dagur - 23.03.1982, Blaðsíða 3

Dagur - 23.03.1982, Blaðsíða 3
Folaldakjöt Nýtt, saltað og reykt Frá Hússtjórnarskóla Akureyrar Vegna forfalla geta nokkrir nemendur komist aö á síðasta réttindanámskeiði vetrarins. Upplýsingar í síma 24199. Níu bílar Samtök áhugafólks um áfengisvandamáliö, betur þekkt undir nafninu SÁÁ, hefa hleypt af stokkunum stórglæsilegu happdrætti, og er það liður í fjáröflun samtak- anna vegna byggingar nýrar sjúkrastöðvar sem rísa á við Grafarvog í Reykjavík. „í þessu máli verðum við að treysta á góðar viðtökur almenn- ings, ríki og sveitarfélög verða að vísu einnig vinsamleg að því að við vonum, en það sem mun gera útslagið er hvaða móttökur happdrættið fær hjá öllum almenningi" sagði Vilhjálmur Vilhjálmsson framkvæmdar- stjóri SÁÁ í viðtali á dögunum. Full ástæða er til þess að benda fólki á að um leið og það styður gott málefni með kaupum á mið- um í þessu happdrætti þá hefur það möguleika á að vinna glæsi- lega bifreið. Alls eru 9 bílar í verðlaun. Fyrsti vinningur er bifreið af gerðinni SAAB 900 Torbo að verðmæti 260.000 krónur, annar vinningur er Opel Ascona Berlina að verðmæti 235.000 krónur, og síðan eru sjö vinningar sem hver um sig er bif- reið af gerðinni Colt Mitsubishi að verðmæti 111.500 krónur hver. Heildarverðmæti vinning- ana nemur því einni milljón, tvö- hundruð sjötíu og fimm þúsund- um og fimm hundruð krónum. Allt eru þetta skattfrjálsir vinningar, en dregið verður í happdrættinu þann 7. april. Zontaklúbbur Akureyrar: Gaf Heilsuverndarstöð- inni sjónþjálfunartæki Þann 13. þ.m. afhentu félagar í Zontaklúbbi Akureyrar Heilsuverndarstöð Akureyrar að gjöf sjónarþjálfunartæki af fullkomnustu gerð. Veitti Hilmir Jóhannsson héraðs- læknir þeim viðtöku fyrir hönd Heilsuverndarstöðvarinnar, en Ragnheiður Hansdóttir forma- ður Zontaklúbbsins afhenti þau. Tækjunum er komið fyrir í húsnæði augnlæknanna á Ak- ureyri, en Jónína Hreinsdóttir sjónþjálfi, sem tækin notar, vinnur í nánu samstarfí við þá. Eðlileg samsjón augna er öllum mikils virði. Sé henni ábótavant á fyrstu árum einstaklingsins, er hætta á sjóndepru á öðru auga og að þríviddarskyn verði skert. Að- stoð sjónþjálfa við greiningu og meðferð þessa ágalla er nauðsyn- legur þáttur í nútíma augnlæknis- þjónustu. Sjónþjálfunartækin eru af- rekstur þriggja ára fjáröflunar- starfs Zontaklúbbsins fyrir sjónskerta og er því verkefni nú lokið, en í Zontaklúbbi Akureyr- ar eru 36 félagskonur. Nú á ári aldraðra hefur Zontaklúbburinn ákveðið að styrkja „Systrasel," en þar á að koma upp hjúkrunar- deild fyrir aldraða. Fyrsta fjáröfl- unin í þessu skyni verður Páska- basar í Gildaskála Hótels KEA þann 1. april kl. 20, ,en þar verður á boðstólum alls kynns Páska- skraut, kökur og brauð. Sömu- leiðis verður Nonnahús opið fyrir gesti dagana 5.-8. april frá kl. 5-6. Frá afhendingu sjónþjálfunartækisins. Á myndinni eru talið frá vinstri: Ragn- heiður Hansdóttir tannkeknir, Hilmir Jóhannsson héraðslæknir, Ragnar Sig- urðsson augnlæknir, Loftur Magnússon augnlæknir og Jónína Hreinsdóttir sjónþjálfi Ljósm.: Páll. Ingvar Gíslason herra, opnar sýninguna. Búlgörsk nútímalist Á laugardag var opnuð í list- sýningarsal Myndlistarskólans á Akureyri sýning á búlgarskri nútímalist. Ingvar Gíslason menntamálaráðherra, sem er formaður Vináttufélags íslands og Búlgaríu opnaði sýninguna með ávarpi, þar sem hann rakti í stuttu máli sögu Búlgara, en nú eru 1300 ár síðan fyrst var stofnað búlgarskt ríki. Mikið fjölmenni var við opnun sýningarinnar og fóru menn lof- samlegum orðum um hana, enda er þetta mjög vönduð sýning og aðgengileg öllum. Er fólk hér með hvatt til að sjá sýninguna, en henni lýkur sunnudaginn 28. mars. Þetta er í fyrsta skipti sem sýning sem þessi kemur til Akur- eyrar, þ.e. úrval verka frá einu laridi. Sýningin er opin alla virka daga frá 20-22 og um helgar frá 15-22. Bjóðum glæsilegt urval af Jakkar, buxur, vesti, skyrtur og bindi ásamt skónum á sama stað. Herradeild — Skódeild Til fermingargjafa: Frá Vefnaðarvörudeild Fermingarkápur frá Gasella þykkar, þunnar Combiflex raðhúsgögn Vöruhús KEA Hrísalundi 5 HAFNARSTR. 91-95 - AKUREVRI - SlMI (96)21400 23. mars 1982 - DAGUR - 3

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.