Dagur - 23.03.1982, Page 9
KA kvaddi 1. deild
Alfreð Gíslason skoraði 21 mark er KA
tapaði 20-33 fyrir KR í slökum leik
Birgir Björnsson hefur verið þjálf-
ari KA undanfarín ár og náð mjög
góðum árangri. Hann lætur nú af
starfi sem þjálfari liðsins.
KA iék sinn síðasta leik í
fyrstu deild í handbolta á
föstudagskvöldið er liðið lék
við KR-inga. Fyrir þennan
ieik var KA fallið í aðra deild,
og komu því KA-strákarnir
frekar áhugalitlir til leiksins.
KR vann stórsigur í leiknum,
en KR skoraði 33 mörk gegn
20.
Það merkilega við þessa
markatölu var það að Alfreð
Gíslason skoraði 21 mark í
leiknum, en það er tvímælalaust
markamet í fyrstu deild í hand-
bolta.
Þegar þessum mörkum var
bætt við þau sem hannn hafði
áður skorað í vetur, var úrkom-
an 109 mörk og er það hæsta
„skor“ einstaklings í deildinni í
ár, og er Alfreð því markakóng-
ur þessa fslandsmóts. Sennilega
hafa fyrrverandi samherjar Al-
freðs í KA-liðinu viljað veg hans
sem mestan í þessum leik til þess
að hann næði hinum eftirsótta
markakóngstitli! Veru KA í
deildinni er því lokið að þessu
sinni og hlutu þeir fjögur stig og
falla í aðra deild ásamt HK, en
bæði þessi lið voru nýliðar í
fyrstu deild á yfirstandandi
keppnistímabili.
Þjálfari KA síðastliðin fjögur
keppnistímabil hefur verið Birg-
ir Bjornsson og er óhætt að segja
að hann hafi náð frábærum ár-
angri með liðið. Það sigraði aðra
deildina í fyrra og hafði árið
áður verið þar í toppbaráttu, en
herslumuninn vantaði þá að ná
fyrstu deildar sæti.
Það verður líka hlutskipti
Birgis að sjá á eftir liði sínu
niður í aðra deild, en eins og
einn leikmaður KA sagði eftir
leikinn á föstudagskvöldið. „Við
vinnum aðra deildina léttilega á
næsta ári.“ Ef það reynist rétt
getur Birgir verið harðánægður
með strákana sína.
Birgir mun ú hætta þjálfun
KA-liðsins, en fyrir næsta
keppnistímabil hefur KA ráðið
danskan þjálfara og þá hefur
einnig heyrst að hann ætli að
hafa með sér tvo danska leik-
menn til að fríska upp á liðið.
Ef allt þetta gengur að óskum
verður bjart framundan hjá lið-
inu.
Alfreð Gíslason markakóngur ís-
lands 1982. Hann skoraði mest 21
mark í leiknum og samtals 109 í ís-
landsmótinu.
Þórsarar
gerðu
jafntefli
Á föstudagskvöldið iéku í
Keflavík, Þórsarar og Kefl-
víkingar í þriöju deildinni í
körfubolta.
Þessi leikur skipti Keflvíkinga
engu þar sem þeir eiga enga
möguleika á því að ná sæti í ann-
arri deild, en Þórsarar eygðu
ennþá veika von um sæti í ann-
arri deild.
Að sögn Sigtryggs Guðlaugs-
sonar, fyrirliða Þórsara gekk allt
á afturfótunum hjá þeim til að
byrja með og í hálfleik var stað-
an 15 mörk gegn 7, Keflvíking-
um í vil. f síðari hálfleik hresst-
ust þó okkar menn og þegar
flautað var til leiksloka var
markatalan jöfn, 22 mörk gegn
22.
Þarna tapaði Þór dýrmætu
stigi, og nú er eini möguleiki
þeirra, ef þeir ætla áð komast
upp, að Keflvíkingar vinni
Gróttu í síðasta leiknum, en þá
lendir Þór í öðru sæti í deildinni,
og tryggir sér þá um leið sæti í
annarri deild, og Ieikur þá í
sömu deild og KA næsta
keppnistímabil.
Þórsstúlkur
í 1. deild
Um helgina tryggðu Þórs-
stúlkur sér sæti í fyrstu deild í
handbolta næsta keppnistím-
abil.
Þær léku tvo leiki, töpuðu
öðrum en unnu hinn og það
nægði þeim til að sigra í sínum
riðli. Þær eiga þó eftir að leika
einn leik, en úrslit hans skipta
ekki máli.
Þær töpuðu fyrir Fylki með 14
mörkum gegn 12, en unnu síðan
Aftureldingu með 20 mörkum
gegn 8.
Þórsstúlkurnar eru hagvanar í
fyrstu deild, en þær hafa leikið
þar í mörg ár, en féllu niður í
aðra deild í fyrra. Þjálfari þeirra
í ár hefur verið Sverrir Ög-
mundsson.
Öldungarnir
keppa á Hóli
Fyrstu helgina í aprfl verður
haldið öldungamót í norræn-
um greinum skíðaíþrótta, og
fer mótið fram að Hóli í umsjá
Skíðaráðs Siglufjarðar. Keppt
verður í göngu 3. aprfl og
stökki daginn eftir.
Aldursflokkaskipting er
þannig að keppt verður í stökki
35-45 ára (fæddir 1937-1946) og
flokki 46 ára og eldri. Þátttaka
er öllum heimil, nema þeim sem
hafa tekið þátt í Bikarkeppni
SKÍ 1982.
Þátttökutilkynningar með
nöfnum, fæðingadegi og ári
þurfa að berast Ásgrími Sigur-
björnssyni í síma 96-71755 fyrir
30. mars n.k. og veitir hann allar
nánari upplýsingar og fyrir-
greiðslu í sambandi við ferðir og
gistingu.
Bræðurnir Sigbjöm og Gunnar Gunnarssynir í Sporthúsinu eru komnir í úrslit í Firmakeppninni með lið sitt.
Firmakeppni í knattspyrnu:
Urslit í kvöld
Um helgina gekkst knattspyrnu-
deild Þórs fyrir firmakeppni í
knattspyrnu. Þar gátu tvö fyrirtæki
sameinast um lið. Alls kepptu 14
lið í þessu móti og var leikið í þrem-
ur riðlum. Undankeppni er lokið
og úrslit verða í íþróttaskemmunni
á þriðjudagskvöldið og hefjast þau
kl. 19.00. Um fyrsta til þriðja sæti
keppa eftirtalin fyrirtæki: SÍS,
Sporthúsið og Björgvin Leon-
ardsson rafverktaki og Vegagerð-
in. Um fjórða til sjötta sæti leika
síðan ÚA A-lið, Fiskhús og Nóta-
stöðin Oddi og Slippstöðin A-lið.
Furðuleg tilhögun
í úrslitakeppni
Forráöamenn Körfuknatt-
leikssambands íslands bættu
enn einni „rós í hnappagat
sitt“, um helgina er úrslita-
keppni íslandsmótsins í 4. og
3. flokki fór fram í Njarðvík.
Fjögur lið voru í úrslitum í 4.
flokki, UMFN, Borgarnes, KR
og Þór frá Akureyri. Þarna voru
sett á svið úrslit á milli UMFN og
KR, en það sem verst var að lið
Þórs sem tapaði fyrir UMFN,
fékk ekki annan leik. í 3. flokki
var sama upp á teningn-
um, Þór lék gegn Val, tapaði
þeim leik, og fékk ekki annan.
Það er furðulegt að boðið
skuli vera upp á annað eins og
þetta. Lið sem vinnur sinn riðill
og kemst í úrslit á íslandsmóti
fær einungis einn leik í úrslitun-
um! Er til lítils fyrir félög eins og
Þór að vera að leggja í allan
þann kostnað sem því fylgir að
halda með lið suður fyrir einn
leik. En eftir það sem á undan er
gengið í vetur, í samskiptum
Þórs við KKÍ, kemur ekkert á
óvart frá þeim höfðingjum er
ráða ferðinni hjá KKÍ.
23. mars 1982— DAGUR - 9