Dagur - 29.04.1982, Síða 8
Kirkjukór Lögmannshlíðarsóknar
safnar fé til kirkjubyggingar
Með tilkomu nýstofnaðs presta-
kalls og nýkjörins prests í Glerár-
hverfi hlýtur allt safnaðarstarf að
færast í vöxt. Vegna mikillar
fólksfjölgunar í þessum bæjar-
hluta hefur á allmörgum undan-
förnum árum verið til umræðu að
byggja kirkju í hverfinu, þar sem
gamla Lögmannshlíðarkirkjan
þykir vera í of mikilli fjarlægð.
Arkitekt var fenginn til aö gera
uppdrátt af kirkju og safnaðarhei-
mili. Lengra hefur málið ekki
komist, enda hefur ekki, til
skamms tíma, verið Ijóst hvar í
skipulaginu slíkar byggingar ættu
aö rísa.
Síðan þessi hugmynd fæddist
hcfur mikið vatn til sjávar runnið,
Glerárhverfi hefur þanist út og
margt áhugafólk bæst í hópinn.
Kirkjukór Lögmannshlíðar-
sóknar hefur fullan hug á að
leggja krafta sína fram til upp-
byggingar þróttmiklu safnaðar-
starfi í hinni nýju sókn og telur
einsýnt, að byrjað verði á bygg-
ingu safnaðarheimilis, þar sem
söfnuöurinn og ýmis menningar-
félög yngri og eldri borgara ættu
hlut að. Samstætt áhugamannalið
het'ur alla tíð starfað í kirkjukórn-
um. Fyrir utan að sjá um söng við
allar guðsþjónustur í sókninni,
hefur hann oft beitt sér fyrir sam-
komum, þar sem söngur hefur
ávallt verið stór þáttur.
Nú í seinni tíð hefur kórnum
bæst liðsauki, svo að honum hefur
verið fært að halda tónleika, þar
sem flutt hafa veriö veigameiri
verkefni.
Á þessu vori efnir kórinn til
tónleika, þar sem blandað efni
verður á söngskrá - þó verulegur
Síðasta
sýning
áÖnnu
Lísu
Leikklúbburinn Saga sýnir leikrit
Helga M. Barðasonar, „Önnu
Lísu“ í síðata sinn í félagsmið-
stöðinni Dynheimum í kvöld,
fimmtudagskvöld. Leikstjóri er
Þröstur Guðbjartsson og taka 11
leikarar þátt í sýningunni, sem
ætluð er fólki á öllum aldri.
Á laugardag klukkan 17 verður
leikritið sýnt í félagsheimilinu á
Hvammstanga og á sunnudags-
kvöld á Hofsósi. Hríseyingar fá
síðan „Önnu Lísu“ í heimsókn
um næstu helgi og sömuleiðis
Grenvíkingar.
Miðaslan í Dynheimum opnar
klukkan 16. Síminn er 22710.
hluti eftir Björgvin Guðmunds-
son.
Æskilegt hefði verið, að þessir
tónleikar gætu farið fram í Gler-
ársókn, en til þess er ekki húsnæði
enn sem komið er. Þeir verða
haldnir í Borgarbíói, laugardag-
inn 1. maí kl. 5 sd.
En að sjálfsögðu tengjast þessir
tónleikar Glerársókn. Ákveðið
er, að ágóði, sem af þeim kann að
verða, renni til byggingar safnað-
arheimilis í sókninni.
Kirkjukórinn vonast til að
margir komi á tónleikana og sýni
með því velvildarhug og sam-
stöðu í hinni nýju Glerársókn.
Kórinn þakkar hljoðfæraleik-
urum úr tónlistarsólanum stuðn-
ing og ágætt samstarf og einnig
þeim húsráðendum, sem skotið
hafa skjólshúsi yfir starfsemi
kórsins.
Á.J.
Best er að
.vera birgur vel
i ^ii
■y-v
Látið ekki rússnesku
samvinnuvörurnar vanta í eldhúsið.
Á I dag eru það bestu matarkaupin
" í sambærilegum gæðum.
Hunangið er 100% náttúruhunang. Ef það kristallast, er auðvelt
ráð að setja það stutta stund í 40° heitt vatn, og eftir stendur
sérstök gæðavara á óvenjulegu verði. Annað, sem mælt er með
sérstaklega, eru ávaxtasulturnar, jarðaberjasulta, plómusulta
og trönuberjasulta, grænar baunir og rúsínur.
Þetta eru matarkaup, sem enginn ætti
að láta sleppa fram hjá sér.
Hér eru óumdeildar heilsuræktarvörur í boði, og það er rússnesk
alþýðutrú, að t.d. hunanginu fylgi ómæld hollusta og hugarró.
Séu umbúðirnar merktar V/O SOJUZKOOPVNESHTORG,
er það trygging fyrir gæðunum.
Lítið inn í næstu kaupfélagsbúð.
Þau gerast ekki betrí matarkaupin þessa dagana.
Kaupfélögin
VERIÐ VELKOMIN
KÖKA BORCARAR
8 - DAGUR - 29. apríl 1982