Dagur - 06.05.1982, Side 3
Stjórn sjúkrahúss Siglufjarðar um „reglugerð um flokkun sjúkrahúsa":
„Meiriháttar áfall fyrir heil-
brigðisþjónustuna í Siglufirði"
„Stjórn sjúkrahúss Siglufjarðar
mótmælir þeirri tilhögun í
drögum að „reglugerð um
flokkun sjúkrahúsa“, að
sjúkrahús Siglufjarðar verði
flokkað undir hjúkrunar- og
endurhæfingarheimili, sem er
vistheimili fyrir sjúklinga sem
búið er að sjúkdómsgreina en
þarfnast meðferðar sem hægt
er að veita utan sjúkrahúsa. Ef
tillit er tekið til núverandi starf-
semi sjúkrahússins lítum við
svo á að sjúkrahús Siglufjarðar
hefði átt að flokkast undir „al-
mennt sjúkrahús" og veita alla
þá þjónustu sem nú er veitt og
helst meiri, en ekki skerða það
sem þegar er til staðar. Ef af
þessu yrði væri þetta meirihátt-
ar áfall fyrir heilbrigðisþjón-
ustu í Siglufirði og það öryggi
sem Siglfirðingar og sjómenn á
fiskveiðiflotanum fyrir Norður-
landi hafa að þessu leyti undan-
farna áratugi, en yrði ekki leng-
ur fyrir hendi,“ segir í ályktun
sem stjórn sjúkrahúss Siglu-
fjarðar gerði fyrir skömmu og
sendi landssambandi sjúkra-
húsa og heilbrigðis- og trygg-
ingaráðherra. Stjórninni hafði
borist drög að reglugerð frá
heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðuneytinu, þar sem kemur
m.a. fram að sjúkrahús Siglu-
fjarðar verði ekki lengur al-
mennt sjúkrahús heldur aðeins
„hjúkrunar- og endurhæfingar-
heimili.“
Síðan segir í ályktuninni:
„Ef litið er á tölur um starfs-
mannahald sjúkrahúss Siglufjarð-
ar er ljóst að eina breytingin í
starfsmannahaldi sjúkrahússins
yrði sú að staða sérfræðings í
skurðlækningum yrði lögð niður.
Við þá breytingu myndu sjúkra-
flutningar héðan stóraukast og
nýting á leguplássum sjúkrahúss
Siglufjarðar minnka, en hún hef-
ur verið 85-90% undanfarin ár.
Þetta hefði aftur á móti í för með
sér mikla fjölgun legudaga á
svæðissjúkrahúsum sem nú í dag
eru 100% nýtt að því okkur er
tjáð.
Siglufjörður býr við mjög erfið-
ar samgöngur að vetrarlagi. Eina
færa leiðin með veikt og slasað
fólk að vetrarlagi er flugleiðis.
Það er alkunna að það getur orðið
ófært dögum saman frá Siglufirði
vegna óveðurs og þar við bætist að
flugvöllurinn er aðeins opinn
nokkra tíma á dag í skammdeg-
inu. Það að ætla sér til dæmis að
flytja konu í barnsnauð landleið-
ina um hávetur (til Akureyrar eða
Sauðárkróks) er augljóslega ekki
hvorki forsvaranlegt né fram-
kvæmanlegt af þeim sem til
þekkja. Öllum er ljóst að það eru
ekki menn sem þekkja til stað-
hátta hér sem samið hafa þessa
reglugerð.
Það hefur tekið áratugi að
byggja upp þá aðstöðu sem
sjúkrahús Siglufjarðar hefur nú
yfir að ráða og má segja að sú að-
staða væri einungis svipur hjá sjón
ef ekki hefðu komið til stórkost-
legar gjafir ýmissa Siglfirðinga og
líkmarfélaga hér í bæ. Siglfirðing-
ar hafa alltaf vitað og gera það
enn að forsenda fyrir byggð í
Siglufirði er góð heilbrigðisþjón-
usta. Þegar eyðileggja á með einu
pennastriki áratuga starf áhuga-
samra og óeigingjarna Siglfirð-
inga, þá hljótum við að mótmæla
kröftuglega.
Samkvæmt því sem áður hefur
verið sagt gerum við þá „kröfu“
að sjúkrahús Siglufjarðar verði
flokkað undir „almennt sjúkra-
hús“ í þeirri reglugerð er hér um
ræðir. Við hljótum að heita á alla
þá sem koma til með að leggja
blessun sína yfir þessa reglugerð
að taka tillit til röksemda okkar.“
GRÁLÚÐA
Á DALVÍK
Dalvík 2. maí.
Þegar flestir vor- og sumarboð-
ar bregðast og vetur konungur
gengur aftur í garð er það einn
árviss vorboði sem ekki bregst.
Það er blessuð grálúðan. Tog-
arinn Björgúlfur kom að landi
sl. fimmtudagskvöld með full-
fermi af grálúðu - 204 tonn eftir
átta daga útivist. í gærkvöldi
kom togarinn Björgvin að landi
með svipað magn.
Að sögn sjómannanna liggur allur
togaraflotin yfir grálúðunni -
meira segja þeir sem eiga að vera
á þorskveiðum. Ástæðan er sú að
HÓLAVATN:
Innritun
er hafin
Innritun í sumarbúðirnar að
Hólavatni er nú hafin og fer
fram á skrifstofu sumarbúð-
anna kl. 6-7 e.h. á mánudögum
og miðvikudögum í Kristni-
boðshúsinu Zion, niðri, gengið
inn að sunnan.
Fyrsti dvalarflokkúr verður
fyrir drengi 8-10 ára og fer hann
að Hólavatni 9. júní og verður til
23. júní. Annar flokkur verður
fyrir stúlkur 8-10 ára frá 30. júní
til 14. júlí. Þriðji flokkur verður
fyrir stúlkur 10 ára og eldri frá 20.
júlí til 3. ágúst. Fjórði flokkur
verður frá 5. ágúst til 19. ágúst
fyrir drengi 10 ára og eldri. Alls
verðá því 4 flokkar að Hólavatni í
sumar og dvalartími hvers flokks
14 dagar. Dvalargjald á dag er kr.
130.00.
Listi Fram-
sóknarmanna
á Raufarhöfn
Búið er að leggja fram framboðs-
lista framsóknarmanna á Raufar-
höfn. Listann skipa: 1. Þórarinn
Stefánsson stýrimaður, 2. Gunnar
Hilmarsson sveitarstjóri, 3. Sig-
ríður Þorsteinsdóttir húsmóðir 4.
Þorgeir Ólafsson byggingafull-
trúi, 5. Jónas Pálsson sjómaður,
6. Sigrún Guðnadóttir húsmóðir,
7. Helgi Hólmsteinsson skip-
stjóri, 8. Stefanía Snorradóttir
húsmóðir, 9. Guðni Oddgeirsson
verkstjóri og 10. Björn Hólm-
steinsson oddviti.
ekki er þorskbita að fá úr sjó, eins
og menn orða það. Það verður því
nóg að gera í frystihúsum landsins
á næstunni. Grálúðuna er aðeins
hægt að frysta þannig að nokkuð
að nokkuð vandamál skapast hjá
minni frystihúsum, sem að öllu
jöfnu setja hluta aflans í salt og
skreið. En menn þurfa þá ekki að
hafa áhyggjur af aukinni skreið-
arverkun á meðan.
Á föstudagskvöldið fór Dísar-
fellið frá bryggju með fullfermi
af skreið og hausum. Alls var
þetta um 425 tonn sem er að verð-
mæti nálagt átta milljónum
króna. Meirihluti farmsins var
hausar og hver hefði trúað því
fyrir nokkrum árum að það væri
hægt að gera verðmæti úr þorsk-
hausum? Annars eru menn hér
ekki ánægðir með þá ákvörðun
bankayfirvalda að stöðva fyrir-
greiðslu vegna umræddra afurða.
Verkendur hér telja þessa
ákvörðun ekki rétta, þar sem nú
fer i hönd verkun skreiðar fyrir
Ítalíumarkað, sem cr allsendis
ólíkur markaðnum í Nígeríu.
AG.
Hvorki er forsvaranlegt né framkvæmdanlegt að flytja konu í barnsnauð landleiðina til Akureyrar eða Sauðárkróks um
hávetur - segir efnislega í ályktun stjórnar sjúkrahúss Siglufjarðar.
Orlof aldraðra
að Löngumýri
Þeir ellilífeyrisþegar skipta nú
mörgum hundruðum sem sótt
hafa námskeið þau og orlofs-
dvalir að Löngumýri í Skaga-
firði, sem Þjóðkirkjan skipu-
leggur í samvinnu við félags-
málastofnanir Reykjavíkur,
Kópavogs og Akureyrar og
reyndar fleiri aðila.
í ár hefst sumarstarfið 10. maí
og verður þá eitt hinna vinsælu
námskeiða til undirbúnings elliár-
um. Kenntverðurbókband,hnýt-
ingar, glermálun en þar að auki
verða fyrirlestrar og sýnikennsla
um ýmis efni sem varða aldrað
fólk. Námskeiðið er í hálfan mán-
uð og opið öllum.
Orlofsdvalir hefjast síðan og
skiptast þannig:
Flokkar Reykvíkinga:
24. maí - 4. júní
3. júIí-25. júlí
26. júlí - 6. ágúst
29. ágúst-3. sept.
Akureyringar og Kópavogsbú-
ar eiga forgang í flokknum 9.-20.
ágúst, Skagfirðingar og aðrir 14.
júní-25. júní.
Síðar í haust verða væntanlega
fleiri námskeið að Löngumýri.
Margrét Jónsdóttir að Löngumýri
veitir þessu starfi forstöðu og veit-
ir allar nánari upplýsingar (sími
95-6116), svo og Félagsstarf eldri
borgara að Norðurbrún 1 í
Reykjavík, sími 86960 og Félags-
málastofnanir Kópavogs og
Akureyrar.
Nýlega hefur verið tekið í notk-
un mjög falleg og hentug heima-
vistarbygging að Löngumýri, gjöf
þeirra Ingibjargar Jóhannsdóttur
og Bjargar Jóhannesdóttur sem
lengi veittu staðnum og skóla for-
stöðu.
Margskonar starf fer fram að
Löngumýri auk starfsins fyrir
aldraða. M.a. verða þar tvær er-
lendar ráðstefnur í sumar, ýmis
mannamót á vegum kirkjunnar og
fleira, enda aðstaða aðlaðandi og
staðurinn í þjóðbraut og stutt í
sundlaug og ýmsa merkisstaði.
Sporthú^idj
HAFNARSTRÆTI 94
SÍMI 24350
Sporthúydh,
HAFNARSTRÆTI 94
SIMI 24350
6. maí 1982 - DAGUR - 3