Dagur - 06.05.1982, Page 9
Mesta áherslu þarf að
leggja á atvinnumálin
—segir Guðlaug Björnsdótlir, sem skipar annað sætið
á lista Framsóknarflokksins á Dalvík
í öðru sæti á lista Framsókn-
arflokksins á Dalvík til bæjar-
stjórnarkosninga í vor er
Guðlaug Björnsdóttir hús-
móðir, borin og barnfæddur
Dalvíkingur. Hún er gift
Hilmari Daníelssyni og eiga
þau 4 börn á aldrinum 15-22
ára. Hún hefur unnið við
verslunar- og bankastörf með
húsmóðurstarfinu síðustu
árin.
Guðlaug hefur ekki verið
áður í framboði og því lá beinast
við að spyrja:
Hvað olli því að þú gafst kost
á þér í annað sæti listans sem
jafnframt er öruggt sæti í bæjar-
stjórn?
Já, öruggt segir þú, ég lít nú
svo á að aldrei sé neitt öruggt í
pólitíkinni frekar en öllu öðru.
En þegar komið var til mín og
leitað eftir því að ég tæki sæti á
listanum, hugsaði ég mig lengi
og vel um. Þar sem ég hef
undanfarin ár, eða síðan börnin
komust á legg, starfað mikið að
fé-
lagsmálum, setið í nefnd bæjar-
stjórnar og með þau kynni af
störfum bæjarstjórna, sem ég
fékk þegar Hilmar var á kafi í
þessum málum, komst ég að
þeirri niðurstöðu að þetta gæti
verið bæði þroskandi og á vissan
hátt lífsreynsla sem ekki væri
ástæða til að kasta frá sér. Síðan
verður það að koma í ljós, hvort
þetta er þess virði og eða ég
manneskja til að takast á við
þetta. Sú mikla umræða sem
fram hefur farið um kvenréttindi
og jafnréttismál og þátttöku
kvenna í opinberum störfum
hafði líka sitt að segja. Kvenna-
framboð sem slíkt er að mínum
dómi ekki leiðin til jafnréttis,
heldur finnst mér að konur eigi
að koma sínum hugðarefnum
fram í gegnum hinar hefð-
bundnu leiðir, ef hægt er að
segja svo. Þó það kosti þær
helmingi meiri fyrirhöfn og
vinnu en karlmanninn, því það
er víst óhjákvæmilegt, þá hefur
konan einmitt þrautsegjuna og
þolinmæðina sem til þess þarf og
þá stendur hún líka fastar fyrir
og sterkar en karlmaðurinn. Það
kemur líka í ljós sú ánægjulega
staðreynd þegar litið er á fram-
boðslistana til bæjarstjórnar-
kosninga á Dalvík að þar eru
konur óvenju fjölmennar. Og
sumar í öruggum sætum.
Hvaða málefni eru þá hug-
leiknust og á hvaða málaflokka
telur þú að leggja beri áherslu á,
á næsta kjörtímabili?
Atvinnumál eru að sjálfsögðu
þau mál sem þarf að leggja
mesta áherslu á. Til að bærinn
okkar haldi áfram að blómgast
og mannlíf að dafna, dugir ekki
annað en að atvinna sé næg. Það
þarf fyrst og fremst að halda
utan um þau fyrirtæki sem fyrir
Guðlaug Bjömsdóttir
eru á staðnum og líka kæmi til
greina að hefja athuganir á því
hvort hér væri grundvöllur fyrir
nýjum atvinnugreinum, t.d. ein-
hverskonar iðnaði í tengslum
við heita vatnið. Ég álít að
bæjarfélög eigi ekki að taka
beinan þátt í rekstri fyrirtækja
heldur að skapa þeim aðstæður
og vinna jarðveginn, halda utan
um þau eins og ég sagði hér að
framan. Síðan er það mál sem
mér er hugleiknast en það er
fegrun og snyrting bæjarins.
Mikið átak og gott hafa einstak-
lingar unnið undanfarin ár, eins
og sjá má á þeim fallegu og vel
hirtu lóðum sem eru nánast við
hvert hús. Aftur á móti þykir
mér hlutur bæjarfélagsins sjálfs
heldur lakari og á ég þar við opin
svæði í bænum. Sum þeirra er
búið að skipuleggja og vinna lít-
illega að plöntun trjáa, en því
miður hefur ekki verið hugsað
nógu vel um þetta, hvað sem
veldur. Ýmsum öðrum um-
gengnismálum hér í bæ er mjög
ábótavant. Það er því einlæg ósk
mín að þessum málum verði
komið í betra horf.
Önnurmál, sem þú viltnefna í
bessu sambandi?
Ja, þá er kannski í beinu fram-
haldi af fegrun bæjarins væri
ekki úr vegi að hugsa sér að
byggja hér upp ferðamannaað-
stöðu. Það kallar að sjálfsögðu á
margt sem vantar hér í dag, svo
sem tjaldstæði með snyrtiað-
stöðu, stærri og betri sundlaug
en þá sem nú er í notkun. En
bygging sundlaugar hefur verið í
brennidepli og mun því máli
áreiðanlega verða hraðað eftir
föngum. Og vel gæti ég hugsað
mér að vinna að því á allan hátt
að vekja athygli á bænum okkar.
láta vita af því að við séum til hér
á Dalvík. Við höfum nefnilega
upp á margt að bjóða þegar að er
gáð. Ekki má gleyma hinum
ýmsu félagasamtökum hér í bæ
sem vert er að veita stuðning til
hagsbóta fyrir mannlífið á
staðnum.
Ertu bjartsýn á úrslit kosning-
anna?
Hæfilega bjartsýn eins og
fram kemur í upphafi. En því
getur sá kjósandi treyst, sem
gefur okkur B-lista frambjóð-
endum atkvæði sitt og stuðlar að
því að þriðji maður okkar nái
kjöri, að við erum tilbúin nú sem
áður að vinna að framþróun og
bættum lífsskilyrðum fólksins á
Dalvík.
Aðalfundur
Útgerðarfélags Akureyringa hf.
veröur haldinn á kaffistofu frystihúss félagsins,
mánudaginn 17. maí nk. kl. 20.30.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Útgáfa jöfnunarhlutabréfa.
Aukning hlutafjár.
Stjórnin.
HliðB
1. Gulldansinn
2. Hverersinnar
gæfusmi6ur
1. Verðbolguvögguvisa
2. Sí&asta haiiö
3. Frostrósir
4. Bnmana
5. Ríma
6. Takiöeftlrmér
6. Veita iiö
- trommur Björgvin Guðmundsson - gitar, raddir GuSmundur Þór Ásmundsson - hljómborö, söngur, raddir
Ragnar Jörundsson - söngur, mddir, ásláttur Marino Bjömsson - bassl, gltar, raddir
ÍUimUTGAFAN
Aðalfundur
Iðnaðarmannafélags Akureyrar
árið 1982 veröur haldinn í Lóni laugardaginn
8.maí nk. kl. 14.00.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kynning á Efnaverksmiðjunni Sjöfn og fram-
leiðslu hennar.
Allir iðnaðarmenn velkomnir.
Stjórn Iðnaðarmannafélags Akureyrar.
Vorum að taka upp:
Óbleyjað léreft.
Indversk bómullarefni, nýja liti.
Röndótt efni. Furulitað í gluggatjöld.
Dúkaplast. Smávörur.
$ Eigum til mikið úrval af bað-
handklæðum, verð frá kr. 35.00.
Nýkomið í bamadeild:
Sumarstakkar, stærðir 110-170.
Trimmgallar, stærðir 80 -110.
Bómullarpeysur, velurpeysur.
Burðarúmspokar. Bleyjupokar.
Buxur, flauel og gallaefni.
Sumarhattar. Sundföt.
6. maí 1982 - DAGUR — 9