Dagur - 06.05.1982, Síða 12
Akureyri, fímmtudagur 6. maí 1982
RAFGEYMAR
í BfUNN, BÁTINN, VINNUVÉUNA
VEUIÐ RÉTT
MERKI
Mikið átak í malbikun gatna á undanförnum árum:
Malbik á tæpa sex
kílómetra í sumar
Sóknarnefnd og byggingar-
nefnd Glerárkirkju hefur ósk-
að þess að bygginganefnd út-
hluti lóð undir kirkju á Neðriás
í Glerárhverfi.
A fundi í bygginganefnd var
lagt til við bæjarráð að sóknar-
nefnd verði úthlutað lóð undir
kirkju á umræddum stað, innan
þcss svæðis scm skipulagsnefnd
afmarkaði á fundi í desember
1979. Lóðarstærð og lóðarmörk
verða ákveðin nánar þegar teikn-
ingar og skipulag lóðar liggur
fyrir.
Blanda
samþykkt
Nú er búið að samþykkja að
ráðist verði í virkjun Blöndu.
Þetta er stór áfangi og mikið
fagnaðarefni fyrir Norðlend-
inga, enda má segja að nú sé
lokið 20 ára baráttu þeirra fyrir
stórri virkjun í kjördæminu,
þannig að eðlilcg skilyrði sköp-
uðust fyrir iðnaðaruppbygg-
ingu.
I samþykkt atvinnumálanefnd-
ar Alþingis segir svo: „Blöndu-
virkjun verði næsta meiri háttar
vatnsaflsvirkjun. Miðlun umfram
220 Gl. veröi ekki aukin fyrr en
nauðsyn ber til vegna raforku-
kerfisins. Vcrði ágreiningur um
aukna miðlun skal honum skotið
til Alþingis að fenginni tillögu
ríkisstjórnar . . . Verði þörf fyrir
aukna vatnsmiðlun í 400 Gl. síðar
skal Alþingi úrskurða í málinu ef
ekki næst fullt samkomulag hags-
munaaðila. Eðlilegt virðist að fela
Landsvirkjun að meta þörfina
fyrir hina auknu vatnsmiðlun en
lagt er til að samið verði við
Landsvirkjun um framkvæmdir".
Nú er búið að ákveða hvaða
götur á Akureyri verða malbik-
aðar. Alls verða samt. 5.615
metrar af malbiki lagðir á tutt-
ugu götur í bænum. Tæpir átta
þúsund fermetrar af malbiki
verða lagðir á gangstéttar. Þeg-
ar þessum framkvæmdum Iýk-
ur verður búið að leggja rúm-
lega 12 km af malbiki á Akur-
eyri síðan 1978. Það ár var búið
að malbika 60.3 km á Akureyri
en í haust er áætlað að búið
verði að leggja malbik á 72 km.
Að sögn Sigurðar Óla Brynj-
ólfssonar bæjarfulltrúa, er raun-
hæft að tala um að ljúka malbikun
allra gatna á Akureyri á næstu
tveimur árum.
Eftirfarandi er áætlað að mal-
bika í sumar: Þingvallastræti 500
m, Beykilundur210m, Brálundur
120 m, Eikarlundur 390 m, Lerki-
lundur 490 m, Reynilundur 160
m, Stóragerði 330 m, Gilsbakka-
vegur 220 m, Oddagata 240 m,
Aðalstræti 240 m, Spítalavegur
420 m, Steinahlíð 160 m, Sunnu-
hlíð 65 m, Austursíða 340 m,
Bugðusíða 410 m, Keilusíða 120
m, Kjalarsíða 125 m, Miðsíða 690
m, Núpasíða 225 m og Þverasíða
160 m. Gangstéttir: Skarðshlíð
4.200 fm, Fosshlð 560 fm, Teigar-
síða 630 fm, Þórunnarstræti 1.360
fm og ýmsar aðrar gangstéttar
1.230 fm.
í sumar er áætlað að endur-
byggja Hafnarstræti frá ráðhús-
torgi að Kaupangsstræti, en í ný-
byggingum gatna og holræsa er
eftirfarandi áætlað: Jörvabyggð
195 fm, þyrping 1 við Vestursíðu
150 m, Dalsbraut (hluti norðan
Þingv.str.) 600 m, holræsi með-
fram Hörgárbraut 210 m, holræsi
að húsum við Háhlíð 45 m, Þing-
vallastræti frá Skógarlundi að
Glerárbrú og Hlíðarbraut að
Glerárbrú 500 m.
Það kemur fram í tillögunum
að áætlaður kostnaður við ýmsar
framkvæmdir á vegum bæjarverk-
fræðings er áætlaður kr.
18.510.000. Nánar tiltekið skipt-
ast útgjöldin þannig: Endurbygg-
ing gatna kr. 1.150.00, nýbygging
gatna og holræsa kr. 3.170.000,
brú á Glerá á Hlíðarbraut kr.
2.840.000, malbikun gatna kr.
6.720.000, malbikun gangstétta
kr. 960.000, þjóðvegur í þéttbýli
kr. 2.600.000 og ýmis verk kr.
1.070.000.
Beðið eftirstrætó?
Mynd: -gk.
Iðnaðardeild SÍS bauð
ellilífeyrisþegum vinnu
Iönaðardeild SIS sendi fyrir
skömmu öllum þeim sem hafa
starfaö hjá deildinni, og eru
farnir að fá ellilífeyrir, bréf þar
sem þeim var boðin vinna hjá
deildinni. I boði var starf við
snyrtingu lóðarinnar og fl. um-
hverfis verksmiðjubyggingar-
nar á Gleráreyrum. Þegar Dag-
ur ræddi við Júlíus Thorarensen
formann starfsmannafélagsins í
gær, kom fram að átta hafa sótt
um starf og fengið það, en hátt
á annað hundrað fengu bréf.
„Hugmyndin fæddist hjá stjórn
starfsmannafélagsins og við létum
stjórn Iðnaðardeildarinnar vita.
Henni leist vel á hugmyndina og
sendi viðkomandi aðilum bréf“,
sagði Júlíus. „Nokkrir ellilífeyris-
þegar voru byrjaðir að vinna þeg-
ar hretið skall á og urðu því að
hætta í bili. Ég á von á að fleiri
muni láta frá sér heyra og vilji fá
vinnu hjá deildinni".
Júlíus sagði að til væru væru
margir sem væru hættir að vinna,
komnir á ellilífeyri, en hefðu nær
óskerta starfsorku. „Þeir þurfa að
hafa eitthvað við að vera í stað
þess að sitja heima“, sagði Júlíus.
„Þetta tilboð Iðnaðardeildarinnar
er bundið við sumarið, en maður
veit aldrei hvernig þetta kann að
þróast. Það fólk sem sem nú þegar
hefur hafið störf er mjög ánægt
með þetta framtak Iðnaðardeild-
arinnar og ég tel að önnur fyrir-
tæki geti tekið sér hana til fyrir-
myndar hvað þetta varðar
a.m.k.“.
Það kom fram í spjallinu við
Júlíus að félagar í starfsmannafé-
lagi verksmiðjanna hafa gert ým-
islegt fyrir gamla starfsmenn, sem
eru komnir á ellilífeyri og hættir
að vinna. Þeir hafa t.d. unnið ým-
islegt fyrir þá og sagði Júlíus að
þetta starf mætti e.t.v.nefna
„heimilishjálp“. „Við höfum mál-
að fyrir þá, veggfóðrað, lagað
vatnslagnir og fleira mætti telja“,
sagði Júlíus að lokum.
Ný brú yfir Glerá:
Lægsta tilboðið
var f rá ÝR hf.
Þrjú tilboö bárust í smíði brúar
yfír Glerá við Hlíðarbraut.
Bæjarráð hefur samþykkt að
taka tilboði frá Ýr hf. og fól
bæjarverkfræðingi, í samráði
við bæjarstjóra, að semja við
fyrirtækið um verkið.
Kostnaðaráætlun hönnuða var
kr. 2.458.00, en tilboð Ýr hljóð-
aði upp á kr. 2.047.481, Norður-
verk hf. bauð kr. 2.289.155 og
Aðalgeir og Viðar hf. bauð kr.
2.745.000.
I
L-'JL J
ra
ST -»—> fi iji —J
gjL II < é Uu
# Grund seld
Samkvæmt þeím upplýsing-
um sem bárust S&S til eyrna í
gær er búið að selja Grund II í
Eyjafirði. Það fylgdi sögunni
að tveir bræður á Akureyri
hefðu keypt jörðina.
# Viljaselja
pylsur
í miðbænum
Hvorki fleiri né færri en átta
aðilar vildu fá leyfi bæjaryfir-
valda til sölu á pylsum úr
vagni á miðbæjarsvæðinu.
Umsækjendur voru: Bjarni
Bjarnason, Bjarni Ingvars-
son, Hannes Haraldsson,
Óskar Hjaltalín, Sæmundur
Pálsson og Viðar Vaidimars-
son. Hermann Arason og Al-
freð Almarsson sóttu saman
um ieyfi og sömu sögu er að
segja um þau Hinrik Þórhalls-
son og Ernu Norðdahl. Meiri-
hluti bæjarráðs lagði til að
veítt yrðu tvö leyfi til pylsu-
sölu úr vagni og á bæjar-
stjórnarfundi urðu þeir Bjarni
Bjarnason og Óskar Hjaltalín
fyrir valinu.
# Björtframtíð
Það verður ekkert slor að
ganga svangur um miðbæinn
í sumar. Menn geta keypt sér
pylsur úr tveimur þar til gerð-
um pylsuvögnum og ef það
nægir ekki er röðin komin að
hamborgurunum. Kóka-borg-
arar opnuðu á dögunum og
Tomma-borgarar eru í þann
veginn að opna og hægt er að
kaupa pylsur og hamborgara
i nokkrum sjoppum í mið-
bænum.
# Aðþakkafyrir
sig
Það er ekki heiglum hent að
læra að þakka fyrir sig og má
hiklaust fullyrða að íslending-
ar séu aftarlega á merinni í
þessari grein. Þeir taka öllu
sem sjálfsögðum hlut og það
heyrist hvorki hósti né stuna
þótt náunginn geri þeim stór-
greiða. Sem beturfereru þótil
gleðilegar undantekningar. A
sínum tfma sagði Dagur frá
starfsfræðsludegi í Glerár-
skóla og fóru m.a. tveir starfs-
menn Dags og kynntu nem-
endum sfn störf. Á dögunum
barst þeim eftirfarandi bréf:
„Stjórn Foreldrafélags Gler-
árskóla vill með bréfi þessu
þakka fyrir framlag þitt til
starfsfræðsludagsins, sem
haldinn var í skóianum
fimmtudaginn 19. mars si.
Aimenn ánægja er ríkjandi
með daginn, sem ekki síst
byggist á þætti þeirra sem
sátu fyrir svörum og veittu
upplýsingar um störf sín. Með
bestu kveðju, stjórn Foreldra-
félags Glerárskóla.“ Þegar
S&S var sýnt þetta bréf þá
hlýnaði því um hjartarætur,
enda nýkomið úr bænum þar
sem það heimsótti nokkrar
stofnanir, fulltrúa, verslanir
og fleiri sem mættu læra ögn í
þeirri list að þakka fyrir sig.