Dagur - 11.05.1982, Qupperneq 8
ÁGÆTT VÆRIEF FLEIRIGERÐU SÉR
GREIN FYRIR ÞÝÐINGU ÞESS AÐ RÉTT
SÉ HALDIÐ Á ATVINNUMÁL UNUM
— segir Sigurður Jóhannesson, annar maður álista framsóknar-
manna við bæjarstjórnarkosningamar 22. maí.
væri tilbúinn til stærri átaka þar,
ef lögboðin framlög fengjust
hækkuð. Haldið hefur verið
áfram að fjölga dagvistunum og
byggja leikvallahús og byggðar
hafa verið íbúðir við dvalar-
heimilið Hlíð. Verulegt fjár-
magn hefur farið til bygginga
leiguíbúða og til Byggingasjóðs
verkamanna. Rekstur Stræt-
isvagna Akureyrar hefur farið
vel af stað og hann bætt úr mik-
illi þörf. Þá hefur verið byggt
gróðurhús hjá Gróðrarstöðinni
og einnig hús í Kjarnaskógi.
Malbikunarframkvæmdir
hafa oft verið taldar viss mæli-
kvarði á getu hverrar bæjar-
stjórnar og hefur þessi bæjar-
stjórn haldið sæmilega vel á
þeim málum. í árslok 1981 var
lengd malbikaðra gatna í bæn-
um orðin 45,1 km eða 67,9% af
gatnakerfinu. Á síðasta 4 ára
tímabili hafa verið malbikaðir
21,1 km en gatnakerfið lengdist
á sama tíma um 10,2 km. Þessu
hefur því miðað verulega vel
áfram þótt kröfurnar séu ætíð
meiri en það fjármagn sem við
höfum tiltækt til að setja í mal-
bikunarframkvæmdir. Einnig
má nefna að verulega hefur
áunnist við endurbyggingu eldri
gatna og þeim áfanga nær lokið.
Þá eru ótalin fjölmörg stór verk-
efni sem eru á vegum annarra
stofnana og fyrirtækja í eigu
bæjarins, s.s. rafveitu, vatns-
veitu, hitaveitu, vélasjóðs,
Krossanesverksmiðju og Út-
gerðarfélags Akureyringa svo
eitthvað sé nefnt.“
Áfram byggist upp bær
sem gott er að búa í
- Og að lokum?
„Framsóknarmenn hafa ætíð
unnið að þróun bæjarmála og
heill og farsæld Akureyrar svo
sem unnt hefur verið á hverjum
tíma. Við höfum haft forýstu um
samstarf í bæjarstjórn og reynt
að leysa sameiginleg verkefni
bæjarins eftir leiðum samvinnu,
samtaka og félagshyggju og haft
að leiðarljósi að dugmiklir ein-
staklingar fái að njóta dugnaðar
síns og hugmynda. Við viljum að
hér geti haldið áfram að byggjast
upp bær sem hafi góða félags-
lega og menningarlega aðstöðu,
þar sem nægjanleg atvinna er
fyrir alla, skilyrði til menntunar
og uppeldis barna eru góð og að
hér sé gott og friðsælt að eyða
sínu ævikvöldi.“
Sigurður Jóhannesson tekur á móti Vigdísi Finnbogadóttur, forseta íslands, í Listigarðinum. sl. sumar.
félag Eyjafjarðarbyggða hafi
þar mjög þýðingarmiklu hlut-
verki að gegna. Þar tengjast
saman þeir aðilar sem haft geta
hvað mest áhrif á þróun nýrra
atvinnugreina á Eyjafjarðar-
svæðinu, samvinnufélögin og
launþegafélögin, ásamt sveitar-
stjórnum hér við fjörðinn. Ég vil
leggja áherslu á það að þó upp-
bygging nýrra atvinnugreina sé
sjálfsagt og eðlilegt verkefni er
okkur enn meira virði að halda
vel utanum og styrkja þann
atvinnurekstur sem fyrir hendi
er hér í bænum. Atvinnurekstur
samvinnumanna hefur verið
grundvallarþáttur í uppbygg-
ingu bæjarins undanfarna ára-
tugi og hefur skapað þann stöð-
ugleika sem hér hefur ríkt í þró-
un atvinnumála. Ég vil sérstak-
lega beina því til stafsfólks Sam-
vinnuhreyfingarinnar að það
tryggi best varanlega uppbygg-
ingu atvinnufyrirtækja hér í
bænum með því að auka styrk
framsóknarmanna til áhrifa og
stefnumótunar í atvinnumálum
bæjarins.“
Tekjum varið til
framkvæmda í auknum
mæli, í stað rekstrar
- Það er athyglisvert í stefnu-
skrá framsóknamtanna að þeir
vilja aukið aðhald m.a. á sviði
félagsmála, vilja að notendur
dagvistunarþjónustu greiði
meira fyrir hana en verið hefur.
Hver er hugsunin á bak við
þetta, er þetta einhver megin-
lína?
„í ályktun um félags- og heil-
brigðismál segir, að félagslega
aðstoð eigi fyrst og fremst að
veita til að styðja fólk til sjálfs-
Sigurður Jóhannesson.
hjálpar og jafna aðstöðu manna
til eðlilegrar þátttöku í félags- og
atvinnulífi og að beita skuli að-
haldi í rekstri dagvistarstofnana
og ætlast verði til að notendur j
þessarar þjónustu taki aukinn
þátt í kostnaði við rekstur
hennar. Það er sýnilegt af þróun...
fjárhagsáætlunar bæjarins, að æ
stærri hluti heildartekna hans fer
til að greiða rekstur hinna ýmsu
þjónustustofnana, þjónustu sem
oft á tíðum nýtist hverjum
bæjarbúa mjög misjafnlega. Við
greiðum því niður kostnað fyrir
vissan hóp bæjarbúa á meðan
aðrir eiga ekki kost á að njóta
þessarar þjónustu. Hlutverk
bæjarfélagsins á að vera að
byggja upp aðstöðu fyrir hinar
ýmssu þjónustugreinar á sviði
félags-, heilbrigðis- og íþrótta-
mála t.d., en notendur þessarar
þjónustu verða að gera ráð fyrir
að greiða sanngjarnan hlut af
raunkostnaði við reksturinn.
Það er t.d. óeðlilegt að bærinn
greiði 70% af rekstrarkostnaði
við dagvistun barna á meðan
einungis hluti þeirra sem þurfa á
þessari þjónustu að halda eiga
þess kost að koma börnum sín-
um þangað. Við þurfum að geta
notað stærri hluta af heildartekj-
um bæjarins til framkvæmda til
þess að koma upp nægjanlegum
fjölda dagvistarrýma og ekki
íþyngja bæjarsjóði um of við
j j rekstur þessara stofnana."
Hvað hefur áunnist
á kjörtímabilinu?
- Þegar kemur að kosningum
velta menn því gjarnan fyrir sér
hvað áunnist hafí í málefnum
; bæjarins?
„Víst hefur margt áunnist á
i kjörtímabilinu en eins og eðli-
legt er í vaxandi bæjarfélagi eru
verkefni ætíð fyrir hendi, sem
nauðsynlegt er að vinna að og
verður verkefnalistinn vonandi
aldrei tæmdur. í þessu sambandi
má nefna að haldið hefur verið
áfram uppbyggingu grunnskóla
bæjarins, auk þess sem fyrsti
áfangi hins nýja verkmennta-
skóla er nú í byggingu. Tónlist-
arskólinn hefur fengið aukið og
bætt húsnæði fyrir sína starf-
semi. Stórverkefnið á sviði
íþrótta- og æskulýðsmála er
bygging íþróttahallarinnar og er
það verkefni á lokastigi. Þá hef-
ur fjármagni verið veitt til
áframhaldandi uppbyggingar
starfseminnar í Hlíðarfjalli og
verið er að byggja tækjageymslu
við íþróttavöllinn. Bærino hefur
líka staðið við sinn hluta fjár-
veitinga til nýja sjúkrahússins og
- Hefur orðið einhver stefnu-
breyting hjá Framsóknarflokkn-
um í einhverjum mikilvægum
málum?
„Nei, stefna okkar í öllum
aðalmálaflokkum er óbreytt.
Hún tekur aðeins þeim breyting-
um sem eðlilegt er vegna þeirra
mála sem efst eru á baugi og tillit
til þeirra atriða sem leggja þarf
sérstaka áherslu á hverju sinni.“
Atvinnurekstur
samvinnumanna hefur
verið grundvallar-
þáttur og skapað
stöðugleika
- Nú líta flestir svo á að atvinnu-
málin séu mál málanna. Sjálf-
stæðismenn heimta stóríðju með
það sama, alþýðubandalags-
menn hóta verkföllum og erfið-
leikum á vinnumarkaði verði
þeir ekki kosnir til bæjarstjórnar
og þeir vilja eftirláta íhaldinu
stóriðjudraumana. Hver er af-
staða framsóknarmanna til þess-
ara mála?
„Atvinnumálin hafa, eins og
ég sagði áðan, ætíð verið veiga-
mesti þátturinn í stefnuskrá
framsóknarmanna hverju sinni
og væri ágætt ef fleiri gerðu sér
grein fyrir því hversu þýðingar-
mikið það er, að rétt og farsæl-
lega sé haldið á þeim málum.
Það er sjálfsagt að stuðla að því
og halda dyrum opnum fyrir nýj-
um atvinnugreinum, hvort sem
þær heita stóriðja eða eitthvað
annað, sem hagkvæmt reynist að
stofnsetja hér í bænum eða í
nágrannabyggðum, ef við verð-
um meira en umsagnaraðilar um
þá staðsetningu. Ég er bjartsýnn
á að hið nýstofnaða Iðnþróunar-
Sigurður Jóhannesson, sem skipar annað sæti á framboðs-
lista framsóknarmanna til bæjarstjórnarkosninganna á Ak-
ureyri, er fæddur á Akureyri 2. október 1931. Hann er
kvæntur Laufeyju Garðarsdóttur frá Felli í Glerárþorpi og
eiga þau fjögur börn, Sigríði 26 ára, Laufeyju 23 ára, Sigurð
Árna 19 ára og Elínu 11 ára.
Að loknu námi i Samvinnuskólanum starfaði Sigurður
hjá Kaupfélagi Eyfirðinga árin 1953 til 1968. Hann var
framkvæmdastjóri Bifreiðaverkstæðisins Þórshamars hf.
1968-1979 og aðalfulltrúi Kaupfélags Eyfirðinga frá 1979.
Sigurður var bæjarfulltrúi 1970-1974 og frá 1978 og hefur
átt sæti í ýmsum nefndum Akureyrarbæjar frá 1962 um
lengri eða skemmri tíma. Formaður stjórnar Rafveitu
Akureyrar frá 1974 og formaður stjórnar Tónlistarskólans á
Akureyri frá 1973.
Hann var varaþingmaður Framsóknarflokksins í Norður-
landskjördæmi eystra 1962-1970 og sat á Alþingi um tíma
vorið 1965.
hefur gert Akur.eyri að traustu
bæjarfélagi með mikla framtíð-
armöguleika. Eyjafjarðarsvæð-
ið er atvinnuleg heild og verður
að skoða atvinnumálin í ljósi
þess.
Og einnig greinina þar sem
segir: Ljóst er að um margskon-
ar vanda er að fást í atvinnumál-
um Eyjafjarðarsvæðisins. Má að
hluta rekja þennan vanda til lé-
legrar afkomu fyrirtækja á
undanförnum árum, sem eink-
um á rætur að rekja til óhag-
stæðrar verðþróunar. Því gera
framsóknarmenn á Akureyri þá
kröfu til stjórnvalda að þau
tryggi fyrirtækjum rekstrar-
grundvöll sem geri þeim kleift
að fjárfesta og auka umsvif sín
og þar með atvinnu. Rekstrar-
grundvöll útflutnings- og sam-
keppnisiðnaðar þarf að leið-
rétta, þannig að þessar greinar
njóti jafnréttis við aðrar
atvinnugreinar.“
- Nú hafa framsóknarmenn á
Akureyri lagt fram stefnuskrá
sína. Hver eru að þínu mati
meginatríði þeirrar stefnuskrár?
„Það er ályktun okkar um
atvinnumálin sem vegur þyngst í
stefnuskrá okkar og raunar sá
grunnur sem allar okkar óskir og
hugmyndir um stjórn, skipulag
og framtíðarmarkmið bæjarfé-
lagsins eru byggðar á. Samofnir
þættir iðnaðar, byggingarfram-
kvæmda, verslunar og annarrar
þjónustustarfsemi hafa átt þýð-
ingarmesta þáttinn í þeirri þrótt-
miklu upbyggingu sem orðið
hefur á undanförnum árum. Það
er því eðlilegt að atvinnumálin
skipi veglegan sess í stefnuskrá
framsóknarmanna. Ég vil þó
sérstaklega benda á þessar
greinar í atvinnumálaályktunni:
Óflugt atvinnulíf er undirstaða
allra framfara. Þróttmikill rekst-
ur samvinnumanna/ einstak-
linga og félagsrekstur bæjarbúa
Tveir upprennandi myndlistarmenn af Akureyrska skólanum.
Hægt að Ijúka námi
í myndlist hér
— heimsókn í Myndlistarskólann á Akureyri
Myndlistarskólinn á Akureyri
hóf göngu sína árið 1970 og
hefur síðan jafnt og þétt verið
að færa út kvíarnar. Fyrst í
stað var hann eingöngu starf-
ræktur í formi námskeiða í
ýmsum greinum myndlistar
en fyrir 2 árum tók til starfa
fornámsdeild við skólann og
jafngildir nám við hana 1. ári í
Myndlista- og Handíðaskóla
íslands. Næsta vetur tekur
framhaldsdeild til starfa og
gefur hún þeim sem lokið hafa
fornámsdeild, kost á að halda
áfram að verða að fullnuma
málurum.
Af því tilefni leit blaðamaður
Dags við uppi á efsta lofti Gler-
árgötu 34, þar sem skólinn er til
húsa, og framkvæmdi vettvangs-
könnun.
Helgi Vilberg skólastjóri varð
fyrstur á vegi blaðamanns og
fóru eftirfarandi orðaskipti á
milli þeirra.
Blm: - Hvað þarf maður að
hafa til brunns að bera til að
komast í skólann?
H: - Fyrst og fremst áhuga
en einnig þarft þú að gangast
undir inntökupróf og hafa lokið
grunnskólaprófi eða sambæri-
legri menntun. Standist þú inn-
tökuprófið, er þér leiðin opin
inn í fornámsdeild en hennar til-
gangur er að veita nemanda list-
rænan og tæknilegan undirbún-
ing fyrir nám í sérnámsdeildum
hér eða í MHÍ. Gengið er út frá
þeirri forsendu að hver mis-
munandi grein sjónlista eigi sér
sameiginlegan grunn. í fornáms-
deild eru kennd frumform og
hlutateiknun, módel og ana-
tomy, fjarvídd, formfræði og
myndbygging, lit- og formfræði,
málun, listasaga og fagurfræði.
Blm: - Hvaða möguleika
gefur þá framhaldsdeildin sem
ýtt verður úr vör næsta haust?
H: - Hún gefur nemendum
kost á að ljúka námi í málaralist
hér. Hingað til hafa þeir sem á
framhaldsnám hyggja þurft að
læra í Reykjavík, en næsta haust
verður sem sagt hægt að hefja
málaranám hér og útskrifast að 3
árum liðnum. í framtíðinni er
meiningin hjá okkur að fjölga
framhaldsdeildunum þannig að
hægt verði að ljúka hér námi á
fleiri sviðum myndlistar en
málun.
Blm: - Hvernig hefur að-
sóknin verið að skólanum?
H: - Hún hefur verið mjög
góð og farið stöðugt batnandi.
Við höfum verið með námskeið
fyrir börn og unglinga sem alltaf
hafa verið vinsæl. Einnig hafa
hér verið haldin námskeið fyrir
fullorðna í grafík, byggingalist,
quilting, myndvefnaði, tau-
þrykki og letrun og hefur að-
sóknin verið með ágætum. í vet-
ur hafa rúml. 200 manns verið í
skólanum. Núna eru í fornáms-
deildinni 9 nemendur, sem er
ágætis stærð á bekk.
Að svo mæltu héldu blaða-
maður og skólastjóri á vit nem-
enda sem rétt í þessu voru að
hella upp á og gerðu hlé á vinnu
sinni á meðan kaffið var
drukkið. Á veggjum kennslu-
stofunnar gaf að líta hinar ólík-
ustu greinar sjónlista, málverk
og myndvefnað, tauþrykk og
teikningar en á hillum og borð-
um lágu þar til gerð áhöld,
penslar, litaspjöld, reglustikur
og trönur. Því verður ekki á
móti mælt að andrúmsloftið er
menningarlegt, og blaðamaður-
inn spyr, hvers lags fólk það sé
eiginlega sem nemi listir í þessu
menningarlega umhverfi.
- Hér er fólk á öllum aldri
með ólíkustu skoðanir, meðal-
aldurinn er 29 ár. Hingað kemur
fólk víða að af landinu þó að Ak-
ureyringar séu hér í miklum
meirihluta, segir einn úr hópn-
um og annar bætir við: - Það er
áhuginn á myndlist sem samein-
ar okkur, hefði maður ekki
ódrepandi áhuga á því að búa til
myndlist, væri maður ekki að
hafa svona mikið fyrir þessu.
Ætli maður að ná viðunandi ár-
angri, verður maður helst að
vinna myrkranna á milli. Að
þessu leyti er þetta mjög strang-
ur skóli en jafnframt mjög
skemmtilegur.
Blm: - Ætlið þið að halda
áfram í framhaldsdeildinni
næsta haust?
- Já, alveg örugglega, gellur
við í nemendahópnum og einn
bætir við: - Fæst okkar hafa
tækifæri til að flytjast búferlum
til Reykjavíkur og hefðu þá orð-
ið að hætta námi, ef þessi mögu-
leiki hefði ekki opnast. Þá er það
von okkar að í framtíðinni geti
skólinn farið út á brautir, sem
ekki eru farnar í MHÍ. Æd.
dreymir okkur um að stofna hér
hönnunardeild með tilliti til iðn-
aðarins í bænum e.t.v. í tengsl-
um við verksmiðjurnar. Það
virðist vera útbreiddur misskiln-
ingur að útlit vöru skipti ekki
máli og þess vegna sé hagkvæm-
ast að framleiða hana á sem ein-
faldastan hátt eftir einhverju
stöðluðu formi. Líka hefur það
viðhorf gilt hjá ráðamönnum
þjóðarinnar, að listiðnaður væri
ekki einsþjóðhagslega hagnýtur
og annar iðnaður og listnám hef-
ur á engan hátt verið metið til
jafns við hið svokallaða þjóð-
hagslega hagnýta nám. Þessu
viðhorfi þarf að breyta. Við
þurfum ekki að líta lengra en til
Finnlands eða Danmerkur til að
sjá, að stór hluti útflutnings
þessara landa er listiðnaður. Við
gerum okkur vonir um að í fram-
tíðinni þróist hér á Akureyri
iðnaðarframleiðsla, hönnuð á
staðnum með sínu eigin svip-
móti og verði fyrir þær sakir
eftirsótt vara bæði innanlands og
til útflutnings’. Þetta er lang-
tímamarkmið Myndlistarskól-
ans á Akureyri.
Og með það lauk blaða-
maðurinn úr bollanum og hélt út
í hráslagann með hendur í
vösum.
8 - DAGUR -11. maí 1982
11. maí 1982-DAGUR-9