Dagur - 11.05.1982, Side 15
Aðalfundur
Kaupfélags
Vopnfirðinga
Aðaifundur Kaupfélags Vopn-
fírðinga var haldinn laugardag-
inn 3. aprfl sl. Þórður Pálsson,
formaður félagsins setti fund og
flutti skýrslu stjórnar. Jörund-
ur Ragnarsson, kaupfélags-
stjóri, flutti skýrslu um störf og
rekstur félagsins á árinu 1981
og skýrði reikningana sem Iágu
fyrir fundinum.
Heildarvelta Kaupfélags Vopn-
firðinga á árinu 1981 var 48,5
millj. kr. og hafði aukist um 60%
milli ára. Fjárfestingar á árinu
námu 1,2 millj. kr. og voru þær í
minnsta lagi árið 1981 miðað við
árin á undan. Niðurstöðutölur
efnahagsreiknings voru kr. 32,6
millj. Reksturinn skilaði hagnaði
á árinu 1981 sem nam kr. 409 þús.
kr.
í skýrslu kaupfélagsstjóra kom
m.a. fram að vaxtabyrði félagsins
er mikil og stæði allri starfsemi
félagsins fyrir þrifum. Á fundin-
um komu fram áhyggjur bænda
vegna þess uggvænlega ástands
sem nú ríkir í sölumálum á kinda-
kjöti til útlanda.
Framkvæmdir á árinu 1982
verða helstar þær að bygginga-
vörudeild félagsins verður breytt
og stækkuð til muna. Þá mun haf-
ist handa við að reisa verkstæðis-
hús, þar sem verkstæði félagsins
væru öll undir einu þaki.
„íslenskar
konur mega
ekki
sitja hjá“
Samband eyfírskra kvenna -
SEK- hélt aðalfund sinn
þann 1. maí sl. í sambandinu
eru 8 kvenfélög norðan Akur-
ejyrar og eru félagsmenn 440.
A fundinum var einróma sam-
þykkt að beina því til bæjar- og
sveitarfélaga svæðisins að félags-
og heilbrigðisþjónusta við aldr-
aða verði stórlega bætt en jafn-
framt stuðlað að því að aldraðir
geti stundað störf sín og búið á
heimilum sínum sem lengst.
Það var og samþykkt einróma
að beina því til fræðsluyfirvalda
og skóla að aukin áhersla yrði
lögð á að kynna skaðsemi fíkni-
efna í skólum.
Loks samþykkti aðalfundur
SEK einum rómi hvatningu til
allra íslenskra kvenna til að leiða
hugann að vígbúnaðarkapphlaupi
stórveldanna og hvert stefndi í
þeim efnum. Fundurinn lýsti yfir
fullum stuðningi við friðarhreyf-
ingar hvarvetna í heiminum og
fagnaði því að að hér væri hún
einnig að skjóta rótum. „íslensk-
ar konur mega ekki sitja þegjandi
hjá, þegar framtíð mannkynsins
er í slíkri tortímingarhættu, held-
ur taka sér stöðu við hlið allra
þeirra sem berjast fyrir friði hvar
sem er í heiminum" segir að lok-
um í ályktuninni.
Eyfjörð auglýsir
Veiðitímabilið er að hefjast:
Úrval af veiðistöngum, Kast- og flugustangir,
barnastangasett, flugulínur - silungalínur.
Úrvalið af spúnum er alveg ótrúlegt
Fluguhjól 11 gerðir, opin spinnhjól 10 gerðir,
Ambassador 3 gerðir, lokuð kasthjól 8 gerðir.
Litlar blakkir með nylon-trissu, margar stærðir.
Olíuluktir margir litir.
Verið velkomin.
Opið laugardaga frá kl. 10-12.
Póstsendum samdægurs.
Komið eða hringið.
Hjalteyrargata 4, sími 25222, Akureyri.
W
EYFJÖRÐ
Bílasala - Bílaskipti
Dodge Aspen árg. 1976, tveggja dyra fallegur bíH,
til sölu. Skipti á dýrari framhjóladrifnum bíl æski-
leg. Upplýsingar í síma 24243, eftir hádegi.
Viðtalstímar
frambjóðenda:
Frambjóðendur Framsóknarflokksins verða til viðtals
á skrifstofunni Hafnarstræti 90, mánudaga til fimmtu-
daga kí. 17-19 og 20-22, og á föstudögum kl. 17-19.
Komið og spjallið við frambjóð-
endur og þiggið kaffiveitingar.
Frá grunnskólum
Akureyrar
Innritun 6 ára barna (fædd 1976), sem ætlað er að
sækja forskólanám á næsta skólaári, fer fram í
barnaskólum bæjarins miövikudaginn 12. maí nk.,
kl. 10-12 f.h. Innrita má meö símtali við viðkom-
andi skóla.
Oddeyrarskóla
Barnaskóla Akureyrar
Glerárskóla
Lundarskóla
í síma 22886
ísíma 24172
í síma 22253
í síma 24560
í stórum dráttum verða skólasvæði óbreytt miðað
við núverandi skólaár, en í undantekningatilfellum
munu skólarnir hafa samband við viðkomandi for-
eldra.
Á sama tíma þarf að tilkynna um flutning eldri
nemenda milli skólasvæða, því að skólarnir þurfa
að skipuleggja störf sín með löngum fyrirvara.
Verði þeim ekki gert aðvart geta viðkomandi
nemendur ekki treyst á skólavist á breyttu
skólasvæði.
Skólastjórarnir.
Utboð
Flugmálastjórn ríkisins óskar eftir tilboði í
uppsteypu á flugstöðvarbyggingu á Húsavík-
urflugvelli. Útboðsverk 2.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Tækniþjón-
ustunnar sf., Húsavík og Verkfræðistofu Gunnars
Torfasonar, Ármúla 26, Reykjavík, gegn 500 kr.
skilatryggingu. Tilboð skulu hafa borist Tækni-
þjónustunni sf., Garðarsbraut 12, Húsavík, eigi
síðaren þriðjudaginn 25. maí 1982 kl.11.00.
Fyrir hönd Flugmálastjórnar,
Tækniþjónustan sf.
Við minnum á að utankjörstaðaat-
kvæðagreiðslan er hafin.
Stuðningsmenn B-listans:
Kjósið tímanlega ef þið hafið ekki tök á að kjósa á
kjördag. Hafið samband við skrifstofuna ef þið vitið
um einhverja stuðningsmenn sem ekki verða
heimaákjördag.
X
Hef opnað
tannlæknastofu
í Kaupangi við Mýrarveg, vestari álmu, efri hæð.
Sími 22226.
Viðtalstími eftir samkomulagi.
Ingvi Jón Einarsson,
tannlæknir.
Við minnum á að kjörskrá liggur
frammi á bæjarskrifstofunni Geisla-
götu 9, alla virka daga kl.10-15.
Kærufrestur er til 8. maí.
Stuðningsmenn y
B-listans:
Gangið úr skugga um að allir þeir sem rétt hafa til
að vera á kjörskrá á Akureyri séu það.
Húsvíkingar - Húsvíkingar
Kosningaskrifstofa Framsóknarflokksins er í
Garðar.
Opin virka daga kl. 20-22, laugardaga kl. 14-16,
sími 41225.
Stuðningsmenn, lítlð irm og takið þátt í kosn-
ingastarfinu.
B-listinn
t.<:maí 1982 y DAGUR y 15