Dagur - 13.05.1982, Blaðsíða 2
Fræðsluskrifstofan á Blönduósi:
Starfsemin flutt
í Kvennaskólann
Fræðslustjórí Norðurlands-
umdæmis vestra tók til starfa 1.
nóv. 1975 og var honum útveg-
að húsnæði í Bókhlöðunni á
Blönduósi. Það voru tvö her-
bergi. Annað var notað sem
skrifstofa, en hitt sem svefnher->
bergi fræðslustjóra þar til hann
gat flutt í eigið húsnæði, mjög
lítt frágengið, seint á árinu 1976
og hafði hann á tímabilinu maí-
ágúst fengið lánað hjólhýsi sem
notað var fyrir eldhús handa þá
6 manna fjöskyldu.
Fræðslustjóri var eini fasti
starfsmaðurinn á skrifstofunni
þar til 1. janúar 1980 að ráðinn
var ritari í hálft starf. Áður
hafði þó verið lausráðið fólk til
að vinna í sumarleyfum og svo
ákveðin verkefni. Þórður Páls-
son fór að vinna 1977 og hefur
hann verið sem slíkur til þessa.
Ráðgjafar- og sálfræðiþjónusta
var stofnuð á haustdögum 1977
þegar bæði fræðsluumdæmin á
Norðurlandi réðu til sín einn sál-
fræðing, Sturlu Kristjánsson.
Fljótlega bættist annar sálfræð-
ingur við, Sigrún Sveinbjörns-
dóttir, en bæði létu þau af störfum
á árinu 1978. Lá þá ráðgjafar- og
sálfræðiþjónusta niðri í heilt ár,
eða þar til að til starfa komu tveir
sálfræðingar, þeir Áskell Kárason
og Ingþór Bjarnason. Hófu þeir
störf á haustdögum 1979. Um ára-
mót 1980/81 slitu fræðsluumdæm-
in samvinnu um þessa þjónustu.
Síðastliðið sumar tókst loks að
koma á sjálfstæðri ráðgjafarþjón-
ustu fyrir Norðurland vestra. Var
þar margt samverkandi sem leiddi
til að svo varð.
Fræðsluráð fékk til afnota
húsnæði Kvennaskólans á
Blönduósi þar með talið íbúðir.
Loks reyndist unnt að láta aðflutt-
um starfsmönnum húsnæði í té,
skrifstofuaðstaða í Kvennaskól-
anum varð mjög góð, uppeldis-
fræðingur og tveir sálfræðingar
sóttu um starf, tveir sérkennarar
sóttu um stöðu í umdæminu og
tekin var upp samvinna við svæð-
isstjórn um málefni þroskaheftra
og öryrkja í fræðsluumdæminu.
Ráðgjafarþjónustan hefur tekið
að sér þjónustu við þroskahefta,
sbr. lög nr. 47/1979 um aðstoð við
þroskahefta og reglugerð fyrir
svæðisstjórnir um málefni þroska-
heftra og öryrkja.
Til að annast þennan þátt þjón-
ustunnar hefur svæðisstjórn á sín-
um snærum sálfræðing og þroska-
þjálfa auk skrifstofuaðstoðar,
samtals 1,75 stöðugildi, áráðgjaf-
arþjónustunni.
Nú þegar hefur fræðsluskrif-
stofan tekið í notkun stóran hluta
Kvennaskólans ásamt íbúðum og
er húsnæðið nýtt fyrir skrifstofur
starfsfólks og gullasafn (legótek).
Heimavistarherbergi eru til reiðu
fyrir þá sem þjónustu þurfa að
leita um langan veg. Auk þess er
stefnt að því að koma á sumar-
námskeiðum fyrir kennara á
sumri komandi, auk ráðstefna
eða funda fyrir skólastjóra og
nýja formenn skólanefnda.
Grunnskólinn á Blönduósi hef-
ur þess utan á leigu húsnæði í
Kvennaskólanum fyrir heimilis-
fræðslu í skólaeldhúsi og fyrir
smíðakennslu í geymsluhúsnæði
tilheyrandi Kvennaskólanum.
Fræðslustjóri er Sveinn Kjart-
ansson
Fræösluskrifstofur og fræðsluráð í núverandi mynd verða fyrst til
með grunnskólalögum frá því í maí 1974. Tilgangurinn er liður í tU-
færslu á starfsemi stjórnarráðsins til landsbyggðarinnar og ákvörð-
unartaka og stjórnun færð til heimahéraðs. Hlutverk fræðsluráðs
er í því fólgið að hafa yfirumsjón með skólastarfí síns fræðsluum-
dæmis í umboði menntamálaráðuneytis og sveitarstjórna, eftir því
sem við á. Bæði er þá átt við fjármálalega og kennslufræðilega
umsjón. Fræðslustjóri er fulltrúi menntamálaráðuneytis og hlut-
aðeigandi sveitarfélaga um fræðslumál umdæmisins. Hann er
framkvæmdastjóri fræðsluráðs. Flestar fræðsluskrifstofur landsins
eru settar á stofn seint á árinu 1975.
Sigurður Guðmundsson
Sr. Sigurður Guðmundsson verður vígður víslubiskup dómkirkiu sunnudaginn 27.
prófastur á Grenjaðarstað Hólastiftis hins foma í Hóla- jdní kl. 14,00. Kirkjumálaráð-
herra býður til veislu á Sauðár-
króki í tilefni vígslunnar. Verða
þar boðnir allmargir gestir úr
Hólastifti m.a. allir prestar
stiftisins og makar þeirra.
Næsta dag, 28. júní, hefst
prestastefnan 1982, sú fyrsta er
Pétur biskup stýrir. Verður hún
sett kl. 14,00 og flytur biskup þá
yfirlitsskýrslur sínar. Síðar um
daginn flytja þeir dr. Þórir Kr.
Þórðarson, dr. Gunnar Kristjáns-
son og sr. Sváfnir Sveinbjarnar-
son framsöguerindi um aðalmál
prestastefnunnar, „Friður á
jörðu.“
Prestastefnunni 1982 verður
slitið í Sauðárkrókskirkju síðdeg-
is 30. júní.
Á dögunum leit við hér á blaðinu hópur nemenda úr Húnavallaskóla, ásamt kennara sínum Kristínu Marteinsdóttur.
Krakkarnir skoðuðu ritstjórn Dags og Dagsprent, og vonum við að þau séu örlítið fróðari um það hvernig staðið er að
útgáfu eins blaðs en áður. Við smelltum svo mynd af krökkunum er þau héldu leiðar sinnar, en ásamt þeim og Kristínu
kennara er á myndinni Stefán Theódórsson bílstjóri. Mynd: gk-.
2 - DAGUR - 13.Tnaí.1,98?
Hólmfríður Guðmundsd., Áskell Einarsson, Páll Helgason, Egill Gunnlaugs-
son, Helga Kristjánsd., Gestný Kolbeinsd.
Sitjandi: Helga Kristjánsd., form. fræðsluráðs, Sveinn Kjartansson, fræðslu-
stjóri, Stefán Á. Jónsson, Einar Albertsson. Standandi: Guðjón Ingimundar-
son, Páll Helgson, Pétur Garðarsson, Egill Gunnlaugsson og Áskell Einars-
son, frkvstj. F.S.N.
Sitjandi: Þórður Pálsson, fulltr., Sveinn Kjartansson, fræðslustj., Bjarne
Hellemann, starfsm. svæðisstjórnar, Sigurður H. Þorsteinsson, uppeldis-
fræðingur. Standandi: Hólmfríður Böðvarsdóttir, bókari, Kristín Björk
Guðmundsd., sérkennari, Málfríður Lorange, sálfræðingur, forstöðum. ráð-
gjafarþjónustu, Margrét Skúladóttir, ritari, Hólmfríður Guðmundsdóttir,
sérkennari og Gestný Kolbeinsd., þroskaþjálfi. Á myndina vantar Þórdisi
Friðbjömsdóttur, bókasafnsfræðing.
Landsmót hestamanna
Landsmót hestamannafélaga
verður haldið að Vindheimamel-
um í Skagafirði dagana 7. til 11.
júlí. Að mótinu standa 16 hesta-
mannafélög á Norðurlandi, ásamt
L.H. Búist er við miklu fjöl-
menni, innlendra og erlendra
manna á mótið og hafa nærliggj-
andi gisti- og veitingastaðir verið
fastsettir fyrir mótsgesti. Þá eru
og mjög góð tjaldstæði á Vind-
heimamelum. Það verður mikið
um að vera á mótinu og liðir of
margir svo hægt sé að gera þeim
góð skil í stuttu máli enda er
dagskrá landsmótsins ekki fast-
mótuð og verður hún auglýst
síðar.
Mun minni grásleppu-
veiði á Grenivík
Afli grásleppusjómanna frá 214 á sama tíma í fyrra. Jafn
Grenivík hefur verið mjög tregur margir gera út á grásleppu nú og í
á vertíðinni. Þann 1. maí var að- fyrra.
eins búið að salta í 57 tunnur en
Aukavinningurinn
Á þriðjudaginn var dregið um síð- Bragason, Víðilundi 6i, Akureyri
asta aukavinninginn í ferðaget- og fær hann 400 krónu vöruúttekt
raun' Dags og Samvinnuferða/ í Sporthúsinu.
Landsýnar. Hinn heppni erPálmi