Dagur - 18.05.1982, Page 3
Sl. laugardag gekkst Trímm-
nefnd Akureyrar fyrir skíða-
göngu og var gengið að Lamba,
skála Ferðafélags Akureyrar á
Glerárdal.
Gengið var í blíðskaparveðri
og tóku um 20 manns þátt í göng-
unni og voru þeir á öllum aldri.
Vegalengdin sem gengin var er
um 12 km hvora leið.
Þótt hér hafi verið um trimm-
göngu að ræða voru teknir tímar á
þátttakendum og hafði Sigurður
Aðalsteinsson bestan tíma þátt-
takenda.
Samvinnuskólanum að Bifröst
var slitið laugardaginn 1. maí s.l.
og lauk þar með 64. starfsári hans.
Skólinn hefur verið staðsettur að
Bifröst í 24 ár en 8 ár eru síðan
framhaldsdeild við hann var
stofnuð í Reykjavík. A vegum
Hjólreiðakeppni
skólabarna:
Kári
sigraði
Föstudaginn 7.maí var haldin
keppni í hjólreiðum við Oddeyr-
arskólann á Akureyri og nær-
liggjandi götum. Til leiks voru
mætt 18 börn frá skólum á
norðurlandi. Úrslit voru sem hér
segir: 1. Kári Ellertsson, Bama-
skóla Akureyrar, 294 stig. 2.
Gunnar Viðar Gunnarsson,
Oddeyrarskóla, 291 stig. 3.
Hildigerður Gunnarsdóttir,
Húnavallaskóla, 283. 5. Birgir
Valgarðsson, Barnaskóla Sauð-
árkróks, 282 stig. Fyrstu fjórir
keppendurnir munu síðan
keppa innbyrgðis og mun sig-
urvegarinn úr þeirri keppni öðl-
ast rétt til þátttöku í alþjóðlegri
reiðhjólakeppni, nái hann
ákveðnum stigafjölda. Þess má
geta að í síðustu keppni vann
Einar Malmquist Einarsson sér
rétt til að keppa á alþjóðlega
mótinu sem haldið er í Hollandi
þetta árið.
Trimmað
Einar Einarsson.
Gítar-
tónleikar
Einar Einarsson gítarleikari held-
ur tónleika í sal Menntaskólans
n. k. miðvikudag þ. 19. kl. 20.30.
Einar er Akureyringur og hlaut
sína fyrstu tónlistarmenntun í
Tónlistarskóla Akureyrar en
undanfarin 5 ár hefur hann stund-
að gítarnám í Tónskóla Sigur-
sveins D. Kristjánssonar undir
handleiðslu Gunnars H. Jóns-
sonar og Josephs Fung. Nú
nýverið lauk hann burtfararprófi
frá skólanum. með tónleikum í
Bústaðakirkju. Á efnisskránni
eru verk eftir J.S. Bach, H. Villa-
Lobos, R.R. Bennett, Torroba
o. fl.
Samvinnu-
skólanum slitið
Skrifað undir lög
skólans eru einnig haldin nám-
skeið fyrir starfsfólk og félags-
menn samvinnuhreyfingarinnan
og hefur svo verið í 5 ár.
í ræðu Jóns Sigurðssonar skóla-
stjóra kom m.a. fram að í vetur
hafa verið haldin nokkur nám-
skeið í samráði við Vinnumála-
samband samvinnufélaganna. Þá
hefði verið gerð sérstök vélastofa
og tækjabúnaður skólans aukinn.
í vetur voru 77 nemendur að
Bifröst, 38 í 1. bekk og 39 í 2.
bekk. Framhaldsdeild lýkur störf-
um um miðjan maí. Þar eru 21
nemandi, 12 í 3. bekk og 9 í 4.
bekk.
39 nemendur þreyttu sam-
vinnuskólapróf í vor og hlaut
Svava Björg Kristjánsdóttir frá
Ketilsstöðum á Tjörnesi hæsta
einkunn, 9,27, en næsthæstur
varð Þórður Viðarsson frá Húsa-
vík með 9,00.
266 manns tóku þátt í þeim 16
námskeiðum sem haldin voru á
vegum skólans í vetur en í maí eru
fyrirhuguð 36 námskeið á 28 stöð-
um víðs vegar um landið.
Við skólaslitin söng skólakór
Samvinnuskólans tvö íslensk lög
og önnuðust nemendur einnig
söngstjórn og undirleik.
Það gerist ekki á hverjum degi
að ný íslensk lög séu undirrituð
úti á landsbyggðinni, og ennþá
síður að lög séu undirrituð á
flugvöllum svona yfirleitt.
Þetta átti sér þó stað á Akureyr-
arflugvelli í síðustu viku, en þá
undirritaði Ingvar Gíslason
menntamálaráðherra lög um
námslán og námsstyrki. Það voru
starfsmenn Flugleiða sem höfðu
milligöngu um að koma lagafrum-
varpinu norður til Akureyrar, en
á myndinni þar sen Ingvar Gísla-
son menntamálaráðherra sést
undirrita lögin, er einnig Gunnar
Arthursson flugstjóri.
---------------------------\
Aðeins það allra besta
Herrafatnaður
fyrir sumaxið
Sumarfatnaður fyrir herranna
Sumarstakkar og frakkar
geysilegt úrval - gott verð
Ný sending af skyrtum
Einnig buxur í miklu úrvali
Lítið við í Herradeild.
Garðhúsgögn
Nýkomin hollensk
garðhúsgögn
á ótrúlega góöu verði. Þú getur fengið 2 stóla 1 hvíldar-
stól og 1 bedda fyrir innan við 1000 kr. Stólar, verð frá kr.
115,-. Hvíldarstólar, verð frá kr. 360,-. Sólbeddar, verð
frá 368,-. Sportvörudeild
í Vefnaðarvörudeild: Barnatrimmgallarnir komnir aftur.
Stærðir 80-140. Verðfrá kr. 105,- Fyrirsaumaskapinn:
Röndótt og köflótt efni
HAFNARSTR. 91-95 - AKUREYRI . SlMI (96) 21400
18. iriáí 1982 - DAGUR - 3