Dagur


Dagur - 18.05.1982, Qupperneq 9

Dagur - 18.05.1982, Qupperneq 9
Ásbjörn skoraði bæði KA lék sinn fyrsta leik í íslands- mótinu í knattspyrnu á laugar- daginn. Leikið var á Laugardals- vellinum og við Val. Leikur þessi var sá fyrsti sem KA leikur á grasi á þessu keppnistímabili. Þetta var nokkuð jafn leikur þegar á heildina er litið og varð jafntefli tvö mörk gegn tveimur, en í bæði skiptin varð KA fyrri aðilinn að skora. Á 9. mínútu á Ásbjörn góðan bolta fyrir markið, en markmaður Vals bjargar með góðu úthlaupi. Fjórum mín. síðar var hætta við KA markið. Þá höfðu Valsmenn pressað nokkuð og m.a. fengið tvær hornspyrnur í röð. Úr þvögunni bjargaði Gunnar Gíslason með svokallaðri hjól- hestaspyrnu, en Valsmenn ná boltanum aftur og Njáll skaut hörkuskoti út við stöng, í gegn um þvöguna framan við markið en Áðalsteinn var vel á verði og varði af öryggi. Á nítján mín- útum varði Aðalsteinn aftur mjög vel, skot frá Njáli, eftir aukaspyrnu sem Valur fékk. Fyrsta markið kom síðan á tutt- ugu ogfjórum mínútum. Jóhann sendi þá góðan bolta til vinstri á Ásbjörn sem fór inn í teigshorn- ið og skaut í stöngina og í netið. Aðeins einni mínútu síðar fékk Ásbjörn gullið tækifæri til að skora annað mark. Þá hafði Gunnar Gíslason haft betur í viðureign við markmann Vals, sem lá úti í teig. Gunnar renndi boltanum á Ásbjörn sem stóð fyrir opnu og mannlausu marki, en hrasaði um leið og hann skaut og hitti ekki í markið. Nokkru síðar jafnar Njáll fyrir Val eftir góða sendingu frá Hilmari þvert fyrir markið og rétt yfir fingur- gómana á Aðalsteini mark- manni. Einni mínútu síðar kom- ast KA menn aftur yfir. Þá hand- lék einn varnarmanna þeirra knöttinn inni í eigin vítarteig eftir að Ormar ætlaði að renna boltanum fram hjá honum. Guðmundur Haraldsson dómari dæmdi umsvifalaust víti sem Ás- björn skoraði úr. Rétt fyrir lok fyrri háifleiks ver Aðalsteinn ennþá mjög vel. Þá skaut Grímur Sæmundsen hörkuskoti rétt upp undir þverslá, en Aðalsteinn náði að slá til boltans sem fóryfir. Þegar aðeins um 15 sekúndur voru til leiksloka jafna Valsmenn. eftir klaufaskap í KA vörninni. Það var Valur Valsson sem jafnaði eftir góðan samleik við Hilmar Sighvatsson. Valur sótti nokkru meira í síðari hálfleik, sérstaklega fyrstu þrjátíu mínúturnar, en síðustu mínútur leiksins sóttu KA strákarnir af fullum krafti og markmaður Vals hafði þá nóg að gera en hann gerði mikið að því að slá boltan frá markinu. Virtist Oruggur Þórssigur Þórsarar sigruðu örugglega sínum fyrsta leik í íslandsmót- inu í annarri deild. Þeir léku við Njarðvíkinga sem eru ný- liðar í deildinni. Þórsarar gerðu fjögur mörk gegn tveimur eftir að staðan í hálf- leik hafði verið tvö gegn engu fyrir Þór. Leikurinn var frekar daufur en Þórsarar voru ávallt betri að- ilinn, en Njarðvíkingar drógu þá niður á sama plan og þeir voru á. Á 12. mín. átti Bjarni gott skot að Njarðvíkurmarkinu, en markmaðurinn sló boltann út, og þá skallaði Árni að markinu en yfir. Á 17. mín. kom fyrsta markið. Bjarni tók hornspyrnu og Guðjón skallar en í þverslá og aftur út í teiginn og þar til Arnar sem skoraði örugglega. Tveimur mín. síðar átti Örn hörkuskot, en í þverslá. Á 28. mín. skorar Bjarni ann- að markið fyrir Þór, en það kom upp úr góðum samleik þeirra Jónasar og Guðjóns. Á 6. mín. síðari hálfleiks átti Halldór Áskelsson gott skot að Njarðvíkurmarkinu en mark- maður ver. Á 12. mín. minnka Njarðvík- ingar muninn í tvö gegn einu, eftir skot úr þvögu. Þriðja mark Þórs kom á 20. mín. en þá tók Örn aukaspyrnu af löngu færi og skoraði í bláhornið án þess að markmaður ætti möguleika á að verja. Stuttu síðar bæta Njarðvík- ingar öðru markinu við úr víti og minnka muninn í þrjú gegn tveimur. Nói innsiglaði síðan sigur Þórsara með glæsilegu skoti af löngu færi á síðustu mín. leiks- ins. Eins og áður segir var leikur- inn frekar daufur og leiðinlegur, enda leikinn á malarvelli. Allir heim belgfullir Eins og sagt var frá í síðustu viku ætluðu félagar úr UMF. Reyni á Árskógsströnd að hlaupa boð- hlaup til Akureyrar á sunnudag- inn í fjáröflunarskyni fyrirfélag- ið. Það voru félagar úr frjáls- íþróttadeildinni sem hlupu mis- munandi langa spretti, og end- aði hlaupið á íþróttavellinum. Þegar þangað kom var öllum hlaupurum og starfsmönnum alls 42 boðið af hamborgara- kóngnum Tomma að koma í ókeypis veitingar í hinn nýja hamborgarastað Tomma við Ráðhústorg og þiggja þar veit- ingar. Reynismenn öfluðu félagi sínu um 10 þús. króna í áheitum með þessu hlaupi og fóru síðan heim belgfullir af hamborgur- um. óöruggur að grípa. Þegar á heildina er litið voru úrslit sanngjörn og liðin fá því sitt stigið hvort. Að leik loknum völdu leikmenn beggja liða mann leiksins og þeir voru ekki í neinum vandræðum að velja því afburðamaður leiksins var Aðal- steinn markvörður hjá KA. Kári setti 8 met íslandsmeistaramótið í kraft- lyftingum var haldið í iþrótta- húsi Glerárskóla dagana 15. og 16. maí. Er þetta í fyrsta skipti sem slíkt mót er haldið utan Reykjavíkur. Alls tóku 28 keppendur þátt í mótinu þar af 8 frá Akureyri. 1. sæti, 52 kg. flokkur: Már Óskarsson, ÚÍA, hnébeygja 85, bekkpressa 55, réttst.l. 127.5, samanl. 267.5. 1. sæti, 56 kg. flokkur: Þorkell Þórisson A, hnébeyugja 140, bekkpressa 82.5. réttst.l. 147.5, samanl. 370. 2. sæti, Kristján Bjarnason ÍBA, hnébeygja 110, bekk- pressa 57.5, réttstl. 100, samanl. 267.5. 1. sæti, 60 kg. flokkur: Bárður B. Olsen, KR, hné- beygja 120, bekkpressa 67.5, réttstl. 145, samanl. 332.5. 2. sæti, Jóhann Reynisson KR, hnébegja 110, bekkpressa 60, réttstl. 130, samanl. 300. 1 sæti 67.5 kg. flokkur: Kári Elísson ÍBA, hnébeygja 227.5, bekk- pressa 150, réttstl. 250, samanl. 627.5. 2. sæti, Daníel B. Olsen KR, hnébeygja 190, bekkpressa 110, réttst.l. 180, samanl. 495.1. sæti, 75 kg. flokkur: Halldór Ey- þórsson KR, hnébeygja 225, bekkpressa 117.5, réttst.l. 240, samanl. 582.5. 2. sæti, Birgir Þorsteinsson KR, hnébeygja 160, bekkpressa 90, réttst.l. 170, samanl. 420, 1. sæti 82.5 kg flokkur: Skúli Óskarsson ÚÍA, hnébeygja 310, bekkpressa 145, réttst.l. 320, samanl. 775. 2. sæti Jóhannes M. Jóhannesson ÍBA, hnébeygja 200, bekkpressa 110, réttst.l. 252.5, samanl. 562.5. 1. sæti, 90 kg. flokkur: Baldur Borgþórsson KR, hnébeygja 240, bekkpressa 137.5, réttstl. 240, samanl. 617.5. 2. sæti, Kristján M. Falsson ÍBA, hné- beygja 210, bekkpresssa 125, réttst.l. 250, samanl. 577.5. 1. sæti, 100 kg. flokkur: Hörður Magnússon KR, hnébeygja 315, bekkpresa 170, réttst.l. 300, samanl. 785. 2. sæti, Bergur Jónsson KR, hnébeygja 220, bekkpressa 135, réttst.l. 225, samanl. 580. 1. sæti, 110 kg. flokkur: Viðar Sigurðsson KR, hnébeygja 280, bekkpressa 182.5, réttst.l. 260, samanl. 722.5. 2. sæti, Jóhannes Hjálm- arsson ÍBA, hnébeygja 225, bekkpressa 135, réttst.l. 277.5, samanl. 637.5. 1. sæti, 125 kg. flokkur: Jón Páll Sigmarsson KR, hnébeygja 310, bekkpressa 220, réttst.l. 125, samanl. 655.2. sæti, Matthías Eggertsson KR, hnébeygja 200, bekkpressa 135, réttst.l. 230, samanl. 565. 1. sæti, +125 flokkur: Torfi Ólafs- son KR, hnébeygja 210, bekk- pressa 115, réttst.l. 245, samanl. 570. Alls voru sett 15 íslandsmet á mótinu. Þorkell Þórisson setti 4, Kári Elísson setti samtals 8, Skúli Óskarssson 2, og Halldór Sigurbjörnsson 1. Aukþessvoru sett nokkur Akureyrarmet. Stiga- hæsti einstaklingur mótsins varð Skúli Óskarsson og Kári Elísson nr. 2. í stigakeppni félaga urðu úrslit á þann veg að KR hlaut 54 stig, ÍBA 17 stig ÚíA 10 stig og Ármann 5 stig. Garðyrkjustöðin Lailgarbrekka Eyjafirði Sími 96-31129 - Pósthólf 312 - 602 Akureyri. •• PLONTULISH1982 SUMARBLÓM Stjúpur 66 66 66 66 66 66 66 66 66 66 66 66 66 66 66 66 66 66 Ljónsmunni 66 66 66 66 Fiðrildablóm Morgunfrú 66 66 Hádegisblóm Nellika 66 66 66 66 Flauelsblóm 66 66 66 66 Ilmskúfur Sumarstjarna Apablóm 66 66 Sumarljómi Skrautnál 66 66 Tóbakshom Eilífðarblóm 66 66 66 66 Fagurfífill 66 66 Komblóm Silfurkambur Lóbelia 66 66 blandaðar bláar hvítar gular dökkbláar rauðar orange brún með gula rönd blá m. dökka miðju fjólublá m. hv. rönd blandaður rauður lágur blandaður (nemesía) blönduð orange lág blönduð blandað blönduð rauð fyllt rauð rautt orange gult (levkoj) blandað (aster) blandaður gult rautt (phlox) blandaður (alyssum) hvítt rautt blandað blandað rautt gult (bellis) hvítur rauður blátt silfurgrá blöð blá hvít SUMARBLÓM POTTABLÓM Hengilóbelia blá með hvítu auga Aster Prestakragi blandaður Nellika Blátunga blá Pelargonía Regnboði orange Petunía Sveipkragi blandaður Flauelsblóm Snækragi hvítur Salvía Meyjarblómi blandaður Asparagus 66 66 rauður Thunbergia Daggarbrá hvít Skrautkambur 66 66 gul Jacaranda Gulltoppur blandaður Coleus Paradísarblóm blandað FJÖLÆR BLOM MATJURTIR Biskupsbrá blönduð Hvítkál Fjaðurnellika rauð Dvergnellika bleik Blómkál Hjartaklukka blá Rauðkál Hjartafífill gulur Grænkál Jarlaspori rauður Rófur Lúpínur blandaðar Rauðrófur 4( 44 rauðar Blaðsaiat Bergnál gul Höfuðsalat Iberis hvítur Icebergsalat Risavalmúi rauður Spergilkál Valmúi blandaður Moskusrós bleik Höfuðklukka blá Sporasóley blönduð YERf) Siiiiiarblóni kr. 22,- (4 sik. i húnti) Fjiilær blóni kr. 15.—30.- Pottahlóni frá kr. 20,- kal kr. 4.- Aðrar mut jiirtir kr. 3.- Opið mánud.-föstud. kl. 9-12 og 13-21. Laugard. og sunnud. kl. 9-12 og 13-18. Plöiitiisalan í Fróðasundi auglýst síðar. 16; maí 1982 - ÐAGUR - 9

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.