Dagur - 21.05.1982, Blaðsíða 5
Fjölskylduhátíð framsóknarmanna á Hótel KEA:
Mjög fjölmenn og
ánaegjuleg samkoma
Ungir sem aldnir komu á
kosninga- og skemmtifund B-
listans, sem haldinn var á
Hótel KEA í gærkvöldi.
Starfsmenn hótelsins töldu aö
gestirnir heföu verið hátt á
fimmta hundraðið og hafa
sjaldan eða aldrei verið jafn
margir saman komnir í veit-
ingasal hótelsins.
Óllum fundargestum var boð-
ið upp á ókeypis kaffi og kökur.
Nemendur úr Tónlistarskólan-
um léku á hljóðfæri og félagar úr
harmonikkuklúbbnum tóku
nokkur lög. Þau Jón Sigurðar-
son, Úlfhildur Rögnvaldsdóttir
og Sigfríður Angantýsdóttir
fluttu stutt ávörp, en fundar-
stjóri var Hjörtur Eiríksson og
fórst honum það skörulega úr
hendi. Ómar Ragnarsson kom
og skemmti fólki af sinni al-
kunnu snilld, ráðamenn þjóðfél-
agsins fengu sinn skammt og var
ekki annað að sjá og heyra en
gestirnir kynnu vel að meta það
sem Ómar hafði fram að færa.
Ingimar Eydal lék á píanó þegar
Ómar tók lagið.
Það var létt yfir samkomunni
og auðheyrt að menn skemmtu
sér vel. Ávörpum frambjóðend-
anna var vel tekið, enda slógu
þeir á létta strengi. „Ég er með
flensu og ætti að vera heima,“
sagði Sigurður Óli Brynjólfsson,
þegar hann ávarpaði gesti í
fundarlok, „en þessi samkoma
er besta meðalið sem ég hefði
nokkru sinni getað fengið. Við
skulum láta þá gleði sem hér rík-
ir endast og við skulum tryggja
það, að Sigfríður fái sæti í bæjar-
stjórn. Því hvet ég alla til að
vinna vel að framgangi listans á
morgun og á laugardaginn."
Sumir sátu með kaffibollana á hnjánum - því að fullskipað var við öll
borð í salnum löngu fyrir auglýstan fundartíma.
21. maí 1982 - DAGUR - 5
SÆÖl ÍBfh . rs- fTÚOACJ -ð
*tiUí£*ÍJtÍ