Dagur - 04.06.1982, Síða 6
sérstaklega frjór fyrir rokk-
hljómsveitir, að því er virðist.
- Það hefur einhvern veginn
ekki verið áhugi fyrir því að
flytja frumsamda tónlist hér í
bænum. Hér hafa verið hljóm-
sveitir á þessum klassíska þorra-
blótagrundvelli sem moka inn
seðlum stuttan tíma á ári og spila
dægurflugur eða þessar hljóm-
sveitir sem hafa verið að spila í
S j allanum, sem margar haf a ver-
ið mjög efnilegar í byrjun. En
það er bara svo erfitt að spila á
böllum, því að með tímanum
verða menn svo heilaþvegnir að
ekkert kemst annað að en pen-
ingar. Öldin er hins vegar önnur
núna. Það spretta upp bönd hér
og þar og sú tíð kemur, jafnvel
strax á næsta ári, að hér verða
starfandi a.m.k. fjögur bönd,
sem spila eigið efni. Þar eru á
ferðinni mjög efnilegir strákar
og er óhætt að segja, að fyrir þá
höfum við rutt brautina. Akur-
eyri verður eftir stuttan tíma
orðin gott tónlistarbæli. Þessum
hljómsveitum er bara ekki veitt
nóg aðhlynning. Húsin hérna
eru alveg vonlaus og allt of fá.
Það er helst að fá Skemmuna
eða íþróttahöllina þegar hún
kemst í gagnið. Nýja bíó er lok-
að fyrir hljómsveitum, sviðið í
Borgarbíó er allt of lítið og Sam-
komuhúsið er aðeins hægt að fá
á sumrin. Hér er sem sagt lítil
sem engin aðstaða til hljóm-
leikahalds og það er hlutur, sem
við ætlum að reyna að bæta með
einhverjum ráðum. Það er kosn-
ingaloforð B ARA-Flokksins,
Það er fjandi dýrt
- Hvernig fjármagnið þið fyrir-
tækið?
(Hlátur og fliss)
- Þetta er óttalegt basl. Þessa
dagana getum við ekkert æft
vegna tækjaskorts. Við höfum
ekkert söngkerfi, höfum bjarg-
ast við lánssöngkerfi í vetur. Við
viljum nota tækifærið til að
þakka þeim, sem hafa gert okk-
ur mögulegt að æfa hingað til.
Svona græjur eru svo ótrúlega
dýrar.
- Er þá tónlistin farin að gera
svo miklar kröfur til tækjanna,
að það sé farið að há tónlistinni?
- Það má e.t.v. segja það, en
þar ræður mestu þessi geðveikis-
lega tollalagning á hljómtæki.
- Hvað kostar að gefa út
breiðskífu þessa dagana?
- Það vitum við ekki. Það er
fjandi dýrt. Alls kyns smotterí
þarf að borga, miða á plöturnar
og alls konar þannig smáatriði
sem rífa verðið upp úr öllu valdi.
Við þurfum sem betur fer ekki
að hugsa allt of mikið um það.
Við erum á samning hj á Steinum
h/f um þrjár plötur á þrem árum
og fáum borgað fyrir það, ef
gróði verður á sölunni. Eftir að
platan hefur borgað sig, fáum
við svo 75% sölutekna á innan-
iandsmarkaði og 50% á utan-
landsmarkaði.
- Breytast lögin í stúdíóinu?
- Nei, lögin breytast ekkert
og ekki heldur útsetningarnar.
Það eina sem breytist eru smáat-
riðin. Maður fínpússar músík-
ina, getur bætt inn fleiri hljóð-
færum o.þPh. En auðvitað er
heilmikill munur á lögum, sem
spiluð eru með hálfónýtum græj-
um á hljómleikum eða í full-
komnum tækjum í stúdíóinu.
Suður?
- Hvað starfið þið utan þess að
spila?
- Atvinnulausir, - í skóla, - í
vinnu.
- Hvað gerið þið í framtíð-
inni? Flytjið þið suður?
- Við verðum líklega með
annan fótinn í Reykjavík og
hinn á Akureyri. Við eigum lög-
heimili hér og hér verðum við í
nánustu framtíð.
- En annað hvort verða allir
að flytja eða enginn.
- Það er ekkert mál. Við lát-
um það ekki verða neitt mál. Ef
einhver fílar ekki að flytja, þá
bara förum við ekki neitt og eng-
inn mórall. En við ætlum að
halda áfram í músíkinni og verð-
um að prófa fyrir okkur. Vanda-
málið er ekki að geta ekki starf-
að sem ein heild. Við erum sam-
heldinn hópur, höfum starfað og
munum starfa saman sem ein
sál. Við þolum hvern annan
mjög vel.
(Æ, góði haltu kjafti, þú ert leið-
inlegur.)
Enginn foringi
- Hvernig verða lög til?
- Það er mjög misjafnt.
Stundum verða þau til á einni
æfingu. Stundum kemureinhver
okkar með lag í hausnum, búinn
að vinna allar grunnhugmyndir.
Þá gengur útsetningin og æfingin
mjög fljótt fyrir sig. Og stundum
kemur einhver með einhverja
óljósa hugmynd í kollinum sem
við hjálpumst allir að við að
vinna úr.
- Er enginn foringi í hópnum?
- Nei, sumir semja meira en
aðrir og einn kannski mest. Einn
semur alla texta, en það er eng-
inn foringi.
- Æfið þið mikið?
- Já, við æfum mjög mikið,
meira en allar aðrar hljómsveitir
sem við höfum spurnir af. Æf-
ingar eru yfirleitt ca. 4 sinnum í
viku, langar æfingar, oft 3-4
tímar og jafnvel lengur um
helgar.
- Hugsa rokkarar öðru vísi
en annað fólk?
- Við höfum ekki prófað að
hugsa fyrir annað fólk. Við erum
náttúrulega alltaf með hugann
við tónlist. Það fer líka mikill
tími í að hlusta á tónlist.
- Hafið þið farið í tónlistar-
skóla?
- Einhverjir okkar hafa ein-
hvern tíma dúllað eitthvað í
tónlistarskóla. Einn fór í þrjá
tíma í gítarkennslu, annar í aðra
þrjá í blokkflautuleik, hann spil-
ar á trommur núna, einn lærði
tvo vetur á píanó. En við höfum
flestir verið lengi í músík án þess
að hafa lært í skóla.
- Samrýmist það ekki að læra
í tónlistarskóla og spila rokk?
- Það er eins og það passi
ekki í tónlistarskólanum hérna.
Þegar gítaristinn fór í þessa þrjá
tíma þarna um árið, fór kennar-
inn fram á að hann hætti að spila
í hljómsveit á meðan. Hann
hætti auðvitað í skólanum. Þetta
er náttúrulega misjafnt. Strák-
arnir í Messoforte eru t.d. allir
tónlistarskólagengnir. Sumir
okkar eru að huga á nám í
tónlist.
Frjáls samtök
áhugamanna um list
- Hlustið þið á aðra tónlist en
rokk?
- Já, við pælum í jass og
kiassík svo framarlega sem hún
er ekki í útvarpinu. Þeir eru
snillingar í að velja lélega tónlist
þar.
- Fáist þið við einhverjar list-
greinar aðrar en tónlist?
- Við erum mjög áhugasamir
um aðrar listgreinar og störfum
mikið við þær, en aðeins við að
miðla þeim, ekki sköpun - ekki
opinberlega. Við erum_ allir
starfandi í Rauða húsinu, sem
eru frjáls samtök áhugamanna
um list á Akureyri.
Platan
Rokkbransinn á Akureyri
hefur löngum verið fátækleg-
ur og frumsamin dægurtónlist
af skornum skammti. Ey-
dalsbræður hefur mönnum
fyrst dottið í hug þegar talað
er um hljómsveit á Akureyri
og ekki að ástæðulausu þar eð
hljómsveitir þeirra bræðra
eru líklega þær einu hér í bæ
sem náð hafa vinsældum á
landsmælikvarða um langt
skeið.
Þó gerðist það fyrir einu og
hálfu ári að nokkrir ungir
menn í bænum stofnuðu
hljómsveit, æfðu saman um
stund, fóru suður, spiluðu á
konsert og slógu í gegn. Og nú
dettur mönnum BARA-
Flokkurinn fyrst í hug þegar
minnst er á hljómsveitabrans-
ann á Akureyri
- Þetta byrjaði eiginlega
allt í partýi. Ein stofan var full
af hljóðfærum og við byrjuð-
um að djamma saman. Bræð-
urnir voru þá í hljómsveit sem
hét Grjótnemar en við hinir í
BARA-Flokknum gamla.
BARA-Flokkurinn er sko
búinn að starfa saman í fimm
ár, en aðeins í eitt og hálft ár í
þeirri mynd sem hann er í nú.
En við sem sagt rugluðum
saman reytum okkar þarna í
partýinu og við höfum síðan
haldið hópinn og æft saman.
- Svo gáfuð þið út plötu?
- Jásvogáfum viðútplötu.
(Þögn).
Spilum bara rokk
Þetta samtal fer fram í herbúö-
um fimmmenninganna niður við
Torfunefsbryggjuna gömlu sem
smátt og smátt er nú að breytast
í breiðgötu.
- Það er algjör óþarfi að hver
svari fyrir sig, - B AR A-Flokkur-
inn er ein heild og við erum sam-
mála um allt sem máli skiptir.
- Nei, blessaður láttu mynda-
vélina eiga sig. - Hvað heldurðu
að þurfi að skrifa hvað við heit-
um, ef fólk hefur áhuga á því
sem við erum að gera, kemst það
að því.
- Af hverju heitir BARA-
Flokkurinn BARA-Flokkurinn?
- Bara.
(Þögn).
einu sinni spila montrokk af því
okkur þótti það fyndið. Það átti
nú eiginlega að vera djók á allar
þessar skilgreiningar. Við spil-
um bara rokk.
- Af hverju syngið þið ekki á
íslensku?
- Því má svara á mjög ein-
vegna og það má eiginlega segja
að þetta sé okkar lifibrauð,
maður er orðinn svo hrikalega
háður þessu. Það er alveg pott-
þétt að þessi grúppa splittast
Jafnvel Bítlarnir
- Er tónlist ykkar sprottin úr
- Hverskonar tónlist spilið
þið?
- Við spilum bara rokk. Við
viljum ekki skilgreina það neitt
nánar. Þessi flokkun á rokktón-
iist niður í stefnur er farin að
ganga út í öfgar. Við erum búnir
að fá nóg af skilgreiningunum.
Það er einhver nýyrðanefnd
poppskríbenta sem tekur sig til
og vill flokka alla rokktónlist
niður í heavy rokk, heavy metal
rokk, bárujárnsrokk, nýróman-
tík, tölvupopp og ég veit ekki
hvað og hvað. Við sögðumst
faldan hátt. Við einfaldlega fíl-
um hitt betur. Enskan finnst
okkur passa betur við tónlistina
okkar og skemmtilegra að vinna
hana þannig. Þetta er bara
spurning um smekk. Okkur
finnst þetta og eftir því förum
við.
Okkur kemur bara
svo veí saman
- Hverju eruð þið að koma á
framfæri?
- Músíkin okkar segir nátt-
úrulega heilmikið, öll tónlist
hefur boðskap. Fyrst og fremst
erum við að spila ánægjunnar
ekki hér eftir fyrr en „in the end
of the world“. Við erum komnir
yfir bílskúrsstigið, orðin alvar-
leg, starfandi hljómsveit og það
er staðreynd að á meðan hljóm-
sveitir eru á bílskúrsstiginu er
lang mest hætta á að þær
splundrist.
- En það er nú samt raunin
með hljómsveitir á íslandi að
þær tolla ekki saman nema í
mesta lagi nokkur ár. Eruð þið
einhver undantekning frá þeirri
reglu?
- Já, við störfum svo mikið
saman, ekki bara í tónlistinni,
heldur líka á öðrum sviðum og
erum svo miklir félagar að öðru
leyti. Kannski höfum við það
fram yfir aðrar hljómsveitir.
Okkur kemur bara svo vel
saman.
því umhverfi sem þið hrærist i
eða á hún rætur að rekja til
þeirrar tónlistar sem þið hlustið
á?
- Líklega hvorutveggja. Hún
hlýtur náttúrulega að spretta úr
þeim jarðvegi sem við erum
vaxnir úr auk þess sem hún mót-
ast af þeim karakter sem býr í
okkur. En við erum undir sterk-
um áhrifum frá ótal hljómsveit-
um.
- Hverjum?
- Mörgum, t.d. David Bow-
ie, Cure, Japan AC/DC, Joy Di-
vision, Peter Gabriel, Ultravox,
Bill Nelson, Gary Numan,
Duran Duran, Rolling Stones,
Jim Croce, jafnvel Bítlunum
o.fl. o.fl. Og tónlistin er menguð
af öllu þessu. En við reynum
ekki að stæla neinn.
Öldin er önnur
- En nú hefur þessi jarðvegur
hér á Akureyri ekki verið neitt
- Og nú eruð þið að gefa út
plötu.
- Ja, Steinar h/f eru að gefa út
plötu með okkur.
(Þögn)
- Og svo eruð þið að bæta æf-
ingaraðstöðu ykkar.
- Já, við gengum til liðs við
Rauða húsið, eða öllu heldur að-
standendur þess fyrir skemmstu
þannig að nú er BARA-Flokk-
urinn og Rauða húsið orðin eitt.
Við erum þessa dagana að vinna
að því að koma okkur upp æf-
ingaraðstöðu í Rauða húsinu.
Pólitík
- Hvar standið þið í pólitík?
- Við erum allir flokks-
bundnir í BARA-Flokknum.
Náttúrulega erum við allir með
pólitískar skoðanir en við erum
ekki eins miklir galgopar og
margir sem álíta pólitík byggja á
því að rausa sem mest. Við erum
fremur ópólitískir en við höfum
okkar ákveðnu lífsskoðanir sem
við reynum að koma á framfæri.
- Er það ekki ábyrgðarhlutur
að framleiða tónlist sem hefur
eitthvað að segja fólki og fólk
hlustar á?
- Ja, Ignis þvottavélar eru af-
skaplega vinsælar um þessar
mundir og fyrirtækið sem fram-
leiðir þær hlýtur að bera heil-
mikla ábyrgð.
- Er það markmið hjá ykkur
að ná vinsældum?
- Nei, það hefur ekki verið
markmið hjá okkur að ná vin-
sældum, heldur að koma því á
framfæri, sem við erum að gera
og leyfa öðrum að njóta þess
sama og við. En þetta er eins og
með aðra vöru, ef við sendum
frá okkur plötu sem fólk vill ekki
kaupa, þá erum við ekkert að
gefa út fleiri plötur. Þetta hefur
gengið ágætlega hingað til.
- Hefur tónlist ykkar breyst
frá því fyrri platan kom út?
- Persónulega finnst okkur
það.
Þessa mynd og myndina af Bara-Flokknum á forsíðu tók Ómar Örn Ágústsson.
6- DAGUR-4. júní 1982
4. júní 1982- DAGUR-7