Dagur - 06.07.1982, Síða 1
GULLKEÐJUR'
8 K. OG 14 K.
ALLAR LENGDIR
VERÐ FRÁ
KR. 234.00
GULLSMIDIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
65. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 6. júlí 1982
71. tölublað
„Éa fann fiársjóð“
sagði 13 ára stúlka sem fann ávísanirnar úr innbrounu í Bílaleigu
Akureyrar í litlum pappakassa á Öxnadalsheiði
„Ég get ekkert um það sagt á
þessu stigi hvaða áhrif þessi
fundur hefur á rannsókn
málsins,“ sagði Daníel
Snorrason rannsóknarlög-
reglumaður á Akureyri er við
spjölluðum við hann í gær.
Um helgina fannst pappakassi
með ávísunum úr síðara inn-
brotinu í BOaleigu Akureyrar
í vetur en ekkert hefur verið
látið uppi um það hvort í kass-
anum voru allar ávísanirnar
sem stolið var.
„Mamma! ég fann fjársjóð"
kallaði Margrét Stefánsdóttir 13
ára sem fann kassann með ávís-
ununum undir brú á þjóðvegin-
um á Öxnadalsheiði. Margrét
var þar á ferð með móður sinni,
Hugrúnu Hólmsteinsdóttur, og
við spjölluðum við Hugrúnu í
gær.
„Við vorum að fylgja hópi
hestamanna sem voru að fara á
Vindheima í Skagafirði. Við
vorum reyndar á tveimur bílum
og í svokölluðu Reiðigili sem er
efst á heiðinni stoppaði ég.
Hestamennirnir riðu þar fyrir
neðan veginn, og þegar Margrét
ætlaði til þeirra ásamt Sævari
Helgasyni sem er 9 ára fór hún
undir brúna sem er þarna á þjóð-
veginum. Undir brúnni fann hún
þennan pappakassa og við urð-
um ekki lítið undrandi þegar við
sáum hvað í honum var.
Þetta var ansi þykkur bunki af
ávísunum en ég get ómögulega
gert mér grein fyrir því hvað þær
voru margar, við reyndum að
hrófla sem minnst við innihaldi
kassans en ávísanir voru í plast-
poka í kassanum. Við afhentum
lögreglunni þetta þegar við
komum til Akureyrar aftur um
kvöldið.
Segja má að þessi fundur sé
fyrsta meiriháttar vísbendingin
sem hægt er að styðj ast við varð-
andi rannsókn þessa mesta
þjófnaðarmáls sem upp hefur
komið á Akureyri. Hvort fundur
ávísannanna hefur hinsvegar af-
gerandi áhrif á gang rannsóknar-
innar er ekki gott að segja til um,
og rannsóknarlögreglan vildi
ekkert tjá sig um það í gær.
Fjölmenni
varað
Hólum
Talið er að á 2. þús. manns hafi
sótt Hólaskóla heim á sunnu-
dag, þegar haldið var upp á
aldarafmæli skólans. Meðal
gesta voru forseti Islands,
biskup ísands, Iandbúnaðar-
ráðherra, þingmenn og for-
ustumenn búnaðarmála í land-
inu. Á Hólahátíðinni var vígð
ný sundlaug á staðnum, sem
gamlir nemendur og velunnar-
ar skólans hafa gefið.
í ávarpi sem Vigdís Finnbogasótt-
ir, forseti íslands, flutti gat hún
þeirrar hugsjónar sem verið hefði
hvatinn að stofnun Hólaskóla.
Menn hefðu trúað á landið og að
það gæti gefið meira af sér. Þessar
hugsjónir hefðu og ræst.
Jón Bjarnason, núverandi
skólastjóri Hólaskóla, rakti að-
dragandann að stofnun hans og
sögu skólans þessi 100 ár. Skaga-
fjarðarsýsla keypti Hóla í Hjalta-
dal 1881 og bændaskólinn var
stofnaður árið eftir. Húnvetning-
ar gerðust aðilar að skólanum
1883 og Eyfirðingar og Þingeying-
ar 1889.
Á s.l. tveimur árum hefur verið
unnið að mikilli uppbyggingu og
endurreisn á Hólum í kjölfar
ályktunar ríkisstjórnar frá 1980
um endurreisn Hólaskóla. Hit-
aveita hefur verið sett á laggirnar,
fullkomin laxeldisstöð verið reist,
endurbætur gerðar á heimavist,
byggt nýtt hesthús og fleira mætti
nefna. Þá hefur verið gengið frá
skipulagi staðarins og áfram verð-
ur unnið að endurbótum.
Þá kom fram í ræðu landbúnað-
arráðherra að meðal þess sem enn
væri ógert væri stofnun loðdýra-
bús, sem nota mætti til kennslu í
loðdýrarækt, en sem kunnugt er
var laxeldisstöðin einnig reist með
kennslu í huga. Fleiri ræður voru
fluttar og á milli atriða söng karla-
kórinn Heimir. Þá var hrossasýn-
ing á staðnum. Frá upphafi hafa
um 1600 búfræðingar útskrifast
frá Hólaskóla. Má nærri geta hví-
lík áhrif skólinn hefur haft á bú-
mennt í landinu og hvaða áhrif
hann mun hafa í framtíðinni,
einkum varðandi nýjar búgreinar.
Menntaskólinn
á Akureyri:
60 fá
ekki
skóla-
vist
AIIs bárust 240 umsóknir um
skólavist í 1. bekk Menntaskól-
ans á Akureyri næsta vetur
Þetta er nokkuð meiri fjöldi
heldur en í fyrra en þá sóttu um
220 um. Á skrifstofu skólans feng-
ust þær upplýsingar að ekki væri
hægt að veita öllum umsækjend-
um skólavist næsta vetur, heldur
verða teknir inn 180 nýir nemend-
ur.
Það er aðallega tvennt sem
ræður því hvort umsækjandi fær
skólavist, en það eru einkunnir og
búseta. Þeir sem búa á Akureyri
komast inn svo framarlega að þeir
séu með þolanlega einkunn úr
grunnskóla en þeim er hafnað
fyrst sem búa utan Akureyrar og
geta stundað menntaskólanám í
sinni heimabyggð.
Þjóð-
dansar
r
I
Glerár-
skóla
Þjóðdansaflokkur frá Svarta-
skógi í V-Þýskalandi hefur ver-
ið á ferðalagi um ísland að
undanförnu og í kvöld dansar
flokkurinn í Glerárskóla.
Skemmtun Þjóðverjanna hefst
kl. 21 í kvöld og sérstök athygli
skal vakin á því að aðgangurinn
að skemmtuninni er ókeypis.
Annað kvöld dansar hópurinn að
Laugum í Þingeyjasýslu og þaðan
heldur hann til Egilsstaða.
Nokkur mannfjöldi safnaðist saman í gærkvöld og fylgdist með, er bifreiðin var hifð upp úr sjónum og upp a
bryggjuna. Ljósmynd: H.Sv.
Bíllinn fannst í
sjónum í gærkvöldi
Aðfararnótt laugardags var
brotist inn í verslunina Hljóm-
ver við Glerárgötu á Akureyri
og er óhætt að segja að þeir sem
það gerðu hafi ekki farið troðn-
ar slóðir við verk sitt.
Úr versluninni hirtu þjófarnir
nokkur sambyggð segulbands- og
útvarpstæki og hlóðu þjófarnir bíl
fyrirtækisins sem var í bílskúr
sambyggðum versluninni með
þýfinu. Þegar því var lokið settu
þeir bílinn í gang og óku síðan út í
gegn um bílskúrshurðina! Er ekki
hægt að segja að þeir hafi farið
hljóðlega, því hurðin hlýtur að
hafa brotnað með miklum
hávaða.
í gærkvöld fannst síðan bifreið-
in í sjónum fyrir framan fóður-
vörugeymsluna á Oddeyri. Bíll-
inn var mannlaus og ekki mikið
skemmdur. Var hann hífður upp í
gærkvöld. Sögusagnir, um að bif-
reiðin hafi sést í Reykjavík, eiga
því ekki við rök að styðjast.
Rannsóknarlögreglan á Akur-
eyri biður alla þá, sem hafa orðið
varir við mannaferðir við verslun-
ina Hljómver aðfaranótt laugar-
dagsins eða í námunda við korn-
vörugeymsluna, að láta vita um
það strax.
Innbrotið í Hljómver: