Dagur - 23.07.1982, Blaðsíða 2
Fyrir verslunar-
mannahelgina
Tjöld, himnarog svefnpokar.
Fyrir einnota gashylki, Ijós,
prímusar, hitarar.
Einnig 2ja og 3ja kg gaskútar.
KingSford grillkolin frábæru,
engin olía, bara kveikja, langvinsælustu
kolin í dag. Grin f úrva|j
Verslunin G.B.J. sf.
Skipagötu 13, sími 22171.
Nú fæst
PARTNER
á Akureyri.
Margar gerðir af buxum bæði
á dömur og herra.
Verslunin G.B.J. sf.
Skipagötu 13, sími 22171
Smáauglýsingar
S 96-24222.
LESENDAHORNIÐ
Skftalækurinn
5540-9862 hringdi:
Mig langar að koma því á fram-
færi til bæjaryfirvalda á Akur-
eyri að fara nú að aðhafast eitt-
hvað varðandi „skítalækinn"
svokallaða hér rétt hjá Dals-
gerði.
Við sem búum í námunda við
lækinn erum búin að kvarta yfir
tilvist lækjarins ár eftir ár en
ekkert dugir. Lækurinn er rétt
hjá barnaleikvellinum í Gerða-
hverfinu og því miður er það
vinsælt hjá börnunum hér í
hverfinu að leika sér í námunda
við lækinn.
Það er hinsvegar mjög óæski-
legur leikstaður, því lækurinn er
fullur af allskyns rusli eins og
t.d. verjum og bindum. Þá eru
glerbrot og fleira drasl mjög
áberandi í og við lækinn og dótt-
ir mín slasaði sig þarna í gær.
Þessi lækur er viðbjóður og
hneisa að yfirvöld skuli ekki
hafa gert eitthvað til þess að
koma þessu máli í viðunandi
horf.
Ekki TungnafellsjökuU
I heiðruðu blaði yðar 13. júlí
segir frá frækilegri ferð þeirra
Bjarna á Möðruvöllum og
Guðmundar á Staðarbakka til
Hóla heim um Hólamannaleið
hina fornu. Þeir félagar lögðu
leið sína fram Barkárdal, upp í
gegnum Hólamannaskarð og
gistu í fjallaskála Ferðafélags
Svarfdæla nóttina milli 3. og 4.
júlí. Fengu dimma þoku og náðu
ekki heim að Hólum fyrr en í lok
hátíðahalda þann dag vegmóðir
en hressir í anda í besta lagi. .
blaðsins. Skálinn stendur alls
ekki við Tungnafellsjökul. Jök-
ull með því nafni er inni í miðju
landi og skilur Vonarskarð hann
frá sjálfum Vatnajökli.
Skáli Ferðafí. Svarfdæla
stendur á háum mel við jaðar
Tungnahryggsjökuls. Sá jökull
er í gríðarmikilli fjallahvilft fyrir
botni Kolbeinsdals. Fjallshrygg-
ur skiptir jöklinum í tvo hluta,
eystri og vestri. Hryggur sá heit-
ir Tungnahryggur og jökullinn
eftir honum.
Þetta bið ég menn að muna.
Menn geta ekið í bíl sínum inn á
Spr.engisand, suður í Nýjadal og
gist í skála Ferðafélags íslands
við Fjórðungskvísl, sem kemur
úr Tungnafellsjökli. En til þess
að gista í skálanum við Tungna-
hrygg verða menn að leggja land
undir fót og ganga úr Barkárdal,
eða Skíðadal eða Hjaltadal eða
Kolbeinsdal því allar leiðir mæt-
ast við skálann í 1200 m hæð yfir
sjó.
Með þökk fyrir birtingu.
H.E.Þ.
Gróðursetning í „þotubeltí46
Trjávinur
Hafði samband við blaðið, og
sagði að sér þætti ástæða til að
hnippa í þá menn sem standa
fyrir því að gróðursetja tré út
um allan bæ. „Því að þeir
staðir sem þeir velja trjánum,
eru margir hverjir einmitt þar
sem mestur snjórinn verður á
veturna. Við getum tekið
dæmi brekkuna neðan við búð
Kaupfélagsins við Byggða-
veg, sú brekka var fyllt af
trjám. Þetta var ein alvinsæl-
asta þotu og skíðabrekkan hjá
smáfólkinu, og maður sér
hvernig trén hafa farið. Með-
fram Mýrarveginum eru kom-
in tré einmitt á þeim stöðum
þar sem eitthvert pláss er, og
snjóruðningarnir lenda. Það
er auðvitað ljómandi gott að
skreyta bæinn og auka gróð-
urinn, en það verður svolítið
að hugsa fyrir vetrinum líka.“
Þessar þrjár gerðir bíla verða til sýnis sunnudaginn 25. júlí frá kl. 10-18 á
Bifreiðaverkstæði Sigurðar Valdemarssonar Óseyri 5, sími 96-22520.
Lúxusbíll í hæsta
sem klifrar eins og geit,
vinnur eins og hestur, en er
þurftarlítill eins og fugl
pm r
m r
nm
Nýr bíll með ýmsum breytingum sem verða á árgerð 1983
Á verði sem flestum kemur á óvart
með háu og lágu drifi
Eigum nokkra bíla til
afgreiðslu næstu daga
. 2 7 DAGUR - 23, júlí 1982