Dagur - 23.07.1982, Blaðsíða 11

Dagur - 23.07.1982, Blaðsíða 11
Tónleikar Kristjáns Um helgina halda þau tón- leika á tveimur stöðum. í Ýdöl- um í Aðaldal á sunnudaginn kl. 21 og í íþróttaskemmunni á Ak- ureyri n.k. miðvikudag kl. 21. Kristján hefur nú gert sinn fyrsta stórsamning við heims- þekkta óperu, eða við English Northern Óperuna. Hans fyrsta hlutverk á Englandi verður Pinkerton í Madama Butterfly. Þetta er tvímælalaust ein mesta viðurkenning sem íslenskum tónlistarmanni hefur hlotnast erlendis á undanförnum árum. Guðrún Kristinsdóttir er þjóð- kunn fyrir píanóleik sinn með virtustu söngvurum okkar. Á tónleikunum verða fluttir söngv- ar og óperuaríur eftir Gounod, Bizet, Verdi, Leoncavallo, Tosti, Cardillo, Rossini, Doni- zetti, Puccini, Sigfús Einarsson, Sigurð Þórðarson, Sigvalda Kaldalóns og fleiri. Haukur £>ór sýnlr lelrlist Haukur Dór Sturluson leirlista- opnunartíma verslunarinnar til maður opnar á morgun sýningu mánaðarmóta. á verkum sínum í versluninni Verslunin Kompan að Skipa- Kompan á Akureyri. Par sýnir götu 2 hefur verið stækkuð veru- hann á morgun og sunnudag frá lega og endurbætt og opnar eftir kl. 16-22 og síðan á venjulegum þær breytingar nú um helgina. Kristján Jóhannsson óperu- söngvari og Guðrún Krist- jánsdóttir píanóleikari hafa að undanförnu verið á tón- leikaferð um Austur- og Norðurland. Kristján Jóhannsson. Flugdagur á laugardag Flugdagur verður á Akureyri flug Ómars Ragnarssonar á á laugardag. Dagskráin hefst „Frú“ sinni, flug Húns Snæ- á flugvellinum kl. 13.30 en þar dals á TF-KEA og sennilega verður margt um að vera, fleiri farartækjum, þotuflug, flugminjasýning, flugmódel- listflug, svifflug, björgunarsýn- sýning og margt, margt fleira. ingu Landhelgisgæslunnar og Af öðrum atriðum má nefna margt fleira. ,, Oldungaleikur4 4 á Þórsvelli Einn leikur verður háður í kvöldið eru það lið ÍBA og „öldungakeppni“ KSÍ á Hauka frá Hafnarfirði sem eig- mánudagskvöldið, og fer ast við. í liði ÍBA eru margir hann fram á Þórsvellinum og leikmenn sem gerðu garðinn hefst kl. 20. frægan hér fyrr á árum og má Liðin sem keppa í „öldunga- nefna í því sambandi nöfn eins deildinni" eða „Lávarðadeild- og Kára Árnason, Baldvin inni“ eins og réttilega væri að Ólafsson, Pormóð Einarsson og kalla hana eru skipuð leikmönn- Ragnar Porvaldsson. um 30 ára og eldri. Á mánudags- Rauða húsið í dag er myndlist Rósu Kristínar Júlíusdóttur til sýnis í Rauða húsinu en í kvöld heldur Oliver Kentish þar knéfiðlutónleika. Á morgun sýnir þar Kristinn G. Harðarson óg Magnús Pálsson á sunnudag. Annað kvöld verður viðburður á vegum Gísla Ingv- arssonar og á sunnudagskvöld les Bárður Halldórsson mennta- skólakennari og fornbókahöndl- ari úr þýðingu sinni á verkum Ciceros. Báðir verða þessir við- burðir kl. 21. Síðasta atriði þess- ara listviðburðarríku daga í Rauða húsinu hefst kl. 23 á sunnudagskvöld en þá munu þeir Jón Laxdal Halldórsson og Guðbrandur Magnússon lesa ljóð sín. ,, Prófessorinn“ Plötukynning í Sjallanuin Hinar eldhressu stúlkur, Erna, Eva og Erna hafa nú sungið inn á stóra plötu, og annað kvöld (laugardag) munu þær kynna þessa plötu sem ber heitið „Manstu eftirþví" í Sjallanum. Það verður útgefandi plöt- unnar, Svavar Gests sem kynn- ir stúlkurnar og munu þær síð- an syngja nokkur lög af plöt- unni. Aðalsteinn Bergdal í hlutverki prófessorsins. Á sunnudagskvöldið hleypir Sjallinn á Akureyri af stað nýrri leiksýningu sem ber heitið „Prófessorinn“. Hér er um að ræða allnýstárlega sýn- ingu sem samanstendur af gríni, glensi, brellum og brögðum eins og segir í frétta- tilkynningu frá Sjallanum. Höfundur verksins er Baldur Georgsson, landskunnur háð- fugl hér á árum áður, en öll hlut- verkin eru í höndum Aðalsteins Bergdal og Lilju Guðrúnar Þorvaldsdóttur. Ætlunin er að „Prófessorinn“ verði á dagskrá öll fimmtudags- og sunnudagskvöld í ágúst og jafnvel oftar ef þurfa þykir. Sýn- ingin byggist á brelluþáttum töframanns (Aðalsteinn Bergdal) sem segir sögur og sannar þær stærðfræðilega á töflu. Prófessorinn gerir þó meira en segja stærðfræðilegar sögur því áhorfendur fá einnig að fylgjast með samskiptum hans við heimilishjálpina, eig- inkonuna og dótturina en Lilja Guðrún sér um að túlka þessar persónur. Þetta er tilraun af hálfu for- ráðamanna Sjallans til að lífga upp á stemmninguna í bænum og vonandi kunna bæjarbúar og aðrir vel að meta. Sýndar telknlngar af íbúðum fyrír aldraða I kvöld verður opnuð i íþróttaskemmunni, sýning á teikningum á húsnæði fyrir aldraða. Bæði er um að ræða húsnæði sem búið er að taka í notkun víðsvegar um landið, eða er í smíðum. Alls eru það 17 aðilar sem eiga teikningar á sýning- unni, flestir úr Reykjavík og af suðurlandinu. Sýning þessi er fengin hingað úr Reykjavík, þar sem hún var haldin hjá Bygg- ingaþjónustunni. Við opnunina verða haldin stutt erindi og fimmtudagskvöldið verður „kvöld gamla fólksins,“ en þá mun m.a. aldraður maður halda erindi. Annars er sýningin opin milli klukkan 5 og 10 virka daga og milli 10 og 12 á laugardögum og stendur til næstkomandi föstudags. AR ALDRAÐRA Arbók Akureyrar 1981 er komin út Hjá Bókaforlagi Odds Björnssonar er nýútkomin Árbók Akureyrar fyrir árið 1981 og er það annar árgangur bókarinnar. Árbók Akureyr- ar er 216 blaðsíður og mikill fjöldi Ijósmynda er í bókinni, alls yfir eitt hundrað myndir. Ritstjóri bókarinnar er Guð- brandur Magnússon blaða- maður. í Árbókinni eru fréttir sem tengjast Akureyri raktar í tíma- röð, en einnig eru í bókinni greinar um ýmis málefni sem hátt bar á árinu. Þar eru m.a. greinar um verkmenntaskóla. fjallað er um launadeilu fóstra við bæjaryfirvöld, greint er frá undirbúningi kvennaframboðs- ins, sagt frá biskupskosningu séra Péturs Sigurgeirssonar og prestskosningum sem fylgdu í kjölfarið. í kafla um atvinnulífið er greint frá rekstri Slippstöðv- arinnar, skýrsla um sjávar- útvegsfyrirtæki í bænum, vikið er að verslunarmálum, iðnaði og sérstök grein er um samvinnu- hreyfinguna. f menningarkafl- anum er t.d. sagt frá tilraun á út- gáfu ópólitísks fréttablaðs, undirbúningi þess að stofna úti- bú Ríkisútvarpsins á Akureyri, taldar eru upp allar bækur sem út komu á Akureyri, leikdómur séra Bolla Gústavssonar í Lauf- ási um Jómfrú Ragnheiði er þarna, yfirlit myndlistarsýninga og tónleika. Sérstakur kafli er um íþróttir þar sem vikið er að flestum greinum. Einnig eru greinar um hestamennsku, bridge og frímerkjasöfnun. Lát- inna Akureyringa er getið og fleira sem of langt mál yrði upp að telja. Þeir sem þess óska geta pant- að Árbók Ákureyrar frá Bóka- forlagi Odds Björnssonar á Ak- ureyri. 33,júlM982~PAGUR^.11

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.