Dagur - 23.07.1982, Blaðsíða 12
Akureyri, föstudagur 23. júlí 1982
----------------BAUTINN - SMIÐJAN AUGLYSA:-------------------------
Framreiðum í neðri sal Bautans, bæði í hádeginu og á kvöldin salatbar. í honum eru 13 teg.
afgrænmeti, 3 teg. af „dressing", ásamt 3-4 teg. afsérbökuðum brauðum, sem ekki
eru seld annars staðar, en þau eru bökuð afBrauðgerð Kr. Jonssonar.
Er salatbarinn bæði seldursem sérrétturog fylgirþá súpa og kaffi og kostarkr. 55,00.
Einnig getur hann fylgt öðrum réttum og kostar hann þá kr. 20,00.
Úr
gömluin
Degi
1961
Ær slá met
8. febrúar. Þær slá öll met, ærnar í Hrísey, fimmtíu eru
bornar eða komnar fast að burði. Annað en gaman að
fóðra lambfé í húsi frá áramótum fram á vor.
ÚA á hausinn?
11. febrúar. Togaraútgerðin á hangandi hári. Aflaleysi
og erfiður fjárhagur Útgerðarfélags Akureyrar hf. — Horfir
nú til vandræða. Togararnir hafa aðeins landað einu sinni
hver, frá áramótum. Beðið eftir nýjum lánum.
Alltaf að brenna
12. apríl. Eldsvoðar á Akureyri. Tvö hús stórskemmd af
eldi. Annað er það er kennt er við BSA, skemmdist nokkuð
mikið á efri hæð og risi, en er talið viðgerðarhæft. Tveim
tímum síðar var kviknað í Aðalstræti 14 og eldurinn var
það megnaður að ekki tókst að kæfa hann fyrr en húsið var
allt brunnið að mestu og er talið ónýtt.
Handritin héim
26. apríl. Samið hefur verið um heimflutning meginhluta
þjóðardýrgripa okkar. Danska stjórnin lagði í gærmorgun
fram frumvarp á danska þinginu um afhendingu 1949 is-
lenskra fornhandrita úr söfnum í Höfn.
Tvöfaldur 17. júní
21. júní. Tveir 17. júní hátíðisdagar á Akureyri. Illviðri
gerðu hátíðahöldin endaslepp á laugardaginn, en á
sunnudagskvöldið var fjölmennt á Ráðhústorgi og
skemmtidagskráin tæmd.
Lítið um síld
28. júní. Síldaraflinn fremur lítill. En mest af síldinni er
saltað — 21 þús. tunnur veiddust í fyrrinótt. - Slæmt veður
í miðunum.
Norðlensk fegurð
28 júní. Fegurðasamkeppni á Akureyri. Keppendur voru
t.iu á góðum aldri og sáu sjálfir um undirbúning, allir á
aldrinum 6-10 ára.
Gos
28. október. Stórkostlegt hraungos í Öskju. Hraun-
straumurinn lokar Öskjuopi, eldglæringar og 200 metra
glóandi gossúlur, glóandi björg voru greinileg í 30 þúsund
feta hæð í gær.
Vér mótmælum . ..
8. nóvember. Mótmæli gegn kjarnorkuvopnum. Fundur
Akureyrardeildar MFÍK mótmælir framleiðslu og notkun
kjarnorkuvopna sem og annarra vopna. Og harmar fund-
urinn jafnframt að stórveldin skuli enn á ný hafa tekið upp
tilraunir með þessi skelfilegu vopn.
Kornrækt
15. nóvember. Fyrsta kornræktarfélagið stofnað. Þing-
eyskir bændur eru að brjóta 80 ha lands á Einarsstöðum
og Öxará til kornræktar. Mest verður um byggrækt.
Togari tekinn
22. nóvember. Varðskipið Albert tók breskan togara
fyrir ólöglegar veiðar, og varð að skjóta nokkrum skotum
að togaranum áður en hann lét sig. Skipstjóri togarans var
dæmdur í sekt og fangavist að auki.
Þarf náttúrulega
fyrst að
koma mér fvrir“
_. _ _ __
Rætt við Stefán JónBjamason
nýráðlnn bæjarstjóra á Dalvík
Nýlega var Stefán Jón Bjarna-
son ráðinn bæjarstjóri á Dal-
vík og að því tilefni hafði Dag-
ur samband við hann á Húsa-
vík og innti hann eftir ætt og
uppruna:
„Ég er Húsvíkingui og hef
alla tíð átt heima hér. Ég er ætt-
aður úr dölunum hér fyrir
framan,“ sagði Stefán og þar
með var það mál afgreitt.
„Ég útskrifaðist frá Sam-
vinnuskóanum á Bifröst 1971 og
hafði fyrir þann tíma starfað
mest við verslunar- 6g verka-
mannastörf, lengst af hjá Kaup-
félaginu. Eftir að ég útskrifaðist
vann ég í 3 ár hjá verkalýðsfélag-
inu hérna en síðar vann ég við
afgreiðslu Kaupfélagsins. Síðan
1977 hef ég unnið á skirfstofu
Kaupfélagsins við ýmis störf og
jafnframt séð um bókhald
mjólkursamlagsins. “
- Hvað réði því að þú sóttir
um bæjarstjóra á Dalvík?
„Ég þekki mjög lítið á Dalvík.
En mér líst þannig á staðinn að
hann sé freistandi á margan hátt.
Bærinn er hæfilega stór og upp-
bygging atvinnulífsins með
ágætasta móti. Það sem mestu
réð var samt það að mig langaði
að prófa nýtt starf og jafnvel nýj-
an stað. Hugmyndin um bæjar-
stjórastarf varð þó ekki til fyrr
en ég rakst á auglýsinguna frá
Dalvíkingum. Mér fannst það
farið að nálgast síðustu forvöð
að skipta um starf. Ég er 33 ára
og það verður alltaf erfiðara að
rífa sig upp frá því sem maður er
bundinn, húsi, félögum ogöðru,
eftir því sem árin líða.“
- Hvenær hyggst þú flytja til
Dalvíkur?
„Það er ekki endanlega
ákveðið ennþá en ég reikna með
að það verði nálægt mánað-
armótum september-október.“
- Hvað verður fyrsta verkið
þitt á Dalvík?
„Það verður fyrsta verkið að
kynnast bænum, bæjarbúum og
þeim framkvæmdum sem þar
eru í gangi. Ég þarf náttúrulega
fyrst að koma mér fyrir. Það er
orðið það áliðið árs að fjárhags-
áætlun er löngu mótuð og verk-
efni ákveðin, þannig að ég kem
ekki til með að taka mikinn þátt
í áætlanagerð þetta árið. En
næsta ár mun ég væntanlega
hafa þar hönd í bagga og það
verður raunar ekki fyrr en þá að
ég byrja að takast á við framtíð-
ina.“
- Hvernig leggst svo framtíð-
in í þig?
„Hún leggst mjög vel í mig.
Mér líst mjög vel á Dalvík og
Dalvíkinga og ég vona bara að
ég eigi eftir að eiga þar gott sam-
starf við þá sem ég kem til með
að vinna með.
Stefán Jón Bjarnason
Ný sending af
sokkum, leistum
og sokkabuxum
í öllum regnbogans
litum fyrir alla
aldurshópa
Það besta
eródýrast