Dagur - 23.07.1982, Blaðsíða 5

Dagur - 23.07.1982, Blaðsíða 5
Þorvaldur Þorsteinsson rt*6* T>V-C S'SaíSSÍ' e< Þegar einhverjum verður það á að ganga á ljósastaur eru það oft fyrstu viðbrögðin að bölva staurnum, jafnvel sparka í hann og hljóta af verri meiðsl en ella. „Hvern fj . . . er þessi staurdj ... að þvælast hér . . .?“ er gjarna hvæst út á milli samanbitinna tannanna því tæpast hvarflar að viðkomandi að hann hafi gengið á staurinn. Nei, það er staurinn sem var fyrir honum. Það efast líklega enginn um að viðkomandi maður hefur ein- faldlega verið staurblindur og á sjálfur mesta sök á slysinu. Við hlæjum góðlátlega að vitleys- unni í honum og hugsum svo ekki meira um þetta því okkar bíður erill hversdagsins. En hvernig skyldi þessu nú vera var- ið hjá okkur sjálfum, einmitt í erli hversdagsins? Erum við ekki í stöðugri leit að sökudólgum þegar eitthvað er öðru vísi en við viljum hafa það? Þarf ekki alltaf að kenna einhverju eða ein- hverjum um þegar eitthvað ger- ist sem í okkar augum er óæski- legt, pirrandi eða hættulegt? Hvort sem orsökin er einföld eða ægiflókin, í mannlegu valdi eða ekki, þarf að finna persónu eða einhvern tiltekinn hóp manna sem ber ábyrgð, er söku- dólgurinn. Og sjaldnast tekst okkur að nefna eigin háæruverð- ugu sál í þvf sambandi. Sökin liggur alltaf hinum megin. Til að skýra mál mitt ögn bet- ur hef ég tínt til nokkur dæmi þessu viðkomandi, þ.e. dæmi um vinsæla sökudólga sem gott er að grípa til (eða í) þegar illa stendur á. Svo byrjað sé á stórmálunum, verðbólgunni og dýrtíðinni, er löngu vitað hverjir þar bera alla ábyrgð. Það eru þingmenn, ráð- herrar og aðrir ráðamenn þjóð- arinnar. Sjaldan eru aðrir kall- aðir til ábyrgðar og aldrei verð- um við til að líta í eigin barm. Stjórnarandstæðingar hverju sinni eru sannfærðir um fuíl- komna sök stjórnarinnar og stjórnarsinnar eru jafn vissir um að vandamálin séu frá árum fyrri stjórna. En stórmál finnast víðar: Þegar einhversstaðar geysar stríð er það helv . . . kommunum að kenna og um daginn las ég í Mogganum að friðarhreyfingin í Bandaríkjun- um væri líka helv . . . kommun- um að kenna! Og hér heima er af nógu að taka. Félagsleg vandamál eru sál- fræðingum og félagsfræðingum að kenna, einfaldlega vegna þess að engir hafa orðið til að benda á þau fyrr. Ef eitthvað fer úrskeiðis í verklegum framkvæmdum er það þessum vitlausu verkfræð- ingum að kenna. Þegar við álpumst ofan í holu á þjóðveginum er það vegagerð- inni í heild sinni að kenna. Öllum finnst ofsalega fyndið að kenna veðurfræðingum um bansetta ótíðina, en ekki er ég grunlaus um að margir geri það af heilum hug og sannfæringu. Ef barninu gengur illa í skóla er það undantekningalítið sök kennarans eða skólakerfisins. Kommarnir læðast líka inn í skólakerfið því það eru þeir sem bera ábyrgð á allri þessari and- styggilegu innrætingu sem felst í því ófyrirgefanlega framferði sumra kennara að kynna nem- endum sínum tvær hiiðar á sama málinu. Unglingar er síðan eini þjóð- félagshópurinn sem hefur á sam- viskunni flest afbrot sem þekkj- ast í þjóðfélaginu og örugglega öll innbrot. Ef ekki fæst stórt Væmó- Drulló súkkulaði handa feitu frúnni er afgreiðslustúlkan um- svifalaust dæmd sek og skömm- uð í samræmi við alvöru málsins. Maðurinn í fiskborðinu ber alla ábyrgð á því að ekki veiðist ýsa einn daginn og hlýtur hann að skammast sín fyrir vikið. Það er auðvitað ekki við neinn annan að sakast en blaðburðar- barnið þegar áskriftin hækkar á blaðinu eða forsíðan blotnar lít- illega í stórhríðinni. Það er símastúlkunni að kenna að forstjórinn er aldrei við. Það er dyravörðunum að kenna að þú gleymdir nafnskírt- eininu þínu heima. Þegar knattspyrnuleik er tap- að er sökin auðvitað dómarans. Og enginn efast um.að það eru bara stælar í bansettum flug- mönnunum þegar ekki er hægt að fljúga vegna veðurs. Þegar þú færð matareitrun í sólarlandaferðinni og verður auk þess vitni að -því að dregur fyrir sól í tvo daga er það að sjálfsögðu engum nema farar- stjóranum að kenna. Þegar okkur leiðist á fimmtu- dagskvöldi er það sjónvarpsins sök. Og þegar okkur hundleiðist yfirleitt er orsökin sú að allir hin- ir gera ekki neitt til að hafa ofan af fyrir okkur. Skyldi þetta vera mér að kenna? , 1 \ . fyksT stu r- WfiiljA/ ClU KoMA kast it) upp! itin s SLbWR SbK ' -i' M : 3 ! !/ m FU&L V/ m íí **, m ■*-PL G-AfrB t J Ir a r r FÓ'MA/ UPpHR. 0*!tí SrÚLkA 'AFoRia VFR5L- uaJ «> fŒM ReÍð ' rMAÐuft mtjfí. HklÁ> 51 tíonii) > ■ is! « i f P'LptíTb ■ / r o- W/AJOfi- Ae StúM FUM > • y i - - UPPtlR. REÍVug F/A- HALUG TÓa/aí JA/MA iAM' kcMfl V y maa/m R’ft ÍRL/lrJ Df WffA' i J Njcfö- ekkl frAMAU > í • MAMMS- A/ATM a/Ag * ► DAGDVELJA Bragi V. Bergmann Brandarar „Pétur, Pétur, vaknaðu maður!“ „Hva, hvað er það, Anna?" „Þú varst með martröð og veltir þér um á alla kanta og öskraðir: Sig- ríður, Sigríður. „Djöfuls þvæla er þetta, þetta var engin martröð. Þeg- ar ég er með martröð, þá öskra ég Anna, Anna!“ ☆ -jíf ☆ “Nú verður þú að flýta þér Gústa - annars náum við ekki í leikhúsið í tæka tíð, klukkan er orðin hálf átta.“ „Hálf átta? Af hverju sagðir þú mér þetta ekkifyrr...?“ „Elskan, fer það ekki illa með gar- dínurnar, ef ég reyki?“ spurði hann Sigrúnu sína. „Ó, Guðni, þú ert sá tillitssamasti maður sem ég þekki. Auðvitað fer það illa með gardlnurnar ef þú reyk- ir.“ „Ókey, taktu þær þá niður... Hann hafði verið giftur svo mörgum konum að hann hafði ekki tölu þar á. Að lokum gifti hann sig aftur einni af fyrrverandi konum sínum og hefði líklega aldrei uppgötvað það, ef hann hefði ekki þekkt aftur tengda- mömmuna... „Þau virðast vera mjög hamingju- samt par, Toni. Hann kyssir hana í hvert sinn sem hann fer út, og það jafnvel blossakossa úti á tröppum. Hvers vegna gerir þú það ekki?“ „Guð minn góður Sigga, svaraði Toni. - Ég þekki hana varla ennþá... ☆ ☆☆ Líkfylgdin silaðist áfram. Næst á eftir kistunni fór maður með hund í bandi og á eftir kom löng röð syrgj- enda. Maður sem átti leið hjá spurði hvað hafði gerst. - Hundurinn drap konuna hans, fékk hann að vita. Maðurinn gekk þá til hins syrgjandi eiginmanns og sagði: - Get ég fengið hundinn þinn lánaðan? Maðurinn benti aftur fy rir sig - farðu þá í röðina. ☆ ☆ ☆ - Ég sé eftir því að hafa gifst þér, sagði Jón. - Jæja, svaraði Magga, - Þú getur ekki sagt að það hafi verið ég sem elti þig. - Nei, nei, sagði Jón - Þú veist að gildran hleypur aldrei á eftir músinni en veiðir hana samt... ☆ ☆ ☆ - Hvort ætti ég að fara í loðkápuna eða þunnu poplínkápuna elskan? - 0, það skiptir ekki máli. Ég elska þig gegnum þykkt og þunnt... ☆ ☆☆ - Heyrðu elskan ... ég sá svo af- skaplega sætan lítinn hatt í bænum í dag ... - Jæja, settu hann þá upp og leyfðu mér að sjá ... • ☆☆☆ - Heldurðu að þú elskir mig, þegar ég verð orðin Ijót og hrukkótt? spurði Magga Jón sinn við við morg- unverðarborðið. - Að sjálfsögðu elskan, sagði Jón ... bak við dagblaðið ... ☆ ☆☆ í 25 löng ár vorum við konan mín, algjörlega hamingjusöm. - Þá kynntumst við. 23. júlí 1982 — DAGUR - 5

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.