Dagur - 23.07.1982, Blaðsíða 8
Þessi óvenjulega tilkynning hékk uppi á vegg í skálanum.
Ví'A S am k^’a-s f Wd
cu'íse
f/e
j. i
PJcmanu/y\ fitrna />ie
Izui;’
é
Sunnudagsbfltúrhestar slappa af yfir kaRisopa og léttu rabbi um veðrið.
Það er margt
að skoða
hingað. Gjarnan eru það fjöl-
skyldur frá Akureyri í sunnudags-
bíltúr sem stoppa hér og fá sér
kaffi. Einnig kemur hingað slang-
ur af ferðafólki lengra að, fólk
sem er í skoðunarferð um Eyja-
fjörðinn. Hinsvegar er hér lítið
um útlendinga. Þetta er ekki á
þeirra leið.
Hvaða staðir eru það sem helst
eru skoðunarverðir hér fremra?
- Það er algengt að fólk keyri
hring um Eyjafjörð en fari þá bara
fram að Möðruvöllum og þar yfir
brúna og fari ekki lengra frameft-
ir. Ég vil nú meina að þá sé mjög
mikið eftir að sjá af Eyjafirði þar
fyrir framan. Persónulega finnst
mér miklu fallegra að keyra
fremri hringinn, þ.e. fram að
brúnni hjá Vatnsenda. Þá erkom-
ið að Leyningshólunum sem
margir eru búnir að uppgötva
núna og tjalda þar gjarnan. Þar er
ákaflega fallegt og víða gott út-
sýni þegar keyrt er upp í Hólahól-
ana. Líka er möguleiki að fara
upp í Sölvadal og jafnvel upp á
Hólafjallið og þaðan er útsýni
gott yfir byggðina beggja megin.
Annars hef ég látið mér detta í
hug að gaman væri að gera veg
upp á öxlina fyrir ofan Steinhóla-
skála. Þaðan sést yfir allan Eyja-
fjörðinn eins og landabréf alveg
norður yfir Akureyri og Sval-
barðsströnd og alla sveitina hér
framan við. Eins og er þurfa menn
að labba svolítið til þess að sjá
þetta en það væri lítið fyrirtæki að
gera þarna troðning til þess að
hægt væri að komast þetta á bílum
og ég veit að margir myndu hafa
gaman að því að sjá þetta útsýni.
Vegurinn upp á Sprengisand ligg-
ur um hlaðið hjá okkur en hann er
bara opinn stuttan tíma hvert ár.
En þegar hann er. opinn er hér
töluverð umferð af fjallafólki,
bæði þeim sem eru að koma af
öræfunum og þeim sem eru á leið
upp. Þaðan er hægt að komast í
Laugarfell og þaðan í Skagafjörð
eða niður í Bárðardal og líka
suður. Já, það er margt að skoða í
Eyjafirðinum og kannski er
skemmtilegast bara að skoða
byggðina og búskapinn. Þetta er
nú eitt blómlegasta landbúnaðar-
hérað á íslandi og stórkostlegt að
líta heim að mörgum stórbýlun-
um. Eins eru fjöllin tignarleg og
þess virði að þau séu skoðuð. Og
það er alltaf að færast í vöxt að
fólk leggi leið sína þarna frameft-
ir.
- Paðereiginlegabaraíca. 3'/2
mánuð á sumri sem eitthvað er að
gera. Á öðrum tímum árs er þetta
bara fokk. Við verðum samt með
bensínsöluna opna allt árið þar
sem við erum eini aðilinn sem sel-
ur bensín fyrir byggðina hér
fremra. Það ernáttúrulega vanda-
mál hvað þetta kemur svona allt í
einu og eins það að þennan stutta
tíma á sumrin sem fólk kemur þá
kemur það langmest um helgar.
Auk okkar hjónanna vinnur dótt-
ir okkar hjá okkur og 14 ára stúlka
og um helgar bætum við annarri
við. Ef við myndum reikna okkur
fullt kaup myndi reksturinn ekki
bera sig. En það dugir. ekki að
leggjast með tærnar upp í loft og
þetta er þó skárra en það.
Hvaða fólk er það sem leggur
leið sína til ykkar?
- Að stærstum hluta eru það
Akureyringar sem leggja leið sína
— Rætt við Kristján Óskarsson í Steinhólaskála
Það hefur færst í vöxt að Akur-
eyringar noti helgarnar til bfl-
ferða út úr bænum og leggja þá
gjarnan leið sína um hinar
blómlegu byggðir Eyjafjarðar.
Má að nokkru líkja hringakstri
Akureyringa um Eyjafjörð við
Þingvallahringinn fyrir Reyk-
víkinga. Ef ekinn er fremri
hringurinn er tilvalið að koma
við í Steinhólaskála og þiggja
hressingu hjá hjónunum Krist-
jáni Oskarssyni og Helgu
Hermannsdóttur. Þar reka þau
söluskála, bensín- og olíuvöru-
sölu og selja auk þess kaffi og
brauð gestum og gangandi frá 9
á morgnana til 11.30 á kvöldin.
Dagur átti spjall við Kristján og
spurði fyrst hvernig reksturinn
gengi.
Hjónin Kristján Óskarsson og Helga Hermannsdóttir stálu sér tíma frá ðnnunum til að stilla sér upp í myndatöku.
í Eyjafírömum
8 - DAGUR - 23. júlí 1982
... fv'j.OAC -• S02Í ?5m-{ ■'•ía