Dagur - 05.08.1982, Blaðsíða 1
MIKIÐ
ÚRVAL AF
SKARTGRIPA
SKRÍNUM
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
65. árgangur
Akureyri, flmmtudagur 5. ágúst 1982
83. tölublað
Úr Hljóðaklettum í Jökulsárgljúfri. Mynd: H.Sv.
Góð verslunarmannahelgi
Lögreglumönnum á Norö-
Austurlandi bar saman um það
er við ræddum við þá eftir
verslunarmannahelgina að
helgin hafi verið mjög róleg.
Umferðin gekk yfir höfuð vel
og ekkert alvarlegt umferðar-
slys átti sér stað.
Að sögn lögreglunnar á Húsa-
vík gekk Laugahátíð mjög vel.
Þar voru milli 2 og 3 þúsund
manns samankomnir og skemmtu
sér hið vesta í góðu veðri. Ölvun
var nokkur eins og alltaf er á há-
tíðum sem þessum, em menn virt-
ust sammála um það samt sem
áður að hátíðin hafi farið mjög vel
fram og hafi verið ein besta
Laugahátíð sem haldin hefur
verið.
Árekstur varð á Tjörnesi á
sunnudag. Þar rákust saman tvær
bifreiðar en meiðsli urðu ekki
alvarleg á fólki þótt nokkrir væru
fluttir á sjúkrahús. Bílarnir
skemmdust hinsvegar mikið.
Þá var bíl ekið útaf veginum
sunnan við Skjólbrekku í Mý-
vatnssveit en engin meiðsli urðu.
Þess má að lokum geta að frá því
um miðja síðustu viku og þar til á
mánudag tók lögreglan á Húsavík
8 ökumenn grunaða um ölvun við
akstur.
Þrír ökumenn voru teknir ölv-
aðir við akstur á Akureyri um
helgina, en annars var fremur ró-
legt hjá Akureyrarlögreglunni.
Þó varð árekstur við Krossastaða-
brú á Þelamörk en skemmdir
urðu þar litlar og meiðsli sömu-
leiðis. Þá kom upp eldur í bifreið
við Lundargötu en hún skemmd-
ist lítið.
Þegar á heildina er litið er því
óhætt að segja að verslunar-
mannahelgin hafi verið góð. Um-
ferðin gekk yfirleitt mjög vel, lítið
var um hraðakstur og er þessi
helgi ein rólegasta verslunarm-
annahelgi í langan tíma.
Borinn sat fastur
í Ólafsfjarðará
Borínn Narfi er nú að bora holu
fyrir Hitaveitu Ólafsfjarðar.
Fyrirhugað er að holan verði
1200-1500 metra djúp og áætl-
aður kostnaður um kr.
3.000.000,00
Við komu borsins hingað voru
Ólafsfirðingar minntir rækilega á
það slæma ástand sem hér er í
samgöngumálum og er þá átt við
að engin brú, sem þvf nafni getur
nefnst er yfir Fjarðará og verður
því að fara með alla stærri bíla og
tæki yfir ána á vaði. í þetta um-
rædda skipti sat dráttarbíllinn
sem flutti bormastrið fastur í ánni
og kostaði mikinn tíma og fjár-
muni að ná honum upp.
Einnig hafa komið fyrir hér um-
ferðaróhöpp sem hægt er að rekja
beint til þessa ástands, þ.e. þegar
bílar koma hálfbremsulausir upp
úr ánni og beint út í bæjarumferð-
ina, auk þess sem margur vöru-
flutninga- og rútubílstjórinn hef-
ur stórskemmt bílinn við að troð-
ast í gegn um þá brú sem fyrir er.
Ástand þetta er óþolandi og
verður að krefjast þess að úr verði
bætt sem allra fyrst.
J.E.F.
Borinn fastur við Ólafsfjarðará.
Ljósm: J.K.
Hörkuhuaur
er í Sial-
firðinaum
„Segja má að bærinn hatl
hreinlega tæmst um verslun-
armannahelgina. Flestir ung-
lingarnir fóru ■ Húnaver. Þeir
fóru nánast beint úr rútunni á
mánudagsmorgun til vinnu í
frystihúsinu, en megnið af
starfsfólki frystihússins er ung-
lingar um þessar mundir þar
sem fullorðna fólkið er í sumar-
fríi. Óvissan vegna verkfalla
varð til þess að fólk frestaði
sumarfríum sínum og þegar
þau mál leystust síðan þyrptust
menn í sumarleyfi nær allir í
einu. Þetta er bölvanlegt fyrir
húsin því þó að unglingarnir
geri sitt besta eru þeir óvanir og
fiskur hefur verið nægur,“
sagði Sveinn Björnsson, frétta-
ritari Dags á Siglufirði.
Sigluvík landaði 130 tonnum á
föstudag og Stálvík kom á mánu-
dag með 80 tonn. Þá landaði Haf-
þór vikuna fyrir verslunarmanna-
helgina 107 tonnum eftir viku úti-
vist og var það síðasta ferð skips-
ins en það var leigt Siglfirðingum
um tveggja mánaða skeið. Fer
það nú til hafrannsókna á ný en á
þessum tveimur mánuðum fékk
það 700 tonn. Ekki hefur verið
hægt að anna eftirspurn eftir lönd-
un og á mánudag varð að neita
Runólfi frá Grundarfirði um
löndum á 140 tonnum og einnig
þurfti að neita honum um löndun
í vikunni þar áður. Sama vanda-
málið mun vera uppi á teningnum
á heimaslóðum Runólfs, sumarfrí
starfsmanna.
„Almennt er gott hljóð í fólki
en menn eru þó farnir að kvíða
haustinu. Aflatregða hefur verið
hjá smærri bátum og nánast ör-
deyða áhandfæri. Þrírstórirbátar
ætla á línu með haustinu og
mönnum líst ekki á ástandið á
heimaslóð miðað við það sem
verið hefur. Hins vegar hafa
stærri handfærabátar fengið ágæt-
an afla þegar gefið hefur við
Grímsey og Kolbeinsey. T.d.
kom einn með 7 tonn eftir þrjá
daga. Þó er eins og aðeins hafi
glæðst á heimaslóð síðustu dag-
ana og ætla menn að hlýindin hafi
haft þar einhver áhrif á.
Hafnarframkvæmdir hafa stað-
ið yfir. Bæði hefur verið unnið
við gerð smábátahafnar og einnig
hefur verið gerður grjótgarður í
vestur frá togarabryggjunni. Með
honum voru lokaðar inni gamlar
bryggjur og síðan verður fyllt yfir
þær. í framtíðinni verður þetta
viðlegukantur.
Þegar á heildina er litið má
segja að hörkuhugur sé í Siglfirð-
ingum um þessar mundir og cngin
uppgjöf í mönnum þrátt fyrir
ástand þjóðarbúsins,“ sagði
Sveinn Björnsson að lokum.
Opinber gjöld
hækkuðu
um 63.4%
milli
Álagningu opinberra gjalda í
Norðurlandskjördæmi eystra
lauk um mánaðamótin og hefur
skrá um opinber gjöld á árinu
1982 verið lögð fram. Sam-
kvæmt álagningarskránni er
heildarfjárhæð álagðra gjalda í
umdæminu kr. 400.758.257,
eða ríflega 400 milljónir króna,
og gjaldendur eru 19.993.
Heildarfjárhæð álagðra gjalda
1981 var kr. 245.173.814 og
nemur meðaltalshækkunin
milli ára 63,4%.
Hæstu einstaklingar í umdæm-
inu bera samtals gjöld sem hér
segir, en þeir eru allir búsettir á
Akureyri:
Leó F. Sigurðsson, Oddeyrar-
götu 5 kr. 381.624.-, Arnór
ara
Karlsson, Furulundi 15h kr.
365.689.-, Gauti Arnþórsson.
Hjarðarlundi 11 kr. 347.998.-,
Magnús Stefánsson, Helgamagra-
stræti 23 kr. 330.885.-, Teitur
Jónsson, Byggðavegi 123 kr.
321.647.-, Baldur Jónsson, Goða-
byggð 9 kr. 305.514.-.
Hæstu félög í umdæminu bera
samtals gjöld sem hér segir:
Kaupfélag Eyfirðinga, Akur-
eyri kr. 13,336,480.-, Útgerðar-
félag Akureyringa hf. kr.
3.453.317.-, Verksmiðjur SÍS,
Akureyri kr. 3.276.015.-, Slipp-
stöðin hf., Akureyri kr.
2.285.636.-, Fiskiðjusamlag
Húsavíkur, Húsavík kr.
2.253.046.-, Kaupfélag Þingey-
inga, Húsavík kr. 2.115.505.-.