Dagur - 05.08.1982, Blaðsíða 5
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
RITSTJÓRNARSlMAR: 24166 OG 24167
SlMI AUGLÝSINGADEILDAR OG AFGREIÐSLU: 24222
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARM.: HERMANN SVEINBJÖRNSSON
BLAÐAMENN: ÁSKELL ÞÓRISSON OG GYLFI KRISTJÁNSSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: JÓHANNES MIKAELSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT H.F.
Aukin samskipti
við Grænlendinga
Fjöldi íslendinga og annnarra Norðurlanda-
þjóða fagna því nú með Grænlendingum að
eitt þúsund ár eru liðin frá landnámi Eiríks
rauða. Kynni og samskipti norrænna manna
og íbúa landsins sem Eiríkur kallaði Grænland
urðu hvorki ýkja löng né allt of góð. Þó er full
ástæða til að fagna með Grænlendingum þess-
um tímamótum í sögu þeirra, ekki hvað síst
með það í huga að koma á varanlegri kynnum
við þessa næstu nágranna okkar, heldur en
urðu í kjölfar landnámsins.
Samskipti íslendinga og Grænlendinga hafa
farið vaxandi á síðustu árum bæði á sviði
atvinnulífs og menningar. Fjárstofn Græn-
lendinga er kominn frá íslandi og hingað hafa
ungir Grænlendingar sótt þekkingu í skóla og
á heimili, m.a. varðandi landbúnað og fisk-
vinnslu.
Sem betur fer virðist nú vera almennur
skilningur á því að Grænlendingar og íslend-
ingar hafi náin og góð samskipti. Hagsmuna-
málin eru að mörgu leyti sameiginleg og
vandamálin samskonar. Báðar þjóðirnar þurfa
t.d. að standa á rétti sínum til að vernda fiski-
stofnana í hafinu umhverfis löndin.
Grænlendingar standa nú í virðingarverðri
baráttu fyrir því að ráða sínum málum meira
en verið hefur. íslendingar þekkja og ættu að
skilja þessa afstöðu þeirra eftir að hafa sjálfir
gengið í gegn um svipaða baráttu. Enn er bar-
ist um auðlindir hafsins og fyrir þjóðir eins og
íslendinga og Grænlendinga er það ekki bar-
átta um fisk á diskinn í eitt mál, eins og ætla
mætti að væri hjá stórþjóðum sem hafa úr
fjölmörgu að spila, heldur lifibrauð um
ókomna framtíð.
Smáþjóðir á borð við íslendinga og Græn-
lendinga þurfa á samstöðu að halda. Vonandi
verða þessi hátíðahöld til þess að auka kynni
og skilning milli þessara þjóða.
Að greiða fyrir óhófið
Þjóðhagsstofnun spáir nú 60% verðbólgu á ár-
inu verði ekkert gert til að bragðst við þeirri
öfugþróun sem orðin er í efnahagsmálum
þjóðarinnar. Með sama áframhaldi gæti verð-
bólgan verið orðin 75—80% um mitt næsta ár,
sem hefði í för með sér verulega hættu fyrir
atvinnulíf landsmanna, sem þegar á í erfiðleik-
um.
Ljóst er að til róttækra aðgerða verður að
grípa á næstunni. Allt verður að gera sem unnt
er til að viðhalda fullri atvinnu. Gífurlegur afla-
samdráttur, langvarandi lægð í hagvexti og al-
þjóðaviðskiptum og óhagstæð þróun útflutn-
ingstekna samfara aukinni neyslu valda veru-
legum halla í viðskiptajöfnuði Islands við um-
heiminn. Bregðast verður við með aðhaldi í
peningamálum, en jafnframt verður að gera
hvaðeina til að stórauka framleiðslu og fram-
leiðni. Nú þurfum við að fara að greiða fyrir
óhófið.
Mikill ferðamannastraumur
Myndir: H.Sv. Sigurgeir ísaksson er útibússtjóri í Ásbyrgi.
í Ásbyrgi og Jökulsárgljúfur
„Ferðamannastraumurinn hef-
ur verið mjög mikill í sumar.
Hann byrjaði fremur seint,
einkum hvað varðar útlending-
ana, og hefur hræðsla við verk-
föll vafalítið haft þar töluverð
áhrif,“ sagði Sigurgeir ísaks-
son, útibússtjóri Kaupfélags
Norður-Þingeyina í Asbyrgi,
en skammt frá innkeyrslunni í
Byrgið er rekin glæsileg verslun
sem tekin var í notkun árið
1974.
„Verslun hér hefur verið sífellt
vaxandi síðan útibúið var tekið í
notkun. Þetta hefur vaxið svo ört
að umsvifin eru að sprengja allt
utan af sér. Það er orðið mjög
knýjandi að bæta hér við,“ sagði
Sigurgeir. Yfir háannatímann á
sumrin skapast oft örtröð í versl-
uninni um helgar. Þá er verslunin
opin frá klukkan 9 á morgnana til
klukkan 11 á kvöldin. Unnin er
vaktavinna og 9 manns hafa þarna
atvinnu, auk útibússtjórans. Allt
þetta fólk er úr Kelduhverfi og
Öxarfirði og skapar verslunin
þannig töluverða atvinnu á
sumrin. Yfir vetrartímann er
verslunin rekin þannig að opið er
frá klukkan 1-6 e.h. fimm daga
vikunnar.
Á sumrin eru það einkum
ferðamenn sem dveljast í Ásbyrgi
og í Vesturdal við Hljóðakletta
sem notfæra sér þjónustu verslun-
arinnar í Ásbyrgi. Um verslun-
armannahelgina var mjög fjöl-
mennt á tjaldstæðunum í Asbyrgi
og Hljóðaklettum, enda frábærir
útivistarstaðir. Óvíða á landinu er
fegurra en í Hljóðaklettum og
Hólmatungunum, þótt oftar sé
það Ásbyrgi sem dregur að, lík-
lega fyrst og fremst fyrir það að
fleiri þekkja til staðarins en hinna
tveggja. Til skamms tíma voru
ekki einu sinni til póstkort af Ás-
byrgi og þjóðgarðinum í Jökuls-
árgljúfrum. Sigurgeir fékk hins
vegar Sólarfilmu til að annast
gerð slíkra korta, sem ekki fékkst
nema pöntuð væri 8 þúsund ein-
tök. Það kom ekki að sök því þau
hafa selst vel. Markaður reyndist
sem sagt vera fyrir þessa vöru.
Nú er verið að byggja þjónustu-
miðstöð í mynni Asbyrgis, svip-
aða og er í Skaftafelli. Grunnur er
kominn að tveimur húsum og
Mikið var að gera í versluninni í Asbyrgi um verslunarmannahelgina.
Séð norður úr Ásbyrgi í átt að bænum Ási og útibúi K.N.Þ.
búið er að slétta og rækta tjald-
stæði. Verslun og sú þjónusta sem
verið hefur í Ásbyrgisversluninni
verður hins vegar áfram þar, en í
þjónustumiðstöðinni verður m.a.
hreinlætisaðstaða, upplýs-
ingaþjónusta og sitthvað fleira.
Stutt verður frá þjónustumiðstöð-
inni í verslunina, en þar er reynd-
ar vísir að veitingastað, þó enn sé
aðeins hægt að fá kaffi og svokall-
aðan sjoppumat og borðin til að
sitja við séu ekki nema þrjú
talsins.
Að sögn Sigurgeirs eru nú fyrir-
hugaðar framkvæmdir við vatns-
veitu sem nýtist barnaheimilinu
að Ástjörn, kaupfélaginu, íbúð-
arhúsinu að Ási og íbúðarhúsi
Skógræktar ríkisins og væntan-
lega fleiri húsum á svæðinu. Nú er
þarna sjálfrennandi vatn sem ekki
nægir því öllu. Vatnið í nýju
vatnsveituna verður tekið úr gili
sunnan og vestan við Ás og hefur
Haraldur Árnason, vatnsvirkja-
ráðunautur Búnaðarfélags
íslands, hannað vatnsveituna.
Sigurgeir sagði að vegakerfið í
byggð á þessum slóðum væri orð-
ið mjög þokkalegt, en hins vegar
hefðu ferðamenn kvartað sáran
undan veginum um Hólssand, en
hann liggur sem kunnugt er að
Dettifossi. Engu fjármagni hefur
verið veitt til vegabóta þar á síð-
ustu árum og vegna óvenjulegra
þurrka í júní og júlí hefur ekki
verið hægt að hefla hann. Vegna
þessa mikla þurrkasumars eru hey
í lágmarki í Kelduhverfi en nýting
þetta góð. Menn eru vel á
komnir með heyskap og sumir
búnir, að sögn Sigurgeirs ísaks-
sonar.
og
Amór með KA
— gegn Manchester United í kvöld
Leikmenn 1. deildarliðs KA í
knattspyrnu fá erfiða and-
stæðinga til að glíma við í
kvöld, en það eru engir aðrir
en hinir heimsfrægu snillingar
enska félagsins, Manchester
Unitcd.
Leikurinn í kvöld hefst kl. 20
og Manchester United skartar
öllum sínum þekktustu stjörn-
um í þessum leik. Þar er, eins og
þeir vita sem fylgjst með knatt-
spyrnu, landsliðsmaður í nær
hverri stöðu og ekki heiglum
hent að komast í þetta lið.
Tímabil enskra knattspyrnu-
manna er nú að hefjast innan
skamms og því mætir félagið í
þessa æfingaferð til íslánds með
allt sitt besta og menn eru að
berjast um að vinna sér fast sæti í
liðinu. Það er því hægt að ganga
út frá því sem vísu að leikmenn
United munu ekki gefa neitt
eftir, og hætt er við að róðurinn
geti orðið þungur hjá KA-
mönnum.
Af leikmönum United, sem
leika á Akureyrarvelli í kvöld,
má nefna markvörðinn Gary
Bailey, ensku landsliðsmennina
Steve Coppell, Ray Wilkins,
Bryan Robson og Frank Staple-
ton, skoska landsliðsmanninn
Gordon McQueen og n-írska
piltinn Norman Whitside. Hann
lék í úrslitum HM með n-írska
landsliðinu á dögunum og er
yngsti leikmaðurinn sem leikið
hefur í úrslitum HM. Geysilega
efnilegur 17 ára piltur sem er
sagður minna á snillinginn Ge-
orge Best.
Það verður því sannkallaður
„stjörnufans“ á vellinum á Ak-
ureyri í kvöld og á ferðinni eru
leikmenn sem ekki gefst tæki-
Annað kvöld fer fram einn
leikur í 2. deild íslandsmóts-
ins í knattspyrnu á Akureyri,
og eigast þar við tvö þeirra
liða sem éru í baráttunni um
sæti 1. í deildinni að ári, Þór
og FH, en þessi lið féllu ein-
mitt úr 1. deild á síðasta
keppnistímabili.
Leikurinn í kvöld er geysilega
þýðingamikill fyrir bæði félögin,
enda má segja að nú sé hvert stig
færi til að sjá f leik hér aftur.
Varla þarf því að hvetja fólk til
að sleppa ekki þessu einstaka
tækifæri og vissara mun að mæta
tímanlega til að ná í gott sæti eða
stæði.
Eins og fram kemur í frétt á bak-
síðu mun George Best leika með
KA gegn sínu gamla félagi,
Manchester United í kvöld.
sem vinnst virði þyngdar sinnar í
gulli. Það lið sem tapar annað
kvöld missir um leið mikið af
möguleikum sínum að komast í
1. deildina og það lið sem sigrar
færist nær takmarkinu.
Það ætti því ekki að þurfa að
hvetja fólk til að mæta á völlinn
og sjá þennan leik, og hvetja um
leið Þórsliðið í þessari þýðinga-
miklu viðureign.
Stórleikur
í 2. deild
Jaðarsmótið í golfi:
Páll varði titilinn
AIIs mættu 114 kylfingar til
leiks á Jaðarsvellinum á Ak-
ureyri um helgina, og tóku
þátt í þremur mótum sem
haldin voru. Þetta voru Jað-
arsmótið, Ragnarsmótið, og
Stigamót Golfsambands
Islands.
Keppendur í Jaðarsmótinu
voru 100 talsins, og komu þeir
víðsvegar að af landinu. Leiknar
voru 36 holur með forgjöf á 18
holu vellinum, og er óhætt að
segja að margir hafi þar lent í
miklu basli með kúluna sína.
Úrslitin urðu þau að Páll
Ketilsson frá Golfklúbbi Suður-
nesja varði titil sinn frá í fyrra.
Hann lék á 149 höggum, Sigurð-
ur Pétursson GR var á 151 höggi
og Magnús Ingi Stefánsson NK
var á 146 höggum og Gunnar
Þórðarson GA á 146 höggum.
Ragnarsmótið er opið
kvennamót en verðlaunin eru
gefin af Ragnari Lár. í það mót
mættu 14 konur og urðu úrslit
þau að Þórdís Geirsdótir GK
sigraði á 183 höggum, Ásgerður
Sverrisdóttir GR var önnur á
185 höggum og Kristín Pálsdótt-
ir GK á 86 höggum. í forgjafar-
keppninni sigraði Sigríður B.
Ólafsdóttir GH á 153 höggum
nettó, Jónína Pálsdóttir GA var
á 157 og Inga Magnúsdóttir GA
þriðja á 165.
Þessi tvö mót voru leikin á
laugardag og sunnudag. Á
mánudeginum héldu síðan
meistaraflokksmennirnir sem
höfðu tekið þátt í Jaðarsmótinu
áfram og léku 36 holur til viðbót-
ar á gamla hluta Jaðarsvallarins.
Var hann lengdur eins og hægt
Páll Ketilsson undirbýr síðasta púttið. Ljósm: K.G.A.
var og gerður sem erfiðastur í
alla staði. 36 holurnar úr Jaðars-
mótinu töldust með í þessari
keppni og þegar leiknar höfðu
verið 36 til viðbótar hafði
Sigurður Pétursson GR sigrað,
lék á 306 höggum alls. Páll
Ketilsson GS á 308, Magnús
Jónsson GS á 310, Björgvin Þor-
steinsson GA á 312, Óskar
Sæmundsson GR á 315, Hannes
Eyvindsson GR á 318, Hilmar
Björgvinsson GS á 321, Geir
Svavarsson GR á 322 og Ragnar
Ólafsson GR og Magnús Ingi
Stefánsson NK á 323 höggum.
Þessir kylfingar hlutu allir stig til
landsliðsins.
4 - DAGUR - 5. ágúst 1982
5. ágúst 1982 - DAGUR - 5