Dagur - 05.08.1982, Side 6
,;Smáauélvsinéarm*i.
Húsnæói
Tvítug stúlka (iönskólanemi) ósk-
ar eftir aö taka á leigu 1 —2ja herb.
íbúö eða forstofuherbergi með aö-
gang aö eldhúsi frá 1. september
nk. helst sem næst Iðnskólanum.
Fyrirframgreiösla. Upplýsingar í
síma21810eftirkl. 19.
2 systur nemendur í M.A. vantar
litla íbúö næsta vetur. Vinsamleg-
ast hringiö i síma 61553.
Til leigu 4ra herbergja íbúð við
Hjallalund, laus um næstu mán-
aðamót. Upplýsingar í síma
21349.
Ung stúlka óskar eftir lítilli íbúö.
Helst í Glerárhverfi. Upplýsingar í
síma 24421.
Herbergi. Vantar gott herbergi
sem fyrst. Góöri umgengni og ein-
hverri fyrirframgreiðslu heitið. Upp-
lýsingar í síma 22789 eftir kl. 17.
4ra herb. íbúð til leigu. Getur ver-
iö laus i byrjun september. Fyrir-
framgreiðsla. Upplýsingar í síma
23906.
Vil taka á leigu góða 3ja herbergja
íbúö eða stærri. Upplýsingar í
síma 25771.
Atvjnna
22ja ára gamla stúlku vantar
atvinnu í 1 -2 mánuöi. Upplýsingar í
síma 21392.
Tækniteiknari. Vanur tækniteikn-
ari óskar eftir atvinnu helst 50-
70%. Upplýsingar í síma 23450
alla daga frá kl. 9-18.
fljl lll
Tapast hefur svartur köttur með
hvítt trýni, hvítar lappir og rauða
hálsól, merktur Jenni Grundar-
geröi. Ef einhver verður hans var,
látiö vita í síma 24848 á kvöldin.
Tapað. Ljósbrúnt peningaveski
tapaðist á horni Helgamagrastræt-
is og Bjarkarstígs laugardags-
kvöldiö 24. júlí sl. Finnandi vin-
samlegast hringið í síma 22979.
Tapast hefur hvítur Poodle hund-
ur frá Furulundi. Finnandi vinsam-
legast hringið í síma 22060.
Til sölu lítið notað Raleigh telpna-
reiðhjól. Upplýsingar í síma
23892.
Hjónarúm. Til sölu er 7 mánaða
gamalt rúm með útvarpi, klukku og
náttborðum. Upplýsingar að Greni-
völlum 20 efri hæð eftir kl. 20 á
föstudag.
Tíl sölu Kawasaki GP 1100 og
Yamaha YZ 250 (mótorkross) ár-
gerðir 1981. Lítið ekin, sem ný.
Upplýsingar í síma 96-31223 eftir
kl. 19.
Gott hey til sölu. Upplýsingar f
síma 21957 eftirkl. 19.
Til sölu: Nýtt ónotað Kawasaki KX
250 árgerð 1981, með Ijósum.
Uppl. í síma 41353 milli kl. 12 og
13 og 17 og 20.
Hraðbátur. Til sölu 16 feta Shet-
land hraðbátur með 90 hestafla
Chrysler utanborðsmótor, vagn til
að flytja bátinn á og talstöð fylgja.
Upplýsingar gefur Aðalsteinn í
síma 25434.
Myndsegulband. Nýtt myndseg-
ulband, SABA 601D, til sölu. VHS
kerfi. Verð kr. 18.000,- (út úr búð
kr. 21.960.-). Upplýsingar í síma
22278.
Til sölu Perkings diselvél með
gírkassa. Upplýsingar í Hólma-
nesinu SU-1 í Slippstöðinni hf. Ak-
ureyri.
Til sölu fólksbflakerra. Upplýs-
ingar í síma21277.
Frá Bfla- og húsmunamiðlun-
inni. Til sölu 4 ný sumardekk
155x13. Eldhúsborð og stólar,
kollar, borðstofuborð og stólar,
fataskápar, blómaborð, sófaborð,
símaborð, skrifborð, svefnsófar 1
og 2ja manna, sófasett, hjónarúm,
frystikistur. Bíla- og húsmunamiðl-
unin, Strandgötu 23, sími 23912.
Bifreióir
Bíll til sölu. Volvo 144 árgerð
1974. Upplýsingar [ slma 24543.
Til sölu Mazda 323 þrennra dyra
árgerð 1981, ekin 15 þúsund km.
Upþlýsingar i síma 21155.
Félagslíf
VÍMA. Fundur félagsins verður
haldinn á fyrirfram ákveðnum stað
þann 9. ágúst kl. 10.30. Félagar 8
og 9 sjá um veitingar. „Flug 9 g“
MESSUR
Akureyrarprestakall: Messað
verður í Akureyrarkirkju nk.
sunnudag kl. 11 f.h. Sálmar: 38 -
368- 187-353-524. B.S.
Messað verður á dvalarheimilinu
Hlíð kl. 4 e.h. B.S.
Glerárprcstakall: Kvöldguð-
þjónusta í Lögmannshlíðarkirkju
sunnudagskvöld 8. ágúst kl.
20.30. P.M.
SÁMKOMUR
Fíladelfía, Lundargötu 12:
Fimmtudagur 5. ágúst, samkoma
fellur niður. Sunnudagur 8.
ágúst, safnaðarsamkoma kl.
16.00, almenn samkoma kl.
20.30, ræðum. Jóhann Páls-
son og fleiri. Fórn tekin fyrir
kirkjubygginguna. Allir cru
hjartanlega velkomnir. Fíladel-
fía, Lundargötu 12.
Hjálpræðisherinn, Hvannavöll-
um 10: Sunnudaginn 8. ágúst kl.
20.30, almenn samkoma. Kapt-
einarnir Jósteinn Nielsen og
Magna Váje Nielsen stjórna og
tala. Allir velkomnir.
ATHUGIÐ
Verð fjarverandi frá 9. ágúst til
29. ágúst. Séra Þórhallur Hösk-
uldsson annast þjónustu fyrir mig
þennan tíma. Sími hans er 24016.
Birgir Snæbjörnsson.
Vantar röska unglinga um tíma til
innheimtustarfa. Upplýsingar í
síma 22919 milli kl. 6-7 e.h.
Áheit á Munkaþverárklaustur-
kirkju: Frá Brynju kr. 100, Ólínu
kr. 200, Alex kr. 100, Ingu kr.
200, Helgu kr. 100, Guðrúnu
Valgerði kr. 300, GFAT kr. 250,
Katrínu kr. 100, Hrund kr. 500,
GVÁ kr. 300, SKTG kr. 500, NN
kr. 100, frá ónefndum kr. 1000 og
200. Innilegar þakkir, Bjartmar
Kristjánsson.
Gjafir: Til Akureyrarkirkju kr.
442.35 ágóði af hlutaveltu sem
Hrund, Petrea, Hulda, Soffía og
Gunnþóra héldu. Til Stranda-
kirkju kr. 130 frá NN. Bestu
þakkir, Birgir Snæbjörnsson.
Héraðsfundur: Prófastur sr. Stef-
án Snævarr tilkynnir: Héraðs-
fundur Eyjafjarðarprófastsdæmis
er fyrirhugaður 5. september nk.
á Siglufirði. Féhirðar sóknar-
nefndar, sem enn hafa ekki skilað
reikningum ársins 1981, eru
áminntir um að senda reikning-
ana sem allra fyrst til prófasts.
Þakkir: Félög innan sambands
norðlenskra kvenna hafa unnið að
því á sl. ári að safna fé í bygging-
arsjóð MLFA. Söfnunarféð hefur
verið afhent og nemur það sam-
tals kr. 35.970. Einnighefur verið
mótt. gjöf frá Lionskl. Vitaðs-
gjafa kr. 5.000. Fyrir þessar góðu
gjafir sendir félagið kærar þakkir
og biður öllum velfarnaðar er lagt
hafa hönd á plóginn. Stjórn
NLFA.
Ferðafélag Akureyrar minnir á
cftirtaldar ferðir:
Hveradalir - Þjófadalir - Kerl-
ingarfjöll: 14.-16. ágúst (3
dagar). Ökuferð með léttum
gönguferðum. Gist á Hveravöll-
um báðar næturnar f húsi.
Norður fyrir Hofsjökul: 20.-22.
ágúst (3 dagar). Ekið til Hvera-
valla, þaðan yfir Blöndu, síðan
norðan Hofsjökuls um Ásbjarn-
arvötn í Ingólfsskála. Gist t'
húsum.
Fjörður: 28.-29. ágúst (2 dagar).
Hvalvatnsfjörður - Þorgeirs-
fjörður. Öku- og gönguferð. Gist
í tjöldum.
Laugafell: 4.-5. sept. (2 dagar).
Róleg ökuferð þar sem gefst kost-
ur á léttum gönguferðum. Gist í
húsi.
Hljóðaklettar - Hólmatungur -
Forvöð: 10.-12. sept. (2 dagar).
Róleg síðsumarsökuferð. Haust-
litir. Gist í húsi.
Flatey á Skjálfanda: 18. sept.
(dagsferð). Öku- og bátsferð.
Siglt frá Húsavík með landi út
með: Náttfaravíkum, Flateyjar-
dal og Fjörðum. Komið í Flatey
og eyjan skoðuð.
Herðubreiðarlindir - Askja: 24.-
26. sept. (2 dagar). Haustferð.
Gist í Þorsteinsskála.
Skrifstofa félagsins er að Skipa-
götu 12, sími 22720. Skrifstofan
er opin frá kl. 17-18.30 alla virka
daga. Símsvari er kominn á skrif-
stofu félagsins er veitir upplýsing-
ar um næstu ferðir.
Þiónusta
Nýjung hjá Norðurmynd. Opið í
hádeginu. Passamyndir afgreiddar
strax. Seljum myndaramma, yfir 20
gerðir í flestum stærðum. Norður-
mynd, Glerárgötu 20, sími 22807.
Norðlendingar. Gistið þægilega
og ódýrt þegar þið ferðist um Vest-
firði. Svefnpokagisting í 2-4 manna
herbergjum, búnum húsgögnum.
Eldhús með áhöldum, heitt og kalt
vatn, setustofa. Einnig tilvalið fyrir
hópferðir. Vinsamlegast pantið
með fyrirvara ef hægt er. Söluskáli
á staðnum. Verið velkomin.
Bær, Reykhólasveit. Símstöð
Króksfjarðarnes.
Það er alltaf opið hjá okkur.
Hreingerningar - Teppahreins-
un. Tökum að okkur teppahreins-
un, hreingerningar og húsgagna-
hreinsun, með nýjum fullkomnum
tækjum. Gerum föst verðtilboð ef
óskað er. Uppl. í síma 21719.
Vanir smiðir
óskast strax. Mikil vinna framundan.
Yrhf. sími 22152.
DAGUR
Smáauglýsingar
| S 96-24222.
SAMBANO ÍSLENZKRA SAMVINNUFÍLAGA i
leild - Akureyri
Handprjónakonur
Hættum að taka á móti lituðum lopapeysum frá
og með 15. ágúst.
Iðnaðardeild Sambandsins.
».. ;
Glerárgata 28 Pósthólf 606 Sími (96)21900
Eiginmaður minn og faðir okkar,
ÞORGEIR PÁLSSON,
bókari,
Fjólugötu 12, Akureyri,
lést í Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri þriðjudaginn 3. ágúst.
F.h. vandamanna.
Ólöf Sigríður Sigurðardóttir.
Mágur minn,
GUNNAR EINARSSON,
vistmaður á Dvalarheimilinu Skjaldarvfk,
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri 31. júlí sl. Útförin
fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 6. ágúst kl. 4 sd.
Fyrir hönd aðstandenda.
Einar Malmquist.
Faðir okkar og tengdafaðir,
JÓN ANDRÉSSON,
Höfða, Áshlíð 1, Akureyri,
andaðist í Dvalarheimilinu Skjaldarvík, föstudaginn 30. júlí. Út-
förin fer fram frá Akureyrarkirkju föstudaginn 6. ágúst kl. 13.30.
Jarðsett verður að Lögmannshlíð.
Herbert Jónsson, Auður Stefánsdóttir,
Páll H. Jónsson, Kristin Sveinsdóttir.
6 - DAGUR - 5. ágúst 1982