Dagur - 05.08.1982, Page 8
HÖGGDEYFÁR
í FLESTA BÍLA
Hljómversmálið:
Pilturinn
látinn
laus
Pilturinn sem setið hefur í
gæsluvarðhaldi á Akureyri að
undanförnu, vegna Hljómvers-
málsins svokallaða, var látinn
laus um helgina er gæsluvarð-
haldstími hans rann út.
Að sögn lögreglunnar á Akur-
eyri er lilutur hans í þessu máli tal-
inn fullrannsakaður en málið er
að öðru leyti öupplýst. Það nýj-
asta sem cr aö frétta varðandi
þetta mál er að fleiri hljómflutn-
ingstæki sem stolið var í Hljómveri
á sínum tíma fundust á Oddeyri,
og voru þau utandyra.
Verslunarmiðstöðin í Glerárhverfi.
Best
og
Arnór
með KA!
Það verður sannkallaður
stjörnufans á Akureyrarvellin-
um í kvöld er KA leikur þar
gegn hinum heimsþekktu leik-
mönnum Manchesther United.
Ekki bara það að United mæti
með alla sína bestu og frægustu
leikmenn, heldur leika þeir
George Best og Arnór Guð-
johnsen með KA.
Georg Best ætti að vera óþarfi að
kynna, svo frægur sem hann var, er
hann lék með Man. United. Hann
þótti algjört undrabarn í knatt-
spyrnunni og heillaði alla með
sinni mikiu knattleikni.
Arnór Guðjohnsen kemur
gagngert frá Belgíu til þess að
taka þátt í þessum leik. Arnþór er
orðinn geysilega þekktur leik-
maður í Belgíu og var einn besti
maður í knattspyrnunni þar á st'ð-
asta keppnistímabili.
Áður en leikurinn í kvöld hefst
kl. 20 munu fallhlífastökkvarar
koma af himnum ofan með bolt-
ann sem leikið verður með, og í
hálfleik skemmta Graham Smith
fiðluleikari og Jónas Þórir orgel-
leikari. Sjánánar um leikinnábls.
5.
Verslunarmiðstöðin í Glerárhverfi:
Opnað í október
Eldur
F | A ■
ihusi
Eldur kom upp í húsinu Norður-
götu 33 sl. laugardagsmorgun.
Eldur var þar í vegg við rafmagns-
töflu og gekk fljótlega að ráða
niðurlögum hans. Skemmdir urðu
því ekki miklar af eldinum, en
nokkrar af reyk. Talið er að
kviknað hafi í út frá rafmagns-
kyndingu.
Ljóst liggur fyrir að nýja versl-
unarmiöstöðin sem er að rísa í
Glerárþorpi mun ekki verða
tekin í gagnið þann 1. septem-
ber eins og áætlun hljóðaði upp
á. Ekki er reiknað með því að
hún verði opnuð fyrr en seinni
hlutann í október eða í byrjun
nóvember.
Frestun á því að taka verslun-
armiðstöðina í gagnið hefur
nokkuð oft orðið og er verkið því
orðið langt á eftir upphaflegri
áætlun.
Nú eru þeir aðilar sem koma til
með að hafa verslanir í húsinu
teknir við framkvæmdum, hver í
sínu húsnæði, samkvæmt samn-
ingi. Byggingaverktakinn, Smári
hf., hefur hinsvegar á sinni könnu
fullnaðarfrágang á sameiginlegu
húsnæði og frágangi að utan.
Frágangur á lóð er sameiginlega í
höndum eigenda.
Alls er í húsinu rými fyrir 22
verslunaraðila, en heildargólfflöt-
ur hússins er um 4600 fermetrar.
Mikill arfi
og léleg
Hrísey:
Ekkert vatn úr
nýjustu holunni
spretta
„Það hefur verið ágætis tíð upp
á síðkastið, ekki hægt að neita
því, en spretta er mjög léleg og
liér er geysimikill arfi, einkum
á Langancsi og í austanverðum
Þistilfirði. Arfinn er einkum
þar sem kól í vor og sumir telja
að hann sé um 50% túnanna og
allt upp í 90%,“ sagði Óli Hall-
dórsson, bóndi á Gunnarsstöð-
um í Þistilfirði og fréttaritari
Dags.
„Spurningin er hvort mcnn
hirða arfann eða heyja ekki neitt.
Arfinn er afbragðsfóður og kýrn-
ar eru aldrei hraustari en þegar
þær éta liann. Hins vegar verður
mjög litið úr honum, bæði þegar
hann cr votverkaður og þur-
rkaður.
Heyfengur er langt undir með-
allagi, en við erum ekki óvanir
því, því þetta er fjórða slæma árið
í röð. Gjarnan er miðað við árið
1978 og heyfengur núna er ekki
nema um 50% þess sem hann var
þá. Ennþá er reyndar að spretta
og menn eru misjafnlega langt
komnir, sumir búnir en aðrir ekki
búnir að heyja nema þriðjung.
Margir eru auk þess með græn-
fóður, þannig að ekki er útséð
með niðurstöðuna ennþá.
En það er ekkert vol í
mönnum, enda ýmsu vanir hér
um slóðir og við myndum örugg-
lega búa vel í Eyjafirði þar sem
landgæði eru meiri," sagði Óli á
Gunnarsstöðum að lokum.
Hrísey 24. júlí
Enn hefur ekkert vatn komið
úr holu þeirri sem verið er að
bora fyrir hitaveitu Hríseyjar.
Holan er orðin 790 metra djúp
og hitinn í henni mælist 85,5
gráður. En ekkert vatn. Reikn-
að er með að vatn verði að
finna á um 950 metra dýpi.
Snæfellið landaði í Hrísey þann
15. júlí 110 tonnum - þar af mest
þorskur. Aðalvík, togari frá
Keflavík landaði 150 tonnum
þann 19. og á föstudaginn kom
Snæfellið með 140 tonn - mest
grálúðu. Mjög tregt hefur verið
hjá smábátunum í allt sumar og
eru þeir langt undir þeim afla sem
fékkst í fyrra.
Þá voru Hríseyingar að fá möl.
Var henni dælt úr landi Syðri-
Bakka í Arnaneshreppi og var
dælt 6000 rúmmetrum. Hrísey-
ingar voru orðnir gjörsamlega
malarlausir og voru farnar að tefj-
ast hjá þeim framkvæmdir af þeim
sökum. Verið er að byggja sex
íbúðir á vegum verkamanna-
bústaðanefndar, Stuðlafell sér um
bygginguna. Voru alls byggðar 8
íbúðir, tveim var skilað í vor.
Áætlaður afhendingatími þeirra
sem í byggingu eru, er í mars. Þá
er Björgvin Pálsson að byggja eitt
parhús - tvær íbúðir.
Vegagerðin vinnur nú mjög
gott verk, þar sem standa yfir
framkvæmdir við Sýsluveginn.
• Blásiðað
glæðum
óvildar
I grein sem Gunnar Stefáns-
son, fyrrum útvarpsþulur og
starfsmaður á dagskrárdeild
Ríkisútvarpsins skrifar i
Tímann nýlega vekur hann
máls á þeirri furðulegu fram-
komu útvarpsráðsmannsins,
þingmannsins og eins eig-
anda Vídeósóns, Ellerts B.
Schram, að taka þátt í að
brjóta lög á útvarpinu með því
að láta myndbandakerfi sitt
sýna leiki úr heimsmeistara-
keppninni í knattspyrnu þrátt
fyrir að Ríkisútvarpið hefði
keypt einkarétt á flutningi
þessa efnis. Gunnar segir:
„Það hefur ekki farið fram
hjá neinum að blað Ellerts
Schram útvarpsráðsmanns
er andsnúið Ríkisútvarpinu.
Dag eftir dag birta starfsmenn
þess og dálkahöfundar
óhróður um stofnunina.
Fjaðrafokið vegna knatt-
spyrnunnar var feginsfengur
þessu blaði til að blása að
glæðum óvildar og búa þann-
ig i haginn fyrir þá sem bíða
málþola eftir að geta gert sér
„frjálsa fjölmiðlun" að gróða-
lind, en þar munu eiga hlut að
menn sem nátengdir eru
þessu dagblaði.“
# Aðníðast
á því
„Það er pólitískt álitamál
hvort ríkið skuli hafa einkarétt
á útvarpi eða sjónvarpi eða
hvort láta á gróðahákörlum
eftir að sinna þeirri starfsemi
og leyfa þeim um leið að grafa
undan Ríkisútvarpinu fjár-
hagslega, sem óhjákvæmi-
lega fylgdi skerðingu á einka-
rétti þess. Slík mál var ekki
ætlun mín að ræða nú. Ég vil
aðeins vekja athygli á þeim
ódæmum að þingkjörinn út-
varpsráðsmaður hefur geng-
ið fram fyrír skjöldu til að
brjóta lög á Ríkisútvarpinu.
Slíkt hefði einhvern tíma ver-
ið kallað að níðast á því sem
manni er til trúað.
Ég trúi því ekki að mönnum
finnist almennt slíkt f ramferði
sem þessi útvarpsráðsmaður
hefur í frammi sæmandi. Ég
trúi því ekki fyrr en ég tek á að
siðferðisblinda Ellerts
Schram sé slík að hann sjái
ekki að áframhaldandi seta
hans í útvarpsráði er allt í
senn: Gróf móðgun við Ríkis-
útvarpið og forráðamenn
þess, storkun við heilbrigða
réttarvitund almennings og
óvirðing við Alþingi sem fól
honum forsjá þessarar stofn-
unar.“
í grein sinni segir Gunnar
Stefánsson ennfremur, að
síðustu daga hafi hann beðið
eftir tilkynningu um afsögn
Ellerts B. Schram úr útvarps-
ráði.