Dagur - 10.08.1982, Qupperneq 1
MIKIÐ
ÚRVAL AF
SKARTGRIPi
SKRÍNUM
GULLSMIÐIR
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREVRI
65. árgangur
íþrótta-
húsið
í notkun
í haust
Framkvæmdir við nýja íþrótta-
húsið á Akureyri eru nú í full-
um gangi, enda mun vera
ákveðið að taka húsið í notkun í
haust fyrir íþróttakennslu.
Áformað er að nemendur
Menntaskólans og Barnaskóla
Akureyrar sæki kennslu í hús-
inu.
Að sögn Harðar Tuliniusar hjá
Híbýli hf. sem er verktaki að
byggingu hússins, er þessa dagana
unnið við múrverk í húsinu, og
einnig er unnið að uppsetningu á
loftræstikerfi, hitakerfi, við tré-
verk og við málningarvinnu.
Gólfið í sal hússins mun verða
sett niður í lok ágúst eða í sept-
ember, og sem fyrr sagði er stefnt
að því að húsið verði tilbúið til
kennslu í haust. Hinsvegar er ekki
vitað hvort kappleikir sem undan-
farin ár hafa farið fram í íþrótta-
skemmunni á Oddeyri munu flytj-
ast í nýja húsið bæsta vetur.
Nýja húsið er sérlega glæsileg
bygging. Það mun leysa brýna
þörf varðandi húsnæði fyrir
íþróttakennslu á Akureyri og vit-
að er að íþróttamenn bíða spennt-
ir þess dags er þeir geta hafið æf-
ingar og mætt til keppni í hinni
glæsilegu byggingu.
Útimarkaður
á Akureyri?
Kaupmannafélag Akureyrar
hefur sótt um leyft til að reka
útimarkað á miðbæjarsvæð-
inu, fyrir meðlimi félagsins.
Bæjarráð hefur falið bæjar-
lögmanni, bæjarverkfræðingi og
skipulagsstjóra að ræða við full-
trúa kaupmannafélagsins og
Kaupfélags Eyfirðinga um fyrir-
komulag hugsanlegs útimarkað-
ar.
Akureyri, þriðjudagur 10. ágúst 1982
85. tölublað
Byggingariðnaður á Akureyri:
Nær engar opinberar bygg-
ingarframkvæmdir í vetur
Atvinnumálanefnd Akureyrar
hélt á föstudag fund með þing-
mönnum kjördæmisins, bæjar-
stjóra og fulltrúum byggingar-
manna þar sem rædd voru
vandamál byggingariðnaðarins
á Akureyri.
Að sögn Jóns Sigurðarsonar,
formanns nefndarinnar, var þing-
mönnum gerð grein fyrir athugun
atvinnumálanefndar á stöðu opin-
berra byggingaframkvæmda á
Akureyri, en í ljós kom að af 130
sem við þær starfa verða um 100
manns verkefnalausir upp úr
miðjum október og um áramótin
verða ekki nema 15-20 manns í
opinberum byggingaframkvæmd-
um. Ýmist stafar þetta af verklok-
um eða fjárþurrð til fram-
kvæmda.
Algjör samstaða varð um það á
fundinum að leita sem fyrst ein-
hverra bráðabirgðalausna á þess-
um vanda. Atvinnumálanefndin
mun gera nákvæma úttekt á stöðu
opinberra framkvæmda í bænum
og gera tillögur um það hvernig
aukið fjármagn nýtist best til að
skapa atvinnu. Nefnd tveggja al-
þingismanna og tveggja manna úr
atvinnumálanefndinni mun síðan
fara á fund ríkisstjórnarinnar með
tillögur og til að „herja út fé“ til
áframhaldandi opinberra bygg-
ingaframkvæmda, eins og Jón
Sigurðarson komst að orði. Svo
miklu fé er nú varið til opinberra
byggingaframkvæmda í Reykja-
vík að vart hefst undan og telja
menn að skipting fjárins gæti ver-
ið með öðrum hætti.
A fundinum voru einnig um-
ræður um atvinnumál almennt, en
menn voru sammála um að
vandamál byggingariðnaðarins
yrðu ekki leyst með opinberum
framkvæmdum einum saman.
Við fískverkun í Hrísey.
Ljósm. H.Sv.
Bændur illa
staddir
fjárhagslega
„Ástæðan er fyrst og fremst
fjárhagsleg. Landbúnaðurinn
skilar ekki nógu miklu af sér til
að standa undir nýjum bygging-
um,“ sagði Þorgrímur Sigurðs-
son bóndi á Skógum II í
Reykjahreppi S.-Þingeyjar-
sýsíu, en fyrir skömmu auglýsti
hann jörð sína til sölu.
„Svo er einnig um það að ræða,
að sauðfjárbúskapur hefur dregist
aftur úr kúabúskap hvað tekjur
varðar." Þorgrímur er með um
360 fjár.
Hvað væri til úrbóta, sagði Þor-
grímur að sér þætti helst tvennt
koma til greina. í fyrsta lagi að
létta greiðslubyrðina með því að
lengja lánstímann, og í öðru lagi
þyrfti að koma á verðjöfnunar-
gjaldi milli bænda.
Þorgrímur sagði að það væri
töluverður hópur bænda sem væri
orðinn illa staddur fjárhagslega,
þótt ekki hefðu allir gripið til
sömu ráða og hann. „En okkur
líkar vel, og höfum enga löngun
til að hætta.“
Akureyri:
Föst starfsemi útvarpsins
hefst á laugardaginn
Næstkomandi laugardag
klukkan 13.30 hefst í útvarpinu
dagskrá í tilefni þess að nú er að
hefjast föst starfsemi ríkis-
útvarpsins á Norðurlandi með
föstu starfsliði. Dagskráin
stendur til klukkan 15 og um
eða yfir 20 manns taka þátt f
henni sem ýmist unnu að gerð
hennar eða koma þar fram.
Umsjónarmaður þessarar dag-
skrár er Jónas Jónasson.
„Dagskráin er sett saman í svip-
uðum anda og gert er ráð fyrir að
þessi starfsemi verði rekin. í
henni kemur fram fólk frá
Blönduósi, Sauðárkróki, Húsa-
vík, Raufarhöfn og Akureyri.
Þarna verður söngur, hljóðfæra-
leikur, leiklist, upplestur og
menntamálaráðherra og út-
varpsstjóri munu flytja ávörp,
auk þess sem viðtal verður við
Hjört Pálsson, dagskrárstjóra,
um þau nýju viðhorf sem skapast
við þann árangur sem við eygjum
nú brátt. Samtals koma fram um
eða yfir 20 manns," sagði Jónas
Jónasson í viðtali við Dag.
Fyrst um sinn verður starfsemi
útvarpsins á Ákureyri, sem nær
yfir allt Norðurland, rekin í gamla
hljóðhúsinu við Norðurgötu, en
útvarpið hefur keypt húsið Fjöln-
isgötu 3a, þar sem nú er trésmíða-
verkstæðið Pan.
„Það þarf að gera talsverðar
breytingar á húsinu svo það henti
þessari starfsemi og búið er að
fara fram á að fá að gera nauð-
synlegar breytingar við byggingar-
yfirvöld á Akureyri. M.a. þarf að
hækka þak hússins að hluta og
byggja litla vélageymslu, einkum
fyrir loftræstikerfið.
Menn gera sér vonir um að
hægt verði að taka húsið allt í
notkun seint á næsta ári, en hugs-
anlegt er að taka það í notkun í
áföngum. Það er fullur hugur
meðal ráðamanna útvarpsins að
drífa í þessu, enda stendur það
húsnæði sem nú er unnið í allri
meiriháttar starfsemi fyrir
þrifurn," sagði Jónas Jónasson.
Gert er ráð fyrir að bæði hljóð-
varp og sjónvarp fái aðstöðu í
þessu nýja útvarpshúsi á Akureyri
og að þar verði m.a. hægt að gera
sjónvarpsþætti.