Dagur - 10.08.1982, Page 9
„Fórum of
seint í gang“
„Við fórum ekki almennilega
í gang fyrr en staðan var orðin
þrjú mörk gegn engu fyrir
IBK,“ sagði Órlygur Ivarsson
liðsstjóri KA, eftir að KA
hafði tapað fyrir Keflavík með
þremur mörkum gegn tveim-
ur á laugardaginn.
Pað var Gunnar Gíslason sem
skoraði fyrra .markið en nýliði
Steingrímur Birgisson sem skor-
aði það síðara og lagði einnig
fyrra markið upp. Steingrímur
lék nú sinn fyrsta leik í deildinni
og skoraði strax mark.
Keflavík skoraði fyrsta mark-
ið rétt fyrir lok fyrri hálfleiks, en
á þeim mínútum höfum við
fengið á okkur flest mörkin
sagði Örlygur. Peir bættu síðan
tveimur við í viðbót áður en KA
fór að skora. Síðara markið sem
KA gerði kom á 30. mín. síðari
hálfleiks, en það sem eftir var
leiksins sótti KA nær stanslaust.
Þarna töpuðust dýrmæt stig í
hinni erfiðu stöðu deildarinnar.
Jafnt hjá
þeim „gömlu“
Það var hörkuleikur í öld-
ungakeppninni svokölluðu í
knattspyrnu, en þar leika leik-
menn 30 ára og eldri.
A spegilsléttum grasvellin-
um á Akureyri mættust efstu
liðin í sínum riðli Víkingar og
ÍBA.
Þetta var skemmtilegur leikur
þótt greinilegt væri að flestir
leikmenn hafa ýmsu tapað niður
síðan þeir léku í fyrstu deildinni.
Á 16. mín. bjargaði Ragnar
Þorvaldsson ÍBA-markinu með
góðu úthlaupi. Á 24. mín. kom
fyrsta markið. Þá fékk Benedikt
Guðmundsson (Baddi Guð-
munds) stungubolta inn fyrir
Víkingsvörnina og hljóp hann af
sér Víkingana, enda þó nokkuð
léttari en þeir, og renndi síðan
boltanum laglega fram hjá Dið-
rik í Víkingsmarkinu. Nokkrum
mín. sðar voru varnarmenn ÍBA
heldur aðgangsharðir við fram-
herja Víkings og var einn þeirra
gróflega felldur innan vítateigs.
Víti var dæmt á ÍBA sem Kári
Kaaber skoraði örugglega úr.
Þannig var staðan í hálfleik
eitt mark gegn einu.
í hálfleik kom inn á hjá ÍBA
Sigbjörn Gunnarsson fyrir Bald-
vin Ólafsson, og strax fór Sig-
björn að sýna gamla takta. Strax
á 2. mín björguðu Víkingar á línu
eftir að hann hafði leikið í gegn
um vörn þeirra og síðan skotið á
markið. Framlínan frískaðist
mikið við tilkomu Sigbjörns, og
sérstaklega náðu hann og Stein-
þór Þórarinsson vel saman enda
alvanir samherjar.
Á 15. mín endaði góður sam-
leikur Bjössa og Steina með
fyrirgjöf frá Steina og þar kom
Árni Gunnarsson og skallaði í
markið óverjandi fyrir Diðrik.
Þremur mín. síðar jöfnuðu
Víkingar eftir varnarmistök hjá
ÍBA, og aftur var þar á ferðinni
Kári Kaaber.
Fleiri voru ekki mörkin í þess-
um leik, og því ennþá alls óvíst
hvort liðið sigrar riðilinn.
Það tókst hjá
Völsungum
Völsungar voru fyrsta liðið í
annarri deild til að sigra Þrótt
á þessu keppnistímabili. Völs-
ungar léku nú einn sinn besta
leik á keppnistímabilinu og
var sigur þeirra aldrei í hættu.
Fyrra markið kom á 23. mín.
en það gerð Kristján Krist-
jánsson fyrrum leikmaður hjá
Haukum. Síðara markið kom
síðan um miðjan síðari hálf-
leik en það gerði Hörður Ben-
ónýsson en mjög vel var að
báðum mörkum staðið.
Þróttarar sem ennþá eru á
toppi deildarinnar töpuðu nú
sínum fyrsta leik eins og áður
segir, en þeir verða nú að fara að
passa sig því allt getur ennþá
gerst í deildinni. Völsungar sem
á tímabili voru komnir í fall-
hættu eru nú komnir í toppbar-
áttu, og ætla ekkert að gefa eftir
þar.
Ekki er sopið kálið . . . ÞÓtt markverði FH tækist ekki að verja skot Hafþórs sluppu FH-ingar með skrekkinn
þar eð boltinn sigldi framhjá marki. Ljósmynd: KG A.
Ekkert skorað
Þórsarar fengu að kynnast því
á föstudagskvöldið að það er
ekki nægjanlegt að eiga mest-
allan leikinn, eins og kallað
er, en skora ekki mörk. Það er
nú einu sinni þannig með
þennan blessaðan fótbolta, að
í leikslok eru mörkin talin, og
það lið sem skorað hefur fleiri
mörk sigrar, hvort heldur sem
þeir hafa átt eitthvað í leikn-
um eða ekki. Þór lék gegn FH
hér á Akureyrarvelli í topp-
baráttu annarrar deildar, en
hvorugt liðið skoraði mark
þannig að eitt stig kom í hlut
hvors liðs. Eitt stig er betra en
ekkert sagði einn vallar-
gesta í leikslok, og er íþrótta-
fréttaritari sammála því.
Hafþór var í miklum ham sér-
staklega í fyrri hálfleiknum og
komst oft í góð fa^ri. Á 8. mín.
lék hann laglega upp hægri
kantinn, lék á bakvörðinn, en
skaut síðan framhjá.
Á 14. mín. léku Hafþór og
Bjarni vel saman sem endaði
með skoti frá Hafþóri, en vel
varið hjá markmanni FH.
Aðeins þremur mín. síðar
áttu Hafþór og Guðmundur
Skarphéðinsson góða rispu í
gegn um FH vörnina, en þá var
skotið framhjá.
Á 18. mín. kom fyrsta hættan
við Þórsmarkið, en þar myndað-
ist þá mikil þvaga. Eiríki hafði
mistekist að handsama boltann,
en FH-ingur skaut yfir úr dauða-
færi og bægði þá um leið hætt-
unni frá. A 22. mín. átti Pálmi
Jónsson gott skot að Þórsmark-
inu en framhjá.
Á 25. mín. lék Bjarni Svein-
björnsson á flesta varnarmenn
FH og komst í dauðafæri en
skaut í fangið á markmanninum.
Stuttu síðar skaut Guðjón
framhjá úr góðu færi. Hann
skallaði að markinu skömmu
síðar eftir hornspyrnu, en FH-
ingur varði á línu.
Síðari hálfleikur var nokkuð
jafnari, og áttu bæði lið góða
möguleika á að skora, en alltaf
gekk illa upp við markið. Þórs-
arar voru þó aðgangsharðari, en
landsliðsmaðurinn Viðar Hall-
dórsson var allt í öllu hjá FH,
fremsti maður í sókn og aftasti í
vörn ef svo bar undir.
Þrátt fyrir það að ekkert mark
væri skorað í þessum leik, var
leikurinn skemmtilegur og oft á
tíðum ágætlega leikinn. Bæði
þessi lið eru í toppbaráttu deild-
arinnar og eitt stig til eða frá get-
ur þýtt sigur eða tap í þessari
baráttu. Það er því ekki ein-
kennilegt að leikið sé upp á að
halda því stigi sem liðið hefur
þegar leikurinn hefst. Hjá FH
voru þeir Viðar Halldórsson og
Pálmi Jónsson bestu menn, en
hjá Þór áttu flestir ágætan leik,
en ekki sakar að geta ágætrar
frammistöðu Magnúsar Helga-
sonar og Bjarna Sveinbjörns-
sonar, en Bjarni er tvímælalaust
einn besti leikmaður deildarinn-
ar.
KEA-golf á Ólafsfi rði
Opna KEA-mótið í golfi var
haldið á velli Golfklúbbs Ól-
afsfjarðar um helgina. Þar
mættu 40 kylfingar víðsvegar
að til keppni, en leikið var á
laugardag og sunnudag, alls
36 holur með og án forgjafar.
Kristján Hjálmarsson sigraði
tvöfalt í meistaraflokki karla, og
það gerðu einnig þau Inga
Magnúsdóttir í kvennaflokkn-
um og Kristján Gylfason í ung-
lingaflokki. Annars urðu efstu
menn sem hér segir:
Karlar án forgjafar:
Kristján Hjálmarsson GH 148
Jón Halldórsson GÓ 161
Jón Steinbergsson GA 165
Axel Reynisson GH 165
(Jón sigraði í aukakeppni um 3.
sætið).
með forgjöf:
Kristján Hjálmarsson GH 136
Sverrir Valgarðsson GSS 138
Haukur Hilmarsson GÓ 143
Konur án forgjafar:
Inga Magnúsdóttir GA 162
Rósa Pálsdóttir GA 237
Ása Bjarnadóttir GÓ 261
með forgjöf:
Inga Magnúsdóttir GA 136
Rósa Pálsdóttir GA 237
Ása Bjarnadóttir GÓ 203
(Ása var að taka þátt í sínu fyrsta
golfmóti og mun auk þess vera
fyrsta konan sem spilar golf í
keppni).
Unglingar án forgjafar:
Kristján Gylfason GA 169
Ólafur Þorbergsson GA 172
Ólafur Sæmundsson GA 174
með forgjöf:
Kristján Gylfason GA . 121
Ólafur Þorbergsson GA 126
Ólafur Sæmundsson GA 140
KEA gaf mjög vegleg verð-
laun sem afhent voru í mótslok.
Þar afhenti TAK hf. á Akureyri
einnig aukaverðlaun. Hörður
Steinbergsson GA hlaut verð-
laun fyrir að hafa verið næstur
holu í upphafshöggi á 8. braut
fyrri dag keppninnar, 1.25 m og
fyrir fæst pútt síðari daginn.
Olafur Þorbergsson GA var
næstur holu á 8. braut síðari
keppnisdaginn og Sverrir Val-
garðsson GSS notaði fæst pútt
allra fyrri keppnisdaginn. Þessi
aukaverðlaun voru Lyle og Scott
golfpeysur og John Letters
golfkylfur en TAK hf. er um-
boðsaðili fyrir þessi fyrirtæki á
íslandi.
10. ágúst 1982 - DAGUR - 9