Dagur - 24.08.1982, Page 8
Motocross keppni
verður 28. ágúst kl. 14 á Akureyri í
bæjargrúsunum á landssvæði B.A.
Þetta er fyrsta Motocross keppnin sem
haldin hefur verið á Akureyri og er
mikil þátttaka frá Reykjavík.
Komið og sjáið spennandi ÍÞRÓTT
sem er að hefja innreið sína fyrir alvöru
til íslands. Sem kunnugt er, er þessi
íþrótt mjög vinsæl í Evrópu og á flest-
um stöðum í heiminum.
Mætum öll og njótum
góðrar skemmtunar.
B.A.
Blaðabingó
3 glæsilegir vinningar:
Gönguskíðaútbúnaður, reiðhjól
og aðalvinningurinn er SHARP-
VHS videótæki.
KA-menn munu næstu daga bjóða bingóspjöldin
og síðan verða þau til sölu í Cesar, Sporthúsinu,
Shellstöðinni við Mýrarveg og í Veganesti.
Töiur munu birtast hér á síðunni næstu
fimmtudaga, fyrst 2. september.
Verum öll með
Lögtaksúrskurður
Hér með úrskurðast, að lögtök geti farið fram fyrir van-
goldnum þinggjöldum skv. þinggjaldaseðli 1982, erféllu í
eindaga hinn 15. þ.m. og eftirtöldum gjöldum álögðum eða
áföllnum 1982 á Akureyri, Dalvík og í Eyjafjarðarsýslu.
Gjöldin eru þessi: tekjuskattur, eignarskattur, kirkjugjald,
kirkjugarðsgjald, slysatryggingagjald v/heimilisstarfa, iðn-
lánasjóðs- og iðnaðarmálagjald, slysatryggingargjald
atvinnurekenda skv. 36. gr. laga nr. 67/1971, lífeyristrygg-
ingagjald skv. 25. gr. sömu laga, atvinnuleysistrygginga-
gjald, launaskattur, sjúkratryggingagjald, gjald í fram-
kvæmdasjóð aldraðra, sérstakur skattur á skrifstofu- og
verslunarhúsnæði og vinnueftirlitsgjald. Ennfremur fyrir
skipaskoðunargjaldi, lesta- og vitagjaldi, bifreiðaskatti,
skoðunargjaldi bifreiða, slysatryggingagjaldi ökumanna,
þungaskatti skv. ökumælum dieselbifreiða febrúar, mars,
apríl og maí sl., söluskatti fyrir apríl maí og júní sl. og nýá-
lögðum hækkunum söluskatts eldri tímabila, skemmtana-
skatti og miðagjaldi, söluskatti af skemmtunum, sýslu-
vegaskatti skv. 23. gr. 1. nr. 6/1977, skipulagsgjaldi af ný-
byggingum, tryggingargjaldi af skipshöfnum ásamt skrán-
ingargjöldum, vörugjaldi af innl. framleiðslu, gjöldum af
innl. tollvörutegundum, aðflutningsgjöldum og útflutnings-
gjöldum, vélaeftiriitsgjaldi, matvælaeftiriitsgjaldi, gjaldi til
styrktarsjóðs fatlaðra, og til hvers konar gjaldahækkana.
Lögtök fyrir framangreindum gjöldum, ásamt dráttarvöxt-
um og kostnaði, verða látin fara fram að 8 dögum liðnum
frá birtingu þessarar auglýsingar, verði þau eigi að fullu
greidd innan þess tíma.
Bæjarfógetinn á Akureyri og Dalvík,
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu,
20. ágúst 1982.
8 - DAGUR - 24. ágýst 1982
Firmakeppni í
knattspyrnu
Knattspyrnuráð Akureyrar auglýsir eftir þátt-
töku í firmakeppni utanhúss 1982.
Þátttökurétt hafa öll fyrirtæki/starfshópar á Akureyri
og í nágrenni. Heimilt er fyrir tvo aðila að sameinast
um lið í keppnina, ef þeir vegna fámennis hafa ekki í
lið. Með þátttökutilkynningum skal fylgja nafnalisti yfir
þá leikmenn er þátt taka og er óheimilt að breyta þeim
lista eftir að keppnin er hafin. Þátttökurétt hafa þeir
starfsmenn er eru á launaskrá 1. september nk. og
skólafólk er starfað hefur í tvo mánuði í sumar, þó að-
eins að það hafi ekki hafið störf annars staðar. Hverju
liði er heimilt að nota leikmenn úr 1. og 2. deild, þó ekki
fleiri en tvo í leik. Með þátttökutilkynningum skal fylgja
staðfesting yfirmanns á því að þátttakendur uppfylli
ofangreind skilyrði til þátttöku.
Frestur til að skila inn þátttökutilkynningum
ásamt kr. 1.000,00 þátttökugjaldi er til 1. septem-
ber og skal því skilað til Ivars Sigurjónssonar,
Byggingarvöruverslun Tómasar Björnssonar á
verslunartíma eða til Marinós Viborg Marinós-
sonar.
K.R.A.
Vorum að taka upp
haustefnin
Khakyí
tískulitum
þykkri gerð
Tereline satin
í 11 litum
tilvalin í efnismikinn
fatnað og buxnadress
Þykk ullarefni
í slár og kápur
dtttílsauma
FNR. 8164-5760
Kemman
SKIPAGATA 14 B - SÍMI 96-23504
PÓSTHÓLF 84 - 602 AKUREYRI
Margur
á bílbeltf
líf að
launa
ll^ERDAR
Vegna breytinga á leiðakerfi SVA 1. septem-
ber er bæjarbúum bent á að athuga vel leiða-
bók SVA sem dreift verður dagana 28. og 29.
ágúst.
Leið 1: Norðurbrekka - Suðurbrekka - Innbær
Frá Ráðhústorgi 35 mín. yfir heilan tíma.
Ekki verður komið við á Ráðhústorgi áður en ekið er í
Innbæ og er farþegum bent á stoppistöð við kirkjutröpp-
ur í Kaupvangsstræti og við Drottningarbraut að vestan
móts við hús Hitaveitu Akureyrar.
Leið 2: Suðurbrekka - Norðurbrekka
Frá Ráðhústorgi 05 mín. yfir heilan tíma.
Leið 3: Oddeyri - Glerárhverfi
Frá Ráðhústorgi 05 mín. yfir heilan tíma.
Akstursleið í Glerárhverfi verður eftir sömu götum en
leiðin verður ekin réttsælis í stað rangsælis áður.
Leið 4: Glerárhverfi - Oddeyri
Fyrir kl. 12.00 er ekið frá Ráðhústorgi 35 mín. yfir heilan
tíma. Eftir kl. 12.00 er ekið frá Ráðhústorgi 25 mín. yfir
heilan tíma. Glerárhverfi verður ekið rangsælis eins og
áður.
Leið 5: Glerárhverfi
Leið 5 er aðeins ekin eftir kl. 12.00 og er ekki ekið um
Oddeyri.
Farið frá Ráðhústorgi 40 mín. yfir heilan tíma, sama
akstursleið og verið hefur um Glerárhverfi.
Farþegar sem ætla milli Glerárhverfis og
Brekku eða Innbæjar þurfa að skipta um
vagn á Ráðhústorgi og er þeim bent á að fá
skiptimiða hjá bifreiðarstjóra.
Nánari upplýsingar eru gefnar í síma 24929.
Forstöðumaður.